Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Kolbrún: „Kynferðisbrotamál sem eru kærð fara ekki fyrir dóm – málsmeðferðatími of langur“

Kolbrún: „Kynferðisbrotamál sem eru kærð fara ekki fyrir dóm – málsmeðferðatími of langur“

„Við vitum hvaða áhrif svona mál hafa á and­lega líðan brota­þola og vægi sál­fræði­vott­orða er orðið meira en það var. Þá hefur lög­reglan fengið meiri þjálfun í yfir­heyrslu­tækni og skýrslu­töku. Verk­lagið miðar allt því að upp­lýsa þessi mál betur og vægi óbeinna sönn­un­ar­ganga er alltaf að aukast. En í grunn­inn er megin reglan sú að ákæru­valdið þarf að sanna sök sem er hafið yfir allan vafa, ann­ars fáum við ekki sak­fell­ingu.“

Þetta segir Kolbrún Bene­dikts­dóttir, vara­hér­aðs­sak­sókn­ari, en hún fer með rann­sókn og sak­sókn ýmissa brota á stigi hér­aðs­dóms, þar með talin kyn­ferð­is­brot. Í við­tali við UN Women á Íslandi ræðir Kolbrún jafn­rétti, íslenska dóms­kerfið og hvernig unnið er að því að gera kerfið „mann­eskju­legra“ fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis.

Lögin hafi verið samin af körlum

Kolbrún var spurð að því hvort að hegn­ing­ar­lögin beri hag kvenna fyrir brjósti þar sem þau voru skrifuð af körlum? Munu konur hljóta rétt­læti ef farið er dóms­leið­ina?

„Ég skil þessa gagn­rýni. Sagan hefur sýnt okkur að margt í lag­ara­mm­anum er komið til ára sinna. Þetta eru í grunn­inn gömul lög sem voru skrifuð af körlum á tíma þegar karlar voru fyrst og fremst lög­gjaf­inn. En þetta er alltaf að breyt­ast. Sá hluti hegn­ing­ar­lag­anna sem hefur sætt hvað mestum breyt­ingum á síð­ustu árum er einmitt kyn­ferð­is­brotakafl­inn. Þetta er sá mála­flokkur sem hefur verið í hvað mestri þróun vegna bar­áttu femínista og umræð­unnar um jafn­rétti.

Nauðg­un­ar­á­kvæð­inu var breytt mjög mikið árið 2007 og það var pró­fessor Ragn­heiður Braga­dóttir sem samdi þau lög. Við erum líka komin með nýtt sam­þykk­is­hug­tak núna og það eru konur sem koma að því. Það er því kannski ekki hægt að halda því fram að lögin eins og þau leggi sig séu samin af körlum, því margt hefur breyst þar,“ útskýrir Kolbrún.

Hún seg­ist þó geta tekið undir þau sjón­ar­mið að kerfið sé ekki alltaf hlið­hollt þolendum þegar kemur að kyn­ferð­is­brota­málum.

„En þar hefur líka margt áunn­ist og margar jákvæðar breyt­ingar átt sér stað til að gera kerfið mann­eskju­legra. Það er þó alltaf spurn­ing hvort það hafi verið gengið nógu langt í þeim efnum.“

Stór hluti kyn­ferð­is­brota­mála sem kærð eru til lög­reglu fara ekki fyrir dóm. Til þess að ein­stak­lingur sé fund­inn sekur fyrir brot og dæmdur í fang­elsi, þarf ákæru­valdið að sanna svo hafið sé yfir allan skyn­sam­legan vafa að ein­stak­ling­ur­inn hafi framið brotið. Að sögn Kol­brúnar hefur aukin þekk­ing í mála­flokknum haft í för með sér ýmsar úrbætur, t.d. hvað varðar sönn­un­ar­mat.

Bið hefur áhrif á líf fólks og sönnunarstöðuna

„Máls­með­ferð­ar­tím­inn er alltof langur. Ekki bara hjá dóm­stólum sjálfum heldur hjá kerf­inu í heild. Kyn­ferð­is­brota­mál eru fyrst rann­sökuð hjá lög­reglu, svo koma þau til ákæru­valds­ins og sum þeirra fara svo áfram til dóm­stóla. Allir sem vinna innan kerf­is­ins verða að vera með­vit­aðir um það að fyrir brota­þola skiptir engu máli hvort að drátt­ur­inn í máls­með­ferð­inni liggi hjá lög­reglu, ákæru­vald­inu eða dóm­stólum. Bið hefur ekki aðeins áhrif á líf fólks heldur líka á sönn­un­ar­stöð­una. Kyn­ferð­is­brota­mál byggja að miklu leyti á minni vitna og það verður verra eftir því sem líður lengur frá broti,“ útskýrir Kolbrún.

Ákveðin refsipóli­tík

Samtalið berst næst að fang­els­is­dómum fyrir kyn­ferð­is­brot, sem sumum finnst ekki end­ur­spegla alvar­leika brot­anna.

„Refsiramm­inn í kyn­ferð­is­brotum er nokkuð víður lág­marks­refs­ingin er eitt ár og hámarkið er sextán ár. Miðað við önnur Norð­ur­lönd eru refs­ingar fyrir nauðg­anir á Íslandi í hærri kant­inum. Það sem fólk hefur helst verið að gagn­rýna er hvar ákveðin mál lenda innan þessa ramma. Þetta er ákveðin refsipóli­tík: Hvað er hæfi­leg refs­ing og hvað er það ekki?
Það er ýmis­legt sem þarf að huga að þegar refs­ing er ákvörðuð.

Í kyn­ferð­is­brota­máli gegn barni eru það ekki alltaf hags­munir brota­þola að ger­andi fái sem þyngsta refs­ingu því það eru oft mjög erf­iðar til­finn­ingar í slíkum málum. Þarna ertu með barn og það er oft pabbi eða afi sem brýtur á því og brota­þoli vill ekki endi­lega að ger­and­inn fari í fang­elsi í tutt­ugu ár heldur vill að brotið hætti og að ger­andi fái hjálp. Í svona málum, sér­stak­lega þegar brota­þoli er kom­inn á ung­lings­aldur, er það þetta sem brota­þola finnst oft erf­ið­ast í öllu ferl­inu, að ein­hver þeim nákom­inn þurfi að fara í fang­elsi í mörg ár.

Í stað þess að lengja dóma mundi ég frekar vilja sjá betri stuðn­ing við ger­endur í kyn­ferð­is­brota­málum og að þeir fái hjálp til þess að kom­ast út úr þess­ari óæski­legu hegðun. Ég er ekki endi­lega viss um að við yrðum betur sett ef fólk sæti lengri tíma í fang­elsi. En það er bara mín per­sónu­lega skoðun.“

„Margt af því sem eru hindr­anir, eru hindr­anir sem við höfum búið til og er auð­velt að breyta ein­fald­lega með því að hugsa hlut­ina öðru­vísi.“

Hún segir mestu máli skipta að kerfið sé nægi­lega sveigj­an­legt til að geta tekið til­lit til þarfa hvers og eins.

„En fyrst og fremst þurfum við sem störfum innan kerf­is­ins meiri fræðslu um þessi mál. Það þarf að koma á nýrri hugsun hjá fólki gagn­vart fötl­uðum. Við höfum svo lengi skil­greint þann fatl­aða út frá ófötl­uðum, en hugs­unin í dag er meira sú að fötlun er sam­blanda af því sem er „að“ og höml­urnar sem sam­fé­lagið setur þér út frá því. Fyrir mann­eskju í hjóla­stól er hjóla­stóll­inn ekki endi­lega hindr­unin, heldur það að ætla að heim­sækja vin­konu sem býr á fjórðu hæð í lyftu­lausu húsi. Margt af því sem eru hindr­anir, eru hindr­anir sem við höfum búið til og er auð­velt að breyta ein­fald­lega með því að hugsa hlut­ina öðru­vísi.“

Stjórn UN WOMEN á Íslandi

Hægt er að horfa á við­talið við Kolbrúnu hér. 

Heim­ildir:

UN Women á Íslandi. 2021, 5 nóv­em­ber. Kynslóð jafn­réttis: Kyn­ferð­is­brot­kafl­inn tekið breyt­ingum vegna bar­áttu femínista. Reykja­vík. Ísland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina