Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Margrét lýsir ótrúlegu atviki á bar: „Byrjar að pota í hana og vinur hans að káfa á henni“

Margrét lýsir ótrúlegu atviki á bar: „Byrjar að pota í hana og vinur hans að káfa á henni“
Margrét Bjarna­dóttir Mynd: Rúv skjáskot

Reiðin hefur ólgað inn í Margréti Bjarna­dóttur síðan hún sá frétt­irnar af máli Vítalíu Lazarevu í síð­ustu viku. Hún lýsir eigin reynslu af mið­aldra karl­mönnum.

Sjá einnig: Þetta eru menn­irnir sem Vítalía ásakar – Ari í leyfi vegna ásak­ana

Margrét Bjarna­dóttir lista­kona skrifar grein á Vísi í gær þar sem hún skrifar um reynslu sína og vin­kvenna sinna af mið­aldra karl­mönnum á skemmti­stöðum. Fór hún ásamt vin­konum sínum á bar rétt fyrir jól þar sem nokkrir mið­aldra karl­menn voru staddir.

„Klukkan var átta þegar við gengum inn á stað­inn, allar með grímur. Við vorum rétt komnar inn úr dyr­unum þegar ókunn­ugur karl­maður gengur upp að vin­konu minni, dregur niður grímuna hennar og strýkur henni í framan. Hún bandar honum frá sér og okkur er vísað til borðs sem við áttum frá­tekið, á góðum stað, út af fyrir okkur, með útsýni yfir Aust­ur­völl. Vinkona mín fer á bar­inn til að panta sér drykk og þar sem hún bíður eftir afgreiðslu kemur maður upp að henni og byrjar að pota í hana og vinur hans að káfa á henni. Hún gengur í burtu án þess að ná að panta sér drykk. Við fáum þá að panta drykki frá borð­inu okkar þannig að við þurfum ekki að standa við bar­inn. Við vorum búnar að vera inni á staðnum í þrjár mín­útur og þremur karl­mönnum hafði tek­ist að sýna þessa hegðun á þeim met­tíma. Og einmitt, þetta voru bara svona efn­aðir, „flottir“ karlar um fimm­tugt. Og klukkan var átta.“

Þá segir Margrét að þetta sé ekk­ert nýtt af nál­inni, þessi hegðun en ástæðan fyrir skorti á þol­in­mæði gagn­vart henni gæti verið sú að hún var edrú þetta kvöld og hún hafði ekki farið lengi út á bar og að ný Metoo bylgja var hafin. „Og allar þessar bar-senur í gegnum tíð­ina fóru að rifj­ast upp, allt óum­beðna káfið, óum­beðnu sam­tölin og óum­beðnu „af hverju bros­irðu ekki? þú ert fal­legri þannig“-kommentin og hvað þetta var allt full­kom­lega glatað – og er. Og hvað það er ótrú­lega skrítið að þetta hafi ekk­ert breyst eftir alla umræð­una síð­ustu ár og mán­uði. Breyt­ingin virð­ist alla­vega ekki hafa ratað á bar­ina. Að minnsta kosti ekki á bar­ina sem mið­aldra karl­arnir sækja.“

Því næst veltir Margrét því fyrir sér hvort mið­aldra karl­menn eigi ekki erfitt með umræð­una sem er í gangi í sam­fé­lag­inu.

„Ég velti því fyrir mér hvort þessi kyn­slóð karl­manna eigi sér­stak­lega erfitt með umræð­una og breyt­ing­arnar sem nú er kallað eftir? Þeir eru ekki ungir – en heldur ekki orðnir gamlir. Þeir eru í hring­iðunni, í áhrifa­stöðum, yfir­menn, stjórn­endur fyr­ir­tækja … Þetta er einmitt sú kyn­slóð karl­manna sem þyrfti að vera sér­stak­lega með­vituð um kúlt­úr­inn sem hefur fengið að við­gang­ast og hegð­unar- og við­horfs­breyt­ing­arnar sem þurfa að eiga sér stað. Annars munu þeir úreld­ast mjög fljótt. En ég hef á til­finn­ing­unni að margir nenni lítið að setja sig inn í þetta. Finnst þeir kannski vera þokka­lega mennt­aðir og civiliseraðir og að þetta snerti þá ekk­ert sér­stak­lega. Finnst þetta bara vesen, óþægi­legt og þreyt­andi. Þeir eru kannski með­vit­aðir um umræð­una en ég hef á til­finn­ing­unni að upp­lýs­inga-upp­takan hjá sumum sé mjög grunn og stutt í óþolið – en ef maður hlustar bara með egóinu sínu eða í vörn, þá með­tekur maður ekki neitt. Sumir geta því aldrei fylli­lega skilið hvað þarf að breyt­ast. Taka það ekki raun­veru­lega til sín. Þeir geta jafn­vel virst með­vit­aðir og upp­lýstir í orði en eru fljótir að missa tökin á borði. Þeim finnst kannski eins og verið sé að taka eitt­hvað frá þeim. Nú sé þeirra tími. En hvað er raun­veru­lega verið að taka frá þeim?“

Tekur hún það fram í grein sinni að þegar hún sé að tala um mið­aldra karl­menn sé hún í raun að tala um nokkra ein­stak­linga, ekki heilu kyn­slóð­irnar.

Segir hún að það sé eins og þessir menn skilji ekki þegar talað er um það til­kall sem þeir telji sig sjálf­krafa hafa í líf­inu.

„Tilkall til lík­ama ann­arra, til­kall til sam­tals, til­kall til athygli, til­kall til aðeins meiri virð­ingar en konan – bara pínu meiri virð­ingar. Eins og það sé sjálf­sagt og eðli­legt. Þetta til­kall getur verið ótrú­lega lúm­skt og sumir gera sér jafn­vel ekki grein fyrir því að þeim finn­ist þeir innst inni hafa þetta til­kall. Og svo virð­ast hlut­irnir geta brengl­ast ræki­lega í krafti ald­urs, stöðu, pen­inga og valds. Eins og afhjúpað­ist svo skýrt nú í lok vik­unnar. Áður en þeir vita af eru þeir alls­berir í heitum potti með þremur félögum sínum að setja fingur upp í enda­þarm ungrar konu sem er jafn­gömul börn­unum þeirra. Þið megið lesa síð­ustu setn­ingu aftur.“

Lýkur hún pistl­inum á afar sterkum nótum.

„Ég hef tekið eftir því að sumir afgreiða fréttir síð­ustu daga með því að segja að þetta sé „fyrst og fremst sorg­legt“. Eins og það sé nið­ur­staðan. Nei, þetta er fyrst og fremst við­bjóðs­legt og ömur­legt og það þarf að ræða þetta – meira og lengur. Fletta lög­unum af, einu af öðru – því þetta er í mörgum, hár­fínum lögum og þetta snýst ekki bara um fimm spillta og dóm­greind­ar­lausa karla úti í bæ.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við