Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ég veit ekkert hvort ég myndi ganga í gegnum þetta aftur – eins og ég væri ógeðslega ómerkileg

Ég veit ekkert hvort ég myndi ganga í gegnum þetta aftur – eins og ég væri ógeðslega ómerkileg

Að hafa svona mál hang­andi yfir sér í sex ár er ekki auð­veld reynsla fyrir unga konu. Sá hún ein­hvern tím­ann eftir því að hafa kært?

„Já, alger­lega, á meðan á þessu stóð. Maður var bara að end­ur­upp­lifa alltaf allt þegar ein­hver hreyf­ing var á mál­inu. Maður var alltaf að rifja upp, þannig að ég veit ekk­ert hvort ég myndi ganga í gegnum þetta allt aftur. Og veit ekki hvort ég myndi mæla með fyrir vin­konu, ef hún myndi lenda í svona, að kæra, miðað við það sem ég lenti í. Ég man bara að mér leið svona eins og ég væri…bara ógeðs­lega ómerki­leg. Að þetta skipti ekki máli,“ segir Þórhalla Bjarna­dóttir í við­tali Kveiks.

Mál Þórhöllu Bjarna­dóttur er dæmi um flest það sem getur farið úrskeiðis. Hún kærði nauðgun hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum í jan­úar árið 2015.

„Ef ákall­inu um aukin rétt­indi brota­þola er ekki svarað með betri hætti en kveðið er á um í þessu frum­varpi er hætta á að rétt­ar­kerfið detti úr takti við rétt­ar­vit­und almenn­ings sem getur grafið undan trausti á rétt­ar­kerf­inu.“

Þetta eru loka­orð Dr. Hildar Fjólu Ant­ons­dóttur, rétt­ar­fé­lags­fræð­ings í umsögn við frum­varp um breyt­ingu á lögum um með­ferð saka­mála, þ.e. til að bæta rétt­ar­stöðu brota­þola, fatl­aðs fólks og aðstand­enda sem lagt var fyrir Alþingi síð­asta vetur. Það var ekki afgreitt þá.

Samkvæmt dóms­gögnum virð­ist sem rann­sókn hafi verið lokið eða henni hætt í sept­em­ber sama ár. Málið var samt ekki sent hér­aðs­sak­sókn­ara fyrr en ári síðar, í sept­em­ber 2016. Þar beið það í ár til við­bótar fram í októ­ber 2017, þegar það var sent aftur til lög­reglu, því rann­sókn­inni var ábóta­vant. Það hafði farist fyrir að taka skýrslu af vitnum Þórhöllu.

Lög­reglan lauk rann­sókn­inni og sendi málið aftur til hér­aðs­sak­sókn­ara í des­em­ber. Það var svo fellt niður í febr­úar 2018.

Þórhalla kærði nið­ur­fell­ing­una til rík­is­sak­sókn­ara, enda töldu hún og rétt­ar­gæslu­maður hennar að málið væri það sterkt að það ætti erindi fyrir dóm. Rík­is­sak­sókn­ari var sam­mála því og það fór því fyrir hér­aðs­dóm síðla árs 2018. Í febr­úar 2019, rúmum fjórum árum eftir brotið, var sak­born­ingur dæmdur til 18 mán­aða fang­els­is­vistar og greiðslu miska­bóta.

Málinu lauk þó ekki þar, því hann áfrýj­aði til Lands­réttar. Það tók tæp tvö ár til við­bótar. Í lok árs 2020, tæpum sex árum eftir að Þórhalla lagði fram kæru, stað­festi Lands­réttur dóm hér­aðs­dóms – nema refs­ingin var að fullu skil­orðs­bundin. Ástæðan: drátt­ur­inn sem varð á með­ferð máls­ins. Ekki væri með neinum hætti hægt að kenna sak­born­ingi um hann.

En hvað er það í rétt­ar­kerf­inu sem er svona úr takti við rétt­ar­vit­und almenn­ings? Bæði sér­fræð­ingar og brota­þolar sem hafa beina reynslu af því að fara í gegnum kerfið virð­ast nokkuð sam­mála um að það sé í meg­in­at­riðum tvennt sem sé einkar íþyngj­andi.

Annars vegar er það sá langi tími sem tekur að fá nið­ur­stöðu í mál.

Vissu­lega er mál Þórhöllu ein­stak­lega slæmt, það er eins og allt hafi lagst á eitt við að draga það á lang­inn. En stað­reyndin er sú að með­al­máls­með­ferð­ar­tími hjá lög­reglu í rann­sókn nauðg­un­ar­brota hefur lengst mikið und­an­farin ár og var kom­inn upp í rúma fjórtán mán­uði í fyrra. Hann var rúmt hálft ár á árunum 2012-2015 og þær tölur ná reyndar aðeins yfir þau mál sem fóru í ákæru­með­ferð. Tíminn var enn styttri fyrir þau mál sem ekki voru send áfram.

Hver er ástæða þess að máls­með­ferð­ar­tím­inn hefur lengst svo mjög? Grímur Grímsson, yfir­lög­reglu­þjónn á rann­sókn­ar­sviði segir tvær meg­in­á­stæður fyrir því. Annars vegar hafi mál­unum fjölgað mikið en þau séu líka heldur flókn­ari í rann­sókn:

„Það er þannig að flest mál sem við erum með til rann­sóknar í kyn­ferð­is­brota­deild­inni, þau krefj­ast þess að við séum að sækja raf­ræn gögn út úr símum eða tölvum og það lengir heldur máls­með­ferð­ar­tím­ann  – en gerir það að vísu þannig að það eru oft betri gögn,“ segir Grímur.

Það blasi samt við að það þurfi meiri bjargir. Með því eigi hann ekki bara við að það þurfi fleiri rann­sak­endur. „Ég er vissu­lega að tala um þá sem rann­saka málin beint en ég er líka að tala um þá sem sækja hin raf­rænu gögn, ég er að tala líka um þjón­ustu­svið emb­ætt­is­ins þar sem við fáum mjög mikla þjón­ustu. Þetta er allt bjargir sem við þurfum að efla og fá meira af,“ segir Grímur Grímsson.

Hitt stóra atriðið sem brota­þolum og sér­fræð­ingum þykir mik­il­vægt að bæta úr lýtur beint að rétt­indum brota­þola í kerf­inu.

Hildur Fjóla hefur rann­sakað mál­efnið ítar­lega og skrif­aði grein­ar­gerð um leiðir til að styrkja rétt­ar­stöðu brota­þola með til­lögum að laga­breyt­ingum fyrir stýri­hóp for­sæt­is­ráð­herra um heild­stæðar úrbætur að því er varðar kyn­ferð­is­legt ofbeldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina