Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þreytt á biðinni og fór erlendis – ef þetta væri karllægur sjúkdómur væri hann tekinn fastari tökum

Þreytt á biðinni og fór erlendis – ef þetta væri karllægur sjúkdómur væri hann tekinn fastari tökum
Natalia Olender Mynd/Skjáskot Visir

Samtök um Endó­metríósu á Íslandi lýstu ánægju sinni vegna auk­innar sam­stöðu við mál­stað­inn á facebook síðu sinni í dag.

„Sam­staðan und­an­farnar vikur er búin að vera ótrú­leg. Kraft­ur­inn í ykkur gefur okkur ólýs­an­legan styrk til þess að fá fram okkar áherslu­málum.

Brettum upp ermarnar og höldum áfram. Þetta er ekki búið en við erum að knýja áfram breyt­ingar, hænu­skref fyrir hænu­skref. “

Endóvika sam­tak­anna verður haldin í næsta mán­uði og þemað í ár er endó­metríósa og atvinnu­lífið.

„Þemað í ár er gríð­ar­lega mik­il­vægt en það snýr að endó­metríósu og atvinnu­líf­inu. Á næstu dögum munum við segja ykkur betur frá fyr­ir­komu­lagi vik­unnar,“ segir á síðu sam­tak­anna.

Þetta er bókstaflega orðið að einu æxli

Reynslu­sögur frá fólki með sjúk­dóm­inn eru margar. Í vik­unni kom Natalia Olender fram í við­tali á Stöð 2 og lýsti sinni bar­áttu við sjúk­dóm­inn.

Natalia Olender er 24 ára var fyrst lögð inn á sjúkra­hús vegna endó­metríósu-tengdra verkja fyrir um tveimur árum. Hún fékk mor­fín í æð og loks komu miklir sam­grón­ingar í legi í ljós. Natalia hefur beðið í eitt og hálft ár eftir aðgerð vegna endó­metríósu og liðið miklar kvalir og þarf nú að greiða eina og hálfa milljón króna fyrir aðgerð í Póllandi. Hún fær ekki greitt frá Sjúkra­trygg­ingum þar sem aðgerðin verður gerð á einka­stofu en pólskir sér­fræð­ingar réðu henni ein­dregið frá því að fara á rík­is­spít­ala.

„Vinstri eggja­stokk­ur­inn minn og ristill­inn, þetta er bók­staf­lega orðið að einu svona æxli,“ segir Natalia.

Eftir ítrek­aðar inn­lagnir til við­bótar var henni á end­anum vísað til læknis í endó­metríósuteymi Land­spít­ala.

„Og hún vildi fá mig í aðgerð innan tveggja mán­aða og nú eru liðin næstum tvö ár síðan þetta var og ég er enn bara að bíða,“ segir Natalia.

Móðir Nataliu fékk á end­anum nóg. Hún er pólsk og fór að spyrj­ast fyrir um mögu­leika á aðgerð fyrir Nataliu úti í Póllandi – og þær fundu strax álit­lega klíník. Þeim var þó þá strax gert ljóst að Sjúkra­trygg­ingar myndu ekki taka þátt í kostn­aði við aðgerð þar, þar sem klíníkin er einka­rekin. Þær hafi því kannað mögu­leika á aðgerð í opin­bera kerf­inu.

„Mamma hringir í örugg­lega svona tutt­ugu lækna og þeir segja bara allir: ekki fara með dóttur þína á rík­is­rekna stofu því hún fær ekki sömu aðgerð og hún mun fá hjá sér­fræð­ingi.“

Lang­þreytt á bið­inni og með þungar áhyggjur af eigin heilsu ákvað Natalia að fara í aðgerð hjá klíník­inni, sem hún segir að muni kosta sig alls um eina og hálfa milljón króna. Hún hefur nú þegar farið utan tvisvar í skoðun en aðgerðin verður gerð eftir þrjár vikur.

„Það erf­ið­asta er hvað maður fær litla hjálp og bara hvað Sjúkra­trygg­ingar Íslands vilja ein­hvern veg­inn ekki svara mér og maður finnur bara fyrir miklum for­dómum. Og þetta er svo skrýtið, maður er bara orð­inn vanur verkjum. Ekki einu sinni kærast­inn minn veit hversu margar verkja­töflur ég tek á viku.“

1 af hverjum 10 sem fæðast í kvenmannslíkama með sjúkdóminn

Endó­metríósa er krónískur, fjöl­kerfa og fjöl­gena sjúdómur sem veldur mis­miklum ein­kennum og hefur mis­mikil áhrif á dag­lega líf fólks með sjúk­dóm­inn.Endó­metríósa leggst á 1 af hverjum 10 ein­stak­lingum sem fæð­ast í kven­manns­lík­ama.

Algeng einkenni endómetríósu eru:

  • Sársauki: í kvið­ar­holi, við blæð­ingar (mik­ill), fyrir blæð­ingar, við egg­los
  • Óeðli­legar blæð­ingar: langar, miklar, óreglu­legar, með brúnni útferð fyrir og eftir, milli­blæð­ingar
  • Verkir: við blæð­ingar eða egg­los í mjó­baki eða niður eftir fæti, í kvið­ar­holi milli blæð­inga, við eða eftir kyn­líf, tendir þvag­blöðru, tengdir ristli eða þörmum
  • Í melt­ing­ar­vegi: hægða­tregða, nið­ur­gangur, upp­blás­inn magi, ógleði, upp­köst
  • Ófrjó­semi og erf­ið­leikar: við að verða barns­haf­andi
  • Síþreyta
  • Stundum eru ein­stak­lingar ein­kenna­lausir eða ein­kenna­litlir og grein­ast fyrst þegar um önnur heilsu­vanda­mál er að ræða, t.d. ófrjó­semi.

Talið er að 2,5 milljón franskra kvenna þjáist af sjúkdóminum

Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands, ávarp­aði þjóð­ina nú á dög­unum um stöðu kvenna með endó­metríósu.

Í yfir­lýs­ing­unni hans kveðst franska ríkið ætla leggja meira fjár­magn í að rann­saka sjúk­dóm­inn og orsök hans, bæta þjón­ustu og vekja enn frek­ari athygli á honum. Hann nefnir líka að Frakk­land hafi allt til brunns að bera til þess að vera leið­andi í rann­sóknum á endó­metríósu en talið er að 2,5 milljón franskra kvenna þjá­ist af endó­metríósu.

Á íslandi er ekki stórt teymi sem heldur utan um þennan sjúk­dóm og hefur Jón Ívar Ein­ars­son, endó­metríósu sér­fræð­ingur vakið athylgi á stöð­unni á Ísland. Jón kom í við­tal í útvarps­þætt­inum Bítið á Bylgj­unni og sagði:

„Það er ákveð­inn halli í rann­sóknum á endó­metríósu, varð­andi fjár­muni og hversu mikið púður hefur verið veitt í þetta. Maður veltir fyrir sér ef þetta væri karllægur sjúk­dómur hvort þetta hefði verið tekið fast­ari tökum.“

Eins og fyrr segir virð­ist sam­staðan í sam­fé­lag­inu vegna sjúk­dóms­ins hafa auk­ist, en mikil spenna er um næstu við­burði sam­tak­anna:

„Smá tea­ser því við erum að tryll­ast úr spenn­ingi!

Hvað? Ráð­stefna

Hvenær? 28. mars

Hvar? Hilton/Streymi

Hverjir? @dr.gabrielmitroi @extrapelvicnotrare & fleira frá­bært fag­fólk.

Miðasala aug­lýst bráð­lega & sér­kjör fyrir félags­fólk sam­tak­anna [email protected] “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina