Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sigga Dögg um kyrkingarnar: „Það hljómaði eins og ég væri bara með þetta á glæru fjögur“

Sigga Dögg um kyrkingarnar: „Það hljómaði eins og ég væri bara með þetta á glæru fjögur“

Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir kyn­fræð­ingur, eða Sigga Dögg eins og hún er alltaf kölluð, hefur verið í þunga­miðj­unni á heitri og oft óvæg­inni sam­fé­lags­um­ræðu und­an­farið. Sú umræða fór af stað eftir að Sigga Dögg hafði sótt nám­skeið um fyr­ir­bæri sem kall­ast „bre­ath play“ og deilt upp­lýs­ingum af nám­skeið­inu sem henni þótti bæði áhuga­verðar og mik­il­vægar, á Instagram-síðu sinni. Hún sagði ung­linga oft spyrja um kyrk­ingar í kyn­fræðslu; eitt af fjöl­mörgum atriðum sem spurt er um á nám­skeiðum hennar og hún stígur inn í með krökk­unum á grund­velli sam­þykkis og fræðslu.

Sigga Dögg er í nýjasta helg­ar­við­tali Mannlífs.

Misskilningurinn um kyrkingarnar

Sigga Dögg kemur inn á hinar alræmdu kyrk­ingar og þá stað­reynd að ákveðnir ein­stak­lingar virð­ast hafa mis­skilið málið nokkuð dug­lega. Svo­kallað bre­ath play nám­skeið, sem Sigga Dögg hafði talað um á Instagram-reikn­ingi sínum, var nám­skeið fyrir full­orðna, sem hún sótti sjálf sem gestur. Það var erlendur sér­fræð­ingur sem hafði verið feng­inn til þess að halda nám­skeiðið. Sigga Dögg hélt það sem­sagt ekki sjálf.

„Ég vissi mjög lítið um bre­ath play. Maður hafði heyrt um kyrk­ingar og það var nú einmitt fyr­ir­sögn í DV, þar sem ég var gagn­rýnd fyrir að gagn­rýna kyrk­ingar. Það er vand­lifað í þessum heimi.

„Mér dytti aldrei í hug að segja við ung­linga: Ekki gera það“

En í mínum huga er þetta eitt­hvað sem er hættu­legt, það þarf að passa sig. Ef fólk fílar það, allt í lagi. Mér dytti aldrei í hug að segja við ung­linga: Ekki gera það. En þegar ég hef verið spurð út í það hef ég alltaf lagt gíf­ur­lega áherslu á að þetta sé rosa­lega vanda­samt. Ég var með hóp þar sem við vorum að tala um þetta, og ég sagði: „Ef kyn­líf byggir á sam­tali og sam­þykki, virku sam­þykki, þar sem þarf reglu­lega að fá sam­þykki fyrir öllu sem er verið að gera – ef mann­eskjan getur ekki tjáð sig, þá er sam­þykki ekki til staðar. Ef mann­eskjan er með­vit­und­ar­laus, þá er ekki sam­þykki til staðar. Hvað eruði að gera þegar þið eruð að þrengja að önd­un­ar­vegi?“ Þá fórum við í gegnum það ef þú vildir ekki gera þetta; hvað ef þú vildir ekki fá hönd á háls, hvað ef þú vildir ekki leggja hönd á háls. Fram og til baka í þá dýnamík. Og ég sagði: „Kannski er bara spenn­andi að prófa í smá stund að leggja hönd á háls og sjá hvernig það er. Hvernig líður þér með að vera höndin? Hvernig líður þér með að vera háls­inn? Þá þarf aftur að tékka inn; hvað finnst okkur um þetta? Hvernig líður þér og hvernig líður mér?“ Þannig að við höfum alltaf talað um þetta á svona ótrú­lega mildum og þægi­legum, mjúkum nótum. Aldrei þannig að þetta sé bara: „Heyrðu og svo, einn, tveir og let’s go!“ Þetta er aldrei þannig og hefur aldrei verið þannig. Mun aldrei verða. Ekki heldur fyrir full­orðna. Ég myndi aldrei mæla með því fyrir neinn að vera með neitt sur­prise elem­ent í kyn­lífi. Spurðu, áður en þú gerir.

Á þessu bre­ath play nám­skeiði var farið í alls­konar tækni, það var farið í örygg­is­at­riði, meðal ann­ars eitt sem ég deildi strax á Instagram, sem er upp­hafið að þessu öllu saman. Ég lærði sem­sagt á nám­skeið­inu að það eru tvær æðar á háls­inum og ef þú klemmir þær báðar þá stöðv­arðu blóð­fæði og þar með súr­efn­is­flæði upp til heil­ans. Þegar fólk er að leika sér með kyrk­ingar, þá meina ég til þess að láta líða yfir sig, þá er það að gera þetta. Þetta getur byrjað að valda skaða innan tíu sek­úndna, held ég. Mér fannst ég verða að segja frá þessu.

Ég man eftir þessu, að krakk­arnir voru að gera þetta þegar ég var í grunn­skóla. Ég reyndar gerði þetta ekki, af því að ég var hrædd. En vin­konur mínar gerðu þetta og það var sér­stakur staður á skóla­lóð­inni þar sem krakk­arnir voru að þessu.

Ég hefði nú bara viljað að ein­hverjir sjúkra­liðar eða læknar hefðu gripið inn í umræð­una hér. En mér skilst sem­sagt að ef mann­eskjan rankar ekki við sér innan þess­ara tíu sek­úndna, þá getur það farið að valda súr­efn­is­skorti í heila, sem er mjög hættu­legur. Þá getur verið erfitt að vinna aftur ein­hvern óaft­ur­kræfan skaða.

Ég hugs­aði bara: „Fólk er búið að vera að leika sér með þetta, er fólk að gera þetta þannig að það er kannski að líða yfir það? Kannski er það orðið kikkið.“

Svo ég fór strax um kvöldið, eftir nám­skeiðið, á Instagram og sagði: „Ég verð að segja ykkur! Hérna eru tvær æðar og þið verðið að passa, ef þið eruð að leika ykkur með þetta, að gera þetta ekki svona. Við lærðum þessa tækni; þá get­urðu farið, ef þú vilt, fastar og harðar. Ef ykkur finnst það æsandi. Bara ekki þessar æðar! Þetta er mál sem er búið að vera vin­sælt og í deigl­unni, ég tek þetta oft fyrir í skólum þegar það er spurt um þetta og ég hef útskýrt sam­þykki fyrir krökk­unum.“

Krakk­arnir hafa spurt til dæmis um rass­skell­ingu. Þá tek ég sam­þykk­isum­ræðu með þeim og útfærslan okkar er rass­skell­ing. Þá tökum við þetta alveg frá því að ég er með hugs­un­ina: „mig langar að rass­skella þig“ eða „mig langar að þú rass­skellir mig“ og þá tökum við sam­talið alveg frá A til Ö. Áður en rass­skell­ing á sér stað, í fyrsta sam­tali, þangað til hún er búin – ef það var sam­þykki fyrir rass­skell­ingu. Við tökum þetta alveg fyrir og kryfjum. Við höfum gert það líka með þetta háls­taks­mál. Þá hef ég alltaf verið að leggja gíf­ur­lega áherslu á hvað þetta er hættu­legt og vanda­samt og afhverju sumum þyki þetta æsandi og hvernig það lítur út.

BDSM sam­tökin eru yfir­leitt ekki með fræðslu fyrir ein­stak­linga undir 18 ára. Þannig að hvað áttu að gera við þennan hóp? Tíundi bekkur til fram­halds­skóla.

Svo á þessu bre­ath play nám­skeiði var margt sem ég hugs­aði að ég myndi ekki fræða um. Það var sum tækni þarna sem ég áleit svo hættu­lega að ég hugs­aði: „Ef ég verð ein­hvern tíma spurð út í þetta, þá mun ég bara segja nei. Mér finnst þetta of langt gengið. Ekki gera þetta, þetta er ógeðs­lega hættu­legt.“

„Það hljóm­aði eins og ég væri bara með þetta á glæru fjögur“

Krakkar hafa leikið sér með alls­konar. Það er ástæða fyrir því að það stendur á pokum: Ekki setja yfir haus á barni. Á ákveðnu ald­urs­bili máttu börnin mín ekki sjá poka, þá var hann far­inn á haus­inn á þeim. Hvað er það? Það er form af bre­ath play – og við fáum nátt­úru­lega tauga­á­fall. Ég set hnút á alla poka, af því að ég er svo para­noid yfir þessu. Það var farið fyrir það meðal ann­ars á þessu nám­skeiði og það var talað um alls­konar form af munn­mökum og ég var bara: „Munnmök? Munnmök sem bre­ath play? Vá, hvað það er áhuga­vert. Vá hvað ég hef aldrei hugsað það.“ Þar var til dæmis talað um kon­una sem stjórn­anda.

Ég fer inn á Instagram til þess að segja frá því sem ég hafði verið að læra. Þannig byrjar þetta. Ég sagði þarna: „Vá, hvað það er mikið sem ég vissi ekki, sem ég get miðlað til full­orð­inna.“ Svo sagði ég: „Og það er reyndar ógeðs­lega praktískt að vita þessa nákvæmu útfærslu, af því að það er oft spurt að þessu í kyn­fræðslu, ung­lingar spyrja oft að þessu og mér finnst mjög mik­il­vægt að vita nákvæm­lega þetta upp á skaða­minnkun.“ Ég sagði að við töl­uðum oft um þetta mál og ég kall­aði þetta kyrk­ingar, því þau kalla þetta kyrk­ingar. Þau tala yfir­leitt ekki um háls­tak, þau tala bara um kyrk­ingu. Ég sagði: „Þetta er búið að vera í deigl­unni, ég er búin að þurfa að tala um þetta oft og við höfum bara stigið inn í þetta.“ Eitthvað svona. En það hljóm­aði eins og ég væri bara með þetta sem glæru fjögur.“

Sigga Dögg segir að hún hefði skilið við­brögðin sem hún fékk, ef hún hefði sagt hlut­ina á þennan ýkta hátt sem fólk virt­ist halda að hún hafi gert.

„En þetta var bara: „Nýlega hefur verið meira um spurn­ingar um þetta. Það kemur eitt­hvað inn, eitt­hvað trendar á tiktok, og þá þarf ég að taka það fyrir, þegar þau spyrja.“ Nema það smurð­ist út í að þetta væri í glæru­pakk­anum mínum. Það er bara mjög stutt síðan ég var með kyn­fræðslu fyrir allan tíunda bekk, í nóv­em­ber, á Akureyri. Þar sátu kenn­arar inni í öllum tímum. Ég held að við höfum tekið þetta til­tekna umræðu­efni fyrir í einum fyr­ir­lestri af níu. Þá lékum við sam­þykki og mörk, til þess að sjá hvernig það virk­aði. Þá einmitt sagði ég: „Hvernig leikum við þetta sam­þykki? Við erum ekki að fara að leika sam­farir. Eigum við að leika rass­skell­ingu?“ Þá svar­aði ein­hver: „Já, leikum rass­skell­ingu.“ Þá útskýri ég að ef við ætlum að gera þetta erum við búin að taka rosa­lega langt sam­tal. Svo slæ ég laus­lega í borðið, tek þetta alltaf frá báðum hliðum og hef þetta kyn­laust. Ég segi við krakk­ana að hérna séu það ekki kyn­hlut­verkin sem móti þau.“

Lesið við­talið við Siggu Dögg í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina