Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hvað fór úrskeiðis í tilfærslu leghálsskimana yfir á opinbera aðila?

Hvað fór úrskeiðis í tilfærslu leghálsskimana yfir á opinbera aðila?

Mannlíf hefur undir höndum skýrslu frá starfs­hópi Lækna­fé­lags Íslands vegna leg­háls­skim­ana; Skýrsla og sér­á­lit frá starfs­hópi Lækna­fé­lags Íslands, haustið 2021. Skýrslan fjallar um breyt­ingar á skipu­lagi og fram­kvæmd leg­háls­skimunar. Þar var mælt fyrir um breyt­ing­una sem átti að verða við árs­lok 2020. Í skýrsl­unni kemur fram að verk­efna­stjórnun innan Heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins hafi brugð­ist með ýmsum hætti í til­færslu leg­háls­skim­ana yfir á opin­bera aðila:

Þann 29. jan­úar 2020 var til­kynnt að heil­brigð­is­ráð­herra hefði ákveðið að vinna að fram­kvæmda­verk­efna í sam­ræmi við til­lögu ráð­gjaf­ar­hóps frá 2017 vegna leg­háls­skim­ana.

Samkvæmt skýrsl­unni kemur fram að Heil­brigð­is­ráðu­neytið hafi séð um vinna að því mark­miði að gera skimun­ina betri og færa hana nær konum með því að bjóða hana í heilsu­gæsl­unni fremur en í leit­ar­stöðvum Krabba­meins­fé­lags­ins.

Formaður LÍ, Reynir Arn­gríms­son erfða­læknir og Svandís Svav­ars­dóttir fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra.

Vandaðri undirbúning og mun meiri tíma hefði þurft

Í skýrsl­unni eru talin upp þau atriði sem talin er hafa brugð­ist við til­færsl­una:

• Ekki var haft sam­ráð við Krabba­meins­fé­lagið í að skipu­leggja hvað þyrfti að vera til staðar og hvernig yfir­færslan ætti að fara fram. Hjá Krabba­meins­fé­lag­inu lá mesta þekk­ingin um
skimun­ar­starfið. Sér­stak­lega með til­vísan til þess að Embætti land­læknis hafði í
minn­is­blaði til heil­brigð­is­ráð­herra frá 22.02.2019 lagt áherslu á að það yrði gert og
víð­tæks sam­ráðs leitað hjá aðilum með fag­þekk­ingu, með lang­tíma þrepa­skipt mark­mið
að leið­ar­ljósi.

• Ekki var gert áhættu­mat á því hvar veika punkta gæti verið að finna í yfir­færslu­ferl­inu.

• Ekki var gert ráð fyrir tíma þar sem bæði kerfin væru keyrð sam­tímis til að tryggja
sam­fellu og að nýtt kerfi virk­aði sem skyldi.

• Ekki var gerð kostn­að­ar­á­ætlun þar sem allir þeir þættir voru teknir með sem bætt­ust við
þegar grein­ing sýna færi fram erlendis.

• Ekki var gætt með réttum hætti að per­sónu­vernd við flutn­ing íslenskra líf­sýna erlendis og
geymslu þeirra þar í líf­sýna­safni sem ekki laut íslenskum reglum. Ekki var hugsað fyrir
ýmsum þáttum sem þyrfti að sam­hæfa við flutn­ing starf­sem­innar frá einum aðila yfir á
þrjá (þ.e.a.s. heilsu­gæsl­una, Land­spít­al­ann/Sjúkra­húsið á Akureyri og Embætti
land­læknis).

• Ekki var beðið um frest á yfir­færsl­unni þegar í ljós kom að und­ir­bún­ingur var ekki nægur.

• Yfirmenn fram­kvæmda tóku tak­markað til­lit til við­var­ana fag­að­ila, s.s. hjá
Krabba­meins­fé­lagi Íslands, fag­fé­lögum fæð­inga- og kven­sjúk­dóma­lækna,
rann­sókn­ar­lækna, líf­einda­fræð­inga, Lækna­ráði Land­spít­al­ans, Lækna­fé­lagi Íslands og
fleirum. Skrif­legum ábend­ingum og við­vör­unum var oft ekki svarað.

Land­læknir hafði mælti með víð­tæku sam­ráði til að tryggja öruggan flutn­ing á
fram­kvæmd­inni, en það var ekki við­haft. Yfir­stjórn Heilsu­gæsl­unnar gerði sér ekki nægi­lega grein fyrir miklu umfangi og flækju­stigi þessa verk­efnis og fékk heldur ekki til liðs við sig starfs­fólk Krabba­meins­fé­lags­ins sem hafði ára­tuga langa reynslu af starf­sem­inni sem heilsu­gæslan átti að taka yfir. Þegar ljóst var að ekki myndi nást að vera með alla þætti ferl­is­ins til­búna á réttum tíma þá hefði stjórn­un­ar­að­ilum í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu átt að vera ljóst að gera þurfti ráð­staf­anir til að tryggja að ekki yrði rof á öruggri þjón­ustu.

Vandaðri und­ir­bún­ing og mun meiri tíma hefði þurft vegna þessa umfangs­mikla verk­efnis.

Breytinga- og verkefnastjórnunin brást

Alma Möller Land­læknir

Embætti land­læknis var fengið hlut­verk beggja vegna borðs­ins sem fram­kvæmd­ar­að­ila í að
fylgj­ast með fram­kvæmd breyt­ing­anna, skipu­leggja skimun­ar­leið­bein­ingar og bera end­an­lega ábyrgð á skimun­ar­skrá, sem ekki aðeins tekur til skrán­ingar kvenna sem hafa komið í skimun, heldur er líka notuð í dag­legu starfi hjá Sam­hæf­ing­ar­stöð krabba­meins­skim­ana til boð­unar, eft­ir­lits og úrvinnslu, svo og til að senda út svör til kvenna og lækna. Embættið er ráð­gjafar- og eft­ir­lits­að­ili með heil­brigð­is­starfs­mönnum og allri heil­brigð­is­þjón­ustu. Embætti land­læknis hefði þurft að fara fram á betri und­ir­bún­ing síðla árs 2020 í sam­ræmi við fyrri til­mæli, en þá var emb­ættið jafn­framt að sinna þátt­töku í til­teknum verk­þáttum yfir­færsl­unnar. Á Sam­hæf­ing­ar­stöð­inni hefði þurft að vera sú yfir­sýn að óskað væri eftir frestun fram­kvæmda til að hægt væri að und­ir­búa til­færslu verk­efn­ins betur.

Upplifun almennings

Umræður fóru fram á Alþingi í fyr­ir­spurna­tíma og með skrif­legum fyr­ir­spurnum til
heil­brigð­is­ráð­herra frá nokkrum þing­mönnum. Í fram­haldi af því fékk fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra sótt­varna­lækni/rit­ara skimun­ar­ráðs til að gera skýrslu um fram­gang máls­ins fyrir heil­brigð­is­ráðu­neytið. Sú skýrsla var lögð fyrir þingið í júní 2021.

Talsverð blaða­skrif, and­mæli í fjöl­miðlum og á sam­skipta­miðlum komu frá ein­stökum konum og sam­tökum kvenna. Þetta voru áhyggjur af upp­lýs­inga­miðlun og fram­kvæmd skimunar í upp­hafi árs­ins 2021. Eftir því sem á leið komu fram sögur kvenna af sam­skiptum við sam­hæf­ing­ar­stöð­ina. Bent var ítrekað á veru­legar tafir á svörum frá rann­sókna­stof­unni í Danmörku og frá sam­hæf­ing­ar­stöð­inni, sem allt fram til ágúst­mán­aðar 2021 höfðu dreg­ist í allt að sex mán­uði í nokkrum til­vikum. Greint var frá sam­skiptum við yfir­lækni sam­hæf­ing­ar­stöðv­ar­innar og spurt hvort þau væru eðli­legur sam­skipta­máti. Svör hans birt­ust einnig í fjöl­miðlum.

Aðför að heilsu kvenna

Hópurinn #adforad­heilsu­kvenna var stofn­aður 20. febr­úar 2021 sem umræðu­hópur um
leg­háls­skimun­ina á Facebook-vefnum, en hlaut strax veru­legar und­ir­tektir meðal kvenna.
Konur greindu þar frá erf­ið­leikum í sam­skiptum við sam­hæf­ing­ar­stöð­ina og við þáver­andi
yfir­lækni hennar. Löng og óhóf­leg bið eftir nið­ur­stöðum úr leg­háls­skimunum í ein­hverjum
til­vikum var gagn­rýnd, allt frá því þjón­ustan var færð frá KÍ og til heilsu­gæsl­unnar.
Þjón­ustu­þegar kvört­uðu yfir óör­yggi og upp­lýs­inga­óreiðu og nefnt var að traust hafi brostið og þurfi að byggja upp að nýju.

Í hópnum kom einnig fram óánægja með aðskilnað leg­háls- og brjóstakrabba­meins­leitar.
Notendur þjón­ust­unnar hafa margar kallað eftir að hún yrði aðgengi­leg á einum stað líkt og áður. Þá varð til óánægja víða á lands­byggð­inni, svo sem í Vest­manna­eyjum þar sem konur fengu boð í skimanir sem útheimtu ferð á Selfoss eða til Reykja­víkur. Allt þetta ætti að vera hægt að lag­færa með því að færa þjón­ust­una til not­anda líkt og þær þekki frá fyrri tíð og því ættu þær ekki að þurfa að missa úr vinnu, koma börnum fyrir og valda álagi á aðra og síðan leggja í dýrt ferða­lag með því sem því fylgdi.

Athugasemdir starfshóps Læknafélags Íslands

Heilsu­gæslan var ekki vel und­ir­búin varð­andi yfir­töku leg­hálskrabba­meins­leit­ar­innar
um ára­mótin 2020-2021 eftir að heil­brigð­is­ráðu­neytið hafði falið henni að taka við
verk­efn­inu um mitt árið 2020. Ekki var telj­andi innra sam­ráð innan Heilsu­gæsl­unnar um
fram­kvæmd­ina, né gert ráð fyrir skimun­inni sem hluta heilsu­gæsl­unnar í venju­legum
skiln­ingi, heldur var hún sett upp sem sér­stakt verk­efni þar sem aðeins sýnitakan sjálf
fór fram á heilsu­gæslu­stöðvum.

Á allt annað var litið á sem sér­stakt verk­efni sam­hæf­ing­ar­stöðv­ar­innar. Aðkoma heilsu­gæslu­lækna að skimun­inni var engin og ekki hugsað fyrir henni, t.a.m. vegna ráð­gjafar til kvenna varð­andi nið­ur­stöður úr sýna­tökum þegar svör væru afbrigði­leg. Alfarið var treyst á ekki vel mann­aða sam­hæf­ing­ar­stöð í því efni. Þar urðu verk­efnin fljót­lega mun meiri en ráð var fyrir gert.

Samningi við erlenda rann­sókna­stofu áður en nýtt fyr­ir­komu­lag hófst, né heldur gerð verk­ferla vegna með­ferðar sýn­anna. Gera mátti ráð fyrir að þjálfa þyrfti veru­legan fjölda ljós­mæðra til sýna­tök­unnar (um 50 tals­ins) áður en leit­ar­stöð­inni yrði lokað. Sú þjálfun hófst ekki að ráði fyrr en á fyrri hluta árs­ins 2021.

Tak­markað sam­band var haft við fag­að­ila sem hefðu getað lagt til þekk­ingu á ein­stökum
eða mörgum þáttum leg­háls­skimunar, s.s. hjá KÍ (sem bauð fram sam­ráð og aðstoð),
krabba­meins­skrá, heilsu­gæslu, fag­fé­lögum lækna, líf­einda­fræð­inga og ljós­mæðra, yfir­læknum heilsu­gæsl­unnar, fyrrum yfir­læknum leit­ar­stöðvar og yfir­mönnum frumu-
eða veiru­rann­sókna hér á landi. Engar leið­bein­ingar eða skipu­rit um sýna­töku­ferlið komu fyrr en í árs­lok 2020 og byrjun árs 2021. Þær voru fyrst á dönsku, a.m.k. 3ja ára
gamlar, og voru ekki útgefnar fyrr en nokkru síðar á íslensku. Leið­bein­ingar til
almenn­ings birt­ust í maí 2021 á vef Embættis land­læknis, en kynn­ing­ar­starf var lítið,
aðal­lega raf­ræn send­ing “bæk­linga” til kvenna sem boð­aðar voru í skimun­ina.

Svör voru óljós eða bárust seint

Óskar Reyk­dals­son, for­stjóri Heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu

Svör við end­ur­teknum fyr­ir­spurnum Krabba­meins­fé­lags Íslands árið 2020 til heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins og til Heilsu­gæslu Höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins voru óljós, eða bár­ust í sumum til­vikum seint. Þau komu ekki end­an­lega fram þannig að unnt væri að bregð­ast við þeim af hálfu leit­ar­stöðvar og Krabba­meins­fé­lags Íslands fyrr en í nóv­em­ber og
jafn­vel des­em­ber­mán­uði 2020.

Sama var um sam­skipti við Land­spít­al­ann. Nægilega yfir­grips­mikil, tíma­sett og tím­an­leg kostn­að­ar­út­tekt hefur ekki birst og virð­ist ekki hafa verið gerð, heldur var stuðst við gögn sem ekki voru gerð opin­ber af hálfu for­svars­að­ila heilsu­gæsl­unnar eða heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins. Ekkert mat var gert fyr­ir­fram á hugs­an­legum erf­ið­leikum í skrán­ingu og með­ferð sýn­anna, á flækju­stigum í send­ingu sýna og upp­lýs­inga milli landa, á per­sónu­vernd­ar­at­riðum eða á því hvernig staðið yrði að svörun vegna sýni­tök­unnar þegar afbrigði­legar nið­ur­stöður bær­ust.

Það var lagt í hendur eins fag­að­ila, þ.e.a.s. yfir­læknis sam­hæf­ing­ar­stöðv­ar­innar sem settur
var til þeirra starfa án venju­legs ráðn­ing­ar­ferlis. Starfs­hlut­fallið sem fékkst til verks­ins
var ein­ungis hálft starf, og svo var enn þegar nýr aðili tók við því. Óform­legum
und­ir­bún­ings­hópi heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins sem starf­aði síð­asta árs­fjórð­ung 2020 og í
árs­byrjun 2021 var ætlað að styðja við umbreyt­ingar í bæði brjósta- og
leg­hálskrabba­meins­skimun­inni, en ekki er ljóst hvert umfang þessa óform­lega starfs var
eða hvaða máli það skipti varð­andi leg­háls­skimun­ina.

Úrvinnslustarf legið niðri í 8 ár

Úrvinnsla og skýrslu­gerð var ekki tryggð áður en starf­semin var flutt og leit­ar­stöð­inni
lokað, enda hafði slíkt úrvinnslu­starf þá legið niðri að mestu leyti um 8 ára skeið.
Verk­ferlum og upp­lýs­inga­gjöf gagn­vart læknum og almenn­ingi var ábóta­vant.
Heilsu­gæslan og for­svars­fólk hennar, fyrr­ver­andi yfir­læknir Sam­hæf­ing­ar­stöðvar
krabba­meins­skim­ana, land­læknir og heil­brigð­is­ráðu­neytið hafa komið fram með
almennar ástæður til að skýra breyt­ingar á skimun­ar­ferl­inu.

Flestir hafa sam­sinnt til­lögum um til­færslu skimun­ar­innar til heilsu­gæsl­unnar í meg­in­at­riðum, en ekki var fyr­ir­fram unnt að ætla að þær mundu bæta árangur eða mæt­ingu í skimun­ina. Breyting með meg­in­á­herslu á HPV-grein­ingu eftir þrí­tugt var eðli­leg, enda alþjóð­lega stað­fest hvað gagn­semi og hag­ræð­ingu í skimun­inni varðar. Nauð­synin á að leggja af starf­semi leit­ar­stöðvar KÍ og færa grein­ingu sýna til danskrar rann­sókna­stofu ork­aði tví­mælis að
margra mati, og varð umdeild. Samráð skorti við fag­að­ila og ekki var byggð upp
þekk­ing eða til­trú almenn­ings á nýju kerfi.

Mörgum, og þar með talið læknum og fag­sam­tökum þeirra og líf­einda­fræð­inga, hefur
þótt skorta á svör varð­andi spurn­ingar um ákvarð­ana­töku, tíma­ferli, samn­inga við
erlendan aðila, tak­mark­aðar samn­ings­um­leit­anir við inn­lenda aðila, skoðun á því hvort
og hvernig mætti halda HPV-grein­ingum og frumu­meina­fræði­rann­sóknum í land­inu.
Fjölmörg fram­kvæmda­at­riði á árinu 2020 og á síð­ast­liðnu ári 2021, þ.m.t. varð­andi
kostnað, ábyrgð og stjórnun leg­háls­skimun­ar­innar voru ekki nægi­lega und­ir­búin.

Misgreiningar

Síðla árs 2020 segir í skýrsl­unni að það hafi verið umræða um til­vik þar sem mein­semd hafði ekki greinst í frumu­rann­sókn hjá Krabba­meins­fé­lag­inu með alvar­legum afleið­ingum. Á þessu til­viki voru gefnar skýr­ingar af hálfu Krabba­meins­fé­lags­ins og viða­mikil end­ur­skoðun sýna fór fram. Embætti Land­læknis benti á úrbætur sem mátti gera. Mis­grein­ingar gátu þó ekki orðið for­senda breyt­inga sem gerðar voru á leg­háls­skimun­inni.

„Þá mátti vera ljóst að yfir­grips­mikil breyt­ing, gerð með mjög skömmum fyr­ir­vara,
mundi verða erfið á sama tíma og mikil heil­brigð­isvá steðj­aði að sam­fé­lag­inu með
Covid-heims­far­aldr­inum. Mun lengri tíma hefði þurft af þeirri ástæðu einni.
Fram­kvæmdin var að miklu leyti gerð á síð­ustu stundu á öllum stigum, allt frá og með
ákvörðun heil­brigð­is­ráð­herra um mitt sumar 2019.

Ábyrgðin var hjá Heilsu­gæsl­unni sem hins beina fram­kvæmd­ar­að­ila. Endanleg ábyrgð liggur hins vegar hjá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu sem ekki fór að ráðum eigin starfs­hópa (skimun­ar­ráðs, meiri­hluta fagráðs) eða eigin verk­efn­is­stjórnar eða Embætti Land­læknis, heldur virð­ist hafa treyst á ráð­gjöf eins aðila, yfir­læknis í heilsu­gæsl­unni sem jafn­framt var settur yfir sam­hæf­ing­ar­stöð­ina.“

Staða leghálsskimana eftir mitt ár 2021

Heil­brigð­is­ráðu­neytið hefur sagt upp samn­ingi við rann­sókna­stof­una á Hvidovre-spít­al­anum í Kaup­manna­höfn. Verið er að semja við Land­spít­al­ann um frumu­meina­fræði­rann­sóknir og HPV-grein­ingar. Nýr yfir­maður (yfir­læknir) Sam­hæf­ing­ar­stöðvar krabba­meins­skim­ana var ráð­inn í ágúst 2021 til hálfs árs og sam­hæf­ingar- og stjórn­stöðin flutt. Greiða þarf úr ýmsum þeim vanda sem skap­ast hefur.

Í for­grunni munu vera heil­brigð­is­tækni­leg upp­færsla og aðlögun gagna­banka leit­ar­stöðv­ar­innar að nýju skipu­lagi skimun­ar­innar og samn­ingar við Land­spít­al­ann um frumu­meina­fræði- og veiru­skimanir. Í skýrsl­unni er spurt hvort mann­afli við þau verk verði nægur eða réttur og hvert ráða verður leitað varð­andi svo mik­il­vægt verk?

Tekið er fram að tryggja þurfi tengsl við erlendu rann­sókn­ar­stof­una í þessu skyni um leið og inn­lendri þekk­ingu á frumu­meina­fræði­rann­sóknum og veiru­grein­ingum er við­haldið.
Það víð­tæka sam­ráð við fag­að­ila sem áður komu að leg­háls­skimun­inni, það gegn­sæi í
ákvarð­ana­töku og skil­grein­ing ábyrgð­ar­ferla sem skimun­ar­ráð kall­aði eftir, þarf að virkja á ný og verða hluti þess sem gert verður til að lag­færa­skimun fyrir leg­hálskrabba­meini á Íslandi. Þetta á ekki síst við um aðkomu Embætti Land­læknis, hlut­verk heilsu­gæsl­unnar og hlut­verk Krabba­meins­fé­lags Íslands.

Hvað fór úrskeiðis?

Í skýrsl­unni kemur fram að: „margt hafi farið úrskeiðis í und­ir­bún­ingi og við fram­kvæmd máls­ins. Ábyrgð á því að áfram var haldið inn í mjög stutt breyt­inga­ferli hlýtur að hafa verið hjá stjórn­endum heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins og ráð­herra. Tillögur komu fram um að breyta skimun­inni á árunum 2017-18, þ.m.t. hjá Embætti Land­læknis, þar sem lagt var til að færa skimun­ina í opin­bera þjón­ustu frá félaga­sam­tök­unum Krabba­meins­fé­lags Íslands sem höfðu séð um þetta í meira en hálfa öld. Rök­semdir fyrir breyt­ing­unni voru settar fram með óljósum hætti eða þær skorti.

Skimun­ar­ráð vann að mál­inu þó skýrsla frá því kæmi ekki fyrr en eftir að
ákvarð­ana­taka var afstaðin, breyt­ingar voru hafnar og ráðið sjálft ekki lengur við lýði.
Land­læknir skil­aði minn­is­blaði um málið. Fagráð var sett á fót sem ásamt verk­efna­stjórn
heil­brigð­is­ráðu­neytis skil­aði af sér í byrjun árs 2020. Fagráðið var ekki sam­stíga. Þessar til­lögur allar voru í raun aðeins stefnu­mark­andi álits­gjöf. Það skorti nán­ari útfærslu. Endanleg ákvörðun kom ekki frá ráð­herra fyrr en á sumri 2020.

Þá var heilsu­gæsl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu falið verk­efni sem hún hafði ekki beðið um að fá og und­ir­bún­ingur hvíldi einkum á einum starfs­manni hennar. Eftir það mið­að­ist und­ir­bún­ingur fyrst og fremst við til­tekna fram­kvæmda­þætti sem leysa þurfti úr. Verk­efn­is­stjórn, sem sett var á fót af heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu rétt fyrir gild­is­töku nýs skimun­ar­ferlis, var ekki mark­viss, þar vant­aði á í breyt­inga­stjórnun og ekki allir sem þar komu að málum höfðu djúpa þekk­ingu á því hvað þurfti vegna flók­ins verk­efnis sem þessa.

Samráð var lítið eða ekk­ert við þá sem áttu að hætta fyrri störfum sínum og höfðu reynslu úr því. Samvinna var einnig tak­mörkuð við aðra aðila; helst þá sem áttu að taka að sér til­tekna verk­þætti. Því voru veiga­miklir þættir ekki til­búnir þegar nýtt fyr­ir­komu­lag átti að taka gildi, breyt­inga­ferlið mis­fórst og óör­yggi skap­að­ist meðal heil­brigð­is­starfs­fólks og almenn­ings.

Fram­kvæmd­inni má líkja við að byggja hús á grunni ann­ars eldra húss, þar sem margt var gott og mátti nýta í nýbygg­ing­una, en þarfn­að­ist end­ur­nýj­unar. Það var samt illa kannað þegar nýir eig­endur tóku yfir. Ekki var metið hvað mátti nýta úr grunn­inum eða fyrri bygg­ingu eða hvernig það yrði gert.

Tillögur og teikn­ingar voru ekki til­búnar, eng­inn arki­tekt, bygg­inga­á­ætl­anir óljósar, bygg­inga­stjór­inn ráð­inn til þess að sjá um að sandur, sem­ent, skóflur og hjól­börur væru keyptar, og semja við verk­taka um hluta fram­kvæmd­anna. Fáir ráðnir til vinnu. Enginn bygg­inga­full­trúi til eft­ir­lits. Eftirlit á hendi aðila sem tengd­ist fram­kvæmd­inni. Einungis tekin ákvörðun með óljós mark­mið um nýja bygg­ingu og gefin fyr­ir­mæli um að byrja á verk­inu. Flest þar á milli vant­aði.“

Næstu skref

Ráð­gjafa­hópur skýrsl­unnar telur að það geti ekki talist ráð­legt að heilsu­gæslan ein stýri því sem ger­ist, jafn­vel þó aðkoma hennar verði mið­læg. For­gangs­at­riði er að skýra laga­legan grund­völl skimun­ar­innar. Þar við bæt­ist nauð­syn á að semja um hvar leg­háls­sýni sem nú eru komin til Dan­merkur verða vistuð með hlið­sjón af íslenskum lögum um líf­sýna­söfn og söfn heil­brigð­is­upp­lýs­inga (lögnr. 110/2000).

Í skýrsl­unni eru teknar fram nokkur atriði sem talið er að geti betrumbætt stöð­una til muna.

„Ef Heilsu­gæslan ætlar að reka líf­sýna­safn þurfa allar for­sendur og leyfi til slíks að vera fyrir hendi. Skimun­ar­ráð þarf að end­ur­skipa og gefa því sess innan heil­brigð­is­kerf­is­ins. Meginmál hlýtur að verða fyrir stjórn­endur Sam­hæf­ing­ar­stöðvar krabba­meins­skim­ana og fyrir for­svars­menn heilsu­gæsl­unnar að taka höndum saman við aðra fag­að­ila og full­trúa almenn­ings í því verk­efni að efla traust á leg­hálskrabba­meins­skimun­inni innan heilsu­gæsl­unnar og Land­spít­al­ans/Sjúkra­húss­ins á Akureyri og ná þannig upp ásætt­an­legri mæt­ingu kvenna og árangri sem jafn­ast eins og áður við það besta sem ger­ist.

Þá þarf góða sam­hæf­ingu við sýna­tökur og tengdar lækn­inga­rann­sóknir hjá sjálf­stætt starf­andi sér­fræði­læknum í kven­sjúk­dómum. Byggja þarf upp gæði, eft­ir­lit, þekk­ingu og rann­sóknir á ný á grund­velli upp­haf­legra til­lagna skimun­ar­ráðs og land­læknis og í sam­vinnu við starfs­fólk Rann­sókna- og skrán­ing­ar­setur Krabba­meins­fé­lags Íslands sem rekur krabba­meins­skrána. Loks skiptir til­trú og þekk­ing almenn­ings á nýju ferli megin máli.“

Heimild:

BREYTINGAR Á SKIPULAGI OG FRAMKVÆMD LEGHÁLSSKIMUNAR; Skýrsla og sér­á­lit frá starfs­hópi Lækna­fé­lags Íslands, haustið 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina