Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Björn Zoëga: „Mun hærri launahækkun en hjá öðrum heilbrigðisstarfsmönnum“

Björn Zoëga: „Mun hærri launahækkun en hjá öðrum heilbrigðisstarfsmönnum“

„Ég hugsa um hvernig starfs­fólki okkar líður, einnig fyrir far­aldur og nú síð­ast um hátíð­arnar, með því að taka auka­vaktir, tvö­faldar vaktir og yfir­vinnu. Þetta stingur í augun,“ segir Emma Jonsson, for­maður Félags heil­brigð­is­starfs­manna í Stokk­hólmi. En hún er gagn­rýnin á launa­hækkun Björns þar sem sér­stök umbun til fjölda heil­brigð­is­starfs­manna, sem rætt hafi verið um í tengslum við auka álag í far­aldr­inum, hafi ekki skilað sér.

Mán­að­ar­laun Björns Zoëga, for­stjóra Karol­inska sjúkra­húss­ins í Stokk­hólmi í Svíþjóð, hækk­uðu á síð­asta ári um nærri 30 þús­und sænskar krónur, jafn­virði um 430 þús­und íslenska króna. Laun hans eftir hækk­un­ina nema rúm­lega 270 þús­und sænskum krónum eða 3,9 millj­ónum íslenskra króna.

Tók við sérstöku ráðgjafarhlutverki

Björn Zoëga tók við sem for­stjóri Karol­inska árið 2019, en dag­ana fyrir síð­ustu jól var til­kynnt að hann myndi gegna sér­stöku ráð­gjaf­ar­hlut­verki fyrir nýjan heil­brigð­is­ráð­herra, Willum Þór Þórsson, þegar kemur að við­brögðum við heims­far­ald­ur­inn og stöð­una á Land­spít­al­anum.

Johan Styrud, for­maður Lækna­fé­lags Stokk­hólms, setur spurn­inga­merki við hækk­un­ina. Hann telur að læknum hafi hins vegar ekki verið umb­unað nægi­lega vegna þeirrar miklu vinnu sem þeir hafi skilað af hendi í heims­far­aldr­inum og sömu­leiðis nú í fjórðu bylgj­unni.

Hann setur spurn­ingar við þessa miklu launa­hækkun sjúkra­hús­for­stjóra Karol­inska.

„Tólf pró­sent er mjög mikið. Að Karol­inska hafi snúið við halla­rekstri teng­ist því að maður hafi hægt á flæði bráða­sjúk­linga þangað. Í ástandi þar sem allir hafi slitið sig út er gott að fara var­lega í allar svona launa­hækk­anir.“

Mun hærri launahækkun en hjá öðrum

Úttekt Dagens Nyheter sýnir að laun Björns hafi hækkað nokkuð umfram það sem gengur og ger­ist meðal ann­arra sam­bæri­legra stjórn­enda og er for­maður Lækna­fé­lags­ins í Stokk­hólmi í hópi þeirra sem sett hafa spurn­inga­merki við launa­hækkun for­stjór­ans.

DN segir laun Björns vera há í sam­an­burði við aðra sjúkra­hús­for­stjóra og hafi þessi tólf pró­senta launa­hækkun á síð­asta ári verið mun hærri en hjá öðrum. Þannig hafi for­stjóri Sahlgrenska sjúkra­húss­ins í Gauta­borg, Ann-Marie Wennberg Larkö, til dæmis verið með rúm­elga 170 þús­und sænskra króna í mán­að­ar­laun. Í grein­inni eru upp­hæð­irnar sömu­leiðis bornar saman við mán­að­ar­laun sænska for­sæt­is­ráð­herr­ans sem eru 180 þús­und, um 2,6 millj­ónir íslenskra króna.

Hann hefur náð að snúa við hallarekstri

Carina Lundberg Uudelepp, for­stjóri Region Stockholm sem er ábyrg fyrir að halda úti heil­brigð­is­þjón­ustu í Stokk­hólmi og nágrenni, segir að laun æðstu stjórn­enda séu ákvörðuð úr frá hæfni, rekstr­ar­nið­ur­stöðu og stöð­unni á mark­aði.

Hún segir að þegar kemur að Birni þá hafi spít­al­anum – undir hans stjórn – tek­ist að snúa við miklum halla­rekstri, á sama tíma og tek­ist hafi að fjölga sjúkra­rýmum og stytt biðlista hjá þeim sem bíða með­ferðar við krabba­meini. Hafi rekstr­ar­nið­ur­staðan raunar verið tals­vert umfram þess sem var kraf­ist.

Läkartidn­ingen, Lækna­blaðið sænska, segir frá því að á síð­asta ári hafi laun sænskra lækna hækkað um tvö pró­sent að jafn­aði að síð­asta ári.

Í frétt DN segir að þegar Björn tók við for­stjóra­stöð­unni árið 2019 hafi mán­að­ar­laun hans verið 234 þús­und sænskar krónur, tæpar 3,4 millj­ónir íslenskra króna. Þegar Björn hafi tekið við hafi hann farið fram á að fá sömu laun og for­ver­inn, 247 þús­und sænskar, en ekki fengið. Nú séu þau hins vegar 270.600 sænskar krónur á mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina