Ingibjörg Sædís er meistaranemi í þjóðfræði sem og hundaeigandi í Reykjavík, sem leggur til að mörlandinn eyði peningnum sínum í bólusetningargjafir til fátækra þjóða frekar en í flugeldakaup.
Ingibjörg ætla þó að styrkja björgunarsveit og verður framlagið í formi fjárstyrks.
Hún býr á höfuðborgarsvæðinu og á tvo hunda og staðreynd er að mörg dýr þola mjög illa hávaða frá rakettum og bombum um áramót; Ingibjörg er einfaldlega á móti flugeldasölu til almennings þótt það sé í göfugum tilgangi gert.

Henni finnst þarna farið illa með hreina loftið okkar Íslendinga sem og aurana sem fara í þessi kaup og hún er á þeirri skoðun að flugeldasýningar um áramót eigi einfaldlega að vera í höndum atvinnumanna en ekki almennings.
Óhætt er að halda því fram, allavega nokkuð óhætt, að hún sé í ört stækkandi hópi Íslendinga sem vilja frekar að flugeldasölu björgunarsveitanna verði einfaldlega alfarið hætt; að farnar verði aðrar leiðir til fjármögnunar björgunarsveitanna.

Ingibjörg vill og mun styrkja starf björgunarsveitar með framlagi í formi peninga; ætlar að leggja inn beint á reikning björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík, þeim mikla jarðskjálftabæ, sem varla má við mikið meiri látum um áramótin en raunin er nú.
Ingibjörg segir einfaldlega á Twitter-reikningi sínum þetta:
„Hvað með að kaupa Covid bólusetningar fyrir fólk í löndum þar sem lítið er búið að bólusetja í staðinn fyrir flugelda?“































Athugasemdir