Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Áfallameðferð: „Staldra við, anda meðvitað og hægja nógu mikið á til að finna fyrir okkur sjálfum“

Áfallameðferð: „Staldra við, anda meðvitað og hægja nógu mikið á til að finna fyrir okkur sjálfum“

„Ég er áhuga­mann­eskja um mann­legt eðli og hvernig hægt er að bæta líðan og lífs­gæði. Ég er líka lífskúnstner og elska að njóta lífs­ins með fjöl­skyldu og vinum, bæði hér heima og erlendis. Frönsk menn­ing skipar stóran sess í mínu lífi þar sem ég var svo lánsöm að eign­ast franskan lífs­föru­naut sem hefur haft mikil áhrif á mig. Ég bjó í Englandi í nokkur ár og það hafði líka áhrif á mig. Það er flestum hollt að víkka sjón­deild­ar­hring­inn og upp­lifa mis­mun­andi menn­ingu og siði. Ég er Íslend­ingur en að sama skapi upp­lifi ég mig hluta af stærri heild, bæði sem Evr­ópu­búa og hluta af mann­kyni öllu.“

Mannlíf ræddi við Margréti Gunn­ars­dóttur, en hún starfar á EMDR stof­unni. Margrét er lærð M.Sc sálmeð­ferð­ar­fræð­ingur, sér­fræð­ingur í geð­sjúkra­þjálfun og EMDR með­ferð­ar­að­ili. Hún sér­hæfir sig í að hjálpa fólki að takast á við erf­ið­leika í nánum sam­skiptum og með sína áfalla­sögu. Hún segir að erf­iðar upp­lif­anir í æsku og áföll hafi mikil áhrif á sjálfs­upp­lifun og tengsl við annað fólk, en hún ætlar að fræða okkur um sína nálgun að sál­rænni með­ferð og áfalla­með­ferð.

Líkamleg og andleg heilsa er óaðskiljanleg

„Ég fann snemma að mig lang­aði að vinna með fólki og varð sjúkra­þjálfun upp­haf­lega fyrir val­inu hjá mér. Ég var samt ekki búin að vinna lengi sem sjúkra­þjálf­ari þegar ég fann að það var ekki alveg nóg fyrir mig. Ég vann við end­ur­hæf­ingu á Reykja­lundi fyrstu árin í starfi sem sjúkra­þjálf­ari og fann þá mjög skýrt að ekki er hægt að skilja að lík­am­lega og and­lega heilsu. Það vakti áhuga minn á að læra meira um sál­ræna part­inn.

Sá áhugi leiddi mig til Englands þar sem ég smátt og smátt bætti við mig þekk­ingu í sam­þættri sál­rænni með­ferð og áfalla­með­ferð.“

Und­an­farin ár hefur Margrét unnið á EMDR stof­unni sem býður upp á sál­fræði- og áfalla­með­ferð. Samhliða hefur hún verið í mjög áhuga­verðu alþjóð­legu fram­halds­námi í lík­ams- og núvit­und­ar­mið­aðri sál­rænni með­ferð sem heitir Hakomi mind­ful somatic psychotherapy.

„Ég er langt komin með þetta fjög­urra ára nám þar sem námslotur fara fram í fal­legum litlum bæ á Mallorca á Spáni.“

Fagaðili á geðheilsusviði

Þú ert sálmeð­ferð­ar­fræð­ingur. Það er ekki mjög þekkt fag­heiti hér á Íslandi. Getur þú útskýrt aðeins betur hvað það er?

„Sálmeð­ferð er íslenska þýð­ingin á „psychotherapy“ þannig að sálmeð­ferð­ar­fræð­ingur er „psychotherapist.“

Það er gaman að geta sagt frá því að fyrir rúmum tveimur árum var fag­fé­lag sálmeð­ferð­ar­fræð­inga á Íslandi stofnað, nán­ari upp­lýs­ingar um það er hægt að finna á www.salm.is.“

Sálmeð­ferð­ar­fræð­ingur er fag­að­ili á geð­heilsu­sviði, mennt­aður til að með­höndla ein­stak­linga með sál­rænan, til­finn­inga­legan og sál­fé­lags­legan vanda. Sálmeð­ferð­ar­fræði er sér­tækt fag aðskilið frá geð­lækn­is­fræði, sál­fræði og ráð­gjöf.

Unnið er út frá húmanískri nálgun þar sem litið er á ein­stak­ling­inn sem heild og áhersla lögð á hug­tök eins og frjálsan vilja, trú á eigin getu og þroska sjálfs­ins. Til að verða sálmeð­ferð­ar­fræð­ingur þarf að ljúka fjög­urra ára við­ur­kenndu námi í sálmeð­ferð en til eru margar útfærslur og nálg­anir í sálmeð­ferð. Oftast er fólk með fag­menntun á sviði sál­fé­lags- og heil­brigð­is­fræða á undan. Grunn­þáttur í sálmeð­ferð­ar­námi er að nem­andi þarf að kynn­ast sjálfum sér mjög vel og fara í gegnum eigin með­ferð í þeirri með­ferð­ar­nálgun sem hann er að læra. Ástæðan fyrir því er að með­ferð­ar­sam­bandið er lyk­il­at­riði og sálmeð­ferð­ar­fræð­ingur notar sjálfan sig sem með­ferð­ar­tæki. Til þess þarf hann að þekkja og vera í góðum tengslum við með­ferð­ar­tækið, þ.e. sjálfan sig.

Líkamsmiðuð sálræn meðferð

Hvað er lík­amsmiðuð sál­ræn með­ferð? Er þetta ný nálgun í sál­fræð­inni og hefur þessi nálgun reynst skjól­stæð­ingum þínum vel?

„Lík­amsmiðuð sál­ræn með­ferð eða það sem á ensku kall­ast „body“ eða „somatic psychotherapy“ er sál­ræn með­ferð þar sem lík­am­leg skynjun og upp­lifun er tekin með. Skoðað er hvernig reynsla og upp­lýs­ingar sitja í lík­am­anum ekki síður en í hug­anum og höfð­inu. Talað er um að með­ferð geti verið „neðan frá og upp“ (e. bottom-up) eða „ofan frá og niður“ (e. top-down). Þá er átt við hver byrj­un­ar­reit­ur­inn sé. Ef byrjað er neðan frá þá er fók­us­inn fyrst settur á innri skynjun og svo farið áfram í til­finn­ingar og hugs­anir. Ef byrjað er uppi þá er byrjað á hugsun og síðan farið áfram í til­finn­ingar og hugs­an­lega innri skynjun.

Það merki­lega er að hug­ur­inn er í raun mjög tak­mark­aður. Oft teljum við okkur vita eitt­hvað en það getur verið mjög yfir­borðs­kennt. Þegar við í alvöru tengj­umst inn á við og hlustum á allt kerfið þá fáum við oft upp­lýs­ingar sem liggja miklu dýpra og gefa nýjan skiln­ing og inn­sýn. Til eru nokkrar nálg­anir sem flokk­ast sem lík­ams­mið­aðar og er EMDR með­ferð sem margir hafa heyrt um til dæmis í þeim flokki.“

Rannsóknir á áhrifum áfalla og erfiðrar reynslu

Lík­amsmiðuð sál­ræn með­ferð er ekki ný af nál­inni. Mis­mun­andi útfærslur hafa verið í þróun frá því snemma á síð­ustu öld.

„Það sem hefur hins vegar komið lík­ams­mið­aðri sál­rænni með­ferð meira inn á kortið eru rann­sóknir und­an­farna ára­tugi á áhrifum áfalla og erf­iðrar reynslu á mann­eskj­una. Komið hefur í ljós að þegar verið er að vinna með áföll þá er sam­tals­með­ferð með áherslu á hug­ræna úrvinnslu ekki nóg.

Áföll og erfið reynsla hefur mikil áhrif á allt kerfið og situr í lík­am­anum, meðal ann­ars í tauga­kerf­inu. Því er mjög mik­il­vægt að vinna heild­rænt og taka lík­amann með þegar unnið er úr áföllum.

Banda­ríski geð­lækn­ir­inn og vís­inda­mað­ur­inn Bessel van der Kolk sem gaf út bók­ina „The body keeps the score“ árið 2014 er einn af þeim sem hafa haft mikil áhrif á þessa þróun. Einnig hefur upp­færð sýn á virkni og hlut­verk ósjálf­ráða tauga­kerf­is­ins þegar kemur að til­finn­inga­stjórnun, líðan og upp­lifun öryggis haft áhrif. Rann­sóknir tauga­vís­inda­manns­ins Stephen Porges hafa varpað nýju ljósi á starf­semi og mik­il­vægi flökku­taug­ar­innar (vagus) en hann er upp­hafs­maður Polyvagal kenn­ing­ar­innar.

Það er ótrú­lega öfl­ugt að vinna lík­ams­miðað, því þannig er oft hægt að kom­ast hratt að kjarna vanda sem ann­ars tæki langan tíma að átta sig á. Með því að fara í gegnum lík­ams­skynjun og upp­lifun fáum við aðgang að ómeð­vit­uðum upp­lýs­ingum sem ekki er hægt að fá aðgang að með hug­rænni vinnu ein­göngu.“

Stöðug þróun og ný þekking

Margrét segir það ótrú­lega spenn­andi að vinna á þessu sviði því það sé stöðug þróun og ný þekk­ing að verða til. Henni finnst gaman að sjá að það sem með­ferð­ar­að­ilar voru búnir að átta sig á út frá kenn­ingum og reynslu sé núna verið að stað­festa með rann­sóknum, sér­stak­lega innan tauga­vís­inda.

Það sem henni finnst áhuga­vert núna er sú vit­und­ar­vakn­ing sem er í gangi um mik­il­vægi þess að hlúa vel að ein­stak­lingum frá fæð­ingu og þá einnig að styðja for­eldra, umönn­un­ar­að­ila og sam­fé­lagið í heild í að mæta þörfum og vera til staðar á þann hátt sem börn hafa þörf fyrir.

Í allri með­ferð­ar­vinnu finnst Margréti gagn­leg­ast að mæta hverjum ein­stak­lingi þar sem hann er staddur og vinna með honum í að kynn­ast sjálfum sér betur. Það felur í sér að átta sig á ómeð­vit­uðu for­rit­unum sem drífa okkur áfram. Hún segir að: „þegar maður er búin að kynn­ast þeim og átta sig á hlut­verki þeirra er hægt að skoða leiðir til að upp­færa þau. Til þess þarf að hægja á hrað­anum, staldra við, hlusta inn á við og þá gefur lík­ams­skynjun oft mjög mik­il­væga inn­sýn.“

Tengslamyndun

Fólk sem leitar til Mar­grétar er með marg­vís­legar áskor­anir. Hennar sér­svið er tengsla­myndun, sam­skipti og áfalla­með­ferð.

„Því vinn ég mikið með ein­stak­lingum sem eru að takast á við erf­ið­leika í nánum sam­skiptum og með áfalla­sögu. Erfiðar upp­lif­anir í æsku og áföll hafa mikil áhrif á sjálfs­upp­lifun og tengsl við annað fólk. Þarna erum við að tala um að grund­vallar­ör­yggi hefur verið ógnað og getur það skapað lang­vinnt streitu­á­stand þar sem kerfið er nán­ast í stöðugri varnar- og við­bragðs­stöðu. Þá er nauð­syn­legt að vinna heild­rænt og meta t.d. ástand ósjálf­ráða tauga­kerf­is­ins sem er stöðugt að meta hversu örugg við erum.

Einnig leitar til mín fólk sem vill kynn­ast sjálfu sér betur og fá meira út úr líf­inu. Lífið er sam­fellt þroska­ferli og það að taka tíma til að staldra við og kynn­ast sjálfum sér betur gegnum þerapíu getur verið hjálp­legt á þessu þroska­ferða­lagi sem lífið er.“

Hægja nógu mikið á til að finna fyrir okkur sjálfum

Aðspurð hvaða ein­földu ráð hún gæti gefið okkur til að lifa í meira jafn­vægi. Þá segir Margrét:

„Að staldra við, anda með­vitað og hægja nógu mikið á til að finna fyrir okkur sjálfum ef við mögu­lega getum. Eingöngu þannig getum við í raun áttað okkur á hvað skiptir okkur máli og þá frekar hagað lífi okkar í sam­ræmi við það.

Lifa þannig meira með­vitað og velja frekar en að vera á sjálfs­stýr­ingu. Annað sem mér finnst mik­il­vægt er að rækta jákvæð og nær­ing­ar­rík sam­skipti við aðrar mann­eskjur. Góð tengsl við a.m.k. eina mann­eskju sem við getum treyst eru gríð­ar­lega mik­il­væg fyrir heilsu og lífs­gæði.

Flestir eru með­vit­aðir um mik­il­vægi nær­ingar, hreyf­ingar og svefns fyrir heilsu.  Ég legg áherslu á að einnig þarf að huga að félags­legum þáttum og nær­andi tengslum til að styðja við góða líðan. Allt sem dregur úr nei­kvæðri streitu og eykur örygg­is­til­finn­ingu gerir okkur gott. Því er sem dæmi gagn­legt að skoða hvar mér líður vel og með hverjum ég get slakað á og verið ég sjálf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við