Erna Bjarnadóttir hefur undanfarið verið áberandi þar sem hún er forsvarsmaður Facebook-hópsins
Aðför að heilsu kvenna
, sem er „grasrótarhópur til að mótmæla aðför að heilslu kvenna“. Baráttan hefur vakið athygli þar sem barist fyrir því að leghálssýni kvenna hér á landi verði rannsökuð á Íslandi en ekki Danmörku eins og verið hefur síðustu mánuði sem hefur orðið til þess að konur hafa beðið í nokkra mánuði eftir því að fá niðurstöður auk þess sem sum sýni eru einfaldlega ekki skoðuð vegna ákvarðana hér á landi.
Erna vendur sínu kvæði í kross á facebook í dag og er ósátt við Birgir Þórarinsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins.
Eins og kunnugt er orðið náði Birgir endurkjöri á þing í Alþingiskosningunum 2021 og var aftur kjördæmakjörinn sem þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi. Hann var einn aðeins þriggja Miðflokksmanna sem náðu inn á þing í kosningunum. Birgir ákvað hins vegar að segja skilið við Miðflokkinn eftir kosningarnar og gekk í Sjálfstæðisflokkinn.
Flokkaskipti Birgi voru umdeild þar sem hann skipti um flokk aðeins tveimur vikum eftir kosningarnar, áður en nýtt þing hafði komið saman. Birgir vísaði til Klaustursmálsins sem ástæðu fyrir flokksskiptunum en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, leiddi líkur að því að Birgir hefði ígrundað flokksskiptin fyrir kosningarnar og þar með háð kosningabaráttuna undir „fölsku flaggi“.
Hér má sjá facebook færslu Ernu í dag.:
„Jæja kæru vinir, þá hefur það komið á daginn sem ég svo sem spáði. Ég hef fátt sagt um vistaskipti Birgis Þórarinssonar en hér verður þó vikið frá þeirri stefnu. Þessa vikuna stendur yfir fundur Evrópuráðsþingsins.
Mér er kunnugt að formaður íslensku nefndarinnar, frændi minn Bjarni Jónsson fór utan en hin tvö Þórhildur Sunna og Birgir Þórarinsson taka þátt með fjarfundabúnaði.
Sl. föstudag var samkomulag í þinginu um að þingmenn sem tækju þátt í fundum í alþjóðasamstarfi þó með fjarfundabúnaði sé héðan frá „Klakanum“, geti kallað inn varamenn á meðan samkvæmt reglum þingsins sem þau hefðu farið erlendis. Og hvað svo?
Jú frændi kallar vitanlega Lilju Rafneyju inn og Þórhildur Sunna hleypir Evu Sjöfn Helgadóttur í sitt sæti enda er það vitanlega fullt starf að taka þátt í þinginu meðan það stendur.
En Birgir? Nei ég hef ekki heyrt frá honum hósta né stunu. Ferðaðist ég ekki með honum hátt í 2 mánuði og hljóp úr mér lifur og lungu til að maðurinn kæmist á þing (ásamt fleirum auðvitað).
Nei núna hætti ég,,,,,,, það sjá allir það sem ég vildi annars segja…….. p.s. já púkinn slapp út #dingdingdingernuáþing“































Athugasemdir