Lögreglunni barst tilkynning seint í gærkvöld um eld í íbúð í miðbæ Reykjavíkur. Húsráðandi hafði náð að slökkva eldinn þegar lögregla og slökkvilið mættu á vettvang. Einn slasaðist og var fluttur á Bráðadeild til aðhlynningar.
Í Garðabæ elti lögregla bifreið sem hafði ekki sinnt stöðvunarmerkjum og hófst þá æsilegur eltingaleikur. Ökumaðurinn stöðvaði loks bílinn, hljóp út og flúði af vettvangi. Lögregla hafði upp á manninum stuttu síðar en er hann grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna. Hann var settur í fangageymslu lögreglu
Fyrr um kvöldið var tilkynnt um umferðarslys á Vífilstaðavegi í Garðabæ. Bifreið hafði ekið aftan á kyrrstæðan strætisvagn, þrír farþegar voru í vagninum en enginn slasaðist.
Þá voru nokkrir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna.































Athugasemdir