Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skuldaslóð eftir brottrekinn forstjóra Alvotech – Rasmus á von á milljörðum vegna kauprétta

Skuldaslóð eftir brottrekinn forstjóra Alvotech – Rasmus á von á milljörðum vegna kauprétta
Rasmus Rojkjaer var rek­inn frá Alvotech. Hann skildi eftir sig skulda­slóð á Íslandi.

Rasmus Rojkjaer, fyrr­ver­andi for­stjóri Alvotech á óinn­leysta kaup­rétti hjá fyr­ir­tæk­inu fyrir millj­arða króna sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs. Hann er einn þeirra sex ónafn­greindu lyk­il­stjórn­enda sem Við­skipta­blaðið fjall­aði um að ættu óinn­leysta kaup­rétti hjá Alvotech. Bók­færðir kaup­réttir fyr­ir­tæk­is­ins voru um 13 millj­arðar króna á síð­asta ári og kemur þetta fram kynn­ingum til fjár­festa hér á landi í aðdrag­anda hluta­fjár­út­boðs. Þrír fyrr­ver­andi for­stjórar Alvotech eru meðal þeirra sem eiga kaup­rétti og gætu átt von á millj­örðum króna þegar þeir selja hluta­bréf sín í fyr­ir­tæk­inu. Allir voru þeir reknir úr starfi hjá fyr­ir­tæk­inu eins og Mannlíf hefur áður fjallað um og eru í hópi þeirra fimm for­stjóra sem hafa stýrt upp­bygg­ingu þess á und­an­förnum árum

Tilkynnt var um skyndi­legan brott­rekstur Rasmusar í mars 2019 en hann hafði þá sinnt starf­inu í rúm­lega eitt ár. Eftir brott­hvarfið kom fljót­lega í ljós að hann hafði skilið eftir sig tug­millj­óna króna skulda­slóð hér á landi sem ekki hefur tek­ist að inn­heimta. Skuld­irnar munu að mestu leiti vera við fyr­ir­tæki sem Alvotech átti far­sælt við­skipta­sam­band við og naut vel­vildar hjá. Má þar nefna PK Arki­tekta, versl­anir og minni verk­taka sem aðstoð­uðu for­stjór­ann fyrr­ver­andi við umfangs­miklar fram­kvæmdir á heim­ili hans í Mos­fellsbæ. 

Tugmilljóna vanskil vegna glæsivillu

Stærstu van­skil Rasmusar munu vera við PK Arki­tekta sem teikn­uðu glæsi­villu hans á Arn­ar­nesi sem var þó aldrei byggð. Anton Þór­ar­ins­son athafna­maður festi kaup á lóð­inni í Hauka­nesi fyrir um 120 millj­ónir króna líkt og Mannlíf hefur áður greint frá. Fram­kvæmdir standa nú yfir við glæsi­villu Antons sem rís nú  við hlið­ina á nýbygg­ingu Björns Leifs­sonar eig­anda World Class. 

Höf­uð­stöðvar Alvoech. Rasmus var ráð­inn og rek­inn.

Lána­drottnar réð­ust í ítrek­aðar inn­heimtu­að­gerðir þegar ljóst var að van­skilin voru víða og leitað var  aðstoðar Alvotech á árinu 2019 við að hafa upp á lyfja­for­stjór­anum fyrr­ver­andi án árang­urs. Fljót­lega eftir starfs­lokin fengu lána­drottnar veður af því að hann hafi hreiðrað um sig í Kanada ásamt eig­in­konu sinni. Á sam­fé­lags­miðlum má sjá að þar rekur hann sitt eigið ráð­gjafa­fyr­ir­tæki. Svo virð­ist sem flótti Rasmusar undan skuldum sínum hér á landi hafi heppn­ast þar sem það þótti of kostn­að­ar­samt að ráð­ast í dýrar inn­heimtu­að­gerðir í Kanada. Sér­stak­lega þótti það áhættu­samt þar sem óljóst var um eigna­stöðu hans á þeim tíma og mála­ferli í Kanada væru kostn­að­ar­söm.  Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er ekki vitað til þess að hann hafi greitt eitt­hvað inn á skuldir sínar hér á landi frá því inn­heimta hófst af alvöru við starfs­lokin.

Rasmus á von á milljörðum 

Lána­drottnar Rasmusar geta þó von­andi glaðst á næst­unni ef hann getur inn­leyst millj­arða króna kaup­rétti sína á Íslandi eða í Banda­ríkj­unum, sam­hliða skrán­ingu Alvotech á hluta­bréfa­markað. Fyrning við­skipta­skulda mið­ast yfir­leitt við fjögur ár sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs og alls er því óvíst hversu mikið ef eitt­hvað inn­heimt­ist af ofan­greindum skuldum. Það veltur vænt­an­lega á áhuga Rasmusar til að gera upp skuldir sínar og hvort Alvotech muni beita sér í mál­inu með ein­hverjum hætti.  

Pálmar Krist­ins­son hjá PK arki­tektum stað­festi að umrædd van­skil Rasmusar væru enn til staðar. Heim­ildir Mannlífs herma að skuldin við Pálmar nemi tugum millj­óna króna, auk þess að fjöldi minni verk­takar og aðila sitji enn sem komið er eftir með sárt ennið. 

Mannlíf sendi Elísabet Hjalta­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa Alvotech, fyr­ir­spurn um það hvort fyr­ir­tækið myndi beita sér fyrir inn­heimtu skuld­anna við nýt­ingu kaup­rétta. Hún neit­aði að tjá sig um það mál. „Per­sónu­leg fjár­mál fyrr­ver­andi starfs­manna eru ekki eitt­hvað sem við höfum for­ræði yfir og tjáum okkur ekki um málið,“ svar­aði hún í tölvu­pósti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina