Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Íslenska Klíníkin í Búdapest – Blaðamaður Mannlífs kynnir sér tannlækningar í Austur-Evrópu: I

Íslenska Klíníkin í Búdapest – Blaðamaður Mannlífs kynnir sér tannlækningar í Austur-Evrópu: I

Tannlæknir á sunnudegi

Þegar blaða­maður gengur inn á Íslensku Klíník­ina í Búdapest, upp úr hádegi á sunnu­degi, hugsar hann með sér hversu feg­inn hann sé að tann­lækna­stofan sé stað­sett í sama hús­næði og hót­elið sem hann dvelur á. Hann er enn lúinn eftir flugið kvöldið áður – raunar var svo áliðið dags þegar hann kom á hót­elið að ekki var gengið til náða fyrr en klukkan fjögur aðfara­nótt sunnu­dags.

Blaða­maður hefur aldrei áður farið til tann­læknis á sunnu­degi, en hann hefur heldur aldrei farið til tann­læknis í Búdapest.

Mild tannhreinsun og enginn krókur

Á móti honum tekur brosmild ung kona sem kynnir sig sem Beatrix. Hún er tann­fræð­ingur og tekur að sér röntgen­mynda­töku og tann­hreinsun þennan dag. Í vik­unni á eftir hefj­ast svo með­ferðir þeirra Íslend­inga sem eiga bók­aða tíma hjá stof­unni. „Það er best fyrir tann­lækn­ana að byrja með hreinan munn,“ segir Beatrix.

Beatrix er hlý og vina­leg. Hún útskýrir tann­hreins­un­ar­ferlið vand­lega og segir frá tækj­unum sem hún notar. Hún notar EMS-tæki, nýtt og flott, sem hún segir að hreinsi afar vel en fari á sama tíma mjúkum höndum um tenn­urnar og tann­holdið. Það reyn­ist sann­ar­lega rétt hjá henni; aldrei áður hefur blaða­maður fundið jafn lítið fyrir tann­hreinsun. Hún notar heldur aldrei litla krók­inn, eða hak­ann, sem margir kann­ast við úr tann­hreins­unum. Sá hefur alltaf vakið ugg.

Að hreinsun lok­inni eru tenn­urnar skín­andi hreinar og allur tann­steinn á bak og burt. Samt blæðir ekki að neinu viti úr tann­hold­inu, en blaða­maður hefur hingað til van­ist því að tann­hreinsun sé hálf­gert blóð­bað.

Röntgen­myndin kemur vel út og það er lítið sem þarf að gera; þótt ekki hafi svo sem verið við öðru að búast. Tann­heilsan hefur alltaf verið þokka­leg. Það eru þó tvær skemmdir sem þarf að fylla í og svo verður örlítið pússað yfir þar sem hefur brotnað lít­il­lega upp úr fram­tönnum. Að lokum verður frískað upp á brosið með tann­hvíttun.

Blaða­maður Mannlífs lagði á dög­unum land undir fót til þess að skoða umhverfi tann­lækn­inga í Búdapest sem og svo­kall­aðar túrista­tann­lækn­ingar. Sífellt fleiri Íslend­ingar leggja leið sína til borg­ar­innar í leit að ódýr­ari tann­lækna­þjón­ustu, einkum og sér í lagi þegar um er að ræða viða­meiri aðgerðir. 

Blaða­manni var boðið út á vegum Íslensku Klíník­ur­innar í Búdapest, stofu í eigu Íslend­inga.

Blaða­maður ein­setur sér að skrifa af fag­mennsku og fjalla af heið­ar­leika um það sem fyrir augu hans bar. 

Fyrsta hluta þess­arar umfjöll­unar um stof­una Íslenska Klíníkin í Búdapest og tann­lækn­ingar þar og hér er að finna í heild sinni í nýjasta helg­ar­blaði Mannlífs. Auk þess er þar meira um tann­með­ferð blaða­manns og spenn­andi við­tal við Oddnýju Jakobs Krist­ín­ar­dóttur, yfir­ráð­gjafa á stof­unni.

Annar hluti þess­arar umfjöll­unar mun birt­ast í næsta blaði Mannlífs sem kemur út í prent­uðu formi á næst­unni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina