Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Mannréttindadómstóllinn krefur ríkið svara vegna Nöru Walker: Tungubitið sagt sjálfsvörn

„Á einum tíma­punkti, eftir áfrýj­un­ar­dóm­inn, var ég algjör­lega í molum… vegna nið­ur­stöðu dóms­ins, en líka vegna þess hvernig lög­reglan kom fram við mig í aðdrag­anda hans.“ Þetta segir Nara Walker, áströlsk kona sem árið 2017 beit tungu þáver­andi eig­in­manns síns í sundur. Hjónin fyrr­ver­andi höfðu verið búsett á Íslandi í um ár þegar atvikið átti

Mannréttindadómstóllinn krefur ríkið svara vegna Nöru Walker: Tungubitið sagt sjálfsvörn
„Á einum tíma­punkti, eftir áfrýj­un­ar­dóm­inn, var ég algjör­lega í molum… vegna nið­ur­stöðu dóms­ins, en líka vegna þess hvernig lög­reglan kom fram við mig í aðdrag­anda hans.“

Þetta segir Nara Walker, áströlsk kona sem árið 2017 beit tungu þáver­andi eig­in­manns síns í sundur. Hjónin fyrr­ver­andi höfðu verið búsett á Íslandi í um ár þegar atvikið átti sér stað, þar sem eig­in­mað­ur­inn hafði þegið starf hér á landi.

Föst í vítahring einangrunar og ofbeldis

Nara hlaut 12 mán­aða fang­els­is­dóm í hér­aðs­dómi fyrir lík­ams­árás og stór­fellt ofbeld­is­brot í nánu sam­bandi, þar af 9 mán­uði skil­orðs­bundna. Frá upp­hafi bar hún fyrir sig sjálfs­vörn og hefur ávallt haldið því fram, við lög­reglu, fyrir dómi og í fjöl­miðlum, að hún hafi verið fórn­ar­lamb and­legs, lík­am­legs og kyn­ferð­is­legs ofbeldis af hálfu þáver­andi eig­in­manns síns. Það hafi staðið yfir frá því fljót­lega eftir að sam­band þeirra hófst. Hún hafi verið föst í víta­hring ein­angr­unar og ofbeldis.

Nú er Nara ein þeirra níu kvenna sem hafa kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Allar saka þær ríkið og yfir­völd um að hafa brugð­ist þeim og ekki verndað þær gegn kyn­bundnu ofbeldi. Þær eiga það sam­eig­in­legt að hafa kært ýmist nauðg­anir, heim­il­is­of­beldi eða kyn­ferð­is­lega áreitni en yfir­völd látið mál þeirra niður falla.

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu.

Rannsökuðu „tungubitið“ í tómarúmi

Nara sakar íslenska ríkið um að rann­sókn máls­ins hafi bara snúið að „tungu­bit­inu“; að það hafi verið rann­sakað í algeru tóma­rúmi og ekki í neinu sam­hengi við ásak­anir hennar á hendur fyrrum eig­in­manni sínum. Hún segir að frá upp­hafi hafi sögu hennar ekki verið gef­inn gaumur. Nara segir enn­fremur að þetta sé algeng reynsla kvenna sem segja frá ofbeldi gegn sér: „Við segjum; „hann sagði, hún sagði, orð gegn orði“, en í raun og veru er það oft bara; „hann sagði“.“

Nara var hand­tekin á vett­vangi þegar lög­reglu bar að garði þetta kvöld í nóv­em­ber árið 2017. Að hennar sögn reyndi hún strax að útskýra stöð­una; að þetta hafi verið sjálfs­vörn og að hún væri í raun þol­andi ofbeldis, en á hana hafi ekki verið hlustað. Í kjöl­farið hafi hún setið í 15 klukku­stundir í fanga­klefa áður en hún var yfir­heyrð. Nara seg­ist allan tím­ann sem hún sat í gæslu­varð­haldi hafa verið þess full­viss að hún yrði sýknuð, þar sem hún hafi verið fórn­ar­lamb langvar­andi ofbeldis af hálfu eig­in­manns­ins. Svo fór ekki. Eftir áfrýjun þyngdi Lands­réttur dóm­inn í 18 mán­uði, þar af 15 mán­uði skil­orðs­bundna.

Dómurinn var mjög umdeildur á sínum tíma og var und­ir­skrifta­listi til að mynda sendur til Alþingis til stuðn­ings Nöru. 43 þús­und manns skrif­uðu undir hann.

Skýtur skökku við í jafnréttisparadís

Í sam­tali við The Guardian veltir Nara fyrir sér þeirri stöðu sem nú er uppi; að níu konur séu að kæra íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Að það land sem stillt er upp sem besta búsetu­staðnum fyrir konur í heim­inum í dag sé ekki að rann­saka og ákæra í málum er varða ofbeldi gegn konum.

„Ef við, í þess­ari svoköll­uðu para­dís, þurfum að þola þetta… hvernig er staðan þá í öðrum löndum?“ spyr Guðrún Jóns­dóttir, félags­ráð­gjafi og einn stofn­enda Stíga­móta. Guðrún segir að á Íslandi veigri konur sér við því að kæra ofbeldi gegn sér og að á milli 70 til 85 pró­sent ofbeld­is­brota gegn konum séu látin falla niður af lög­reglu eða ákæru­vald­inu, áður en málin kom­ast fyrir dóm­stóla.

Nara er nú búsett í Ástralíu og segir mál sitt fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stólnum eitt af því fáa sem enn tengi hana Evrópu. Hún segir áföll og streitu síð­ustu ára aldrei langt undan, það búi með henni; nær yfir­borð­inu á slæmum dögum en fjær huga hennar á þeim góðu. „Ég á augna­blik þar sem mér líður vel… og svo koma tímar þar sem allt er hörmu­legt og mér líður eins og það sé eng­inn til­gangur,“ segir Nara.

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu krefur íslenska ríkið nú svara í máli Nöru Walker. Ríkið hefur fram í miðjan febr­úar til þess að svara en eftir það mun dóm­ur­inn kom­ast að nið­ur­stöðu sinni. Ríkinu er gert að sök að hafa brotið gegn ákvæði Mann­rétt­inda­sátt­mál­ans um bann við pynt­ingum og ómann­úð­legri með­ferð eða refs­ingu. Einnig að hafa brotið gegn jafn­ræð­is­reglu Mann­rétt­inda­sátt­mál­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina