Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Í fréttum var þetta helst: Hödd stígur fram, karlagrobb og Texashrottinn í Reykjavík

Í fréttum var þetta helst: Hödd stígur fram, karlagrobb og Texashrottinn í Reykjavík

Ekkert for­sjár­mál opið – „Takk elsku Hödd fyrir að stíga fram, fyrir mig, fyrir þig og allar hinar“

Hödd Vil­hjálms­dóttir og Ragnar Gunn­ars­son


„Hugrakka hug­rakka kona.

Takk elsku Hödd fyrir að stíga fram, fyrir mig, fyrir þig og allar hinar. Megi hug­rekki þitt veita öðrum í sömu sporum kjark til að gera slíkt hið sama.
Ég stend með þér og stað­festi jafn­framt frá­sögn þína,“ skrif­aði ein af fyrr­ver­andi kærustum Ragnars Gunn­ars­sonar á Facebook-vegg Haddar Vil­hjálms­dóttur á dög­unum.
Ragnar steig til hliðar sem fram­kvæmda­stjóri Brand­en­burg eftir að við­tal við Hödd birt­ist í Vikunni. Þar lýsir hún meintu and­legu og lík­am­legu ofbeldi sem hún sætti af hálfu fyrr­ver­andi maka síns, en er hann þó ekki nafn­greindur í við­tal­inu.

Í yfir­lýs­ing­unni sem Ragnar skrifar á Facebook síðu sína um dag­inn sagði hann: ,,Deilur okkar, sem varða for­ræði, eru í sínu rétta ferli.‘‘

Í við­tal­inu við Hödd er hvergi talað um for­ræð­is­deilu milli hennar og fyrr­ver­andi eig­in­manns hennar. Mannlíf hefur nú gögn undir höndum þar sem Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu stað­festir að ekk­ert for­sjár­mál sé opið þeirra á milli.

Rauði bar­ón­inn fór í tre­k­ant með knatt­spyrnu­konum: „Eftir fjöruga nótt lagð­ist ég til hvíldar“

Garðar Örn við Jök­ulsár­lón.

Garðar Örn Hin­riks­son, oft­ast kall­aður Rauði bar­ón­inn, er einn umdeild­asti knatt­spyrnu­dóm­ari Íslands­sög­unnar. Fyrir jól kom út sjálfsævi­saga hans þar sem hann fer yfir fer­il­inn og fleira áhuga­vert í lífi hans. Einn kafli í bók­inni vekur meiri athygli en aðrir en það er mont­saga af því þegar hann fór í tre­k­ant með tveimur konum úr efstu deild kvennaknatt­spyrn­unnar.

Hér fyrir neðan er brot úr frá­sögn­inni af tre­k­ant­inum:

„Ég slys­að­ist eina helg­ina árið 2004 inn á Hverf­is­bar­inn með félögum mínum, stuttu eftir að ég hafði verið val­inn dóm­ari árs­ins. Áður en ég yfir­gaf stað­inn rakst ég á félaga minn sem var með þremur stelpum úr bolt­anum sem ég kann­að­ist aðeins við en þekkti ekki per­sónu­lega,“ skrifar Garðar í bók­ina sína Rauði bar­ón­inn

„Ein af þeim var kærastan hans og ætl­uðu þau rétt að kíkja í einn bjór áður en þau færu heim. Til að gera langa stuttu þú hurfu kunn­ingi minn og kærastan fljót­lega en hinar tvær urðu eftir. Einnig lét félagi minn sig fljót­lega hverfa svo ég sat einn eftir með þeim“

Til að byrja með veittu þær Garðari litla athygli en um leið og þær vissu hver hann var, breytt­ist fas þeirra til muna.

„Þær virt­ust ekki þekkja mig í sjón og veittu mér litla athygli í fyrstu, en um leið og þær komust að því hver ég var breyt­ist allt. Andlitið greini­lega ekki jafn sterkt og nafnið, allt í einu var farið að koma fram við mig eins og ég væri hálf­gerður guð. Bjórnum var slátrað á 0,1 og næst var beðið um tequila á borðið og svo meira tequila. Allt í einu var kom­inn tölu­verður hiti í mann­skap­inn.“

Hægt er að lesa eld­heitar lýs­ingar á kvöld­inu góða á mann­lif.is

Texashrottinn handtekinn eftir að hafa ráðist á fjölskyldumeðlimi

Magnús Jónsson, gjarnan nefndur Texas­hrott­inn, var hand­tek­inn á dög­unum á heim­ili sínu í Reykja­vík fyrir árás á fjöl­skyldu­með­limi.
Hópur af lög­reglu­mönnum mætti á heim­ili Magnúsar til að hand­taka hann. Vitni sögðu atgang­inn hafa verið mik­inn.
„Málið er bara í rann­sókn, það er bara stutt komið. Það er búið að ræða við máls­að­ila og við gefum ekk­ert frekar upp um fram­vindu rann­sókn­ar­innar,“ sagði Guð­mundur Ásgeirs­son lög­reglu­full­trúi í við­tali við Mannlíf um dag­inn.

Stað­festi Guð­mundur að Magnús væri ekki lengur í haldi lög­reglu. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs mætti fjöldi lög­reglu­þjóna á vett­vang umrætt kvöld og sagði Guð­mundur enga áhættu hafa verið tekna.
„Ef að málið er þess eðlis það er bara metið sam­tímis, við tökum enga sénsa“.

Fjöl­skyldu­með­limir Magnúsar komu til hans síð­degis, sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs, Til stóð að þeir snæddu með honum í til­efni af afmæli eins fjöl­skyldu­með­lims. Skömmu síðar var hann orð­inn mjög ölv­aður og ljóst að ekk­ert yrði af afmæl­is­boð­inu. Magnús logn­að­ist svo út af en var þá ákveðið að fólkið færi út að borða. Þau komu aftur heim til hans seint um kvöldið. Þá var Magnús vakn­aður og tryllt­ist, sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs. Á hann að hafa ráð­ist á einn fjöl­skyldu­með­lim og dregið á hár­inu, þar á eftir réðst hann svo á annan fjöl­skyldu­með­lim og tók hann kverka­taki. Sá náði að teygja sig í flösku og barði Magnús í höf­uðið. Í milli­tíð­inni náð­ist að hringja á lög­regl­una sem birt­ist á met­tíma og var Magnús hand­tek­inn.

Hægt er að lesa alla frétt­ina á mann­lif.is

Fyr­ir­vari: Fréttin hefur verið upp­færð að beiðni þolenda Magnúsar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina