Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ásdís vill bæjarstjórastólinn: „Áfall þegar við fréttum í tólf vikna sónar að það væru tvö börn“

Ásdís vill bæjarstjórastólinn: „Áfall þegar við fréttum í tólf vikna sónar að það væru tvö börn“
Ásdís Krist­jáns­dóttir

„Ég er mikil keppn­is­mann­eskja, hvort sem er í íþróttum eða í starfi. Ég geng í öll verk á þeim for­sendum að leysa þurfi vanda­mál og yfir­stíga hindr­anir. Ég hef mik­inn metnað og legg mig fram í öllu sem ég tek mér fyrir hendur og tel mik­il­vægt að vera fyr­ir­mynd barna minna. Við hjónin leggjum ríka áherslu á að þau sinni vel námi sínu en séu sjálf­stæð og beri ábyrgð á sér sjálf. Hvernig við erum í okkar dag­lega lífi tel ég að end­ur­speglist einnig í því hvernig við erum sem stjórn­endur. Keppn­is­skap og metnað hef ég lagt áherslu á að yfir­færa á sam­starfs­fólk mitt í þeim til­gangi að ná sem bestum árangri. Ég er rétt­sýn, afskap­lega skipu­lögð og mark­miðs­drifin sem skilar sér í öguðum vinnu­brögðum og góðum afköstum. Ég hef fulla trú á því að þó börn­unum finn­ist mamma sín full­stjórn­söm á köflum muni þau kunni að meta það síðar,“ segir Ásdís Krist­jáns­dóttir sem nýverið sagði lausu starfi sínu sem aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins þar sem hún ætl­ar að gefa kost á sér í fyrsta sæti Sjálf­stæðis­flokks­ins í Kópa­vogi fyr­ir kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar.

Ásdís hefur verið skráð í Sjálf­stæð­is­flokk­inn frá 2002. „Hingað til hef ég ekki starfað fyrir flokk­inn, enda ekki talið það sam­ræm­ast þeim störfum sem ég hef sinnt; bæði þegar ég starf­aði sem stjórn­andi í banka og sem stjórn­andi hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins.“

Ásdís er með bæði verk­fræði- og hag­fræði­menntun og telur að slík menntun sé góður grunnur í stjórn­mála­starfi. „Ég hef í störfum mínum lagt ríka áherslu á mik­il­vægi þess að standa vörð um ábyrgan rekstur hins opin­bera, þar með talið á sveit­ar­stjórn­a­stig­inu. Ég hef því skiln­ing og reynslu af því að greina og móta stefnu hins opin­bera á öllum sviðum, hvort sem er á hlið útgjalda, skatta eða fjár­fest­inga.

Ég hef nán­ast alla mína starfsævi unnið við að móta og hafa áhrif á stefnu hins opin­bera, hvort sem það teng­ist skatta­stefnu eða for­gangs­röðun útgjalda.

Ég hef mik­inn áhuga á að beita mér í þágu sam­fé­lags­ins og hef frá því ég kláraði hag­fræði­námið mitt verið mjög póli­tísk þó ég hafi ekki fyrr en nú stigið inn á hið póli­tíska svið. Ég hef nán­ast alla mína starfsævi unnið við að móta og hafa áhrif á stefnu hins opin­bera, hvort sem það teng­ist skatta­stefnu eða for­gangs­röðun útgjalda. Þá hef ég gegnt ýmsum trún­að­ar­störfum fyrir stjórn­völd og sat meðal ann­ars í verk­efna­hópi um end­ur­skoðun íslenskrar pen­inga­stefnu ásamt Ásgeiri Jónssyni, núver­andi seðla­banka­stjóra, og Illuga Gunn­ars­syni, fyrr­ver­andi ráð­herra. Ég er stoltur Kópa­vogs­búi og hér hef ég alið upp börnin mín. Ég er að bjóða fram mína reynslu og þekk­ingu til að gera Kópavog enn betri.“

Ásdís segir að hún myndi standa vörð um ábyrgan rekstur svo Kópa­vogur gæti áfram verið í fremstu röð þegar kemur að þjón­ustu við fólk og fyr­ir­tæki í bæj­ar­fé­lag­inu. „Þó margt hafi gengið vel tel ég að við getum gert enn betur. Stafræn þróun er á fleygi­ferð og ég sé tals­verð tæki­færi til úrbóta á því sviði sem um leið sparar fólki sporin. Ég mun tryggja að gjöld og álögur séu með lægsta móti. Þá sé ég tals­verð tæki­færi fólgin í því að laða til bæj­ar­fé­lags­ins fjöl­breytt fyr­ir­tæki sem ekki aðeins styrkja tekju­stofna bæj­ar­ins heldur skapa fjöl­breytt­ari atvinnu­mögu­leika fyrir íbúa.“

Ásdís talar um auk­inn umferð­ar­þunga og segir að breyta þurfi því ástandi og að hún myndi beita sér fyrir bættum og fjöl­breyttum sam­göngum sem henta mis­mun­andi fólki. „Sam­göngur skipta okkur öll máli, börn og full­orðna, hvort sem við erum gang­andi, á hjóli eða í bíl.“

Ég tel að við getum dregið lær­dóm af því sem hefur verið gert í höf­uð­borg­inni í þessum efnum en að mínu mati hefur meiri­hlut­inn í borg­inni tekið margar mis­ráðnar ákvarð­anir.

Hún nefnir að fram undan séu áhuga­verð upp­bygg­ing­ar­verk­efni í bænum – bæði eru ný hverfi að rísa við Vatns­enda en einnig er verið að þétta byggð eins og á Kárs­nes­inu. „Ég tel að við getum dregið lær­dóm af því sem hefur verið gert í höf­uð­borg­inni í þessum efnum en að mínu mati hefur meiri­hlut­inn í borg­inni tekið margar mis­ráðnar ákvarð­anir. Borgin hefur til að mynda farið í of mikla þétt­ingu á afmörk­uðum svæðum sem hefur ekki bara reynst gríð­ar­lega kostn­að­ar­samt og sums staðar þvert á vilja íbúa heldur hafa inn­viðir á svæð­unum, eins og skól­arnir, bein­línis ekki ráðið við þétt­ing­una og eru ein­fald­lega sprungnir. Ég mun leggja ríka áherslu á að sú upp­bygg­ing sem er fram undan muni þjóna íbúum á öllum ævi­skeiðum, frá ungu fjöl­skyldu­fólki til eldri kyn­slóða.

Ásdís nefnir að hún sjái tæki­færi til að gera betur eins og gagn­vart flokkun á sorpi og að standa þurfi vörð um fram­úr­skar­andi menntun barna á öllum skóla­stigum.

Ásdís og eig­in­mað­ur­inn, Agnar Tómas Möller.

Verkfræði og hagfræði

Ásdís ólst upp í Selja­hverfi.

„Ég gekk í Selja­skóla alla mína grunn­skóla­göngu og á þeim tíma mynd­aði ég náin og sterk vina­bönd við æsku­vin­konur mínar sem hafa enn haldið. Eftir grunn­skóla­nám mitt gekk ég í Versl­un­ar­skóla Íslands og er gaman að segja frá því að ég sit einmitt í full­trúa­ráði skól­ans í dag og fæ því tæki­færi til að fylgj­ast með því frá­bæra starfi sem þar á sér stað. Þá fór ég í verk­fræði eftir mennta­skóla. Fljót­lega eftir að ég kláraði verk­fræði­námið fann ég löngun til að skilja betur efna­hags­um­ræð­una og þess vegna fór ég í meist­ara­nám í hag­fræði.“

Ásdís dreymdi um það á æsku- og ung­lings­ár­unum að verða læknir. „For­eldrar mínir ráð­lögðu mér að fara í MR því mínir styrk­leikar voru í stærð­fræði og öðrum raun­greinum. Mér er minnistætt þegar ég sat í strætó á leið­inni niður bæ til að skrá mig í MR þegar ég skyndi­lega ákvað á síð­ustu stundu að hoppa út fyrir utan Versló. Ég sem sagt ákvað í stræt­ó­ferð­inni að Versló væri rétti skól­inn fyrir mig og ég sé ekki eftir því í dag þó svo ég efist ekki um að ég hefði fengið góða og gagn­lega menntun í MR. Í Versló eign­að­ist ég afskap­lega góðar og traustar vin­konur. Við höldum enn hóp­inn þó að við höfum valið ólíkar leiðir að loknum fram­halds­skóla.“

Ásdís og fjöl­skylda hennar.

Mikil viðbrigði að eignast tvíbura

Ásdís er gift Agnari Tómasi Möller og hófu þau sam­búð í Reykja­vík en flutti í Kópavog eftir að fyrstu eldri börn þeirra fædd­ust. „Í upp­hafi bjuggum við á Kársnesi en fluttum upp á Vatns­enda þegar grunn­skóla­ganga okkar elstu barna hófst.“

Ásdís segir að for­eldrar sínir hafi átt og eigi enn ríkan þátt í að móta hana. „Ég leita mikið til þeirra hvort sem teng­ist upp­eldi barna minna eða almennt um líf og störf. Við erum náin fjöl­skylda og við systk­inin eigum börn á svip­uðum aldri. Þá mót­að­ist ég mikið eftir að ég átti börnin mín. Við hjónin vorum um þrí­tugt þegar við eign­uð­umst okkar fyrstu börn sem reynd­ust vera tví­burar. Í fullri hrein­skilni þá fengum við áfall þegar við fréttum það í tólf vikna sónar að það væru tvö börn á leið­inni en ekki eitt. Auðvitað leið það fljótt hjá og ég varð rólegri með tím­anum og tók þessu eins og hverju öðru verk­efni. Fyrstu tvö árin voru mjög strembin en með skipu­lagn­ingu og yfir­vegun gekk þetta allt saman afskap­lega vel.

Amma mín og nafna féll frá fyrir nokkrum árum síðan og mér fannst sárt og erfitt að kveðja hana.

Þegar ég var svo ófrísk af mínu yngsta barni var ég þess full­viss að nú væru ekki tvö heldur þrjú börn á leið­inni. Ég man hvað ég var stressuð í mínum fyrsta sónar en and­aði léttar þegar okkur var til­kynnt að það væri bara eitt í þetta skiptið.“

Lífið er ekki alltaf dans á rósum og segir Ásdís að hún og hennar nán­ustu hafi sem betur fer sloppið við erfið veik­indi eða áföll en þó hafa þau misst. „Amma mín og nafna féll frá fyrir nokkrum árum síðan og mér fannst sárt og erfitt að kveðja hana. Hún var stór partur af mínu lífi og barna minna. Amma lifði áhuga­verðu lífi og við sátum oft saman lengi að spjalla um hennar æskuár. Þá var það hluti af okkar helg­ar­rútínu að heim­sækja ömmu. Nú þegar hún er fallin frá rifja ég reglu­lega upp þau sam­töl og þær stundir sem við áttum með henni. Ég finn að börnum mínum þykir vænt um þær stundir sem þau áttu með henni.“

Ásdís er beðin um að lýsa sjálfri sér: Annars vegar í einka­líf­inu og svo hins vegar sem stjórn­anda.

Hverjir eru draum­arnir burt­séð frá fram­boð­inu?

„Við hjónin elskum Ítalíu og höfum lengi gengið með þann draum að flytja til Ítalíu á okkar efri árum. Ítalir upp­fylla að mínu mati allt saman; þeir eru höfð­ingjar heim að sækja, mat­reiða besta mat­inn og fram­leiða bestu vínin auk þess sem ítalska er eitt fal­leg­asta tungu­málið. Þetta er draumur okkar hjóna  í ell­inni en í núinu hef ég mik­inn áhuga á að beita mér fyrir sam­fé­lagið. Vonandi fæ ég tæki­færi til þess.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við