Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Gunnar smíðakennari svarar Guðmundi Steingríms: „Ég drekk ekki þvag og ég geng ekki um með álhatt“

Gunnar smíðakennari svarar Guðmundi Steingríms: „Ég drekk ekki þvag og ég geng ekki um með álhatt“
Gunnar Dan Wiium Mynd: Aðsend

Gunnar Dan Wiium, annar tveggja stjórn­enda hlað­varps­þátt­ar­ins Þvotta­húsið og smíða­kenn­ari skrif­aði sterkan en fal­legan pistil í morgun. Þar svarar hann pistli sem birt­ist í Frétta­blað­inu í dag sem ber heitið Þvag­drykkju­fólkið.

Þar skrifar Guð­mundur Stein­gríms­son um „and­bólu­setn­ing­ar­sinna.“

„Hér í morg­unsárið sit ég með kaffi­bollan og les Frétta­blaðið sem ein­hver setur inn í andyrið mitt á nótt­inni. Ég er alltof þreyttur því ég fór alltof seint að sofa, þið vitið, það var fimmtu­dags­kvöld , maður lengir helg­arnar, gam­all vani.

En ok, hér sit ég með Frétta­blaðið og les pistla og mis­hlut­drægar frétta­fyr­ir­sagnir. Einn fastur penni Frétta­blaðs­ins, góður penni, skrifar í dag pistil um Þvag­drykkju­fólkið.

Fyr­ir­sögnin vekur athygli, enda eitt það jað­ar­kenndasta sem ég veit um, að drekka sitt eigið þvag, ég hef aldrei prófað það, hef ekki einu sinni spáð í því, það getur ekki verið hollt held ég,“ skrifar Gunnar og bætir við;

„En alla­vega, hann ræðst þarna á í pistli sínum á fjöl­breyttan og óskipu­lagðan hóp fólks sem af marg­vís­legum ástæðum hefur ekki valið að láta bólu­setja sig að svo stöddu. Sumir af sam­sær­is­kenn­ing­ar­á­stæðum, sumir sökum mót­þróa­rösk­unar, sumir ein­fald­lega út frá ein­lægum heilsu­fars­sjón­ar­miðum og aðrir bara ein­fald­lega af því að þeir þurfa þess ekki því þeirra er valið. En eins og ég segi alls­konar, við erum alls­konar, fólkið, fjöl­breytt flóra í einum lík­ama.“

Því næst talar Gunnar um ofbeldi Stein­gríms.

„Þessi penni sem fær borgað fyrir rödd sína beitir hér ofbeldi með skrifum sínum. Hann setur stóran og fjöl­breyttan hóp manna og kvenna undir sama hatt og málar þau geð­veik, veik á geði, eins og ein­hver sérs­trú­ar­söfn­uður ein­hvers­staðar í rassa­bala sem dásamar þvag­drykkju í stað bólu­setn­ingar.“

Þá veltir Gunnar fyrir sér raun­veru­legri ástæðu neyð­ar­á­stands­ins á Land­spít­al­anum.

„Orð bera orku og á tímum sem þessum þar sem mann­eskjur eiga að standa sama á sömu jörð erum við að skipt­ast upp í fylk­ingar, við erum að beita hvort annað ofbeldi, með orðum meðal ann­ars.

Sjálfs­á­kvörð­un­ar­réttur minn yfir eigin lík­ama er heil­agur, ég borga skatta og ef ekki væri fyrir spill­ingu á svo mörgum sviðum og bara tek til dæmis sjáv­ar­út­veg­inn þá væri hér stærra og stöðugra heil­brigð­is­kerfi; ég er ekki að gera lítið úr því sem er, en í hverju felst neyð­ar­á­standið?

Er það í raun vegna þess að 5 eða 10 pró­sent þjóðar eru að setja heil­brigð­is­kerfið á hlið­ina með ákvörðun sem þeim er heim­ilt að taka eða eru pen­ing­arnir okkar að lenda í vösum örfárra manna?“

Svar Gunnars endar á fal­legum nótum.

„Ég vil hér með segja að ég drekk ekki þvag, ekki mitt eigið né ann­ara, ég geng ekki um með álhatt, ég er ekki með­limur í neinum hóp og ég er ekki einu sinni mót­fallin bólu­setn­ingum. Ég hef mínar ástæður fyrir öllu sem ég geri, mér er það í frjálst vald sett.Ára­mót­ar­heiti mitt í ár voru nokkur en eitt af þeim var að leggja mig fram við að iðka meiri náunga­kær­leik og sækj­ast eftir ríkj­andi ein­ing­ar­vit­und, sem þýðir að við erum ekki mörg, við erum ekki í flokkum né fylk­ingum af neinu tagi, við erum eitt og sær­indin sem ég veiti öðrum eru aldrei neitt annað en sær­indi í eigin garð.Sektin sem fram­kallar en meiri aðgrein­ingu situr alltaf eftir, því þú ert bróðir minn kæri Guð­mundur, við erum bræður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina