Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Háskólaneminn Vítalía Lazareva: Konan sem varð þjóðhetja á einni nóttu

Háskólaneminn Vítalía Lazareva: Konan sem varð þjóðhetja á einni nóttu

Vítalía Lazareva er 24 ára háskóla­nemi sem und­an­farið hefur staðið í miðj­unni á sam­fé­lags­legum stormi. Hún er förð­un­ar­fræð­ingur að mennt og starfar í apó­teki. Vítalía hefur áhuga á hvoru tveggja heilsu og lík­ams­rækt, er kröftug og í góðu formi.

Heim­ild­ar­menn í kringum Vítalíu lýsa henni sem afar góð­hjart­aðri mann­eskju. Hún er sögð vilja öllum vel. Henni er lýst sem jákvæðri, dug­legri og afskap­lega sam­visku­samri.

„Hún er algjör nagli,“ segir heim­ild­ar­maður í sam­tali við Mannlíf. Hann segir hana eld­klára og skarpa konu, sem kalli ekki allt ömmu sína.

Heim­ild­ar­maður segir Vítalíu ein­stak­lega heið­ar­lega mann­eskju. Hún kom enda hreint fram í við­tal­inu við Eddu Falak og hlífði sjálfri sér hvergi. Hún tók þar nokkrum sinnum fram að sjálf væri hún ekki alsak­laus; hún hefði sann­ar­lega átt í ást­ar­sam­bandi við kvæntan mann og því sæi hún eftir. Hún hafi hins vegar orðið ást­fangin og trúað því í lengstu lög að þrátt fyrir allt myndu þau enda saman.

Menn­irnir sem koma við sögu í frá­sögnum Vítalíu.

Vítalía er sögð hug­rökk og sterk. Enda myndi senni­lega ein­ungis hug­aður ein­stak­lingur leggja til atlögu við ljón sem þessi. Tveir þeirra geta talist til valda­mestu manna þjóð­ar­innar.

Atburða­rásin eftir að við­talið kom út var hröð. Fljót­lega höfðu allir menn­irnir verið nafn­greindir í fjöl­miðlum og ekki leið á löngu þar til þeir höfðu allir ýmist farið í leyfi frá störfum sínum eða stigið til hliðar.

Allir eru menn­irnir þjóð­þekktir, vel tengdir og með mikil ítök í sam­fé­lag­inu. Einn þeirra, Hregg­viður Jónsson, sendi frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann sagð­ist harma það að hafa farið yfir mörk en kvaðst þó ekki hafa brotið lög. Annar maður, Logi Bergmann Eiðsson, lýsti sig sak­lausan af ásök­unum. Hann gekk svo langt að vilja ekki stað­setja sig í aðstæð­unum, hvað þá að hafa tekið þátt í kyn­ferð­is­legu athæfi, mis­notkun eða blygð­un­ar­sem­is­brotum gegn Vítalíu.

Á sam­fé­lags­miðlum und­an­farið hefur Vítalía birt nafn­lausar frá­sagnir kvenna sem hafa leitað til hennar, varð­andi fyrr­ver­andi ást­mann hennar, Arnar Grant lík­ams­rækt­ar­frömuð. Í sög­unum sem Vítalía hefur birt koma fram ásak­anir á hendur honum um ámæl­is­verða fram­komu og ofbeld­is­hegðun í garð kvenna sem hann hefur átt í ást­ar­sam­bandi við.

Vítalía Lazareva braut blað í sögu sam­fé­lags okkar með því að stíga fram með þeim hætti sem hún gerði. Það er ekki síst tíma­móta­verkn­aður vegna þess hverjum hún fór á móti. Atburð­irnir í kjöl­farið marka, í hugum margra, nýja tíma. Aldrei áður hefur þol­andi fengið slíkan stuðn­ing frá sam­fé­lag­inu í kjöl­far ásak­ana. Aldrei áður hefur jafn mikil sam­staða mynd­ast um að taka málin föstum tökum. Einum mann­anna hefur nú þegar verið sagt upp störfum sínum. Þetta virð­ist vís­bend­ing um að sam­fé­lags­breyt­ing sé sann­ar­lega að eiga sér stað og hug­ar­far margra að taka stakka­skiptum.

Með því að segja sögu sína hefur Vítalía nefni­lega varpað ljósi á ákveðið sam­fé­lags­mein, sem kast­ljós­inu hefur ekki verið beint jafn kröft­ug­lega að áður; valda­mis­ræmi og mis­beit­ingu valds í þjóð­fé­lag­inu og mik­il­vægi þess að opna á þá umræðu.

Á einni nóttu varð Vítalía Lazareva eins konar þjóð­hetja – okkar eigin Jóhanna af Örk. Einungis 24 ára gömul kom hún eins og storm­sveipur fram á sjón­ar­sviðið og reif hið svo­kall­aða feðra­veldi niður með einu hand­taki. Sjaldan hefur einnig orðið „feðra­veldi“ átt jafn vel við, eins og um menn sem mis­nota sér stöðu sína, aldur og vald gagn­vart ungri konu sem gæti hæg­lega verið dóttir þeirra.

Vítalía lagði af stað í blóð­uga bar­áttu, ein­ungis með sína eigin sann­fær­ingu að vopni. Kona fór í stríð.

Ekki þarf að leita langt aftur til þess að sjá breyt­ing­una á við­brögðum sam­fé­lags­ins við ásök­unum stúlkna og kvenna í garð þekktra, vin­sælla karl­manna.

Það eru allir mjög stoltir af henni

Nærtæk dæmi eru ásak­anir og kærur á hendur Gunnari Þor­steins­syni í Kross­inum, nauðg­un­ar­kæra á  hendur Agli Ein­ars­syni og mál Ólafs Skúla­sonar bisk­ups. Meintir þolendur þess­ara manna fengu ýmist á sig kærur, hrökkl­uð­ust úr landi, þurftu að greiða háar fjár­hæðir í máls­kostnað eða lentu í alls­herjar and­legu gjald­þroti.

Þeir eru ýmsir, bar­áttu­hóp­arnir og aktí­vist­arnir sem standa að baki umbreyt­ingu umræð­unnar og berj­ast um á hæl og hnakka til að þoka málum sem þessum áfram. Það var til að mynda bar­áttu­hóp­ur­inn Öfgar sem nafn­greindi hina meintu ger­endur í máli Vítalíu í mynd­bandi á Twitter-aðgangi sínum. Konur úr þeim hópi hafa þegar fengið á sig kærur fyrir umræðu og nafn­grein­ingu í öðrum málum.

Und­an­farið hafa ábend­ingar borist um að Arnar Grant sé á hött­unum eftir nei­kvæðum sögum um Vítalíu. Það er því ljóst að ýmis­legt kraumar undir yfir­borð­inu og hún mun þurfa að mæta mót­læti á kom­andi tímum.

„Það eru allir mjög stoltir af henni,“ segir heim­ild­ar­maður að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina