Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Vitnisburðir lækna og sakbornings stangast á: „Hann var aldrei að fara að standa upp“

Vitnisburðir lækna og sakbornings stangast á: „Hann var aldrei að fara að standa upp“
Dumitru Calin og Unn­steinn Örn Elvars­son, verj­andi hans.

„Mér finnst að öku­tækið hefði þurft að vera á meiri hraða,“ sagði lög­reglu­maður sem bar vitni fyrir dómi í gær í rétt­ar­höldum yfir Dumitru Calin.

Dumitru er gert að sök að hafa ekki komið Daníel Eiríks­syni til hjálpar er hann var í nauð, og að hafa með gáleysi verið valdur að dauða hans. Daníel fannst mikið slas­aður á bílaplani fyrir utan heim­ili sitt að Vindakór í Kópavogi, þann 2. apríl árið 2021, eftir sam­skipti við Dumitru. Hann komst aldrei til með­vit­undar og lést af áverkum sínum.

Lög­reglu­mað­ur­inn sagði að honum þætti að bif­reið Dumitru hefði þurft að vera á meiri hraða þannig að Daníel færi með jafn miklum krafti í mal­bikið og hann virð­ist hafa gert, miðað við áverka hans.

„Að brjóta höf­uðið á mal­biki, það hlýtur að þurfa hraða og kraft. Því meiri hraða sem öku­tækið fer á, þeim mun harka­legra verður fallið.“

Sak­born­ing­ur­inn hefur haldið því fram að bif­reiðin hafi aðeins verið á 15 til 20 kíló­metra hraða. Hann hafi ekið af stað til þess að kom­ast undan Daníel, sem hafi haldið með báðum höndum í rúðu bíls­ins bíl­stjóra­megin.

Daníel Eiríks­son

„Hann var aldrei að fara að standa upp“

Við skoðun á Daníel, þegar hann var fluttur á slysa­deild, síðar þegar hann gekkst undir aðgerð á höfði og eftir að hann var lát­inn, sáust marg­vís­legir áverkar. Hann var með mikla og greini­lega höf­uð­á­verka og rispur víða um lík­amann sem voru greini­lega nýlegar.

Sér­fræð­ingur í bráða- og slysa­lækn­ingum, sem ann­að­ist Daníel á bráða­mót­töku, bar vitni fyrir dómi í gær. Sak­sókn­ari spurði hvort honum þætti lík­legt að maður með þessa áverka hefði getað staðið upp.

„Hann var aldrei að fara að standa upp,“ var svarið.

Verjandi sak­born­ings spurði þá hvort hægt væri að úti­loka það. „Ég er bara að lýsa því hvernig þetta blasir við mér þegar hann kemur á bráða­mót­töku,“ svar­aði vitnið þá.

Skurðlæknir á sama máli

Sér­fræð­ingur í heila- og tauga­skurð­lækn­ingum, sem gerði aðgerð á höfði Daníels, tal­aði með svip­uðum hætti í vitna­leiðslum. Hann sagði höf­uð­á­verk­ana hafa verið alvar­lega og dreifða. Daníel hafi verið með brotna höf­uð­kúpu, blóð hafi verið beggja vegna í heila­hvelum og heil­inn mjög bólg­inn. Hann segir þrýst­ing­inn í heila hafa verið svo mik­inn að súr­efni hafi ekki getað kom­ist til heil­ans í nægum mæli.

Hann sagði að ástand sjúk­lings yrði yfir­leitt mjög fljótt alvar­legt í kjöl­far svona áverka; oft­ast á fyrstu sek­úndum eða mín­útum.

Sækjandi spurði þá hvort lík­legt væri að Daníel hefði getað staðið upp eftir að hafa hlotið áverk­ana. Hann sagð­ist ekki telja að svo gæti verið. „Miðað við útlit áverk­anna finnst mér það nán­ast úti­lokað.“

Verjandi sak­born­ings spurði í kjöl­farið hvort sér­fræð­ing­ur­inn gæti úti­lokað það með óyggj­andi hætti. „Nánast. En ekki hund­rað pró­sent. En þetta er mín skoðun með mína þekk­ingu.“

Dumitru Calin hélt því fram í sínum vitn­is­burði að Daníel hafi haldið með báðum höndum í rúðu bif­reið­ar­innar en fallið fljót­lega í jörð­ina þegar hann hafi keyrt af stað, á 15 til 20 kíló­metra hraða. Hann hafi þá stöðvað bif­reið­ina og séð Daníel í spegl­inum. Dumitru hélt því stöðugt fram að hann hefði séð Daníel vera að standa á fætur og að Daníel hefði gert sig lík­legan til þess að hlaupa af stað á eftir honum. Þess vegna hafi Dumitru keyrt á brott. Hann sagð­ist ekki hafa haft hug­mynd um að Daníel væri slas­aður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina