Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jóhanna og Steingrímur þrýstu á Ögmund í Nubomálinu: „En þú veist hver vilji minn er í þessu máli“

Jóhanna og Steingrímur þrýstu á Ögmund í Nubomálinu: „En þú veist hver vilji minn er í þessu máli“
Mynd. Skjáskot/RÚV

Ögmundur Jónasson var boð­aður á fund Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra til að ræða kaup kín­verska millj­arða­mær­ings­ins Huang Nubo á Gríms­stöðum á Fjöllum, sem Ögmundur, þá inn­an­rík­is­ráð­herra, var á móti. Stein­grímur J. Sig­fús­son, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra og sam­flokks­maður Ögmundar var einnig á fund­inum. Til­gang­ur­inn var að þrýsta á Ögmund að leyfa söl­una.

Ögmundur var að gefa út ævi­sög­una Rauði þráð­ur­inn þar sem hann fer yfir sýn sína á  mál­efnin, verka­lýðs­bar­átt­una og póli­tíska þróun síð­ustu ár. Í kafl­anum Bankað uppá úr austri og vestri segir Ögmundur meðal ann­ars frá fundi sem Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir boð­aði hann á.

„Aust­an­bankið

Mið­viku­dag­inn 23. nóv­em­ber 2011 óskaði Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir for­sæt­is­ráð­herra eftir því að ég kæmi til fundar við sig í Stjórn­ar­ráðið. Ég varð að sjálf­sögðu við þeirri beiðni.

Þegar ég kom til fund­ar­ins við Jóhönnu var þar einnig fyrir Stein­grímur J. Sig­fús­son fjár­mála­ráð­herra. Í ljós kom að for­sæt­is­ráð­herra vildi ræða Núbó­málið.

Í byrjun vik­unnar hafði ég sagt að fyrir viku­lok myndi ég taka ákvörðun um það hvort veita ætti Huang Núbo, kín­verskum millj­arða­mær­ingi, heim­ild til að kaupa Gríms­staði á Fjöllum, þrjú hund­ruð fer­kíló­metra stór­jörð á Norð-Aust­ur­landi. Ríkið átti um fjórð­ung jarð­ar­innar en einka­að­ilar um þrjá fjórðu. Gríms­staðir á Fjöllum eru ein stærsta jörð á land­inu, hvorki meira né minna en 0.3% af Íslandi öllu.“

Síðar í kafl­anum skrifar hann eft­ir­far­andi texta:

„Hvað sem leið vanga­veltum varð­andi rétt EES borg­ara til landa­kaupa þá var það óum­deilt að  Huang Núbó hefði ekki rétt til að festa kaup á íslensku landi því hann hafði ekki rík­is­fang innan EES. En þessi regla var ekki óum­breyt­an­leg. Frá henni mátti nefni­lega víkja og var heim­ild ráð­herra rúm að því leyti. Og ráð­herr­ann sem fór með þetta vald var inn­an­rík­is­ráð­herra. Sem slíkan vildi Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir nú eiga við mig orða­stað.

Ég gerði mér ljósa grein fyrir því að for­sæt­is­ráð­herra var því mjög ákveðið fylgj­andi að ég veitti þessa und­an­þágu. Einnig vissi ég að hún var ekki ein um þá afstöðu, á Norð-Aust­ur­landi höfðu sveit­ar­stjórn­ar­menn hvatt til þess að und­an­þága yrði veitt og þing­menn einnig tjáð sig í þessa veru. Ég vissi vel hvað klukkan sló.“

En hvernig fór fund­ur­inn hjá þre­menn­ing­unum?

„Og þá spurði for­sæt­is­ráð­herra, hver er nið­ur­staðan? Ég sagði að ég væri að fara yfir málið, sem rétt var, og myndi kynna nið­ur­stöð­una á rík­is­stjórn­ar­fundi næst­kom­andi föstu­dag. Það nægir mér ekki að vita, sagði for­sæt­is­ráð­herra. Hver verður nið­ur­staðan, ég er for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, og nú leit hún til Stein­gríms, við eigum rétt á því að vita hvað þú hyggst fyrir. Stein­grímur kink­aði kolli til sam­þykkis en sagði ekki orð.

Ég sagði að málið væri á mínu for­ræði og ekki ann­arra.

En þú veist hver vilji minn er í þessu máli, greip for­sæt­is­ráð­herra fram í.

Lengra varð ekki kom­ist og lauk fund­inum.

Össur Skarp­héð­ins­son sagði mér síðar að á þessu augna­bliki hefði Jóhanna verið komin að þol­mörkum. En á þau mörk átti heldur betur eftir að reyna tveimur dögum síðar.

Upp rann föstu­dagur með rík­is­stjórn­ar­fundi. Landa­kaupa­málið var á dag­skrá fund­ar­ins.

Í upp­hafi fundar tók for­sæt­is­ráð­herra orðið áður en gengið var til dag­skrár og sagð­ist óska eftir því að landa­kaupa­mál­inu yrði frestað fram í næstu viku, hún vildi láta lög­fræð­inga fara yfir málið fyrir sína hönd.

Nú varð þögn sem ég síðan rauf: Þetta gæti ekki orðið.

Hvers vegna ekki, kváði for­sæt­is­ráð­herra.

Bréfin til máls­að­ila, þar sem landa­kaupa­beiðn­inni var hafnað, fóru í póst­dreif­ingu snemma í morgun.

Nú varð þögn.

Djúp þögn.

Yfir­þyrm­andi þögn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina