Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jóhannes eftirherma var næstum dáinn og fékk nýtt hjarta: „Ég er bara þakklátur“

Jóhannes eftirherma var næstum dáinn og fékk nýtt hjarta: „Ég er bara þakklátur“

Í fyrsta hlað­varps­þætti sínum eftir ára­mót ræddi Guðni Ágústs­son við skemmti­kraft­inn lands­þekkta, Jóhannes Krist­jáns­son. Sá síð­ar­nefndi hefur getið sér gott orð sem eft­ir­herma í gegnum árin. Þar eru einmitt einna þekktastar eft­ir­hermur hans af Guðna sjálfum.

Síðasti maðurinn í dalnum

Jóhannes Krist­jáns­son er sveita­maður, fæddur og upp­al­inn á Brekku á Ingj­alds­sandi. „Ég er síð­asti maður sem fædd­ist þarna í dalnum. Það fædd­ust fleiri á eftir mér en þeir fædd­ust nú á sjúkra­húsum og svona.“ Jóhannes fædd­ist í heima­húsi og ljós­móð­irin kom til þeirra af næsta bæ til þess að aðstoða við fæð­ing­una. Hún var föð­ur­systir Jóhann­esar.

For­eldrar Jóhann­esar voru Kristján Guð­munds­son og Árelía Jóhann­es­dóttir, bændur á Brekku. Í heild­ina áttu hjónin tólf börn, sex stúlkur og sex drengi.

Jóhannes hefur verið skemmti­kraftur um ára­bil og hermt eftir hinum ýmsum stjórn­mála­mönnum, ekki bara Guðna sjálfum. Til dæmis hefur hann hermt eftir Stein­grími Her­manns­syni og Ólafi Ragnari Gríms­syni. Hann leidd­ist eig­in­lega óvart út í fagið.

Jóhannes seg­ist alltaf hafa haft mik­inn áhuga á íslenskri tungu. „Í stað­inn fyrir að safna frí­merkjum hafði ég áhuga á íslensku og hef áhuga á henni enn þá. Til dæmis þegar ég var í hér­aðs­skól­anum á Núpi, þegar allir voru á bíó eða balli, þá var ég að lesa orð­skýr­ingar. Hvað íslensk orð þýða, gömul orð. Í þessu hékk ég marga klukku­tíma og svo var bara náma þegar ég kom á þingið. Þar töl­uðu allir svo flott mál. Það er bara ekki eins núna. Það er kannski eðli­leg þróun, ég veit ekk­ert um það. Breyttir tímar.“

Konan hans heima fyrir tilviljun þegar hann fékk hjartaáfall

Jóhannes fékk hjarta­á­fall þegar hann var 43 ára gam­all og var næstum dáinn í nokkur skipti. „Senni­lega var það út af bólgu­sjúk­dómi. Það er talið, en við getum ekk­ert full­yrt það. Ég er ekk­ert sár að hafa lent í þessu af því að það að hafa kynnst Land­spít­al­anum, sjúkra­húsi, fólk­inu; ég er bara þakk­látur. Ég lærði svo margt.“

Inntur eftir því hvort ekki hafi verið um krafta­verk að ræða segir Jóhannes svo vera.

„Og marg­sinnis. Íslensku lækn­arnir voru ofboðs­lega færir og allt starfs­fólkið. Það er alveg með ólík­indum.

Konan mín var heima fyrir til­viljun. Ég var að koma heim frá því að skemmta, frá Ólafsvík. Þetta var á sjó­manna­dag­inn. Svo vakna ég snemma um morg­un­inn til að panta tíma fyrir bíl­inn minn og þá bara stein­dett ég niður. Konan mín er þarna, og dóttir mín, sem var líka heima, hringir á sjúkra­bíl og það kemur lög­reglu­bíll sem var að mæla hrað­ann í göt­unni fyrir utan húsið hjá mér. Strák­ur­inn sem kemur inn hefur sér­menntun í því að starta svona fuglum og braut í mér þrjú rif­bein, sem betur fer. Svo kom sjúkra­bíll og þeir fjönd­uð­ust á mér í korter með raf­magni og komu mér í gang. Svo var þetta svona í ár.“

Bið eftir hjarta og Ferguson-vél

Þetta voru engar smá skemmdir á hjarta Jóhann­esar. Hann þurfti hrein­lega að fá nýtt hjarta – það var ekk­ert annað í boði. „Það var sett vél í mig sem var nákvæm­lega eins og vatns­dælan í gamla Ferguson. Hún dældi blóð­inu í fjóra, fimm mán­uði, á meðan ég var að bíða eftir hjart­anu. Svo fékk ég það. Ég lærði tölu­vert um hjartað og þetta – ég vissi nátt­úr­lega ekki neitt frekar en fólkið á göt­unni. Ég man þegar ég var að versla, bara í Mela­búð­inni eða ein­hverjum stór­mark­aði. Þá, senni­lega af því fólki þykir vænt um mig, var fólk að taka smjör og svona og segja: „Þú mátt ekki borða þetta“ og „Þú mátt ekki borða hitt“. Nú, eða kalla á mig á þar næsta kassa: „Jæja! Þú lítur nú bara vel út. Hvað kom út úr síð­ustu blóð­rann­sókn? Er þetta ekki allt í lagi?“ Mér var svona ekk­ert vel við þetta, en ég ákvað að pirra mig ekki á þessu, heldur brosa. Því að hugsun ræður líðan. Þannig að ég ákvað að brosa. Það hvernig þú hugsar, það ræður því hvernig þér líður. Þessu er ég búinn að kynn­ast uppi á Reykja­lundi og þetta er alveg hroða­lega góður galdur sko.

Ef maður fer inn á Facebook er gott að muna þetta. Allt í hel­víti. Ég man þegar varð­skip var að koma, nýja Freyja. Það var bara ryð­dallur, ónýtur, ef maður bara las í gegnum Facebook. Ekki hægt að nota þetta, allt ónýtt. Svo kemur í ljós að þetta er hið besta skip og allt eftir því. Þá hugs­aði ég: „Hugsun ræður líðan“, því ég var nú hálf­p­irr­aður á þessu; nei­kvæðn­inni. En átti ég að vera pirr­aður áfram? Nei, ég læt ekk­ert annað koma mér í það ástand. Hugsun ræður líðan; þú verður að æfa þig á þessu nokkrum sinnum. Þetta kemur ekki strax. Æfðu þig bara nokkrum sinnum. 21 sinni helst.

Þetta er ódýr­ara en mörg kíló af geð­lyfjum.“

Loks kom að því að Jóhannes fengi nýtt hjarta, eftir langa spít­ala­vist og nokkra bið. Til þess að fá nýja hjartað þurfti hann að fara til Sví­þjóðar í aðgerð. Nokkrum mán­uðum eftir hjarta­skiptin hafði hann náð heilsu.

„Bara strax, þannig lagað. En ég fór ekki í fjall­göngu fyrr en eftir fjóra, fimm mán­uði. Með hópi af fólki og ég var fyrstur upp. Þurfti að bíða í korter. Menn eiga eftir að þurfa að sitja uppi með mig miklu lengur heldur en ella. Maður þarf að reyna að haga sér eftir því.“

Hrifinn af Ara Eldjárni

Jóhannes er enn að skemmta. Covid hefur þó strik sitt í reikn­ing­inn hjá honum eins og öðrum í skemmt­ana­brans­anum. „Það var gott haustið, þannig. Þessi pest fer eins og bylur.“

Guðni hefur á orði við Jóhannes að hann hafi alltaf verið leik­inn í því að smíða setn­ingar upp í menn sem fólk hafi síðan talið þá sjálfa hafa sagt. Guðni segir að fólk haldi enn að hann hafi sagt ýmis­legt sem Jóhannes bjó sjálfur til. Dæmi um það er setn­ingin „Þar sem tvö tré koma saman, þar er skógur.“ Jóhannes lýsir því hvernig hann leiti að sér­kennum hvers og eins sem hann ætli að herma eftir með þessum fleygu orðum:

„Að leika á þá hörpu­strengi sem fagrir eru í mann­inum.“

Jóhann­esi þykir mikið til uppi­stand­ar­ans Ara Eldjárns koma.

„Þar sérðu nú að íslensku­kunn­átta hans skiptir gríð­ar­legu máli. Það er nú það sem fleytir honum yfir holt og hóla. Fyrir utan allt annað. Þetta skiptir miklu máli. Hann hefur svo mikið vald á mál­inu. Það fleytir honum langt. Ég veit ekki hvort menn hafa tekið eftir því, en ég hef tekið eftir því.“

Aðspurður seg­ist Jóhannes ætla að halda áfram á sömu braut, að skemmta, um óákveð­inn tíma.

„Ég byrj­aði aldrei og þess vegna ætla ég aldrei að hætta. Ég er bara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina