Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sjúkdómurinn hefur áhrif á alla fjölskylduna: „Ég hata hann útaf lífinu, hann er óþolandi“

Sjúkdómurinn hefur áhrif á alla fjölskylduna: „Ég hata hann útaf lífinu, hann er óþolandi“

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­húsið er umdeild­asti knatt­spyrnu­dóm­ari Íslands fyrr og síðar, Garðar Örn Hin­riks­son sem einnig er þekktur sem Rauði Baróninn. Garðar ræddi við Gunnar um dóm­ara­starfið og veik­indin sem hafa hrjáð hann síðan 2016 en þá greind­ist hann með Parkison.

Gunnar spjall­aði einn við Garðar í fjar­veru Davíðs sem er heima í ein­angrun með Covid-19. Það sem verra er er sú stað­reynd að Gunnar hefur ekki hunds­vit á knatt­spyrnu og því á hálum ís hvað varðar spurn­ingar um þá íþrótt.

Klíkan í alþjóða­bolt­anum

Talið barst þó fljótt að knatt­spyrn­unni og dóm­ara­ferli Garðars sem spannar heil 30 ár.
Garðar byrj­aði sem aðstoða­dóm­ari upp úr ferm­ingu og smá sama vann hann sig upp met­orða­stigan innan dóm­ara­stétt­ar­innar og undir lokin hafði hann verið alþjóða­dóm­ari í ein fjögur ár sem þykir afrek eitt og sér.

Gunnar spurði Garðar út í klík­una sem virð­ist loða við dóm­ara­stétt­ina og þá sér­stak­lega erlendis.

„Þú þarft að fara ákveðnar leiðir, málið er að þeir dæma þig ekk­ert eftir því hvernig þú dæmir inn á vell­inum, þeir dæma þig hvernig þú ert utan vallar. Þetta er svona 80% utan vallar og 20% inn­an­vallar.“

Garðar sýnir þekkta takta

Garðar sagði frá því þegar hann var erlendis á alþjóð­legri dóm­araný­liða­ráð­stefnu og Pierluigi Collina kemur á svæðið. „Hann kemur á svæðið og allir dóm­arar á svæð­inu rjúka bara á hann, þeir kyssa hann og snerta hann og ég veit hvað og hvað nema hel­vítis Íslend­ing­ur­inn,“ segir Garðar og bætir svo við, „ef menn geta ekki bara metið mig af eigin verð­leikum þá bara fokk jú.“

Gunnar bar upp spurn­ingu „úr sal“ sem kom frá Davíð sjálfum sem var eins og komið er fram, vant við lát­inn. Hver var mest pirr­andi eða dóna­leg­asti knatt­spyrnu­maður hann hefur þurft að takast á við?

„Það kemur fram í bók­inni Rauði bar­ón­inn, umdeild­asti knatt­spyrnu­dóm­ari Íslands­sög­unar.” og bætir svo við. „Með leið­in­legri mönnum sem ég hef dæmt hjá heitir Baldur Sig­urðs­son, hann spil­aði með Stjörn­unni og KR meðal ann­ars. Hann var bara leið­in­legur og alltaf vælandi.“

Gunnar spurði hann hvort leð­indin hafi verið á per­sónu­legum nótum en Garðar sagði að svo hafi ekki verið. Hann bendir þó á annan leik­mann sem fór inn í tauga­kerfið hans á per­sónu­legum nótum.

„Per­sónu­legt var það einnig og það kemur fram í bók­inni líka en það var Jóhann Þór­ólfs­son. Hann spil­aði með Þór á Akureyri og Grinda­vík. Það var eitt­hvað fannst mér per­sónu­legt.”

Garðar heldur því samt sem áður fram að honum hafi aldrei staðið neinn ógn af þessum mönnum.

Sagði engum frá Parkison grein­ing­unni

En þá berst talið að alvar­legri hlutum. Garðar greind­ist með Parkison tauga­sjúk­dóm­inn ill­víga, árið 2016. Hann fór þá að taka eftir örfínum skjálfta í vinstri hendi sem varð til að hann leit­aði til tauga­læknis sem nán­ast greindi hann á staðnum. Fyrsta eina og hálfa árið hélt hann þessum upp­lýs­ingum fyrir sjálfan sig því hann ein­fald­lega þurfti að melta þessar þær, taka þær inn almenni­lega.

„Hann segir eig­in­lega við strax lækn­ir­inn að ég sé með Park­in­son en það er svo stað­fest í byrjun febr­úar 2017 að ég er með Park­in­son. Ég held því leyndu til sum­ars 2018. Mínir nán­ustu fengu að vita það en annrs þurfti ég að fá minn tíma til að melta þetta hrein­lega.” Segir Garðar.

En hvað er eig­in­lega Parkison?

„Þetta er eitt­hvað sem ræðst á taug­arnar í þér,” sagði Garðar en bætti svo við, „veistu það, ég svo svo lítið lesið mér til um Park­in­son­inn því að ég hata hann svo mikið, ég hata hann útaf líf­inu, hann er óþol­andi. Ég er rétt rúm­lega í fýlu út í sjúk­dóm­inn.”

Garðar segir sjúdóm­inn ekki aðeins hafa áhrif á hann heldur alla fjöl­skyld­una.

„Hann hefur áhrif á mak­ann og hann hefur áhrif á börnin. Svo hefur hann þannig áhrif á mann líka að maður ótt­ast að missa það nán­asta frá sér. Maður hugsar með sér, ok, ég er með þennan sjúk­dóm, og ég er að verða aum­ingi af honum. Og af hverju ætti konan mín að vilja vera með mér þegar ég er orð­inn að ein­hverjum aum­ingja? Þetta eru stærstu áhyggj­urnar sem ég hef haft, að missa mína nán­ustu frá mér. Skítt með ein­hvern skjálfta í hend­inni eða að ég labba eitt­hvað skakkur, þetta voru mínar stærstu áhyggjur.“ Garðar seg­ist hafa farið mjög langt niður á tíma­bili en hafi svo átta sig á að þetta gengi ekki lengur. Varðandi börnin, seg­ist hann ekki geta gert all sem aðrir pabbar geta gert, heil­mikið þó en stundum líði honum þannig að hann sé mis­heppn­aður pabbi „en ég veit að ég er það ekki.“ Segir hann að þetta lendi allt á kon­unni. „En sem betur fer ég á bara svo ofboðs­lega góða, flotta, fal­lega og sterka konu.“

CBD olíurnar hafa hjálpað helling

Síðasta haust var Garðar kom­inn alveg í keng, allur skakkur og skældur og nán­ast með trýnið í gólf­inu eins og hann orð­aði það. Það var þá sem frændi hans nán­ast skip­aði honum að prófa CBD olíur við þeim verkjum og bólgum sem hann var að upp­lifa. Mjög fljótt fór hann að taka eftir miklum breyt­ingum. Verkirnir hjöðn­uðu og smátt og smátt rétti hann úr sér. Breyt­ing­arnar hefur hann sýnt á youtuberás sinni https://www.youtube.com/user/ghinriksson/videos

Gunnar spurði Garðar út í breyt­ing­arnar sem hafa orðið með til­komu CBD.

„Áður en ég byrj­aði að taka inn CBD gekk ég bara um eins og ég væri 190 ára. Ég labb­aði nán­ast merð trýnið í göt­unni. Þetta er bakið á mér, mjaðm­irnar og lapp­irnar, það er allt sem að tók mig niður. Síðan tek ég CBD´inn og hann nær að rétta tölu­vert úr mér,” sagði Garðar og bætti við,

„Ekki nóg með að CBD´ið tók verk­ina í baki heldur finnst mér ég mun minna þreyttur, þreytan er auka­verkun á öllum þeim lyfjum sem ég ann­ars er að taka.”

Fyr­ir­tækið Gott CBD hefur nú hafið svo­kallað trial eða skrán­ingu á áhrifum CBD á hinum ýmsu styrk­leikum í veik­indum Garðars. Áhrif CBD á tauga­sjúk­dóm­inn Park­in­son hafa lítið verið rann­sökuð og því dýr­mætt að Garðar og Gott CDB hefji sam­starf af þessum toga. Afrakst­ur­inn verður skrá­settur af mik­illi nákvæmni og skýrsl­unar þar eftir sendar erlendis til tauga­lækna sem vinna að rann­sóknum tengt Parkison.

Rauði baróninn

Í fyrra gaf Garðar út bók­ina Rauði bar­ón­inn – Saga umdeildasta knatt­spyrnu­dóm­ara Íslands­sög­unar. Í bók­inni fer hann yfir glæsi­legan dóm­ar­feril sinn sem spannar ein 30 ár. Bókina má nálg­ast með að senda honum einka­skila­boð á facebook ásamt að hægt er að heyra  hana á Storyt­ell. En hvaðan kemur við­ur­nefnið Rauði bar­ón­inn?

„Ég var bara hörku­tól á vell­inum. Ég dæmdi leik 1996 í síð­ustu umferð í næst neðstu deild, þar sem annað liðið var í fall­bar­áttu og hitt búið að tryggja sér sæti upp. Sá leikur endar í sex rauðum spjöldum. Á sama liðið. Sem varð til þess að ég þurfti að flauta leik­inn af. Þetta var í fyrsta skipti í deild­ar­keppn­is­sögu Íslands að leikur var flaut­aður af og þetta hefur ekki gerst síðan,“ segir Garðar og vekur kátínu og undrun Gunnars og tækni­manns Þvotta­húss­ins. „Síðan bara örstuttu seinna, var ég að mæta í dóm­ara­teiti og ég labba inn ásamt Eysteini Guð­munds­syni heitnum og þá er öskrað yfir bar­inn „nei, er þetta ekki Rauði bar­ón­inn?“ en ég var ekki að fatta það strax, hélt að menn ættu við Eystein gamla. En nei, þá voru menn að tala um mig.“

Hér fyrir neðan má sjá við­talið í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina