Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Inga Maren dansari: „Ég átti þungt uppeldi – en við getum verið betri í að bjarga hvert öðru“

Inga Maren dansari: „Ég átti þungt uppeldi – en við getum verið betri í að bjarga hvert öðru“
Inga Maren Rún­ars­dóttir. Íslenski dans­flokk­ur­inn

„Ég átti að hluta til þungt upp­eldi þar sem ég fékk á til­finn­ing­una að ég væri ekki nógu góð. Það smit­að­ist yfir í dans­inn og það hefur verið ansi erfitt að berja þann frasa frá sér. Stundum hef ég ekk­ert skilið í sjálfri mér; að segja ekki skilið við fagið en þegar ástríðan er mikil og metn­að­ur­inn þá vill maður sigr­ast á því sem verður á vegi manns. Lík­leg­ast hefur dans­inn bara hjálpað mér að sigr­ast á þessum frasa og breyta grunn­gildum mínum til betri vegar.“

Í ein­lægu við­tal við Ingu Maren Rún­ars­dóttur dans­ari, dans­höf­und og jóga, segir hún okkur frá dans­list­inni, nýju verki sínu og því sem dró hana inn í dans­heim­inn.

Inga Maren hefur starfað sem dans­ari og dans­höf­undur í fjölda ára, bæði hjá Íslenska dans­flokknum og sjálf­stæðum hópum.

Verkið: Ævi/Íslenski dans­flokk­ur­inn

Á síð­ast­liðnum þremur árum hafa Inga Maren og Júlíanna Lára skapað tvö dans­verk saman og er Hvíla sprungur það þriðja í röð­inni. Verkin Ævi og Dagdraumar hlutu góðar við­tökur áhorf­enda og hlutu sam­tals sex grímutil­nefn­ingar, m.a.  sem barna­sýn­ing árs­ins og bún­ingar árs­ins 2020.

Inga Maren hlaut tvenn verð­laun fyrir Ævi, sem dans­ari og dans­höf­undur árs­ins.

Inga seg­ist vera með óbilandi hreyfi­þörf og geri því lík­leg­ast óþarf­lega mikið af því að hreyfa sig. Ásamt því að vera dans­ari er hún mik­ill hlaup­ari, ævin­týrapési og vinur og segir okkur að rús­ínan í pylsu­end­anum sé mömmu­hlut­verkið.

Þykir hrikalega gaman að dansa

Talið okkar berst að því hvað hafi dregið hana að dans­inum og segir Inga:

„Ég byrj­aði víst áður en ég hafði vit til þess að hafa skoðun á svo­leiðis hlutum í líf­inu. Þó hót­aði ég því oft að hætta á ung­lings­árum en man vel lín­una: „þú verður alla­vega að klára önn­ina“ og þá ein­hvern veg­inn fór ég alltaf á næstu önn. Ann­að­hvort var mamma mín svona sniðug eða ég svona gleymin. Kannski sitt lítið af hvoru. Auk þess mynd­að­ist svo dýr­indis góður vin­skapur og það hefur haldið áfram allt mitt líf, að eign­ast mitt besta fólk í gegnum dans­inn, svo það hefur verið ómet­an­lega gef­andi. En þegar öllu er á botn­inn hvolft þykir mér hrika­lega gaman að dansa. Að reyna aftur og aftur við áskor­an­irnar sem finn­ast í dans­salnum er enn gef­andi eftir öll þessi ár og ég er þakk­lát fyrir að fá enn að glíma við þetta allt saman.“

Inga seg­ist hafa dansað frá því að hún man eftir sér og samið dans­verk frá því hún var í skól­anum í London.

„Hér heima var ég að semja í sam­starfi við aðra lista­menn til að byrja með og stofn­aði hópa út frá því. Upp á síðkastið hef ég verið að semja ein, sem mér finnst mjög gaman en þetta er þriðja verkið sem ég geri sjálf.“

Inga er að vinna að nýju verki sem heitir Hvíla sprungur og ætlar að leyfa okkur að skyggn­ast inn í verkið og und­ir­bún­ing­inn. Verkið er unnið út frá myndum RAX, Ragnars Axels­sonar, og við tón­list eftir Stephan Steph­en­sen (GusGus) og Óttar Sæmund­sen.

Í minni sögu lærði ég að fela mig

Verkið: Hvíla sprungur/ Íslenski dans­flokk­ur­inn

Í verk­inu Hvíla sprungur dansa fjórir dans­arar í lands­lagi af myndum eftir RAX. Mynd­irnar eru not­aðar á óhefð­bund­inn hátt sem gefur dönsur­unum tæki­færi til að hverfa inn í sviðs­mynd­ina.

„Í verk­inu er ég einmitt að kafa inn í manns­hug­ann. Nýlega gerði ég verk sem fjall­aði um mannsævi og nú er ég að kafa inn á við. Ég á mína sögu sem ég lagði að hluta til á vinnu­borðið og bauð dönsur­unum í verk­inu að gera slíkt hið sama. Svo mín per­sónu­lega saga birt­ist ekki á svið­inu heldur bland­ast sögur okkar allra saman. Í minni sögu lærði ég að fela mig, það var hluti af því hvernig ég tókst á við þær aðstæður sem ég bjó við og við vinnum með það í sýn­ing­unni. Til þess notum við myndir frá RAX sem verða að sviðs­mynd og bún­ingum en ég er mjög spennt að vinna með það.

Allir hafa eitt­hvað í sínum bak­poka og það er svo margt sem mann­eskjan geymir í sér sem ekki sést utan á henni. Nafnið Hvíla sprungur vísar í það, ég sé fyrir mér að við mann­eskj­urnar höfum öll eins konar jök­ul­sprungur að geyma, þar sem hefur fennt yfir sprung­una og við hrein­lega getum ekki vitað hvort eða hvenær við dettum ofan í hana. Mér finnst svo flott að hugsa til þess, þegar hópur fólks er að ganga saman á Hvanna­dals­hnjúk, þar sem allir eru saman í línu og læra fyrir ferð að ef einn dettur í sprungu þurfa allir hinir að leggj­ast á hlið­ina til þess að bjarga honum. Samvinna hóps, sem ann­ars er bara í leiðslu á göngu, sem getur virkj­ast á örskots­stundu. Mig langar svo til þess að sam­fé­lag okkar geti virkað eins, að við getum verið betri í að bjarga hvert öðru. En þar kemur líka inn sú stað­reynd að stundum sjáum við ekki þegar fólk dettur, þannig að við þurfum líka að læra að biðja um hjálp sem ein­stak­lingar.“

Magnaðir dansarar

Þegar Inga var að velja dans­ara fyrir verkið fannst henni „mik­il­vægt að dans­ar­arnir væru ljúfir ein­stak­lingar og gæfu af sér til hver ann­ars svo það skap­að­ist góður hóp­andi. Ég var ansi hepp­inn með lið í þetta skiptið, þau eru ekki bara magn­aðir dans­arar heldur dásam­lega skemmti­leg líka.“

Sýningin verður frum­sýnd 29. jan­úar 2022 á Nýja svið­inu í Borg­ar­leik­hús­inu og að lokum segir Inga:

„Opnum okkur og verum til staðar, förum á dans­sýn­ingar og list­við­burði og fyllum okkur af gleði þegar við getum!“

Um viðburðinn

Hvíla sprungur

Hugurinn er í móðu.

Líkt og hann sé hul­inn hvítri snjó­þekju.

Umhverfið sem var svo kunn­ug­legt er skyndi­lega eins­leitt og fram­andi.

Líkt og rjúpan sem hefur lært að bregða litum til þess að lifa af hefur mann­eskjan lært að aðlaga sig umhverfi sínu.

Hún sam­lag­ast fjall­lend­inu, felur sig, hverfur.

Hún vill ekki sjást.

Það er líkt og blóðið taki að storkna í æðunum, allt verður hægt og hratt sam­tímis.

Hver augn­gota verður ógn­vekj­andi, and­ar­drátt­ur­inn svo hávær, hjart­slátt­ur­inn yfir­gnæfir hverja frumu lík­am­ans.

Það er erfitt að hreyfa sig.

Er ég fund­inn?

Hend­urnar fálma í þokunni.

Það birtir til. Sárin eru sýni­leg, þau ytri og þau innri.

Rispur á sál, skarð í hjarta.

Þar hvíla sprungur sem fennt hefur yfir.

Tíminn líður og drífan fellur, felur sprungur sem hvíla.

Íslenski dans­flokk­ur­inn hefur getið sér gott orð fyrir að vera fram­sæk­inn nútíma­dans­flokkur skip­aður úrvals­dönsurum í hæsta gæða­flokki. Dans­flokk­ur­inn er sjálf­stæð rík­is­stofnun með aðsetur í Borg­ar­leik­hús­inu. Dans­flokk­ur­inn stendur fyrir ýmsum fræðslu­verk­efnum til að kynna og efla áhuga ungs fólks á dans­list­inni. Hann sýnir reglu­lega í Borg­ar­leik­hús­inu og heldur sýn­ingar utan höf­uð­borg­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við