Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þingmaðurinn og hrekkjalómurinn Ásmundur í hörðum slag: „Það komu menn og óhelguðu heimili mitt“

Þingmaðurinn og hrekkjalómurinn Ásmundur í hörðum slag: „Það komu menn og óhelguðu heimili mitt“
Ásmundur Frið­riks­son

„Ég hef ekki gert nein mis­tök í þessum akstri mínum. Ég hef verið sak­aður um ýmis­legt varð­andi það og auð­vitað hefur maður á köflum tekið það mjög nærri sér. Þetta tók nátt­úr­lega langt út yfir allan þjófa­bálk og gerir reyndar enn,“ segir Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, í við­tali við Mann­lífið með Reyni Trausta­syni, en Ásmundur hefur verið gagn­rýndur harð­lega fyrir háan akst­urs­kostnað.

Hann segir að eng­inn annar þing­maður fái svona með­ferð í fjöl­miðlum varð­andi þetta. „Þeir sem fljúga mest, eru á dýr­ustu hót­el­unum, eru með mestu dag­pen­ing­ana eða búa í Reykja­vík og hafa bíl og kostnað; það er aldrei tekið. En þegar horft er á heild­ar­mynd­ina á kostn­aði vegna starfa þing­manna þá hef ég yfir­leitt verið í kringum 20. sæti en það þykir þessum fjöl­miðlum ekki merki­legt.“

Ásmundur seg­ist hafa verið dug­legur að heim­sækja kjör­dæmi sitt og vera til staðar þegar eitt­hvað bjátar á og mæta þegar á þarf að halda. „Þess á milli hef ég bara verið mjög dug­legur að tengj­ast fólk­inu og það er auð­vitað hluti af því að líta á starf þing­manns­ins sem þjón­ustu­starf; að maður sé að þjón­usta þetta fólk. Og það er nú þannig á lands­byggð­inni að það er mikið betur þokkað heldur en í þétt­ari byggðum.“

það komu menn og óhelg­uðu heim­ili mitt

Ásmundur er spurður hvort hann hafi ein­hvern tím­ann verið kom­inn á fremsta hlunn með að hætta.

„Það gekk oft mjög mikið á og það var mikið álag á fjöl­skyld­una. Ég hafði gagn­rýnt á svip­uðum tíma ýmis­legt varð­andi hæl­is­leit­endur og þar fékk ég yfir mig mikla gagn­rýni og ekki síst frá mínum flokks­systk­inum; mjög harka­lega gagn­rýni. Nú hef ég tekið eftir því að eig­in­lega allt sem ég sagði þá, hafa þeir sem gagn­rýndu mig mest tekið upp og skrifað um það, að það sé nú nauð­syn­legt að fara yfir þessa hluti. Þannig að með tíð og tíma, þótt ég hafi komið dálítið bratt inn í þá umræðu, þá virð­ist margt af því sem ég hef sagt komið á dag­inn og að við þurfum að fara að skoða.

Ég varð fyrir því að það var verið að hringja í mig á nótt­unni og það komu menn og óhelg­uðu heim­ili mitt. Þetta var nátt­úr­lega fer­lega erf­iður tími og við áttum bara mjög erf­iða daga og fengum hring­ingar á nótt­unni bæði frá útlend­ingum og auð­vitað bara fólki hér úr sam­fé­lag­inu svo ég tali nú ekki um alla tölvu­póstana sem komu. Í tölvu­pósti var mér og börn­unum mínum hótað og ég fór auð­vitað með það til lög­regl­unnar.“

Kom eitt­hvað út úr því?

„Nei, það ger­ist ekk­ert í svo­leiðis málum held ég.“

Ég auð­vitað geng stundum hart fram

Ásmundur er spurður hvort það sé fram­setn­ingin varð­andi hæl­is­leit­endur sem stuði ein­hverja og hleypi af stað þess­ari óánægju.

„Jú, það má vel vera að það sé eitt­hvað í fari mínu sem gerir það að verkum að ég tali svona venju­legt mál og það sé bara óheppi­legt. Ég er bara sprott­inn úr þessum jarð­vegi, þar sem maður hefur verið sjó­maður og fisk­verk­andi, unnið á gröfum og neta­gerð og kom bara úr þessu umhverfi þar sem er auð­vitað oft harka og kannski öðru­vísi munn­söfn­uður en í háskól­anum. Mér hefur fund­ist gott að tala svona hreint út og ég held að það mundi ekki breyt­ast þótt ég færi að stæla fram­komu ein­hverra ann­arra; ég held að það væri aldrei heppi­legt. Ég kem bara til dyr­anna eins og ég er klæddur. Það getur stuðað fólk. Ég auð­vitað geng stundum hart fram.“

Hrekkjalómafélagið

Ásmundur Frið­riks­son er skip­stjóra­sonur og vann um ára­bil meðal ann­ars við neta­gerð og sjó­mennsku, hann var verk­stjóri, blaða­maður og hann rak fisk­vinnslu­fyr­ir­tæki.

Ásmundur stofn­aði á sínum tíma Hrekkjalóma­fé­lagið ásamt nokkrum félögum sínum. Hann segir félagið hafa orðið til upp úr ein­hverju bulli. „Menn voru að gera ein­hverja vit­leysu á vikt­inni og segja ýmis­legt og við vorum ansi líf­legir margir strákar þarna. Gegndum ábyrgð­ar­störfum. Ég var til dæmis yfir­verk­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar þar sem unnu um 400 manns og það var mikið að gera á þessum árum og maður var að eign­ast fullt af börnum en við erum ansi létt­lyndir og ég verð bara að segja eins og er: Við vorum bara mjög skemmti­legir.“

Það gekk alltaf best upp þegar við vorum bara að stríða hver öðrum

Hverjir voru skemmti­leg­ustu hrekkirnir? Hvað gekk best upp?

„Það gekk alltaf best upp þegar við vorum bara að stríða hver öðrum. Það voru afmæl­is­hrekkir; þegar menn áttu afmæli. Eins og þegar Magnús Krist­jáns­son útgerð­ar­maður varð fer­tugur á sínum tíma þá tókum við gamla trillu; þetta var margra vikna starf – við skröp­uðum hana alla upp og mál­uðum hana í útgerð­ar­lit­unum hjá Magga; rauðum og gulum. Af því að allir voru með 44 á heil­anum þá var bát­ur­inn VE444; það tók allan hring­inn. Svo voru tugir ef ekki hund­rað manns í afmæli heima hjá honum og við mættum á allar slíkar sam­komur í kjól­fötum, hrekkjalóm­arnir, og svo kom okkar besti maður, Már vöru­bíl­stjóri, með bát­inn á krana­bíl og við að taka á móti í þessum galla og fjöldi fólks frá Reykja­vík. Það bara skildi þetta ekki. En alltaf í enda dags­ins, þá vorum það við sjálfir sem höfðum mest út úr þessu. Við gerðum ótrú­leg­ustu hluti og ég lét mig hafa það að skrifa bók um þetta.

Hrekkjalóma­fé­lagið er félags­skapur sem sprettur úr ein­hverri gleði, en á sinn tíma; af því að eftir ákveð­inn tíma fer svona að kvarn­ast úr. Við vorum búnir að missa þrjá félaga sem dóu á þessu tíma­bili. Það hafði áhrif á okkur. Maður sá það svona eftir á. Djöfla­gang­ur­inn átti ekki alltaf eins við. Þetta lón­aði út. Við hitt­umst tveimur árum eftir að þetta var búið og það var ægi­lega gaman. Við rifj­uðum upp mynda­sýn­ing­arnar og áttum góða stund, en þá fundum við að tím­inn var bara búinn.“

Flaskan

Ásmundur drakk um tíma meira en góðu hófi gegndi.

„Ég hafði reyndar mjög gaman af því lengst af. Við töl­uðum um Hrekkjalóma­fé­lagið áðan og það kom fyrir að við skvettum í okkur og það var bara mjög skemmti­legt. En svo fór skipt­unum að fjölga, lengj­ast og of oft og of lengi og svo tók tíma fyrir mig að átta mig á því að það þurfti að gera eitt­hvað í því. Svo eins og í mörgu öðru þá keyrir maður á vegg og nú eru að verða 16 ár frá því ég fór í með­ferð.“

Ásmundur seg­ist muna að þegar hann tók þá ákvörðun að hætta að drekka þá hafi eitt­hvað breyst innra með honum. „Það hafði ég aldrei fundið áður. Það er sú hjálp sem ég fékk. Ég hef aldrei smakkað það síðan og aldrei langað í.“

Ég held að maður eigi ekki betri leið­sögn í líf­inu en kristna trú og ég veit ekki um nokkurn mann sem hún hefur skemmt

Alþing­is­mað­ur­inn er trú­aður. „Ég ólst upp á trú­uðu heim­ili og sótti Betel í Eyjum í gamla daga hjá Einari, frænda mínum, og mamma mín var alin þar upp líka, þannig að fjöl­skylda mín hefur tengst Fíla­delf­íu­söfn­uð­inum órjúf­an­legum böndum frá upp­hafi. Frá því að langamma mín stofn­aði söfn­uð­inn ásamt fleiri konum í Vest­manna­eyjum með sænskum trú­boðum, þá hefur Fíla­delfía leikið stórt hlut­verk í fjöl­skyldu okkar, þótt við höfum ekki öll verið í söfn­uð­inum.

Við höfum sótt sam­komur og ég hef verið afsakap­lega hrif­inn af mínu fólki sem er þarna innan dyra og er að gera þessa frá­bæru hluti. Ég hef verið í Þjóð­kirkj­unni og fermd­ist og hef unnið mikið með kirkj­unni suður frá og þar eigum við frá­bæra presta og það stóð ekki á þeim þegar umræðan um þessa bíla­pen­inga stóð sem hæst sem og var alger­lega að drepa mig. Þá var það það fólk sem hjálp­aði mér að kom­ast yfir þann hjalla. Ég held að maður eigi ekki betri leið­sögn í líf­inu en kristna trú og ég veit ekki um nokkurn mann sem hún hefur skemmt.“

Fyr­ir­tækið varð gjald­þrota og í kjöl­farið varð ég svo­lítið gjald­þrota sjálfur.

Gjaldþrota

Ásmundur segir að það nýja líf sem hann eign­að­ist hafi orðið ótrú­lega inni­halds­ríkt og gott. „Ég var búinn að vera hepp­inn í líf­inu og búinn að fá mikið út úr mínu lífi og ég og eig­in­kona mín eigum fimm börn og nú eigum við orðið sex barna­börn þannig að við getum bara verið mjög ánægð með okkur þó að ekki hafi allt gengið upp í okkar lífi. Við höfum þurft að taka út að hafa átt fyr­ir­tæki sem gekk ekki og við tókum þær skuld­bind­ingar á okkur og vorum í mörg ár að vinna út úr því. Það reynd­ist mér mjög erfitt.

Fyr­ir­tækið varð gjald­þrota og í kjöl­farið varð ég svo­lítið gjald­þrota sjálfur. Ég féll á milli deilda og missti mig í vín­inu en náði mér svo á strik og þau tæki­færi sem ég hef fengið í líf­inu síðan eru svo ótrú­leg. Ég er búinn að vera fram­kvæmda­stjóri Knatt­spyrnu­deildar Kefla­víkur og þar fékk ég nú góða hjálp og síðan tók ég við Ljósa­nótt í Reykja­nesbæ og við lyftum því svo­lítið ræki­lega upp.

Síðan var ég ráð­inn í Garðinn og síðan er ég búinn að vera þing­maður síðan þá og ég segi nú bara hvaða gam­all sjó­maður og fisk­verk­andi úr Vest­manna­eyjum fær svona tæki­færi þegar hann hættir að drekka? Og ég hef bara ein­hvern veg­inn frá því ég náði mér út úr þessu sem ég gerði klár­lega með hjálp Guðs, af því að ég fann það alveg að mér var hjálpað og það var tekin frá mér þessi löngun að drekka vín, að ég hef eig­in­lega vaknað á hverjum ein­asta degi með þá hugsun hvernig ég geti þakkað þetta í dag. Og ég hef bara gert ansi margt í því að sýna þakk­læti fyrir það líf sem ég á og fyrir lán mitt og mér finnst í raun­inni að maður geti bara aldrei nóg­sam­lega þakkað það að hafa fengið þetta tæki­færi í líf­inu sem ég hef fengið.

Það mótar þessar skoð­anir sem ég hef í þessum málum og hef oft verið harka­lega gagn­rýndur í þing­inu þegar verið er að tala um neyslu­skammta og gefa þetta allt saman frjálst og allt opið enda­laust. Og ég veit að unga fólkið horfir stundum á mig og jafn­vel börnin mín og segja „pabbi, hvaða rugl er í þér, þú ert bara fastur í ein­hverjum kassa“. Ég er sjálf­stæð­is­maður sem virði mikið per­sónu­frelsi okkar allra sem er mjög mik­il­vægt. Að ég sem þing­maður sé ekki að setja aðilum í þessum rekstri sér­stakar skorður þá er sam­fé­lagið bara þannig að við sem sitjum á þingi þurfum líka að velta því fyrir okkur að úti í sam­fé­lag­inu er fullt af fólki sem þolir ekki allt frjáls­ræðið sem margir þing­menn kalla eftir.

Við sjáum alveg hvernig heil­brigð­is­kerfið og lög­reglan og aðilar í heil­brigð­is­málum og félags­málum eru að drukkna í þessum vanda­málum. Við sáum til dæmis með tak­mark­anir á opnun veit­inga­staða í þess­ari árans veiru hvað álagið á spít­al­anum minnk­aði og núna vitum við alveg hvaða áhrif það hefur að tak­marka opn­un­ar­tíma veit­inga­staða. Ég veit að núna góla margir að ég segi það. Ef við getum ekki lagt nógu mik­inn pen­ing, fengið nóg af hjúkr­un­ar­fræð­ingum og nógu mikið af læknum til að taka við öllu þessu veika fólki um helg­arnar þá verðum við að bregð­ast við því á annan hátt.

Það þýðir ekki að opna þetta allt saman og það sé ekk­ert gert hinum megin. Það er nákvæm­lega sama með þetta neyslu­skammta­frum­varp; ef við ætlum ekki að bæta í með­ferð­ar­úr­ræðin, bæta pen­ingum í með­ferð­ar­úr­ræðin, og leggja miklu meira í það heldur en við erum að gera í dag þá þýðir ekki að opna kran­ann bara öðrum megin. Um leið og við ætlum að opna á óhefta neyslu á eit­ur­lyfjum þá verðum við að leggja meiri pen­ing í með­ferð því að það munu mjög margir bæt­ast í þann hóp sem þarf á aðstoð að halda.“

Ég hef fengið svo­leiðis hót­anir bréf­lega.

Hótunarbréf

Talið berst að MeToo-umræð­unni.

„Ég held að það sé sprottið af mörgu mjög góðu. Og klár­lega þurfti auð­vitað að bæta sam­skipti kynj­anna og þessa virð­ingu sem við þurfum að bera fyrir hvert öðru. Ég held að það sé mjög mik­il­vægt að við berum virð­ingu fyrir öllum og maður hefur svo sem ekki kynnst öðru í sjálfu sér í gegnum lífið en að gera það.“ Ásmundur segir að auð­vitað hafi hann séð að þessi fram­koma sem margar konur verða fyrir nái ekki nokk­urri átt. „Mér finnst svo aftur á móti umræðan vera komin langt frá þessu af því að nú er orðið nóg ein­hvern veg­inn að ásaka ein­stak­linga um eitt­hvað og stoppa þá á ein­hverri leið og ég segi fyrir mig eins og í póli­tík­inni að ef ég færi nú í próf­kjör eftir þrjú ár þá væri nóg að það kæmi ein­hver fram og segði að ég hefði gert eitt­hvað mis­jafnt. Það þarf eng­inn að bera vitni að því. Það getur bara stoppað menn. Ég hef fengið svo­leiðis hót­anir bréf­lega. Ég þekki þetta.“

„Ég held að það sé rétt sem sagt er að rétt­ar­kerfið bregð­ist seint og illa við og þetta taki langan tíma og svo segja lög­fræð­ingar líka að þetta séu erfið mál að eiga við; maður getur farið í gegnum þessa umræðu og skilið allt sem allir segja. Maður getur í sjálfu sér verið sam­mála öllum af því að rökin eiga alveg rétt á sér. Þess vegna er mik­il­vægt fyrir okkur sem sam­fé­lag að taka ein­hvern veg­inn utan um þetta og finna ein­hverja bæri­lega lausn svo að þeir sem verða fyrir ein­hverju ofbeldi fái klár­lega lausn sinna mála. Það er bara mjög mik­il­vægt. Ég hef heyrt konur tala um að mik­il­vægt sé að hitta ger­and­ann; að geta sagt sína skoðun. Það er eins og í sam­fé­lag­inu stundum. Til dæmis bara í þing­inu. Við þurfum að vera lið; maður þarf að sam­þykkja eitt­hvað. En maður verður kannski ekki alveg með það í hjart­anu að vilja sam­þykkja það en bara að fá að segja sína skoðun skiptir líka miklu máli.“

Þetta er við­kvæmt mál.

„Maður má ekki mis­mæla sig mikið þegar maður talar um þetta.“

Það er með meiri áföllum sem ég hef orðið fyrir í líf­inu.

Rangárþing ytra

Ásmundur varð bæj­ar­stjóri í Garði árið 2009 en árið 2012 sagði bæj­ar­stjórnin honum upp.

„Ég hafði hugsað það oft að ég yrði góður bæj­ar­stjóri. Og ég held að það hafi komið í ljós þegar ég kom í Garðinn, þó að það hafi auð­vitað ekki allir orðið ánægðir með mig, að ég var á réttri hillu, var fram­taks­samur, hugði vel að sam­fé­lag­inu og það lá mikið eftir mig þó að endir­inn hafi ekki verið eins og ég hefði kosið; einn félagi okkar fór af bátnum og mynd­aði meiri­hluta með minni­hlut­anun og mér var sagt upp störfum. Það er með meiri áföllum sem ég hef orðið fyrir í líf­inu.“

Ásmundur hefur fengið margar áskor­anir um að gefa kost á sér til að leiða lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Rangár­þingi ytra í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í vor. „Ég verð að segja eins og er kom­inn á þennan aldur sem ég er á, reyndar hef ég aldrei verið spræk­ari, að þá fannst mér ótrú­lega áhuga­vert og spenn­andi og í raun­inni þakk­ar­vert að það skyldi vera spurt eftir mér í þetta starf. Ég gegndi bæj­ar­stjóra­starf­inu í Garðinum á sínum tíma í fjögur ár og það hefur alltaf blundað í mér síðan að ef tæki­færi kæmi þá myndi ég skoða það ræki­lega og ég er að því núna.“

Hann er spurður hvort þessi darrað­ar­dans sem hann hefur stigið und­an­farin miss­eri sé hluti af því að hann vill takast á við önnur verk­efni.

„Ég get alveg sagt þér að síð­ustu árin hafa verið þannig betri að mér hefur liðið betur í þing­inu en ég við­ur­kenni það alveg að það var oft erfitt að fara að heiman og skilja kon­una eftir heima og fara inn í þing og líða ekki vel; fara kannski beint upp á skrif­stofu og berja aðeins í brjóstið á sér til að fá sig af stað.“

Ásmundur seg­ist hafa litið á starf þing­manns­ins sem þjón­ustu­starf við sam­fé­lagið. „Og þannig hef ég upp­lifað mig í því starfi að reyna að þjón­usta fólk og vera þjónn þess og með því að vera sveit­ar­stjóri þá þekki ég það. Þá kemur skör­unin nær; maður er svo­lítið með sam­fé­lagið í hönd­unum vegna þess að það er verið að koma til manns á hverjum degi og það er verið að biðja mann um að græja og gera ein­hverja hluti og ég hef alltaf þrif­ist mjög mikið í því að afkasta; bæði þegar ég var á sjó og þegar ég var fisk­verk­andi en þá var maður alltaf að telja körin og klára þetta mörg kör. Maður er svo­lít­ill trukkur í vinn­unni og ég man þegar ég var bæj­ar­stjóri í Garðinum hvað mér leið oft vel þegar ég fór heim á kvöldin að geta sagt við sjálfan mig að ég kláraði svona mörg mál í dag.

En á þing­inu er það ekki þannig starf; þetta tekur allt langan tíma. Maður flytur frum­varp og það tekur þrjá mán­uði lág­mark að velkj­ast um; svo vill kannski eng­inn hlusta á það sem maður er að leggja fram og maður er búinn að leggja mikla vinnu, kostnað og fá lög­fræð­inga þings­ins til að vinna fyrir mann og allt kostar þetta í raun­inni.

Þannig að þó ég hafi sér­stak­lega í seinni tíð notið mín miklu betur í þing­inu þá finnst mér þetta tæki­færi í sveit­ar­fé­lagi sem er jafn­vel rekið og Rangár­þing ytra og stendur jafn­vel þá horfi ég til þess að þar eru ótal­mörg tæki­færi sem ég myndi taka við sem núver­andi sveit­ar­stjóri og sveit­ar­stjórn er að vinna að og svo sé ég ein­hver önnur tæki­færi sem þeir sjá ekki og ég mun verða ófeim­inn auð­vitað í að ýta því úr vör og kynna það fyrir fólki þannig að ég lít á þetta sem spenn­andi tæki­færi en það er ekki í hendi.“

Ég er þannig gerður að ég vil auð­vitað allt eða ekki neitt.

Ásmundur segir að hann væri ekki að fara í þessa kosn­inga­bar­áttu, eða próf­kjör, nema að ætla að sigra.

„Ég er þannig gerður að ég vil auð­vitað allt eða ekki neitt. Maður er svo­lítið svo­leiðis. En ég vil líka segja það að Ingvar Pétur Guð­bjarts­son, sem býður sig líka fram í þetta starf, er afskap­lega hæfur og góður maður. Það er heima­maður sem er afskap­lega vin­sæll og ég hef sagt honum og öðrum að ef ég hefði vitað að hann ætl­aði fram þegar ég tók ákvörð­un­ina þá hefði ég trú­lega aldrei farið fram af því að það var ekki eft­ir­spurn eftir því að fara í sveita­stjórn­ina og þess vegna var kannski leitað til mín.

En svona eru bara örlögin og ég er á þess­ari veg­ferð og þegar það verður ákveðið vænt­an­lega næsta laug­ar­dag hvaða reglur munu gilda um val á list­ann og ef það verður próf­kjör þá fer ég í það og þá mun ég fara í það í takt við þetta sam­fé­lag sem er þar. Ég kem úr Reykja­nesbæ og þekki kosn­inga­bar­áttu í Vest­manna­eyjum en þarna er öðru­vísi aðferðum beitt. Þetta er rólegt sam­fé­lag og maður þarf að koma þannig fram að maður sé í takt við það þegar maður fer að berj­ast um hylli fólks.“

Hvað ef hann kemst ekki áfram? Mun hann halda áfram í þing­mennsku?

„Já, þá verður engin fýla. Maður blæs kannski aðeins í gaupnir sér í tvo daga til þess að slá úr sér þyngslin en keppn­is­skapið er auð­vitað til staðar en ég bara veit að þegar próf­kjörið verður búið þá munum við bera virð­ingu fyrir því sem fólkið í sveit­inni óskar eftir. Og það er auð­vitað það sem skiptir mestu máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina