Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sylvía Briem: „Það er ekki jafn gaman nema það sé áfengi – það er mýta“

Sylvía Briem: „Það er ekki jafn gaman nema það sé áfengi – það er mýta“

Sylvía Briem er tveggja barna móðir í Kópavogi. Hún starfar sem þjálf­ari hjá Dale Carnegie og einnig mark­þjálfi fyrir stjórn­endur, full­orðna og ungt fólk.

Hún rekur tvö fyr­ir­tæki sem er ansi skemmti­legt, að hennar sögn, en sam­hliða því er hún einn af þátta­stjórn­endum hlað­varps­ins Normið.

Mannlíf ræddi við Sylvíu um heils­una, lífið og lífs­stíl­inn.

Áfengislaus lífsstíll

„Ég var að klára grunn­nám í sál­fræði sem er ynd­is­leg til­finn­ing. Ég er svo mikið að þjálfa og sjá um alls konar hluti sem tengj­ast dag­legum rekstri á fyr­ir­tæki.“

Sylvía hefur talað fyrir áfeng­is­lausum lífs­stíl og fengum við hana til að útskýra fyrir okkur betur hennar leið að þeim lífs­stíl og hvað það var sem heill­aði hana.

„Ég hef alltaf drukkið lítið og hefur fund­ist það vera ansi mik­ill heilsu- og tíma­þjófur. Ég hef samt stundum fengið mér eitt og eitt rauð­víns­glas eða bjór. Ég fékk mér sein­ast rauð­víns­glas 27. des­em­ber í hitteð­fyrra og því komið rúm­lega ár síðan. Ég í raun­inni er ekki búin að drekka í ár, óvart, ég var alltaf að bíða eftir að mér þætti það þess virði að missa tíma úr sól­ar­hringnum í þreytu og almennt slen, sem áfengi getur haft í för með sér og ég er bara enn að bíða.

Eins og kannski sést þá er ég með marga bolta á lofti. Ég sinni heim­ili og á bara ekki tíma að missa fyrir áfengi. Ég sá það líka í tauga­sál­fræði­á­föng­unum hvernig áfengi hefur áhrif á tauga­kerfið. Samkvæmt því, mynd­ast meira streitu­hormón í lík­am­anum. Mér finnst nógu mikil streita í íslensku sam­fé­lagi og því þá að bæta ofan á það með drykkju?

Mér finnst ynd­is­legt að vakna fersk alla daga, hreyfa mig reglu­lega og finna ork­una vera almennt meiri. Mér finnst ég afreka tölu­vert meira þegar ég er með ferskt topp­stykki.“

Langar að slaka betur á og afreka meira

Sylvía segir okkur að hún hafi óvart farið þessa leið:

„Ég er ekk­ert að segja að ég sé alveg hætt að drekka. Ég bara er að bíða eftir því að finn­ast það þess virði. Mér finnst heil­brigð og góð umræða að skoða áfeng­is­neyslu sína og virki­lega pæla í því hvernig hún hefur áhrif á mann. Við erum stundum svo samdauna streit­unni sem íslenskt sam­fé­lag býður upp á. Mér finnst að fólk ætti að meta þetta fyrir sig og jafn­vel minnka drykkj­una almennt, ef því langar að slaka betur á og afreka meira.

Það þarf bara hver og einn að meta fyrir sig hvernig á að hátta þessu. Það koma yfir­leitt stað­hæf­ingar um að þeim finn­ist ekki jafn gaman nema það sé áfengi. Það er mýta, þetta er eins og að venja sig á nýjan vana. Það getur stundum verið örlítið erfitt til að byrja með, en svo verður það ynd­is­legt. Ég hef aldrei skemmt mér jafn vel í öllum gæs­un­unum, brúð­kaup­unum, afmæl­unum, hitt­ing­unum og sam­kom­unum og þegar ég er ekki að drekka. En til að byrja með þarf ég að venj­ast því og það er bara hið besta mál. Hug­ar­farið skiptir öllu.“

Gaman að sjá hvað fólk er opnara fyrir þessu

Sylvía flytur inn óáfengt, freyð­andi hvítt te undir merk­inu Töst.

„Þegar við komum með það í maí þá var mark­að­ur­inn frekar lít­ill. En nú eru allar versl­anir að leggja áherslu á hillu­pláss fyrir óáfenga drykki. Mér finnst gaman að sjá hvað fólk er opn­ara fyrir þessu núna. Það er kannski vegna þess að drykkur eins og Töst gerir upp­lifun­ina eins og maður sé með!“

Hverjir eru helstu kost­irnir við þennan lífs­stíl?

„Þegar ég fæ þessa spurn­ingu verður mér hugsað til þess þegar ég vakn­aði á nýju ári, ég heyrði í vin­konu sem hafði fengið sér í glas og var smá ryðguð. Ég sat á nátt­föt­unum með strák­unum mínum, úthvíld, orku­mikil og almennt með hreinan haus til að gera allt sem mig lang­aði. Mér finnst þetta tákn um lífs­gæði, ég nýt and­ar­tak­anna mikið betur. Ég nýt mín og afreka meira í vinn­unni. Mér finnst ég fá betri hug­myndir í vinn­unni og er með virki­legt þrek til að keyra þær af stað. Ég hreyfi mig reglu­lega og missi ekki úr út af sleni, ég á betri for­eldra­mó­ment með börn­unum mínum vegna minni þreytu.“

Flott úrval af óáfengum drykkjum í búðum

Hún segir okkur frá ferð sem hún fór með manni sínum út á land þar sem þau gistu á hót­eli.

„Það var mikil drykkja hjá nokkrum hópum, margir borð­uðu lítið sem ekk­ert af kvöld­matnum, sem var frá­bær. Ég vakn­aði síðan til þess að fara í morg­un­mat­inn. Þar sat ég og naut þess sem var á boðstólum og átti gott spjall við mann­inn minn. Við hlið­ina á mér var sami hópur og kvöldið áður. Enginn úr hópnum gat borðað og lágu allir frekar slen­aðir fram á borðið. Ég hugs­aði; ég nenni ekki að eyða tíma í þetta.

Mér fannst ég koma end­ur­nærð heim til mín.“

Sylvía seg­ist vera ánægð með þró­un­ina og finnst vera „komin ansi stór og flott flóra í búðir af óáfengum drykkjum, bæði í formi freyði­víns og bjórs. Mér finnst líka gaman að geta tekið flotta flösku, eins og Töst er, og gert borðið aðeins hátíð­legra því það tekur gest­risn­ina í hærri hæðir.“

Sumar stór­borgir hafa í auknum boðið upp á áfeng­is­lausa skemmti­staði og spurðum við Sylvíu hvað henni fynd­ist um þessa þróun.

„Já, ég held að það sé klár­lega mark­aður fyrir áfeng­is­lausa staði hérna í bænum, ég hugsa að ég mæti blá­edrú í Zúmba reglu­lega þrátt fyrir að vera með alltof stóra útlimi og frekar takt­laus. Ég hugs­aði einmitt að mig lang­aði að opna stað sem maður færi á og fengi sér flottan kok­teil og það væri jafn­vel bara heil­mikil dans­stemn­ing, allir að gera sig að fífli og hafa gaman. Þeir sem að eru lesa geta jafn­vel bara stolið hug­mynd­inni, og ég mæti um leið og það verður opnað!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina