Áhöfnin á varðskipinu Þór þurfti að beita klókindum við að ná gömlum legufærum upp er hún sjósetti öldumælisdufl ásamt nýjum legufærum undan Grindavík um daginn.
Á vefsíðu Landhelgisgæslunnar má sjá lýsingu á þessu en þar er rætt við Pal Geirdal, skipherra á Þór. „Við vorum búnir að hugsa aðeins hvernig við gætum náð upp legufærum eftir að öldumælisdufl slitna frá legufærum sínum. Ein hugmyndin var að nota dragnótastrengi sem er vírmanilla og sekkur. Hringt var í Gunnar L. Gunnarsson fyrrverandi stýrimann hjá Landhelgisgæslunni og athugað hvort hann vissi um strengi á lausu.“

Nokkrum símtölum síðar var Gunnar búinn að finna strengi fyrir áhöfnina hjá Nesfisk í Sandgerði og var farið á staðinn til að sækja þá. Ein lítil rúlla var í portinu sem hentaði fullkomlega til verksins. Að því búnu var haldið aftur um borð eins og fram kemur á vefsíðu Gæslunnar.
„Við sigldum hring í kringum staðinn, lögðum strenginn utan um og settum lás að auki þannig að strengurinn hertist um legufærin. Þetta gekk afar vel hjá okkur og upp komu 2 milliból, tógi og eitt búnt af akkeriskeðju, alls um 700kg,“ segir Páll.

Eftir að áhöfnin hafði klárað að hífa gömlu legufræin upp var öldumælisdufl sett út ásamt nýjum legufærum.































Athugasemdir