Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Yara frá Mósambík: „Ég kalla Ísland heimili mitt með hlýju í hjarta“

Yara frá Mósambík: „Ég kalla Ísland heimili mitt með hlýju í hjarta“

Yara Polana er 33 ára „introvert“, létt í lund og mik­ill vinnu­forkur. Hún lærði graf­íska hönnun við Lista­há­skóla Íslands og starfar nú sem [senior] for­rit­ari hjá íslenska app-fyr­ir­tæk­inu YAY. Þegar aðstæður leyfa kemur hún fram með hljóm­sveitum sínum; Issamwera, Sunna Fridjons og Miðnótt. Í við­tali við Mannlíf ræðir hún um tón­list­ina, heima­land sitt og þegar hún flutti til Íslands til þess að fara í nám.

Yara er frá Mósambík og segir hún sitt heima­land vera heitt og þá á hún ekki bara við veðrið, heldur er hiti í fólk­inu. Hún segir að fólkið í Mósambík sé vin­gjarn­legt, opið og að menn­ingin sé mjög fjöl­breytt.

Öll lönd eiga sína kosti og galla

„Upp­haf­lega ætl­aði ég til Noregs í nám, en mann­eskjan sem sá um þær ráð­staf­anir veikt­ist og ég flutti í kjöl­farið til Íslands. Sem betur fer, þrátt fyrir erf­iða tíma hjá henni, tókst þess­ari fal­legu sál að gera ráð­staf­anir fyrir mig um inn­göngu í Lista­há­skól­ann á Íslandi í stað­inn.“

Yara hefur búið á Íslandi í nærri 10 ár og segir: „Öll lönd hafa nátt­úr­lega sína kosti og galla. Ég hef varið lung­anum úr mínum full­orð­ins­árum á Íslandi og íslensk menn­ing leikið gíf­ur­lega stórt hlut­verki í mótun minni í þá mann­eskju sem ég er í dag. Svo ég kalla Ísland heim­ili mitt, með hlýju í hjarta.“

Aðspurð hvort hún upp­lifi lík­indi með þessum tveimur löndum segir hún:

„Fyrir utan veru­legan póli­tískan mun, þá er veð­ur­farið aug­ljós­lega mjög ólíkt. Hins vegar er fólkið í þessum tveimur löndum gíf­ur­lega vin­gjarn­legt og ósvikið og þá er tón­listar- og lista­senan mjög lík. Sér­stak­lega núna, þegar inter­netið er orðið aðgengi­legra á fátæk­ari svæðum í Mósambík og auð­veld­ara fyrir fólk að finna sig, en listin lifir á hverju horni. Þetta er það sem ég fann einnig hér á Íslandi og það sem fékk mig til að upp­lifa Ísland sem heim­ili. Listin og tón­listin er alls staðar og ef maður tekur henni opnum örmum þá dafnar maður.“

Þú getur alltaf fundið þinn sess hér

Yara upp­lifir íslenska tón­list­ar­senu sem mjög fjöl­breytta og ríka, allt frá poppi til rapps, reggí til metaltón­listar.

„Sama hvaða „niche“-stefnu þú til­heyrir þá get­urðu alltaf fundið þinn sess hér, sem er mjög áhuga­vert fyrir tón­list­ar­heila eins og minn.“

Geturðu sagt okkur frá hljóm­sveit­inni Issamwera?

„Issamwera er íslensk afro-djass-fúsjon-hljóm­sveit sem var stofnuð í miðbæ Reykja­víkur. Nafnið varð til úr íslenska orð­inu sam­vera og orð­inu issamwera úr tungu­mál­inu sena frá borg­inni Beira í Mósambík. Orðið issamwera þýðir að koma eða að vera vel­komin.“

Hljóm­sveitin var stofnuð árið 2013 eftir að tón­list­ar­konan Yara, einnig þekkt undir nafn­inu Monace og er fædd og upp­alin í Mósambík, fékk „rytma-köllun“ að eign sögn. Yara leikur á ara­grúa hljóð­færa en gítar er aðal­hljóð­færið. Upp­spretta verk­efn­is­ins var heim­þrá, en Yara hljóð­ritar allt sitt efni í eigin heima­stúd­íói. Eftir að hún kynnt­ist tón­list­ar­mönn­unum Ellerti, Andres, Cheik, Ingó og Kwami varð hug­myndin að raun­veru­leika. Þeir krydd­uðu hug­mynd­ina með nýjum hljómi, kraft­miklum afrískum trommum og sterkum suð­ur­am­er­ískum straumum. Frá þeim tíma fékk hún trú á að það sem var að skap­ast væri ein­stakt og þess virði að halda áfram að móta.

Kjarna hljóm­sveit­ar­innar mynda Andres á bassa, Cheik og Kwami á slag­verk, Ellert á hljóm­borð, Ingólfur á gítar, og Yara á trommu­sett og í laga­smíðum. Á plöt­unni koma einnig fram gesta­spil­arar; Sunna Frið­jóns­dóttir, á þver­flautu og söng, og Arianna Ferro, sem syngur bak­rödd.

Blanda af afrískum og latín-töktum

„Við spilum blöndu af afrískum, latín- og djass­ryt­mum. Hvert lag hefur sína sögu, sitt eigið ferða­lag, og er jafn­vel sín eigin teg­und innan þess­arar blöndu.

Hljóm­sveitin hefur komið fram á Iceland Airwaves Offvenue, Fest Africa Reykja­vík í Iðnó, Vinyl Restaur­ant, Kaldabar, en upp­á­halds­giggið var á Menn­ing­arnótt á Vínyl, en þar náðum við hverjum ein­asta gesti út á dans­gólfið.“

Fyrsta plata þeirra mun koma út um út mitt þetta ár, en þau söfn­uðu fyrir kostn­aði hennar í gegnum Karolina Fund með 130% söfnun. Þau sem hafa styrkt geta nú þegar fengið aðgang að plöt­unni. 

Nokkur lög hafa verið gefin út á streym­isveitum og eitt lag af plöt­unni, suð­ræna lagið Ástin mín, og einnig lagið Lifa lengur, kom út 17. des­em­ber síð­ast­lið­inn og er stút­fullt af afrískum töktum.

Hvernig kom til að þessi hópur hljóm­list­ar­manna náði saman?

„Við tengjust á ákveð­inn hátt, við trúum því öll að saman getum við náð langt og skapað magn­aða tón­list og það er það sem hljóm­sveitin stendur fyrir. Okkur langar að deila með fólki hver við erum, hvaðan við komum, hvað við höfum upp­lifað, í gegnum tón­list­ina, og besta leiðin er að gera það saman, með þeim sem taka manni opnum örmum.“

Upplifa orkuna, kærleikann og gleðina

Hafi þið upp­lifað áskor­anir sem tón­list­ar­fólk upp á síðkastið og hvað hefur verið eft­ir­minni­leg­ast?

„Fyrir utan að ná 130% söfnun fyrir plöt­unni okkar, eru upp­á­halds­minn­ing­arnar tengdar „live“ fram­komum, þá sér­stak­lega á Menn­ing­arnótt þar sem stuðið var í hámarki. Þrátt fyrir að við hefðum tak­mark­aðan tíma til að spila bað fólk sífellt um meira. Tón­leikar okkar eru fullir af orku og gleði sem kveikir líf í fólki, og þar sem það er ekki eins að upp­lifa tón­list í gegnum upp­töku og heyrn­ar­tól, þá hvetjum við fólk að mæta á tón­leika hjá okkur í febr­úar, til að upp­lifa ork­una, kær­leik­ann og gleð­ina.“

Annars segir Yara að það séu alltaf áskor­anir í tón­list­ar­brans­anum. „Heims­far­ald­ur­inn hefur ekki gert okkur auð­velt fyrir að skipu­leggja tón­leika­ferða­lög og tón­leika. Auk þess erum við að leita eftir útflutn­ings- og útgáfu­tæki­færum, sem er erfitt þegar hljóm­sveitin passar ekki inn í rammann sem útflutn­ings­fyr­ir­tækin eru að leita að.“

Tónlistin leiðir inn suðræna, afríska veröld

„Við erum að vinna í tón­list­ar­mynd­böndum fyrir lagið sem nú þegar er komið út, Ástin mín, og lagið sem kom út 17. des­em­ber, Lifa lengur. Einnig munum við gefa út tvö önnur lög af plöt­unni á streym­isveitur, annað nú í jan­úar og hitt í febr­úar, ef ég man rétt.

Við viljum þakka öllum sem trúðu á okkur og styrktu okkur í gegnum Karolina Fund, þið voruð þau fyrstu sem trúðuð á okkur og gerðuð þetta allt mögu­legt. Fyrir ykkur sem þekkið okkur ekki, en lað­ist að fram­andi töktum, þá erum við hér. Og með tón­list­inni munum við leiða ykkur í suð­ræna, afríska ver­öld. Fylgið okkur á sam­fé­lags­miðlum, undir @issamweraband á Instagram og Facebook, og á Spotify undir nafn­inu Issamwera svo þið missið ekki af neinu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina