Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Zohara Kristín greindist með Covid fjórum dögum fyrir settan tíma: „Mikið sjokk að greinast“

Zohara Kristín greindist með Covid fjórum dögum fyrir settan tíma: „Mikið sjokk að greinast“
Zohara Kristín Guð­leif­ar­dóttir

„Þetta var mikið sjokk. Ég var búin að und­ir­búa mig undir ýmis­legt sem gæti farið úrskeiðis í fæð­ing­unni en ég var ekki búin að búa mig undir að fá Covid og geta endað í fæð­ingu án þess að fá að hafa fylgd­ar­mann með mér,“ segir Zohara Kristín Guð­leif­ar­dóttir sem eign­að­ist sína aðra dóttur á gaml­árs­dag en hún hafði greinst með Covid fjórum dögum áður ásamt eldri dóttur sinni.

„Við vorum búin að passa okkur mjög vel; við tókum til dæmis stelpuna okkar snemma í jóla­frí af leik­skól­anum um miðjan des­em­ber svo að það væri minni hætta á að hún myndi smit­ast. Við tókum líka heima­próf dag­lega í kringum jólin og fjöl­skyldur okkar gerðu það líka svo við gætum hitt þau án þess að vera stressuð um að smit­ast.“

Zohara Kristín eign­að­ist eldri dóttur sína á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja en það var meðal ann­ars vegna heims­far­ald­urs­ins sem hún kynnti sér og kaus heima­fæð­ingu þegar hún var langt gengin með yngra barn sitt. Þá segir hún að ein vin­kona sín hafi nýlega fætt heima og hafi mælt með heima­fæð­ingu.

Ég var hins vegar ekki búin að und­ir­búa mig undir að fá Covid og geta þannig séð endað ein í fæð­ingu þannig að það var mikið sjokk að grein­ast.

„Ég varð heilluð af heima­fæð­ingum þegar ég sá hvað allt gekk vel undir lok með­göng­unnar og þegar við töl­uðum við ljós­mæð­urnar hjá Lífið – heima­fæð­ingum þá heyrðum við að það væri í raun­inni lít­ill munur á að eiga heima eða á HSS þar sem þar eru engin inn­grip í fæð­ingum.

Barnið var búið að skorða sig og okkur var sagt að miðað við hvernig fyrri fæð­ingin gekk þá væru mjög litlar líkur á inn­gripum í þess­ari fæð­ingu. Mér hafði ekki einu sinni dottið heima­fæð­ing í hug áður en ég átti eldri dóttur okkar. Ég var mjög afslöppuð varð­andi allt en ég var líka búin að und­ir­búa mig and­lega til dæmis undir það ef eitt­hvað kæmi upp á og ég myndi enda í bráða­keis­ara eða álíka og pass­aði mig alveg að hvorki plana neitt né ákveða hvernig fæð­ingin myndi verða fyrir fram enda margt sem getur komið upp á sem maður sjálfur hefur ekki stjórn á.

Ég var hins vegar ekki búin að und­ir­búa mig undir að fá Covid og geta þannig séð endað ein í fæð­ingu þannig að það var mikið sjokk að grein­ast.“

Zohara Kristín greind­ist með Covid 10 dögum fyrir settan dag en á þeim tíma þurfti fólk einmitt að vera í ein­angrun í 10 daga eftir að það greind­ist. Hún var slöpp fyrstu þrjá dag­ana og var með hita og fann fyrir and­þyngslum en vakn­aði svo nán­ast ein­kenna­laus fjórða dag­inn. Maðurinn hennar fór reglu­lega í Covid-próf en var nei­kvæður framan af.

Zohara Kristín fór svo að fá hríðir þennan dag – fjórum dögum eftir að hún greind­ist.

„Ég hefði ekki treyst mér í heima­fæð­ingu dag­ana á undan út af því að ég var þá með svo mikil and­þyngsli. Ég hefði þurft að fara á Land­spít­al­ann og eiga þar án þess að hafa með mér fylgd­ar­að­ila þar sem ég var smituð en ég var í góðu sam­bandi við ljós­mæð­urnar hjá Lífinu – heima­fæð­ingum og tal­aði við þær og þá kom í ljós að ljós­móðir á þeirra vegum var einnig með Covid og hún fékk leyfi til að vera við­stödd fæð­ing­una heima.

Það gerði mig rólegri.

Önnur ljós­móðir kom svo í öllum gall­anum þegar ég var komin í virka fæð­ingu; hún var ekki smituð og var meira til hliðar og var til­búin ef eitt­hvað kæmi upp á en þær eru venju­lega tvær þegar barn er að koma í heim­inn. Þetta var ein­hvern veg­inn óraun­veru­legt.“

Þess má geta að mág­kona Zohöru Krist­ínar hafði greinst með Covid dag­inn eftir að hún greind­ist og var hún á heim­il­inu þessa daga svo hún þyrfti ekki að vera ein í ein­angrun og til að setja ekki alla á heim­ili sínu í lengri sótt­kví.

Ljós­mæð­urnar voru búnar að koma með fæð­ing­ar­laug áður en Zohara Kristín greind­ist með Covid og á gaml­árs­dag var hún blásin upp og fyllt í stof­unni á heim­il­inu.

Mér fannst ég vera mjög örugg innan um ljós­mæð­urnar og á mínu eigin heim­ili með mínu fólki.

„Þetta var mjög skrýtið; ég var mjög róleg eftir að ég byrj­aði með hríðir og var meðal ann­ars bara að setja barna­föt í þvotta­vél þar sem ekk­ert var til­búið.

Ég var mjög róleg yfir þessu öllu.

Mér fannst ég vera mjög örugg innan um ljós­mæð­urnar og á mínu eigin heim­ili með mínu fólki. Það var dásam­legt að vita til þess að eldri dóttir okkar væri með okkur í þessu,“ segir Zohara Kristín en fjög­urra ára dóttir hennar vissi að von væri á litlu systk­ini og að mömmu sinni ætti eftir að kenna til en að það væri samt ekk­ert hættu­legt.

„Við vorum búin að und­ir­búa hana vel og hún fékk alveg sjálf að taka þá ákvörðun hvort hún vildi vera með í þessu öllu og var hún mjög spennt fyrir því.”

Hún vildi fara ofan í laug­ina með mömmu sinni og litla systk­ini sínu þegar hún sá að það var komið í heim­inn.

„Það var eig­in­lega magnað; hún vildi halda á systk­ini sínu strax og ég held að þetta hafi verið góð upp­lifun fyrir hana. Við vissum ekki kynið fyrir fram svo að hún fékk það hlut­verk að segja okkur hvert kynið væri þegar hún kom ofan í laug­ina. Hún hélt að hún væri að eign­ast lít­inn bróður og var smá svekkt að þetta væri stelpa en varð fljótt mjög ánægð að eiga systur og er í dag mjög stolt stóra systir.“

Zohara Kristín segir að hún hafi jafnað sig fljótt eftir fæð­ing­una og verið farin að leika sér við eldri dóttur sína tveimur tímum síðar.

Hún er spurð hvort hætta hafi verið á að nýfætt barnið, lítil stúlka, hafi smit­ast af Covid.

„Ég lét sem betur fer bólu­setja mig á með­göng­unni og ég vil ekki hugsa um það hvernig þetta hefði getað farið ef ég hefði ekki gert það. Mér skilst að hún hafi fengið mótefni af bólu­efn­inu; hún fór ekki í neitt próf. Ég veit í raun­inni ekki þannig séð hvort hún hafi fengið veiruna eða ekki. Hún hefur alla­vega ekk­ert orðið veik.

Ég hafði verið í eft­ir­liti hjá Covid-göngu­deild­inni vegna þesss að ég var ólett og þau höfðu sam­band við mig dag­inn eftir að hún fædd­ist en þá voru þau mjög hissa á að barnið væri komið í heim­inn. Ég var í hálf­gerðu móki og man eig­in­lega ekk­ert eftir sím­tal­inu en það var talað um að ég ætti að vera dug­leg að hafa hana á brjósti vegna Covid hjá mér.“

Ég mæli auð­vitað ein­dregið með því að óléttar konur láti bólu­setja sig.

Zohara Kristín segir að það sé magnað hvernig allt fór svo sem að mág­kona hennar hafi verið á heim­il­inu og getað séð um eldri dótt­ur­ina á meðan mað­ur­inn hennar gat ein­beitt sér að henni og að hún hafi getað fætt heima þar sem ein ljós­móð­irin hafi líka verið með Covid.

„Þetta var eig­in­lega bara full­komið allt saman svona eftir á að hyggja; bæði aðdrag­and­inn og fæð­ingin sjálf. Það er eins og þetta hafi allt átt að ger­ast. Við mæðgur með Covid, ljós­móð­irin með Covid og mág­kona mín hjá okkur með Covid.

Ég er eig­in­lega viss um bólu­setn­ingin hafi hjálpað hell­ing og komið í veg fyrir alvar­legri veik­indi hjá mér og ég held ég hafi aldrei verið eins þakk­lát fyrir að vera bólu­sett. Ég er einnig mjög þakk­lát báðum ljós­mæðr­unum og líka að önnur ljós­móð­urin sem var ekki smituð hafi komið og verið í öllum gall­anum til að vera við­stödd ef eitt­hvað skyldi koma upp á; hún var að setja sig í áhættu þannig séð með því að mæta. Ég er líka þakk­lát að mág­kona mín hafi verið hjá okkur á meðan hún var í ein­angrun. Þetta var allt magnað ef út í það er farið.

Ég mæli auð­vitað ein­dregið með því að óléttar konur láti bólu­setja sig. Ég mæli líka með því að verð­andi for­eldrar kynni sér heima­fæð­ingu og hvort þetta sé eitt­hvað fyrir þau ef það er ekk­ert því til fyr­ir­stöðu  að eiga heima.“

Maður Zohöru Krist­ínar hafði frá því að hún og eldri dóttir þeirra greinst með Covid haldið sig í hæfi­legri fjar­lægð og notað einn annað tvegga bað­her­bergja á heim­il­inu. Það var erf­ið­ara að halda sig í fjar­lægð á meðan á fæð­ing­unni stóð og greind­ist hann með Covid dag­inn sem mæðgurnar útskrif­uð­ust úr ein­angr­un­inni.

„Hann varð ekk­ert svo mikið slappur sem betur fer.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við