Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Völvan 2022 sér Bjarna Ben á útleið – Áslaug Arna finnur ástina en því fylgja flækjur

Völvan 2022 sér Bjarna Ben á útleið – Áslaug Arna finnur ástina en því fylgja flækjur

Völva Mannlífs hefur rýnt í fram­tíð­ina. Hún sér fyrir breyt­ingar hjá for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Bjarni Bene­dikts­son stýrir fjár­mála­ráðu­neyt­inu af festu og öryggi. Hann er á réttum stað þar, þekkir starfið út og inn og er kom­inn með góða reynslu. Utan við starfið vill hann hins vegar sleppa fram af sér beisl­inu. Bjarni verður öfl­ugur í skemmt­ana­lífi á kom­andi ári. Hann er mik­ill sjar­mör, orð­hepp­inn og á afar auð­velt með að heilla sam­ferða­fólk sitt. Álag ráð­herra­emb­ætt­is­ins og þing­mennsk­unnar er farið að taka sinn toll. Ein birt­ing­ar­mynd þess hjá Bjarna er að hann finnur hjá sér aukna þörf til skemmt­ana – hann leitar uppi áhyggju­leysi og gleði. Honum mun því bregða æ oftar fyrir á djamm­inu, glað­beittum og örum.

Hann hefur mikla þörf fyrir að klæða af sér fjár­mála­ráð­herr­ann þegar úr vinn­unni er komið og hætta að vera við stjórn.

Bjarni klárar kjör­tíma­bilið en hættir svo þing­mennsku. Hann er far­inn að hugsa út og á árinu fer hann að skipu­leggja næstu skref. Ég sé sendi­herra­stöðu í kort­unum hjá honum – ein­hverja stöðu sem setið er um, vel stað­setta í „flott­ari kant­inum“.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra er öllu rólegri en Bjarni, kollegi hennar.

Hún drekkur app­el­sínu­djús og te í róleg­heitum. Katrín er mikil fjöl­skyldu­kona og heldur áfram að rækta þá hlið. Hún eyðir miklum tíma með börnum sínum. Katrín vill hafa skýran ramma heima fyrir og heldur fjöl­skyldu­lífi sínu utan við sviðs­ljósið.

Þetta verður gott ár fyrir hana, en ekki ár mik­illa umbreyt­inga eða spreng­inga. Hún mun upp­skera vel og vera vin­sæl. Katrín hefur algjör­lega helgað sig starf­inu og er mjög annt um að gera allt vel. Hún minnir um margt á „Elastic girl“ í ofur­hetju­mynd­inni „Incredibles“. Hún heldur öllu saman. Þetta á bæði við um starfið og heim­ilið. Hún er límið. Það verður mjög greini­legt á kom­andi kjör­tíma­bili – hún er sú sem getur lægt öld­urnar og sætt ólík sjón­ar­mið. Þetta hefur hún gert listi­lega hingað til og verður lítil breyt­ing þar á.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir er á áhuga­verðum kross­götum í lífi sínu. Það er ein­hver innri til­finn­inga­leg bylt­ing að eiga sér stað hjá henni. Á kom­andi tímum mun hún end­ur­skoða lífið og brjót­ast út úr kass­anum.

Áslaug finnur hjá sér ríka þörf til að upp­lifa og prófa nýja hluti sem hún hefur ekki gert áður.

Hún er í ein­hverju ást­ar­sam­bandi sem hún telur vera hið rétta fyrir sig, en það fylgja því flækjur sem reyn­ast henni erf­iðar.

Í sumar mun eitt­hvað breyt­ast innra með henni. Ef til vill áttar hún sig betur á til­finn­ingum sínum og hvað það er sem hún vill ekki í líf­inu. Hún mun í kjöl­farið segja skilið við núver­andi flækjur sem þjóna henni ekki og fólk sem heldur aftur af henni. Áslaug mun verða til­búin til að fórna öryggi, orð­spori og því sem hún þekkir til þess að upp­lifa nýja, óvænta hluti og frelsi í fram­hald­inu. Segja má að hún muni upp­götva sjálfa sig upp á nýtt. Hún mun finna fyrir auknu frelsi þegar kemur að ásta­málum og hún víkkar út sjón­deild­ar­hring­inn. Áslaug mun að end­ingu finna djúpa ástríðu og innra með henni mun kvikna ást­ar­bál þar sem hún hefði síst átt von á. Þetta mun svo hjálpa henni við að elska sjálfa sig á dýpri hátt.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son mun upp­lifa áhuga­verða og öfl­uga tíma á kom­andi ári. Mér sýn­ist verða ein­hver titr­ingur í hjóna­bandi hans og Ágústu Johnson. Þau eru stödd í ein­hverjum nýjum aðstæðum sem skapa spennu. Ef þau leyfa hlut­unum að ger­ast og vanda tjá­skiptin gætu þau orðið nán­ari fyrir vikið, þegar tíma­bilið er á enda. Þetta mun ekki verða áreynslu­laust, það hriktir aðeins í stoð­unum hjá þeim, en þetta er áhuga­vert vaxt­ar­skeið sem er mik­il­vægt. Passi þau vel upp á nánd­ina og kær­leik­ann sín á milli munu þau upp­skera ríku­lega, bæði sem hjón og ein­stak­lingar.

Guð­laugur Þór er að end­ur­upp­götva sjálfan sig og er staddur á nokk­urs konar tíma­mótum. Fólk mun bera aukna virð­ingu fyrir honum og setja hann á stall. Það er eins og hann muni kom­ast upp með fleiri hluti; eins og hann hafi drukkið dropa af heppni og það sem hann taki sér fyrir hendur í fram­hald­inu hafi ein­hvern veg­inn til­hneig­ingu til að ganga upp. Fólki mun þykja það gott sem hann gerir og geri hann mis­tök fær hann ágætis svig­rúm frá sam­fé­lag­inu og sam­ferða­fólki. Árið 2022 er mikið happaár fyrir Guðlaug og ár upp­sveiflu fyrir hann per­sónu­lega. Fólk mun sjá hann í nýju ljósi og hann öðl­ast meiri virð­ingu úr öllum áttum – ekki bara innan síns eigin flokks. Þetta ár verður ár upp­risu Guðlaugs Þórs.

Sigurður Ingi Jóhanns­son hugsar þetta kjör­tíma­bil sem sitt síð­asta, í það minnsta sem for­maður flokks­ins. Hann horfir til Lilju Daggar og Ásmundar Einars sem arf­taka sinna. Árið verður í sjálfu sér rólegt hjá Sigurði Inga og ekki mikla ólgu að sjá. Hann er sáttur og rólegur þar sem hann er og nýtur vin­sælda úr öllum áttum.

Svandís Svav­ars­dóttir mun standa sig vel í nýju ráðu­neyti og er að end­ingu mjög fegin að vera laus við álagið í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu. Hún mun vera Willum Þór innan handar í áskor­unum sem bíða hans sem arf­taka hennar. Svandís er orðin lang­þreytt eftir álagið í far­aldr­inum og mun taka sér eitt­hvert frí. Hún þarf á því að halda að vera með sínum nán­ustu, fá að vera til og finna ein­hverja innri ró. Hún hefur staðið sig vel á afar krefj­andi tímum og getur svo sann­ar­lega klappað sér á bakið. Sagan mun vera með henni í liði.

Mér sýn­ist Lilja Dögg Alfreðs­dóttir þurfa að fara var­lega og hugsa vel um sig á nýju ári. Það er þarna ein­hver hætta á kulnun og hún gæti lent í að bregð­ast ókvæða við gagn­rýni, sem svo elur af sér meiri gagn­rýni. Þetta er þó eitt­hvað sem hún getur komið í veg fyrir með því að hugsa vel um sjálfa sig og dreifa ábyrgð – Lilja er svo vön því að sjá um allt sjálf en hún er að læra að það er í lagi að biðja um aðstoð og treysta á annað fólk.

Ásmundur Einar Daðason nær góðri yfir­sýn sem skóla- og barna­mála­ráð­herra og verður áfram áber­andi vin­sæll. Honum tekst að greina á milli hvaða gagn­rýni hann þurfi að bregð­ast við með við­eig­andi breyt­ingum og hvaða gagn­rýni hann eigi að hunsa.

Aftur fer af stað umræða um niðr­andi orð­ræðu sem hann lét falla í garð kvenna í for­tíð­inni. Þetta er dæmi um eitt­hvað sem hann lærir að hann þurfi að end­ingu að bregð­ast við og tjá sig um.

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti kemur í heim­sókn til Íslands. Vel fer á með honum og Katrínu Jak­obs­dóttur.

Völvu­blað Mannlífs er komið út. Í blað­inu má lesa spá völv­unnar um kom­andi ár, bak­sýn­is­spegil aftur úr forn­eskju, yfir­reið um menn­ingu og listir og sjá hver bar sigur úr býtum í vali les­enda á Hetju árs­ins 2021 og margt fleira.

Til að lesa spá völv­unnar í heild sinni má lesa blaðið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina