Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Hrafnhildur „Shoplifter“: Stórhættulegt að skilja mig eftir lengi eina, kyrra á einhverjum stað

Hrafnhildur „Shoplifter“: Stórhættulegt að skilja mig eftir lengi eina, kyrra á einhverjum stað
Hrafn­hildur Arn­ar­dóttir, Shoplifter. (Mynd: Aldís Páls­dóttir.)

„Það var ein­hvern veg­inn „now or never“ að setja verkið upp og gefa því heim­ili á Íslandi. Mér fannst þetta bara vera svo töff og kúl. Ég hef alltaf dáðst að þessum körlum sem hafa gert þetta; högg­mynda­gæj­unum,“ segir lista­konan Hrafn­hildur Arn­ar­dóttir, Shoplifter, sem hefur ásamt sam­starfs­konu sinni til margra ára, Lilju Bald­urs­dóttur, opnað eigið menn­ing­ar­hús í gömlu kart­öflu­geymsl­unum í Ártúns­brekku þar sem inn­setn­ing Hrafn­hildar, Chromo Sapiens, er til sýnis. Verkið var fram­lag Íslend­inga til Fen­eyjat­ví­ær­ings­ins árið 2019 og Hrafn­hildur segir það vera 500 fer­metra hár­greiðslu. Hrafn­hildur er þekkt víða um heim einmitt vegna lista­verka sinna sem eru úr bæði gervi- eða manns­hári.

Chromo Sapiens. Það er eitt­hvað grand við þetta nafn. Stórt heiti á stóru verki. „Lit­rófs­með­vit­und“.

Chromo Sapiens er heiti á um 500 fer­metra lista­verki Hrafn­hildar Arn­ar­dóttur, Shoplifter, sem var fram­lag Íslend­inga á Fen­eyjat­ví­ær­ingnum árið 2019. „500 fer­metra hár­greiðsla,“ segir lista­konan sem er þekkt víða um heim fyrir lista­verk sín úr hári; bæði manns­hári og gervi­hári. Hafn­hildur festi í fyrra kaup á tveimur af sjö bröggum gömlu kart­öflu­geymsl­unnar í Ártúns­brekku og opn­aði ásamt Lilju menn­ing­ar­húsið Höf­uð­stöð­ina 2. jan­úar.

„Þetta er búin að vera týpísk með­ganga, það eru níu mán­uðir frá því ég fékk hug­mynd­ina,“ segir Hrafn­hildur sem hefur verið búsett í New York í 25 ár en hefur dvalið á Íslandi um það bil frá því að heims­far­ald­ur­inn skall á eða frá því í mars 2020. „Í apríl í fyrra var ég að leita mér að stærri vinnu­stofu til að leigja í Reykja­vík þegar ég sá fast­eigna­aug­lýs­ingu þess efnis að til sölu væru tveir þess­ara sögu­frægu bragga sem ég hef horft löng­un­ar­augum á í fjölda ára og þá bara fann ég að þarna yrði ég að setja upp Chromo Sapiens og gefa verk­inu fram­tíð­ar­heim­ili á Íslandi, því það yrði aldrei til betri staður né stund til að láta þann draum ræt­ast. Ég hringdi í Lilju sem sá þetta alveg jafn vel fyrir sér, enda hefur hún starfað mjög náið með mér und­an­farin fimm ár og við rætt það áður að fara í þessa átt með þetta verk, svo við tvær ákváðum að ráð­ast í þetta hug­sjón­ar­verk­efni saman.“ Fram­kvæmdin tók þó lengri tíma en þær gerðu fyrst ráð fyrir, en þar sem Lilja er flutt til Íslands og heldur utan um verk­efnið hefur þetta gengið upp og Hrafn­hildur er nú meira á Íslandi fyrir vikið, en er áfram búsett í New York þar sem hún er með ung­linga í skóla.

Höf­uð­stöðin. (Mynd: Víðir Björns­son)

Yfirnáttúra

Aftur að Höf­uð­stöð­inni. Jú, Chromo Sapiens vakti mikla athygli á Fen­eyjat­ví­ær­ingnum og um 500 fer­metra hár­greiðslan í öllum regn­bog­ans litum og rúm­lega það gladdi augað. Gladdi sál­ina. Verkið er unnið úr gíf­ur­legu magni af fjölda­fram­leiddu þráðum og er þannig upp­sett að gestir ganga í gegnum þrjú ólík rými og hluti af verk­inu er tón­list hljóm­sveit­ar­innar HAM. Fyrsta rýmið sem gengið er inn í ber heitið Primal Opus, eða Frumstæð tón­sköpun, og er lágreistur hellir þar sem dökkar lita­sam­setn­ingar eld­hrær­inga eru ráð­andi. Þá blasir við stór hvelf­ing, Astral Gloria, eða Óður til útgeisl­unar, sem er fyllt skær­lit­uðum hár­breiðum. Og svo himneski hellir­inn Opium Natura, eða Víma nátt­úru, sem ein­kenn­ist af mjúkum lita­tónum sem umvefja áhorf­and­ann.

Það var athygl­is­vert að upp­lifa lok Fen­eyjat­ví­ær­ings­ins með flóði og svo nokkrum mán­uðum seinna kom heims­far­aldur og tví­ær­ingnum hefur verið frestað síðan að heims­far­ald­ur­inn kom upp.

Fen­eyjat­ví­ær­ing­ur­inn er opinn í sjö mán­uði og var lokað með látum það árið því haustið 2019 gerð­ist það sem kall­ast Aqua Alta, nátt­úru­ham­farir; háflóð sem sökkti borg­inni í sjó í nokkra metra víð­ast hvar. Chromo Sapiens skemmd­ist að hluta, það sem næst jörðu var, en var svo end­ur­bætt áður en það var tekið niður og sett í 40 feta flutn­ingagám. Gondól­arnir í Feneyjum og Mark­ús­ar­torgið minn­ingar einar. Leið Chromo Sapiens lá þá til Íslands yfir hafið bláa hafið og um 500 fer­metra hár­greiðslan lagð­ist að bryggju í Sunda­höfn og var flutt inn í Hafn­ar­húsið til sýn­ingar á vegum Lista­safns Reykja­víkur. Sú sýn­ing var opnuð 23. jan­úar 2020 og lauk eftir sex vikur með heims­far­aldr­inum og lað­aði á þeim stutta tíma að sér yfir 32.000 gesti. Því má segja að mikið hafi gengið á með sýn­ing­una síð­ast­liðin ár og for­vitni­legt í ljósi þess að yfir­skrift Fen­eyjat­ví­ær­ings­ins 2019 var heitið „May you live in inter­est­ing times“ en það er í raun til­vitnun í kín­verska bölvun.

„Það var athygl­is­vert að upp­lifa lok Fen­eyjat­ví­ær­ings­ins með flóði og svo nokkrum mán­uðum seinna kom heims­far­aldur og tví­ær­ingnum hefur verið frestað síðan að heims­far­ald­ur­inn kom upp. En nú verður spenn­andi að sjá hvaða snilld Sigurður Guð­jóns­son sýnir í Íslenska skál­anum í Feneyjum í ár þegar tví­ær­ing­ur­inn snýr aftur.

Eft­ir­spurn verks­ins lét ekki á sér standa og þegar það var vand­lega pakkað í sinn gám og erlend söfn farin að sýna áhuga á að setja upp verkið þá var það í flestum til­fellum of dýrt í fram­kvæmd eða hrein­lega pass­aði ekki inn í hús­næðið. Og hjá mér óx sú til­finn­ing að verkið ætti alls ekki að fara frá Íslandi; það bara varð að eiga heima hérna og skjóta rótum. Þetta var fram­lag Íslands til sýn­ing­ar­innar með hljóð­mynd eftir HAM, ramm­ís­lenska rokk­hljóm­sveit með aðstoð Skúla Sverr­is­sonar, og verkið í heild­ina algjör­lega klæð­skera­sniðið fyrir íslenska skál­ann í Feneyjum og hug­mynda­fræði­lega þróað verk­efni fyrir akkúrat þessa sýn­ingu. Hug­myndin um að það yrði að ein­hvers konar „far­and­verki“ bara pass­aði því ekki. Chromo Sapiens er áfanga­staður en ekki ferða­langur.“

Verk Hrafn­hildar, Chromo Sapiens. (Mynd: Carmeni)

Hrafn­hildi fannst vera til­valið að eign­ast bragg­ana tvo til að hýsa þar til fram­búðar verkin sín og um 500 fer­metra hár­greiðsl­una, Chromo Sapiens, og gera þar rými fyrir gesti þar sem hægt væri að staldra við og njóta sam­veru við aðra. Úr varð að hún festi kaup á þessum tveimur af sjö bröggum gömlu kart­öflu­geymsl­unnar og stofn­aði af því til­efni fyr­ir­tæki vegna kaupanna sem heitir Artafl. Það er orða­leikur, en ef sett er „k“ fremst og „a“ aft­ast þá er það orðið „kartafla“.

Lilja Bald­urs­dóttir, sem hefur starfað hjá Hraf­hildi um ára­bil, tekur þátt í þessu ævin­týri með henni. „Ég hef fífl­ast með það, að það sé stór­hættu­legt að skilja mig eftir eina lengi, kyrra á ein­hverjum stað, af því að þá fer ég bara fram úr sjálfri mér og veit ekki fyrr en ég er „óvart“ búin að opna safn.

Ég hef alltaf dáðst að þessum körlum sem hafa gert þetta; högg­mynda­gæj­unum.

Það var ein­hvern veg­inn „now or never“ að setja verkið upp og gefa því heim­ili á Íslandi. Mér fannst þetta bara vera svo töff og kúl. Ég hef alltaf dáðst að þessum körlum sem hafa gert þetta; högg­mynda­gæj­unum. Aldrei þessu vant dvaldi ég á Íslandi og gat gefið þessu þann tíma sem þurfti því flestum sýn­ingum sem voru á dag­skrá var frestað og ferða­lög­unum þar af leið­andi líka, svo hægt var að staldra við og taka púls­inn á vinn­unni og líf­inu eftir svaka­lega törn.

Svo er bara að sjá hve lengi sýn­ingin ber sig með sitt seg­ul­magn og svo er alltaf hægt að skipta sýn­ing­unni út ef maður vill. Verkin mín eiga nú að minnsta kosti þak yfir höfuð sér því ég virð­ist ekki vera míníma­listi enn sem komið er. Annar bragg­inn er sýn­ing­ar­salur og hýsir verkið og hinn er enda­braggi með stórum gluggum til suð­urs með sól­palli og hentar vel sem sam­komu­staður, fjöl­nota rými, með kaffi­húsi og hönn­un­ar­verslun, en einnig er hægt að leigja þann hluta fyrir við­burði og veislur. Ég lít á þetta eins og safn; þeir Einar Jónsson og Ásmundur Sveinson byggðu sér hof utan um mynd­list sína og það hafa í gegnum tíð­ina fleiri gert erlendis, svo sem Donald Judd í Marfa, Texas, og því ekk­ert nýtt af nál­inni. En ég er stolt af því að vera, að því ég best veit, fyrsta íslenska konan sem ræðst í svona verk­efni upp á eigin spýtur fyrir sín verk. Við eigum þó söfn sem bera heiti lista­kvenna einsog Gerð­ar­safn, en þau eru þá stofnuð til heið­urs við­kom­andi að þeim látnum. Ég hef alltaf verið brött og stór­huga í mér, bjart­sýn og áræðin og geri mér fylli­lega grein fyrir því að þetta ber einnig með sér slatta af hégóma. En verkið á þetta bara svo skilið og það hefur þannig aðdrátt­ar­afl, og er þess eðlis sem í dag má kalla upp­lif­un­ar­verk, að það ræður við þetta sjálft og væri sorg­legt ef það fengi ekki að líta dags­ins ljós og verða að því „monu­menti“ sem það ein­hvern veg­inn varð með gíf­ur­legri aðsókn bæði í Feneyjum og á Íslandi, eins og margar af stærri inn­setn­ingum mínum og að vera full­trúi Íslands á Fen­eyjat­ví­ær­ingnum markar ákveðin vatna­skil á mínum ferli.“

Hrafn­hildur segir að verkið sé eins og yfir­nátt­úra sem verður ein­kenni­leg blanda af áhrifum frá bæði íslenskri nátt­úru en svo líka lit­skrúð­ugri fjöl­menn­ingu New York-borgar og popp­kúltúr og það sem oft er talið vera yfir­borðs­kennd menn­ing Banda­ríkj­anna. „Eitt er að verkið á sér sann­ar­lega djúpar rætur á Íslandi þar sem ég sleit barns­skónum og bjó á mínum helstu mót­un­ar­árum til 25 ára ald­urs. Tón­myndin sem HAM skap­aði fyrir verkið í sam­vinnu við Skúla Sverr­is­son tón­list­ar­mann hefur verið ríkj­andi „soundtrack“ í líf­inu og á vinnu­stof­unni vegna hrá­leika, ryþma, ofur­drama og stór­kost­legrar texta­gerðar; þetta gerir verkið frekar íslenskt en svo bland­ast það áhrifum af þeim 25 árum sem ég hef verið búsett í New York með sínum ara­grúa af fólki, ýktri birt­ing­ar­mynd neyslu­menn­ingar, hraða og því lit­ríka lífi sem ég hef lifað þar. Þannig að ef ég leyfi mér að ein­falda þetta rosa­lega, þá er hér sam­runi mold­ar­kof­ans og blikk­andi rús­sí­bana.“

Chromo Sapiens. (Mynd: Carmeni)

Hrafn­hildur segir að höf­uð­stöðin sé eins og Lilja rétti­lega kalli hana fyrst og fremst áning­ar­staður fyrir fólk á öllum aldri. Plast­plan með Björn Steinar Blu­men­stein í far­ar­broddi hann­aði inn­viði en Hrafn­hildur kynnt­ist honum á Lunga-hátíð­inni þar sem þau voru bæði leið­bein­endur með nám­skeið, en hún hefur brenn­andi áhuga á end­ur­nýt­ingu á plasti í hönn­un­ar­til­gangi sem er í takt við hvernig hún sjálf kýs að end­ur­nýta allan sinn efni­við aftur og aftur á fjöl­breyti­legan hátt. Þær Lilja ákváðu að hafa hönn­un­ar­búð með ýmsum vörum sem Hrafn­hildur hefur verið að hanna alla tíð út frá mynd­list sinni og heim­færir á nytja­hluti eins og fatnað, fylgi­hluti og plaköt. Með til­komu safn­búð­ar­innar er líka kom­inn vett­vangur til að fram­kvæma og bjóða upp á, á einum stað, muni sem falla meira undir nytja­list og hönnun en mynd­list þótt það hald­ist í hendur fag­ur­fræði­lega og sé í sam­hengi við list Hrafn­hildar sem er líka þekkt fyrir hönnun sína og sam­starfs­verk­efni með fyr­ir­tækjum og hönn­uðum á borð við & Other Stories, Noir by Kei Ninomyia hjá Comme des Garcons, Bioeffect og Moncler. Svo er hægt að staldra við og njóta útsýnis og nátt­úr­unnar í Elliða­ár­dalnum og fá sér veit­ingar.

Höf­uð­stöðin. (Mynd: Víðir Björns­son)

Náttúruleg víma

Hár. Það eru þessi hár sem eru upp­spretta lista­verk­anna og eru í öllum regn­bog­ans litum og meira en það. Túlka gleði og sorg. Eins og ástin sem kviknar og jafn­vel ástin sem slokknar. Litadýrð lífs­ins. Til­finn­ing­anna.

Hrafn­hildur, sem er 52 ára og skartar gráu hári, var 18 ára dökk­hærður starfs­maður versl­un­ar­innar Fríðu frænku þegar hún eign­að­ist litla blóma­grein úr manns­hári. „Þetta var hár­blóm; hefð sem hægt er að tengja allt til um árs­ins 1600 og er kallað „Victorian memory flowers“. Þetta snerti ein­hverjar taugar í mér bæði hvað varðar hvað þetta var fal­legt en líka hvað þetta var „mor­bid“, því þetta er í raun­inni úr lík­ama ann­arrar mann­eskju. Ég upp­lifi þetta sem minn­is­varða um mann­eskj­una sem var algeng­ara áður en ljós­myndin kom til sög­unnar. Þetta var það eina sem fólk gat haldið í eftir að ást­vinur var far­inn.“

Hún lauk síðar námi frá Mynd­lista- og hand­íða­skóla Íslands og seg­ist hafa gert alls konar mynd­list eftir það. Það liðu mörg ár þar til hár varð aðal­hrá­efnið í list hennar.

„Smátt og smátt fóru að rifj­ast upp fyrir mér alla­vega teng­ingar og hug­hrif sem eiga sér upp­sprettu tengda hári í gegnum tíð­ina, til dæmis það að amma mín átti fléttu sem hún hafði klippt af hári sínu þegar hún var ung kona. Fléttan var geymd í skúffu í snyrti­borð­inu hennar og kíkti ég oft á hana þegar ég var barn. Þetta var minn­is­varði um hennar yngri ár, æsku­ljóma hennar, þannig að með tíð og tíma hafa flotið upp á yfir­borðið úr und­ir­með­vit­und­inni alla­vega ástæður fyrir því að ég dróst að þessum efni­við frekar en öðrum. Svo hafa verk mín vakið athygli og það hefur verið mikil eft­ir­spurn eftir þessum inn­setn­ingum, þannig að þetta leiddi mann áfram af sjálfu sér.“

Hrafn­hildur segir magnað hvað mann­eskja býr til og fram­leiðir mikið af skrýtnum hlutum og í stórum stíl. „Á það meðal ann­ars við um gervi­hár sem þá sprettur upp út frá notkun á manns­hári í margs konar til­gangi þannig að úr verður áhuga­verð hringa­vit­leysa, að manni finnst stundum, en samt svo heill­andi mann­fræði­fyr­ir­brigði. Til að byrja með sner­ist þetta svo­lítið meira um mann­eskj­una, hégóma og sjálfsí­mynd og ég man þegar ég keypti fyrstu hár­leng­ing­una í búð í New York. Síðan fann ég manns­hár og fór að nota það og af því að ég mundi eftir þessu hár­blómi þá reyndi ég að læra þá tækni, en það tókst ekki betur en svo að ég rambaði síðan á íslenska konu, Ástu Björk hjá Hárverk, sem hefur lært þessa hefð. Þegar ég gerði til dæmis Bjark­arplöt­una, Medúlla, þá pant­aði ég blómsveiga úr bæði manns­hári og hross­hári frá henni sem ég svo keypti af henni og not­aði á höfði Bjarkar í mynda­tök­unni í bland við hennar eigið hár ásamt minni skúlp­t­úrum úr manns­hári sem ég var búin að vefa og flétta saman. Svo nálg­að­ist ég verk­efnið eins og ég væri að gera „still life“ blóma­skreyt­ingu.“

Hrafn­hildur segir að í byrjun hafi fléttu­verkin svo­lítið tengst því að sjá hár í öðru sam­hengi og ýktum stærð­ar­hlut­föllum en við erum vön. „Síðan þegar ég fór að vilja nota meiri liti, ekki bara vera með teng­ingu við mann­eskj­una heldur líka við popp­kúlt­úr­inn og þessa hár­kollu­áráttu, þá fór ég að nota meira gervi­hár og þá er líka hægt að fá lengra hár til þess að gera lengri fléttur. Ég hef ekki haft efni á því að gera þetta úr manns­hári og það er ekk­ert nauð­syn­legt, heldur skiptir máli hvernig gervi­efni­við­ur­inn getur samt skilað af sér hug­hrifum af manns­hári.

Ég fór síðan að gera lit­rík fléttu­verk og fyrsta verkið sem ég gerði þannig var í glugga í MoMA, Museum of Modern Art í New York; þetta var risa­stórt glugga­verk, lit­rík lág­mynd á vegg og þá var ég í raun­inni að nálg­ast þetta eins og mál­verk sem þá varð að ein­hvers konar expressjón­ísku textíl­mál­verki. Það er for­vitni­legt í ljósi þess að ég útskrif­að­ist frá mál­ara­deild Mynd­lista- og hand­íða­skól­ans þar sem mér fannst alls ekki nægja mér að vinna með pensil á tví­víðan flöt.“

Þessir æpandi litir sem ég nota smjúga inn um sjón­himn­una og örva skiln­ing­ar­vitin svo tauga­end­arnir í heil­anum fara á fullt að fram­leiða dópamín og þessi „feel good“-efni í lík­am­anum sem skipta svo miklu máli að fái örvun.

Jú, lita­dýrðin í verkum Hrafn­hildar er stór­kost­leg.

„Ég les mikið um tauga­sál­fræði og um hvers kyns áhrif á heila­starf­sem­ina, efna­fræð­ina í heil­anum og hvernig heil­inn pumpar út vellíð­un­ar­efnum og öðru til þess að létta okkur lífið. Þessir æpandi litir sem ég nota smjúga inn um sjón­himn­una og örva skiln­ing­ar­vitin svo tauga­end­arnir í heil­anum fara á fullt að fram­leiða dópamín og þessi „feel good“-efni í lík­am­anum sem skipta svo miklu máli að fái örvun. Það er búið að sanna þetta vís­inda­lega síðan ég fór að spá í þetta. Þannig að þetta er raun­veru­lega bara nátt­úru­leg víma sem ég er að bjóða fólki upp á.“

Broskarl. (Mynd: Jan Berg)

Broskar­lar Hrafn­hildar hafa glatt margan mann­inn. „Það er ákveð­inn húmor og létt­leiki í þeim; popp­kúltúr og popp­list. Ég er senni­lega þráð­lista­mál­ari sem gerir popp­list með popp­kúlt­úrá­hrifum og með til­vísun í eins og þessa broskarla sem fljúg­ast á í skila­boð­unum á milli okkar við­stöðu­laust. Þessi broskar­la­árátta hefur verið með okkur í tugi ára. Það er bara eitt­hvað við þá. Þeir gleðja mann fárán­lega mikið og þegar þeir eru orðnir svona loðnir og krassandi og komnir með svona mik­inn karakter, þá finnst mér þeir ómót­stæði­legir. Ég nota alla­vega liti og lita­sam­setn­ingar og teikna aftur hvern og einn í hvert skipti þannig að þeir eru aldrei eins. Þeir eru í ýmsum stærðum og svo klippi ég þá til eftir á; þannig gef ég þeim sína eigin hár­greiðslu og sumir eru loðn­ari en aðrir og með þessu fá allir sinn eigin karakter.“

Hrafn­hildur seg­ist alltaf vera með einn eða tvo starfs­menn á launum í stúd­íó­inu í New York en þegar stór verk­efni eða sýn­ing er fram undan fjölgar aðstoð­ar­mönn­unum og verða þeir þá fimm til tíu. Það þarf að klippa niður og blanda hárið og setja í knippi og binda á net fyrir stórar inn­setn­ingar eða flétta risa­stórar flétt­urnar. „Þeir aðstoða mig við það sem aðrir geta gert jafn vel og ég, en svo geri ég það sem eng­inn annar getur gert.“

Ég fer til Ítalíu í febr­úar að setja upp stóra sýn­ingu í Bramante-klaustr­inu í Róm og verð svo með aðra sýn­ingu í Svíþjóð á Market Art Fair í apríl í sam­vinnu við Larsen Warner Gallery.

Lista­verk Hrafn­hildar Arn­ar­dóttur, Shoplifter, eru ein­stök og það er margt fram undan. „Ég fer til Ítalíu í febr­úar að setja upp stóra sýn­ingu í Bramante-klaustr­inu í Róm og verð svo með aðra sýn­ingu í Svíþjóð á Market Art Fair í apríl í sam­vinnu við Larsen Warner Gallery. Það er spenn­andi að sjá að verk­efnin poppa upp í inbox­inu þétt og örugg­lega, margt mjög spenn­andi en sumt kannski ekki og dettur inn ein og ein fyr­ir­spurn sem er virki­lega út úr kú fyrir mér, eins og að vera þátt­tak­andi í fönd­ur­keppni í raun­veru­leika­þætti í Hollywood. Takk, en neitakk. En góða skemmtun!“

Lilja Bald­urs­dóttir og Hrafn­hildur Arn­ar­dóttir.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina