Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Geir ljósmyndari óttast að missa vini en getur ekki orða bundist: „BDSM samtökin björguðu mér“

Geir ljósmyndari óttast að missa vini en getur ekki orða bundist: „BDSM samtökin björguðu mér“

Margir hafa horn í síðu BDSM-hneigð­ar­innar segir Ásgeir Ásgeirs­son, ljós­mynd­ari í sam­tali við DV en hann ótt­ast að missa vini við að koma út úr BDSM-skápnum núna. Hins vegar geti hann ekki orða bund­ist:

„Ég grét yfir Kast­ljós­inu og færslu Elísa­betar Ýrar,“ segir Geiri og finnst umræðan und­an­farið hafa verið mjög erfið.

„Þegar bók­staf­lega allt sem ég er og hefur haldið mér lif­andi svo að segja er tekið fyrir og sagt vera ofbeldi, þá get ekki lengur setið hjá. Skiln­ingur þess­ara kvenna á hlut­unum er svo rangur að það hálfa væri nóg, þetta er svona svipað og við­mótið sem ég fékk hjá Stíga­mótum þegar ég fór þangað.“

Hann segir að það hafi verið erfitt að segja sínum nán­ustu frá hneigð hans og brot­unum sem hann varð fyrir: „Þetta voru erfið skref síð­ustu vikur að segja fjöl­skyld­unni frá öllu sem hefur gerst sem þau höfðu ekki hug­mynd um og mikið um tár og fleira í þeim dúr.“

Umræða og deilur und­an­farið um BDSM í tengslum við kyn­fræðslu ung­linga hefur valdið  Ásgeiri Ásgeirs­syni ljós­mynd­ara  eða Geira X (eins og hann er kall­aður) – miklum sárs­auka og sorg. Geiri var beittur kyn­ferð­is­of­beldi á unga aldri og segir hann að þegar hann var 18 ára hafi sam­tökin BDSM á Íslandi bjargað honum.

Í facebook pistl­inum segir Geiri:

„Ég ætl­aði að bíða aðeins lengur og ná að segja fleiri vinum og ætt­ingjum frá, augliti til auglitis, svo að fólk fengi ekki áfall við að frétta svona lagað í gegnum sam­fé­lags­miðla, en mér finnst ég ekki geta staðið hjá deg­inum lengur. Ég veit þetta mun skemma fyrir mér vissa atvinnu­mögu­leika ef ég fengi ein­hvern bata á CRPS í fram­tíð­inni, en það skiptir mig minna máli. Það sem er alvar­legra er að þarna eru þessar konur sem segja hreint út að þeim sé slétt sama hvort BDSM sé í S78 og að öryggi, sam­þykki og traust sé til staðar, allir sem eru með blæti eða stundi BDSM séu bara ofbeld­is­fólk gagn­vart konum og vont fólk. Vil í því sam­hengi gjarnan benda á þá stað­reynd að það eru fleiri konur en karlar sem eru drottn­andi í flestum þeim löndum sem ég þekki til nema hér á Íslandi af ein­hverjum ástæðum, kannski vegna þess að íslenskar konur séu hrædd­ari við for­dóma sam­fé­lags­ins í okkar litla landi. Í mörgum löndum hafa konur það sem atvinnu að drottna yfir karl­mönnum (atvinnu-dómínur).“

Hann seg­ist hafa verið í BDSM-skápnum í 30 ár og aldrei þorað út úr honum af ótta við vina­missi. Umræða und­an­farna daga, þar sem vegið sé að BDSM-hneigð­inni, geri það hins vegar óhjá­kvæmi­legat að stíga fram núna.

Hann fer yfir þetta í löngum Facebook-pistli en þar lýsir hann meðal ann­ars óánægju með hvernig Stígamót mættu honum. Um brotin og eft­ir­mála þeirra segir Ásgeir:

„Ég held ég komi hrein­lega út úr þeim skápum sem ég er, og hef, verið í síð­ustu 30 árin.

Ég lenti í alvar­legri mis­notkun 13 ára gam­all, og svo tvisvar aftur síðar. Tvö skipti af hendi kvenna og eitt skipti af hendi karl­manns/karl­manna.

Ef ég hefði ekki haft sam­tökin BDSM á Íslandi til að leita til á 18. ald­ursári, væri þetta senni­lega ekki skrifað þar sem ég sá engan til­gang með að lifa. Til­finn­inga­lega var ekk­ert sem hélt mér gang­andi og þegar ég leit­aði til Stíga­móta á miðjum þrí­tugs­aldri voru þeirra við­brögð þau að skella skuld­inni á mig, ég hefði verið karl­mað­ur­inn (13 ára gam­all nörd) og hefði vel getað stöðvað það sem gerð­ist.

Viðbrögð mín þegar fyrsta brotið átti sér stað, þegar ég var 13 ára gam­all, voru þau að ég fraus alveg og varð síðan í fram­hald­inu aðeins skelin af sjálfum mér. Ég tap­aði öllum til­finn­ingum. Ég setti upp trúðs­grímuna eins og mörg okkar gera þegar við vitum ekki hvernig við eigum að hegða okkur.

Annað brotið átti sér stað þegar ég var 19 ára gam­all. Ég var þá á bar með vinum, þegar byrlað var fyrir mér. Klukkan hefur lík­lega verið um 9 að kvöldi. Það litla sem ég man er að full­orð­inn karl­maður, með aðstoð ann­ars ungs manns, mis­not­aði mig svo hrotta­lega að þegar ég rank­aði við mér í strætó­skýli við Kringl­una klukkan að ganga 6 morg­un­inn eftir, þurfti ég í neyð minni að hringja í pabba vinar míns, sem þá starf­aði sem leigu­bíl­stjóri í heima­bænum, til að sækja mig. Þegar hann sá mig sitja þarna í strætó­skýl­inu snemma morg­uns með blóð­poll á rass­gat­inu, átt­aði hann sig greini­lega á hvað hefði gerst. Hann sagði ekk­ert, setti teppi í aft­ur­sætið og keyrði mig heim, rukk­aði mig ekki einu sinni og minnt­ist aldrei á það við mig síðar, blessuð sé minn­ing hans. Það var ekki fyrr en ára­tugum síðar, þegar Jóhannes Kr blaða­maður greip mann­inn glóð­volgan við rann­sókn­ar­störf sín, sem and­lit ger­and­ans rifj­að­ist upp fyrir mér. Um var að ræða dæmdan barn­a­níð­ing.

Þriðja skiptið var ég í kringum 24 ára ald­ur­inn að leita að leik­fé­laga og end­aði með konu sem var ekki bara eldri, heldur mun stærri og sterk­ari en ég. Hún nýtti sér yfir­burð­ina og hafði fljótt náð að binda mig niður þrátt fyrir að rætt hafði verið um að hlut­verkin yrðu á hinn veg­inn og nauðg­aði mér síðan heila nótt svo hrotta­lega að þegar hún henti mér út á nær­föt­unum með rest­ina af föt­unum í fang­inu keyrði ég og lagði hjá bens­ín­stöð nálægt, klæddi mig eins og ég best gat, sat, reykti og hugs­aði hvar ég gæti keyrt út í sjó á nægi­lega mik­illi ferð til að rot­ast örugg­lega við höggið og drukkna.“

Hér má sjá pistil Ásgeirs í fullri lengd, með því að smella á færsl­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina