Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Bragi Páll rithöfundur: „Þegar ég þekkti ekkert nema ósigra molnuðu öll mín plön niður“

Bragi Páll rithöfundur: „Þegar ég þekkti ekkert nema ósigra molnuðu öll mín plön niður“
Bragi er sem betur fer ekk­ert líkur Sideshow Bob að innan. Mynd: Ari Eldjárn

„Þegar ég þekkti ekk­ert nema ósigra moln­uðu öll mín plön niður,“ segir Bragi Páll Sig­urð­ar­son rit­höf­undur og sjó­maður

í við­tali á RÚV

við Júlíu Margréti Ein­ars­dóttur og Lovísu Rut Krist­jáns­dóttur.Hann tók ákvörðun árið 2012 um að fara í með­ferð á Vogi og segir að allt gott sem hafi komið fyrir sig síðan hafi verið vegna þess. Sögu­per­sónur sínar í vin­sælum skáld­sögum byggir hann að hluta á sjálfum sér á snemm­full­orð­ins­árum, fyrir með­ferð.

Bragi Páll Sig­urðs­son rit­höf­undur og sjó­maður er kulda­skræfa sem passar sig að eiga alltaf ull­ar­nær­föt, buff og sokka og nóg af þessu öllu, sér­stak­lega í byrjun árs þegar hann fer á sjó­inn að veiða með föður sínum. Bragi er ætt­aður úr Breiða­firði, fæddur í Stykk­is­hólmi þar sem hann bjó fyrstu tæp­lega fimm árin þar til for­eldrar hans skildu og Bragi flutti með móður sinni, Jónu Dís Bragadu,ttir í Mos­fellsbæ sem þá var enn nokkuð hrjóstr­ugur. Faðir Braga, Sigurður Páll Jónsson fyrrum þing­maður Mið­flokks­ins, býr enn í Stykk­is­hólmi svo Bragi ver þar enn miklum tíma. Bragi Páll segir frá upp­vext­inum, skáld­skapnum, heim­il­is­líf­inu og sinni eft­ir­læt­is­tón­list í Laga­list­anum á Rás 2.

Það var áfall

Bragi var því þung­arokk­ari af guðs náð. Hann spil­aði á túbu með skóla­hljóm­sveit­inni og hann er tón­vís en hann vildi bara hlusta á harð­kjarnatón­list og reka löngu­töng framan í heim­inn. Síðan upp­götv­aði hann tón­list sem hann naut þess að hlusta á en eng­inn mátti vita það. „Þú máttir í raun ekki hlusta á aðrar tón­list­ar­stefnur þarna 1998-2001 en þung­arokk, þá var það að hlusta á rapp ekki smart. Þegar Rottweilerhundar unnu Mús­íktil­raunir, það var bara áfall fyrir okkur. Ég tala ekki um diskópopp, það var það allra lægsta,“ segir Bragi sem komst í kynni við diskóið á ferða­lagi með fjöl­skyld­unni um Noreg þegar hann var ung­lingur. „Við fórum með Norrænu og erum með felli­hýsi með okkur, ég er með ferða­geisla­spil­ar­ann og allar þung­arokks­plöt­urnar, við erum að tala um Deftones, Slipknot en líka gam­alt AD/DC og helstu kemp­urnar,“ segir Bragi.

Vegur þjáningarinnar liggur til hallar viskunnar

Bragi á góðri stundu

Bragi Páll fór eftir grunn­skóla í Mennta­skól­ann í Reykja­vík og þaðan í Fjöl­brauta­skól­ann í Breið­holti. Hann fór að finna fyrir reiði­leysi því hann vissi ekki hvert hann vildi stefna í líf­inu en hann vissi að hann vildi hafa gaman. Það gerði hann lengi vel en brátt fór gam­anið að kárna. „Mér gekk ágæt­lega í grunn­skóla og gaggó en í mennta­skóla þarftu að fara að læra og það tók mig ofboðs­legan tíma að með­taka og við­ur­kenna það fyrir mér. Ég er að falla ár eftir ár, drusl­ast á milli skóla en er að læra margt annað en það sem stóð í bók­unum og kynn­ast fólki sem enn eru eins og vinir mínir en það er líka eins og gamla mál­tækið segir, vegur þján­ing­ar­innar liggur til hallar visk­unnar,“ segir Bragi.

Árið 2012 fór hann í með­ferð á Vogi, sem hann segir vera eina bestu ákvörðun sem hann hefur tekið. „Það að að vera lúser í svona mörg ár var mjög lær­dóms­ríkt, að upp­lifa sig svona mik­inn bjána var hollt fyrir mig.“

Gamall draumur hefur ræst

Nú hefur gam­all draumur ræst, Bragi Páll er orð­inn rit­höf­undur eins og hann ætl­aði sér alltaf að verða. Hann byrj­aði ungur að skrifa sögur sem voru inn­blásnar af bókum Þorgríms Þrá­ins­sonar, eins og Lalla ljósa­staur, og fór með til kenn­ar­ans í grunn­skóla sem las sög­urnar upp fyrir bekk­inn.  Svo hélt hann úti bloggi, skrif­aði dag­bækur og ljóð og tók þátt í ræðu­keppni fram­halds­skól­anna. Eftir fram­halds­skóla skráði hann sig í rit­list í Háskóla Íslands og kynnt­ist ýmsum áhrifa­völdum í lífi sínu, meðal ann­ars ást­konu sinni Bergþóru Snæ­björns­dóttur rit­höf­undi. „Það sem gerð­ist var að við fríkin fundum svo­lítið hvert annað. Ég og Bergþóra, sam­býl­is­kona og barns­móðir, byrj­uðum að fella hugi saman þarna í og eftir rit­list og úr þessum hópi hafa komið margir af okkar upp­renn­andi rit­höf­undum í dag. Svo það er þarna sem ég fer að trúa því að ég geti unnið við að skrifa.“

Hafa gengið í gegnum táradalinn

Það flækir rit­höf­und­ar­starfið að það er ekki til neinn leið­ar­vísir að því hvernig hægt er að verða góður rit­höf­undur, það dugir ekk­ert nema æfing. „Aðrir íslenskir rit­höf­undar eru hjálp­fúsir en þeir hafa sjálfir þurft að ganga í gegnum þann tára­dal sem það er að kom­ast á þennan stað. Það er þessi tíu klukku­stunda sam­úræja­regla að ef þú ætlar að verða góður í ein­hverju eða eyða mjög miklum tíma í það,“ segir Bragi. „Ég held að fólk átti sig ekki á því hvað það er þreyt­andi að eyða þús­undum klukku­tíma í að skrifa algjört drasl sem þú hendir og eng­inn hefur sér­stak­lega gaman af, ekki einu sinni þú sjálfur.“

Næ betur að ramma ástandið

Nýjasta skáldsagan, Arnaldur Ind­riða­son deyr, hefur fengið híf­andi við­tökur. Bókinni lýsir höf­undur sem skrum­skæl­ingu á sam­fé­lag­inu og þekktum ein­stak­lingum. Fyrri skáldsagan er skrifuð yfir langt tíma­bil en Arnaldur Ind­riða­son deyr varð til á styttri tíma, sem Bragi segir að hafi sína kosti og galla. „Kost­irnir eru þeir að ég næ þá að ramma betur inn það ástand sem ég er í á meðan ég skrifa,“ segir hann. „Austur er þrí­skipt og marglaga, ger­ist á þremur mis­mun­andi stöðum yfir langan tíma en þessi bók er meiri þrass­met­all. Maður dúndr­ast í gegnum hana og hún kemur beint í síð­una á manni.“

Bragi var illa sof­inn meðan á skrif­unum stóð og segir hann að bókin beri þessi merki. Hann og Bergþóra eiga tvö ung börn og annað þeirra fékk fjöl­margar pestir á þeim tíma sem bókin var skrifuð. „Það var mikið um hor, slím og nið­ur­gang og það var mikið gubb að ger­ast á meðan ég var að skrifa hana svo hún verður mjög lík­am­leg á köflum,“ segir höf­und­ur­inn. Aðal­per­són­unni, Ugga Óðins­syni, lýsir Bragi sem klúð­urs­legum karakter sem er byggður á honum sjálfum og eigin ósigrum.

Arnaldur Ind­riða­son ekki beð­inn um leyfi en rætt við tvo lög­fræð­ingaArn­aldur var sjálfur ekki spurður um leyfi fyrir titl­inum enda lýsir Bragi honum sem risa á íslenskum bóka­mark­aði sem hann þori ekki að nálg­ast. Þó var talað við tvo lög­fræð­inga sem lásu bók­ina yfir áður en hún var gefin út til að tryggja að það væru engin lög brotin í

Lovísa Rut Krist­jáns­dóttir ræddi við Braga Pál Sig­urð­ar­son í Laga­list­anum á Rás 2. Hér er hægt að hlýða á þátt­inn í heild sinni í spil­ara RÚV.

Heimild:

Júlía Margrét Ein­ars­dóttir og Lovísa Rut Krist­jáns­dóttir. 2022, 13. jan­úar. Óheið­ar­leiki og klúður var minn raun­veru­leiki. Rúv. Slóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina