Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Venus í afturhvarfi: Sambönd í krísu og gamlir elskhugar skjóta upp kollinum

Venus í afturhvarfi: Sambönd í krísu og gamlir elskhugar skjóta upp kollinum

Í síð­asta blaði töl­uðum við um aft­ur­hvarf Merkúrs og hvernig það getur gert okkur lífið leitt í sam­skiptum, tækni og tján­ingu. Nú er aft­ur­hvarfi Merkúrs loks að ljúka og því fljót­lega, sam­kvæmt stjörnu­spek­inni að minnsta kosti, hægt að ganga áhyggju­minni til samn­inga, senda tölvu­póst án þess að allt mis­skilj­ist og eiga flókin sam­töl við sína nán­ustu.

Hins vegar vill svo til að önnur pláneta er í aft­ur­hvarfi um þessar mundir. Það er plánetan Venus. Eins og gefur að skilja hlýtur hún, ef Merkúr sem er sam­skipta­plánetan hefur áhrif á atriði tengd sam­skiptum, að hafa áhrif á þau svið sem hún stjórnar – nefni­lega ást­ina og mál­efni hjart­ans.

Í stjörnu­speki er talað um að pláneta sé í aft­ur­hvarfi þegar hún virð­ist hætta á sinni hefð­bundnu leið umhverfis sólu og fær­ast aft­urá­bak. Hún er ekki að fara aft­urá­bak í raun og veru; okkur virð­ist það bara frá jörð­inni séð. Plánetan breytir hins vegar örlítið um hraða í sam­an­burði við hreyf­ingu jarð­ar­innar og afstaða Venusar við jörð­ina breyt­ist því lít­il­lega þegar plánetan er í aft­ur­hvarfi. Í miðju aft­ur­hvarfi hverfur Venus sjónum okkar. Um það bil tveimur vikum síðar birt­ist plánetan aftur, gló­andi fögur í him­in­hvolf­inu í dögun.

Vegna þessa hélt sam­fé­lagið til forna að Venus væri í raun tvær plánetur. Hún átti sér því tvö grísk nöfn; Phosphorus, „ljós­beri“, og Hesperus, „kvöld­stjarnan“.

Venus fer í aft­ur­hvarf á um það bil 18 mán­aða fresti. Hún hefur nýlokið aft­ur­hvarfi, en það var frá 19. des­em­ber síð­ast­liðnum fram til 29. jan­úar. Aftur á móti er yfir­leitt talað um skugga­tíma­bil, bæði fyrir og eftir aft­ur­hvarfið, þar sem áhrif­anna gætir enn. Þau eru þó væg­ari á því tíma­bili en í miðju aft­ur­hvarf­inu.

En hvaða áhrif hefur afturhvarf Venusar á okkur?

Venus er pláneta ástar, feg­urðar og pen­inga. Það er því lík­legra en ekki að aft­ur­hvarf plánet­unnar hafi áhrif á alla þessa þætti. Fegurð er auð­vitað vítt hug­tak en getur átt við um umhverfi okkar, list­sköpun og mýkt­ina í heim­inum.

Áhrifa þessa tíma­bils gætir þó oft­ast mest í mál­efnum ást­ar­innar. Það er ekki óal­gengt að á þessum tímum minni gömul ást­ar­sam­bönd á sig og fólk fest­ist auð­veld­lega í for­tíð­ar­þrá. Sam­bandið sem end­aði er allt í einu sveipað ein­hvers konar dýrð­ar­ljóma. Var það virki­lega svo slæmt? Ég ætti kannski að hafa sam­band?

Sömu­leiðis virð­ast gömul deilu­mál eða sár­indi í núver­andi sam­böndum oft eiga greið­ari leið upp á yfir­borðið. Þannig geta gömul rifr­ildi tekið sig upp á ný og sár sem ekki var búið að búa nægi­lega vel um opn­ast.

Ef þú ert í sam­bandi finn­urðu ef til vill fyrir því í auknum mæli að þú veltir til­veru þess fyrir þér. Er þetta það sem þú vilt í raun og veru?

Gamlir elskhugar

Það er eig­in­lega alveg lygi­legt hversu oft það kemur fyrir að gamlir elsk­hugar skjóti upp koll­inum þegar Venus er í aft­ur­hvarfi. Óvænt skila­boð, þótt þið hafið ekki heyrst í háa herr­ans tíð. Hitt­ingur á förnum vegi. Málið er það, að þetta á það til að ger­ast í tengslum við sam­bönd sem hafa ekki fengið nægi­lega skýr enda­lok. Lokið hefur ef til vill ekki verið sett almenni­lega á pott­inn. Þarna kemur því oft tæki­færi til þess að velta því fyrir sér hvers vegna svo sé. Hugs­an­lega er þetta tæki­færi til þess að draga lín­una loks­ins í sand­inn og loka sam­band­inu í eitt skipti fyrir öll. Kannski þarf að gera ein­hver mál upp. Ef til vill eru sam­skiptin ekki full­kom­lega heil­brigð og þið eigið það til að fara í bakk­gír­inn við minnsta til­efni. Þá skiptir líka máli að setja skýr mörk.

Best að bíða með stórar ákvarðanir

Það sem er þó mik­il­vægt að hafa í huga er að það er ekki endi­lega góð hug­mynd að taka á mál­unum akkúrat á meðan Venus er í aft­ur­hvarfi. Þótt þessar hug­myndir og hugs­anir komi upp á því tíma­bili, þótt sam­skiptin standi til boða, er yfir­leitt langs­niðug­ast að bíða þar til eftir aft­ur­hvarfið með að taka ákvarð­anir og taka á mál­unum. Það vill þannig til að þær ákvarð­anir sem við tökum í ásta­málum á þessu tíma­bili eru ekki endi­lega þær bestu fyrir okkur, eða þær líf­væn­leg­ustu. Til dæmis er algengt að taka saman aftur við gamlan elsk­huga á meðan Venus er í aft­ur­hvarfi en slíta sam­band­inu svo jafn­harðan þegar tíma­bil­inu er að fullu lokið.

Í raun er þetta tíma­bil best til þess fallið að horfa inn á við og skoða ást­ina og sam­bönd gagn­rýnum augum. Koma auga á eigin mynstur og end­ur­skoða. Reyna að átta sig á því hvað væri best að kveðja, hvaða sam­bönd gefa manni eitt­hvað og hver taka of mikið frá manni.

Skuldbinding, öryggi og ábyrgð

Í því Venusaraft­ur­hvarfi sem nú er að líða undir lok, í skugga­fasa sínum, má finna nokkuð alvar­lega tóna. Venus hóf tíma­bilið í merki Stein­geit­ar­innar. Það merkir að fólk geti fundið fyrir því í rík­ari mæli að vilja skuld­binda sig, að það sé þreytt á að reka sig á sömu rifr­ildin aftur og aftur, eða að það leiti eftir ábyrgð­ar­fyllri maka. Þarna er mik­il­vægt að taka sér fyrst tíma í sjálfs­skoðun, enda hefj­ast flestar breyt­ingar innra með okkur sjálfum. Ef þú ert í sam­bandi skaltu velta sam­band­inu fyrir þér og finna hvað virkar og hvað ekki. Hvað ert þú að leggja inn í sam­bandið til þess að fá út úr því það sem þú þarft?

Ef þú ert ekki í sam­bandi er ágætt að skoða hverju þú leitar eftir og hvort þú ert að sækj­ast eftir því á réttum stöðum, svo ekki sé talað um hvort þú sæk­ist eftir sam­bandi í raun og veru og þá hvers vegna.

Fólk sem er ein­hleypt gæti fundið fyrir þörf til þess að víkka sjón­deild­ar­hring­inn. Þér finnst ef til vill eins og þú hafir leitað að ást­inni á röngum stöðum, eða að sam­bönd þín hafi alltaf skort ein­hvers konar festu og öryggi. Kannski þarftu á ein­hverjum að halda sem getur boðið upp á skuld­bind­ingu, traust og fjár­hags­legt öryggi. Allt eru þetta sterk ein­kenni Stein­geit­ar­innar og þeirrar orku sem hún færir inn í líf okkar. Í þessu til­felli gæti verið snið­ugt að breyta til og hefja nýtt og skap­andi verk­efni sem býður upp á nýja sýn á lífið og hugs­an­lega nýtt fólk í tengslum við hana. Það er algjört lyk­il­at­riði að nýta þessa orku með því að stinga sér á kaf í verk­efni. Það er lík­legt að það sé rök­réttasta leiðin að töfrum undir þess­ari Venus­ar­orku.

Flókinn tími fyrir pör – samskipti mikilvæg

Þar sem Stein­geitin er ein­stak­lega dug­legt merki er líka mik­il­vægt að bera kennsl á það hvort þú sért hugs­an­lega að „gefa“ of mikið í ást­ar­sam­böndum. Hvort þú takir á þig mestu ábyrgð­ina og finn­ist þú ef til vill leggja of mikið inn í sam­an­burði við hvað þú tekur út. Það er líka ágætt að velta fyrir sér hvaða pláss ást­ar­sam­bandið sjálft fær, í sam­an­burði við dag­legt amstur, skyldur og vinnu. Stein­geitin á það til að gera of mikið og taka of lítið fyrir sjálfa sig.

Stein­geitin elskar áskor­anir og því getur þessi tími að end­ingu orðið gjöf­ull fyrir pör þar sem báðir aðil­arnir eru til­búnir að leggja dálítið á sig til þess að láta sam­bandið ganga upp. Sú vinna sem lögð er inn mun borga sig marg­falt.

Þessi tími getur verið pörum þrauta­ganga – en séu báðir aðilar til­búnir að leggja svo­lítið á sig og eru skuld­bundnir hvor öðrum, getur teng­ingin orðið enn þá sterk­ari á hinum end­anum og sam­bandið orðið trygg­ara.

Þetta er góður tími til þess að athuga vel og vand­lega hversu sam­stíga þið eruð í sam­band­inu; hvort mark­mið ykkar og draumar falla vel saman og, ef svo er ekki, hvort þið getið stillt strengi ykkar betur til þess að styðja við mark­mið og hug­myndir hvort ann­ars. Ef til vill þurfið þið að skoða fjár­málin, spara fyrir fjár­fest­ingu eða fram­kvæmdum, gera áætl­anir. Annað ykkar þarf kannski að sjá meira um fram­færslu á meðan hitt sest á skóla­bekk. Ef til vill eru mál sem þarf að ræða, gera upp og fá aðstoð með, til dæmis hjá para­ráð­gjafa. Aðal­málið er að fólk tali saman og að báðir aðilar fari í dug­lega sjálfs­skoðun, áður en ákvarð­anir eru teknar fyrir sam­bandið.

Best er að allt kom­ist upp á borðið áður en aft­ur­hvarfi lýkur, en fólk hefur þó tíma til þess að átta sig á hlut­unum fram yfir skugga­tíma­bilið, sem lýkur í byrjun mars. Eftir það þarf að vinna úr upp­lýs­ing­unum og fram­kvæma.

Þetta tíma­bil getur haft áhrif á alla en áhrifin eru sterk­ust fyrir þá sem eru með Venus í merki Stein­geit­ar­innar eða hafa Venus í sterkri afstöðu við Stein­geit­ina, til að mynda í Krabb­anum (mót­staða við Stein­geit).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu