Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Flokkur fólksins telur borgina hafa gert mistök – Kvörtunum fækkaði mikið á milli ára en af hverju?

Flokkur fólksins telur borgina hafa gert mistök – Kvörtunum fækkaði mikið á milli ára en af hverju?
Kolbrún Bald­urs­dóttir

Áheyrn­ar­full­trúi Flokks fólks­ins hjá Reykja­vík­ur­borg telur það hafa verið mis­tök hjá borg­inni að leggja af emb­ætti umboðs­manns borg­ar­búa í þeirri mynd sem það var. Kvört­unum og fyr­ir­spurnum hefur fækkað tölu­vert á milli ára sem Borg­ar­full­trú­inn telur að sé vegna þess að fólk viti ekki hvert það eigi að senda kvörtun­ina.

Áheyrn­ar­full­trú­inn hjá Reykja­vík­ur­borg, Kolbrún Bald­urs­dóttir kom með fyr­ir­spurn um fjölda kvart­ana til umboðs­manns borg­ar­búa eða innri end­ur­skoð­unar í des­em­ber 2021. Árið 2020 var starf­semi umboðs­manns borg­ar­búa og starf per­sónu­vernd­ar­full­trúa sam­einað inn í Innri end­ur­skoðun Reykja­vík­ur­borgar. Fyr­ir­spurn­ing hljóð­aði eft­ir­far­andi:

Nú er komið rétt um ár síðan emb­ætti umboðs­manns borg­ar­búa var lagt niður í þeirri mynd sem það var og sam­einað innri end­ur­skoðun. Hlut­verk­inu er lýst innan innri end­ur­skoð­unar þannig að borg­ar­búum sé veitt ráð­gjöf og þeim leið­beint í þeim sam­skiptum sínum við borg­ina og fræðir jafn­framt starfs­menn borg­ar­innar um fram­kvæmd innra eft­ir­lits, per­sónu­vernd og meg­in­reglur stjórn­sýslu­réttar. Fulltrúi Flokks fólks­ins óskar upp­lýs­inga um fjölda kvart­ana, erinda og fyr­ir­spurna frá því sam­ein­ingin átti sér stað, skipt­ingu mála eftir teg­undum, skipt­ing mála eftir sviðum og skrif­stofum, skipt­ingu mála eftir kynjum og ald­urs­grein­ingu, skipt­ingu mála eftir  afgreiðslu þeirra og stöð í mála­skrá. Óskað er sam­an­burðar milli ára. Hver var sami fjöldi 2018, 2019 og 2020? Fulltrúi Flokks fólks­ins er með þessum fyr­ir­spurnum að kanna hvort málum hafi  farið fækk­andi eftir flutn­ing­inn, fjölg­andi eða staðið í stað.

Í svari Innri end­ur­skoð­unar Reykja­vík­ur­borgar má sjá að málum er snéru að kvört­unum, erinda og fyr­ir­spurna hefur fækkað tölu­vert á milli ára. Á tíma­bil­inu 2018-2019 voru málin 263, þau voru 219 á tíma­bil­inu 2019-2020 og á tíma­bil­inu 2020-2021 voru þau komin niður í 150.

Í loka­orðum svars Innri end­ur­skoð­urnar hjá Reykja­vík­ur­borg segir orð­rétt:

Í kjöl­far sam­ein­ing­ar­innar varð vart við að málum byrj­aði að fækka. Var sú fækkun rakin til  þess að ákveð­ins mis­skiln­ings gætti varð­andi sam­ein­ing­una um að ekki væri lengur veitt  ráð­gjöf til borg­ar­búa með þeim hætti sem gert var hjá emb­ætti umboðs­manns borg­ar­búa. Það  er vissu­lega ekki rétt og ljóst er að leggja þarf aukna áherslu á fræðslu innan starfs­stöðva  Reykja­vík­ur­borgar um starf­semi umboðs­manns borg­ar­búa. Til hefur staðið í lengri tíma að hefja slíka fræðslu en í ljósi aðstæðna hefur ekki verið talið skyn­sam­legt að standa fyrir  fjöl­mennum fræðslu­fundum og því hefur það dreg­ist.  

Við teljum að fækkun mála er varða vel­ferð­ar­svið megi rekja til þess að fjár­hags­að­stoðin var  gerð raf­ræn árið 2019. Sú breyt­ing hafði í för með sér að þjón­ustan varð skil­virk­ari og  aðgengi­legri, auk þess sem leið­bein­ingar urðu heilt yfir mun betri og var kerfið valið vef­kerfi  árs­ins 2019 af Samtökum vef­iðn­að­ar­ins, sbr. https://reykjavik.is/frettir/umsokn-um-fjarhagsadstod-vefkerfi-arsins-2019. Því má segja að fækkun mála á því sviði sé í raun afar jákvæð. Jafn­framt kunna að vera fleiri ástæður fyrir fækkun mála, s.s. breyttar áherslur og breyt­ing á skrán­ingu mála. Í kjöl­far sam­ein­ingar var  gerð ný sam­þykkt sem inn­leiddi ýmsar breyt­ingar og þrengdi verk­svið umboðs­manns að  ein­hverju leyti. Sem dæmi um breyt­ingar má til dæmis nefna að umboðs­maður borg­ar­búa  aðstoðar ein­stak­linga ekki lengur við gerð skjala vegna mál­skots til æðra stjórn­valds.  

Að lokum er bent á skýrslu Innri end­ur­skoð­unar og ráð­gjafar Reykja­vík­ur­borgar, dags. 19.  nóv­em­ber 2021, þar sem farið er ágæt­lega yfir verk­efni umboðs­manns borg­ar­búa. Skýrsl­una  er að finna á heima­síðu Innri end­ur­skoð­unar og ráð­gjafar:  https://www.innriendurskodun.is/utgefid-efni/starfsskyrsla-ier—verkefni-umbodsmanns-borgarbua.  

Í kjöl­far svars­ins birti Flokkur fólks­ins bókun við svar­inu:

Bókun Flokks fólks­ins við svari innri end­ur­skoð­unar og ráð­gjafar, dags. 14. jan­úar 2022 við fyr­ir­spurn áheyrn­ar­full­trúa Flokks fólks­ins um fjölda kvart­ana til umboðs­manns borg­ar­búa/innri end­ur­skoð­unar, sbr. 32. lið fund­ar­gerðar borg­ar­ráðs frá 2. des­em­ber 2021:

Fulltrúi Flokks fólks­ins heldur að það hafi verið mis­tök að leggja af emb­ætti umboðs­manns borg­ar­búa í þeirri mynd sem það var. Fólk veit ekki enn að hægt er að kvarta yfir málum og hvar eigi þá að gera það. Það þarf að kynna hið nýja fyr­ir­komu­lag mikið betur. Málum hefur fækkað og einmitt vegna ein­hvers mis­skiln­ings og skort á upp­lýs­ingum. Hefði ekki þurft að und­ir­búa allt þetta betur?

Segir í svari að staðið hefur lengi til að hafa fræðslu en ekki hægt vegna COVID. Sárlega vantar stóra og mikla kynn­ingu á þess­ari breyt­ingu. Ýmsar ástæður er raktar fyrir fækkun mála en full­trúa Flokks fólks­ins finnst það liggja nokkuð ljóst. Hlut­verkið sem umboðs­maður borg­ar­búa hafði hefur ein­fald­lega ekki náðst að virka inn á skrif­stofu Innri end­ur­skoð­unar. Ekki vegna þess að starfs­fólk þar sé ekki að standa sig vel heldur er hlut­verkið nú tengt emb­ætti/skrif­stofu en ekki per­sónu en umboðs­maður borg­ar­búa var sér­lega vin­sæll og lið­legur í þjón­ustu sinni. Ástæða er einnig eins og rétti­lega kemur fram að umboðs­maður borg­ar­búa aðstoðar ein­stak­linga ekki lengur við gerð skjala vegna mál­skots til æðra stjórn­valds.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina