Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Hjálmdís hefur aðhyllst BDSM frá unglingsaldri: „Ábendingar um BDSM félagið hefðu bjargað mér“

Hjálmdís hefur aðhyllst BDSM frá unglingsaldri: „Ábendingar um BDSM félagið hefðu bjargað mér“

Blaða­maður Mannlífs sett­ist niður með 33 ára gam­alli konu, til þess að ræða reynslu hennar af BDSM og sam­fé­lag­inu því tengdu. Konan, sem kýs að koma fram undir nafn­leynd að sinni, segir að sér hafi blöskrað umræðan und­an­farið og þær skot­grafir sem fólk hafi farið í í tengslum við BDSM og kyn­hegðun fólks. Henni hugn­ast ekki þegar fólk leggur dóm á kyn­hegðun ann­arra, svo lengi sem hún skaði engan. Að hennar mati gerir BDSM það ekki, þegar það er stundað á réttan hátt á grund­velli virð­ingar, ábyrgðar og sam­þykkis. Enda séu þeir grunn­þættir lyk­il­at­riði í BDSM heim­inum.

„Eftir að hafa horft á Kast­ljós­þátt­inn og lesið ýmsar greinar honum tengdar þá bara varð ég að fá aðeins að tjá mig,“ segir konan, sem verður hér eftir kölluð Hjálmdís.

Hún vísar þar til þess þegar þær Sigga Dögg og Hanna Björg Vil­hjáms­dóttir voru gestir í Kast­ljósi nýverið og ræddu þar kyn­fræðslu. Hanna Björg sak­aði Siggu Dögg um að normalísera ofbeld­is­hegðun, vegna þess að Sigga Dögg tæki umræðu um flest sem ung­lingar spyrðu hana um í kyn­fræðslu, til að mynda kyrk­ingar. Sigga Dögg hefur lýst því að sér þyki ávallt betra að fræða en hræða og að hún stígi inn í öll mál­efni með krökk­unum á grund­velli sam­þykkis, sam­skipta og virð­ingar.

Kennarinn skautaði yfir kynlífskaflann

„Ég er rúm­lega þrí­tug og kyn­fræðslan í grunn­skóla var væg­ast sagt slök. Við getum orðað það þannig að þegar kom að kyn­lífskafl­anum í líf­fræði­bók­inni þá skaut­aði kenn­ar­inn yfir þær blað­síður, sem voru þó ekki nema tvær.

Krakkar eru og hafa alltaf verið for­vitnir um kyn­líf, það er stað­reynd. Það hefur sýnt sig í gegnum árin og flest allir sem komnir eru á full­orð­ins­aldur eiga að vita það líka að þau létu lélega kennslu í þessum efnum ekki stoppa sig. Þau leit­uðu svara; svara hjá sér eldri systk­inum, eldri krökkum, nú eða bara beint úr bókum og tíma­ritum en lík­leg­ast sjaldn­ast frá full­orðnu fólki. Enda hefur van­inn verið að tala sem minnst um kyn­líf, nú eða þá að stunda hræðslu­á­róður í von um að krakkar haldi sig frá því sem lengst. En svo­leiðis virkar þetta ein­fald­lega ekki.

Ef upp­lýs­ingar koma ekki frá fyr­ir­myndum, þá er leitað annað. Í dag er upp­lýs­inga­flæðið enda­laust á net­inu og alltof mikið af því er ein­fald­lega heimsku­legt – að ég tali nú ekki um hættu­legt. Það að stinga höfð­inu í sand­inn og von­ast til þess að krakkar velti ekki fyrir sér kyrk­ingum og öðru kinki er gam­al­dags hugs­un­ar­háttur og ég gleðst heils­hugar yfir því að Sigga Dögg leyfi krökk­unum ekki að stinga upp í sig.“

Hefði gefið mikið fyrir almennilega umræðu um kenndir og óra

Aðspurð hvernig sú litla kyn­fræðsla sem hún fékk í grunn­skóla hafi verið, hugsar hún sig um og er aug­ljós­lega ekki hrifin.

„Kyn­fræðsla skóla­göngu minnar virk­aði ein­hvern veg­inn þannig að það var rætt um þetta helsta; hvernig typpi virkar, hvert það fer og búið. Engin almenni­leg útskýr­ing á öllu því sem ger­ist í kven­manns­lík­am­anum.“

Hún segir að krakk­arnir hafi ekki gert þeim sem tók að sér kyn­fræðsl­una auð­velt fyrir, eins og algengt er. Í því sam­hengi bendir hún á mik­il­vægi góðra og reyndra fyr­ir­les­ara.

„Það að koma með grodda­legar athuga­semdir til að stinga upp í fyr­ir­les­ara er krökkum eðl­is­lægt, en um leið og fyr­ir­les­ar­inn fer undan í flæm­ingi og segir að slíkir hlutir séu seinni tíma vanda­mál þá eru allir að tapa; fyr­ir­les­ar­inn tapar virð­ingu og þeir krakkar sem þurfa í alvöru á því að halda að heyra um blæti missa af mik­il­vægri lexíu og við­ur­kenn­ingu.

BDSM kenndir eru við­kvæmt mál­efni og engin furða; þar er verið að ræða um mjög per­sónu­lega hluti og jafn­vel hluti sem hinum almenna borg­ara dettur ekki í hug. Oft á tíðum eru þetta mál­efni sem krakkar grín­ast með sín á milli.“

Hjálmdís segir að sem mann­eskja sem hafi alist upp með nokkuð sterkar blæt­is­kenndir snemma á ævinni, hefði hún gefið ansi mikið fyrir að fá almenni­lega umræðu um þessa hluti í kyn­fræðslu.

„Ábend­ingar um að hægt væri að ræða við BDSM félagið hefðu alger­lega getað bjargað mér frá mörgum árum af skömm og sjálfs­á­sök­unum fyrir að vera masókisti.“

„Ef krakkar kom­ast ekki í kynni við ábyrgt fólk í BDSM efnum þá getur auð­veld­lega farið illa fyrir þeim, þar sem þau munu leita svara.

Þrátt fyrir að heyra aðeins talað um BDSM í hálf­kær­ingi í skól­anum þá vissi ég nokkuð vel hvað ég vildi og hóf þar af leið­andi leit mína á net­inu til að finna svör við mínum kenndum. Það hefði verið tölu­vert gáfu­legra að vita af BDSM félag­inu og geta leitað svara þar.“

Eignaðist bólfélaga sem hún treysti

Þegar Hjálmdís hafði böggl­ast ein með kenndir sínar bróð­ur­part ung­lings­ár­anna og var komin lang­leið­ina að tví­tugu kynnt­ist hún ein­stak­lingi sem hún treysti nægi­lega vel til þess að upp­götva kyn­líf með og gera til­raunir með þrár sínar, blæti og svo BDSM.

„Ég sé í dag hversu heppin ég var að finna frá­bæran mann sem aðstoð­aði mig við að veita órum mínum útrás. Hann ræddi við mig sem jafn­ingja þrátt fyrir stór­kost­legan mun á reynslu, hann sýndi mér og mínum kenndum virð­ingu og ég fann aldrei fyrir skömm af hans hendi þrátt fyrir að mér sjálfri finnd­ist sumir af órum mínum ansi und­ar­legir.

Sem ung­ling dreymdi mig ekki um kærasta og ást­ar­sam­band. Mig dreymdi um að kanna kyn­ferð­is­legar lang­anir mínar og líkt og flestir krakkar á þeim aldri hefði ég verið til í að gera ýmis­legt til að heilla læri­meist­ara minn. Þarna hefði ég svo auð­veld­lega getað rek­ist á skít­hæl sem hefði mis­notað sér aðstöðu sína þar sem ég var ung, óreynd en virki­lega áhuga­söm. Heppni mín fólst í því að rekast á ein­stak­ling sem vissi fyrir hvað BDSM stendur og leyfði mér alger­lega að kanna kenndir mínar á mínum eigin for­sendum. Hann ýtti aldrei á mig að gera hitt eða þetta, hann latti mig frekar til þess að sofa hjá heldur en að hvetja mig. Ég verð honum ævin­lega þakk­lát fyrir þol­in­mæð­ina og kennsl­una.“

Hún segir þau tvö deila dýr­mætri vin­áttu enn þann dag í dag.

Að þekkja eigin mörk eykur sjálfsöryggi

Hjálmdís segir að henni þyki öll fræðsla vera af hinu góða. Það að svara spurn­ingum krakka og ung­linga og stíga inn í mál­efnin með þeim geti ekki verið verra en sá skortur á fræðslu sem hún og jafn­aldrar hennar bjuggu við.

„Það að kenna krökkum að kanna lík­ama sinn getur ekki verið annað en jákvætt, sama hvort það snýst um snert­ingu á sníp eða typpi, kyrk­ingar eða áslátt­ar­blæti (e. impact play); þeim mun betur sem þú hefur kannað eigin lík­ama, þeim mun lík­legri ertu til að geta kraf­ist virð­ingar í kyn­lífi.

Það að þekkja eigin mörk eykur sjálfs­ör­yggi og ánægju í kyn­lífi.

Það að geta sagt til um hvað manni finnst gott og hvað maður kann illa við ætti að vera fyrst og fremst það sem kyn­fræðsla gengur út á.“

Hún áréttar að grund­völlur BDSM sé alltaf sam­þykki og sam­skipti.

„Það vill svo skemmti­lega til að nokkur aðal­boð­orð BDSM eru traust, heið­ar­leiki og sam­skipti. Gott BDSM sam­band, hvernig svo sem það er upp­sett, gengur út á það að báðir aðilar njóti sín, að sam­skipti séu opin og örygg­is­orðið sé heil­agt og virt 100 pró­sent. Við megum ekki á öld upp­lýs­inga stinga höfð­inu í sand­inn og ætl­ast til þess að krakkar sleppi því að gera hlut­ina ef við ræðum þá ekki. Upp­fræðsla og opin sam­skipti skapa traust. Það að ræða ekki hugð­ar­efni krakka í kyn­lífi sýnir ekk­ert annað en van­virð­ingu við þau og þeirra pæl­ingar. Fyr­ir­myndir okkar mega alls ekki verða til þess að krakkar skammist sín fyrir kyn­ferð­is­legar lang­anir sínar og það að ræða ekki hlut­ina kemur ósjálfrátt inn skömm hjá krökkum.“

BDSM byggt á ofbeldis- og nauðgunarmenningu?

Und­an­farið hefur verið nokkuð um raddir í sam­fé­lag­inu sem vilja meina að BDSM sé í grunn­inn byggt á ofbeldis- og nauðg­un­ar­menn­ingu, sem og rót­grónu kynja­mis­rétti. Það er skoðun sumra að í BDSM sé verið að klæða ofbeldi í „huggu­legan“ bún­ing og leyfa því þannig að grass­era óáreitt.

Hjálmdís er ekki lengi að svara því og segir að sér finn­ist það lýsa for­dómum og fáfræði.

„Fáfræði sem stafar meðal ann­ars af því að það má ekki ræða BDSM mál­efni. Fólk sem aðhyllist BDSM án þess að vita nákvæm­lega út á hvað það gengur þarf að hafa öll bestu spilin á hendi til að kynna sér nákvæm­lega og í öruggu umhverfi hvað það er. Það hversu auð­veld­lega vont fólk getur nýtt sér sak­leysi ungs fólks í kyn­ferð­is­legum mál­efnum og talið því trú um að svona eigi BDSM og kyn­líf að vera versnar ein­göngu við það að mega ekki kenna grunn­hug­myndir þess.

Ég er ekki endi­lega að tala um að nákvæm fræðsla þurfi að fara fram innan skól­ans heldur vil ég að komið sé inn á grunn­gildi BDSM og það hvar best sé að kynna sér málið betur. Ungt fólk mun alltaf hafa hug­myndir um hvernig kyn­líf það vill stunda; það er okkar full­orðna fólks­ins að gefa þeim bestu spilin til að geta kynnt sér það á öruggan hátt.

Mín reynsla er sú að þeir menn sem bera hvað mesta virð­ingu fyrir konum finn­ist innan BDSM sam­fé­lags­ins. Það að hug­mynda­fræðin byggi á kynja­mis­rétti finnst mér alger­lega galin og til marks um það hversu lítið fólk veit um mál­efnið. Ofbeldi og nauðg­un­ar­menn­ing eru harð­lega gagn­rýnd innan sam­fé­lags­ins og grunn­gildi þess eru virð­ing og sam­þykki. Mikil áhersla er lögð á að virð­ing sé borin fyrir öllum þeim sem taka þátt í athöfnum og mikil virð­ing er líka borin fyrir löng­unum og mörkum þeirra sem að mál­inu koma. Samþykki þarf alltaf að vera skýrt sem og hvaða örygg­is­orð eða merki eru notuð til að hægt sé að hætta um leið og ein­hverjum fer að líða hið minnsta óþægi­lega.“

50 gráir skuggar afar skökk mynd af BDSM

Út frá þessu berst sam­talið að afþr­ey­ingu og birt­ing­ar­myndum BDSM innan dæg­ur­menn­ingar. Þar er Hjálmdís ómyrk í máli.

„Afþrey­ing líkt og 50 Gráir skuggar er stór­hættu­leg og full­komin leið til þess að gera fólk enn hrædd­ara við BDSM, það er að segja hafi fólk lesið eða horft á hana með gagn­rýnum augum. Þar er miklu valda­ó­jafn­vægi og ofbeldi lýst; strax í byrjun skilst mér til dæmis að konan sé neydd til að skrifa undir og sam­þykkja ýmis­legt sem hún hefur enga löngun til. BDSM snýst ekki um að gera hluti án sam­þykkis, þótt að oft sé hægt að leika sér með svo­kallað „sam­þykkt ósam­þykki“, þar sem hinn und­ir­gefni hefur fulla stjórn á aðstæðum og veit það að aldrei verði gengið yfir mörk hans.

Ég hef per­sónu­lega hvorki lesið bæk­urnar né horft á mynd­irnar, þar sem ég neita að taka þátt í þeim skrípa­leik. En ég hef lesið ansi margar greinar og umræður þar sem BDSM fólk er sárt og reitt yfir því hvernig bæk­urnar lýsa heimi BDSM, gefa kol­ranga mynd af því sem þar fer fram og gera jafn­vel heil­mik­inn skaða bæði fyrir þá sem alfarið neita þá að kynna sér heim­inn af opnum hug sem og þá sem vilja kynna sér heim­inn en halda eftir lest­ur­inn eða áhorfið að BDSM snú­ist um sam­skipta­leysi, yfir­gang og ofbeldi.

Ég verð í raun­inni döpur þegar ég hugsa til þess hversu illa hefði farið hefði ég til dæmis rek­ist á þessar bækur sem ung stelpa.

Ég var komin í ung­linga­deild bóka­safns­ins 12 ára, svo ég hefði verið búin að lesa hana um svona 15 ára. Slíkar bók­menntir hefðu gefið mér svo kol­brenglaða sýn á sam­þykki og virð­ingu að ég hefði vel getað týnt mínum mörkum og gefið færi á því að mér yrði mis­boðið hrapal­lega.“

Ekki leyfa nokkrum rotnum eplum að skemma fyrir

Annað sem hefur verið varpað fram í umræð­unni und­an­farið er að BDSM skapi kjörað­stæður fyrir ofbeld­is­menn til þess að níð­ast á brotnum eða ómót­uðum ein­stak­lingum. Hvernig skyldi það horfa við Hjálm­dísi?

„Virðing og sam­þykki! Enn og aftur klifa ég á þessum orðum, þar sem það virð­ist enda­laust erfitt fyrir fólk að skilja að fólk sem felur sig á bak við BDSM og notar það sem afsökun fyrir ofbeldi er hvort eð er skít­hælar, það er að segja fólk sem væri hvort eð er að gera ógeðs­lega hluti, hvort sem það feldi sig bak við BDSM eða trú­ar­brögð og annað vald.

Ég hef alveg fengið að heyra setn­ingar á borð við: „Ég veit að þú hafðir bara gaman að þessu, þú þyk­ist alla­vega vera svona kinky BDSM týpa,“ þegar ég reyni eftir kyn­líf að ræða við ból­fé­lag­ann um hluti sem fóru yfir mín mörk. Það sýnir bara hversu nauð­syn­legt er að tala um sam­þykki og virð­ingu við krakka og það sem fyrst.

Ég er til dæmis mjög ánægð með það hversu útbreitt það er orðið að spyrja börn hvort þau vilji kyssa ætt­ingja bless og hvort þau vilji faðma þennan eða hinn. Ef þau læra ekki ung að setja mörk þá vita þau ekki hvar mörkin liggja – svo ég tali nú ekki um það að vilji börn ekki láta kitla sig þá á að virða það. Ég er sjálf með ofnæmi fyrir kitli og veit engar pynt­ingar verri en kitl. Ég veit full­vel að innan BDSM sen­unnar er fólk sem níð­ist á öðrum, er ofbeld­is­fullt og skýlir sér á bak við það að þetta sé bara partur af sen­unni – en er ekki svo­leiðis fólk að finna alls­staðar, í öllum stéttum og stöðum?

Ég sé ekki betur, miðað við fréttir síð­ustu mán­aða, en að alls­staðar sé að finna skít­hæla sem mis­noti sér aðstöðu sína.

Það að til séu menn sem mis­nota fólk í BDSM sen­unni er álíka flippuð ástæða til for­dóma fyrir BDSM eins og það að vera með for­dóma fyrir öllum for­stjórum, þjálf­urum eða skemmti­kröftum, því ein­hverjir nokkrir þeirra hafa orðið upp­vísir að ósæmi­legri hegðun. Ekki leyfa nokkrum rotnum eplum að skemma fyrir öllum hinum, mætum fólki með virð­ingu og vænt­um­þykju – þá gengur lífið svo miklu betur. Mörk í kyn­lífi eru lífs­nauð­syn­leg; leyfið krökk­unum að leita sér öruggra upp­lýs­inga svo þau geti tekið upp­lýsta ákvörðun sjálf, um hvort þau kæri sig um munn­mök, bind­ingar eða eitt­hvað sára­sak­laust eins og kossa.“

Fann líkamsvirðingu í gegnum BDSM senuna

Hjálmdís hefur sjálf ekki gerst með­limur í BDSM félag­inu og ekki kynnst sínum ból­fé­lögum í gegnum það.

„Ég hef aldrei fundið þörf hjá mér til að ganga í BDSM félagið, ég get svosem ekki gefið neinar nákvæmar útskýr­ingar á því hvers vegna ég gekk aldrei í það en flest öllum mínum betri ból­fé­lögum kynnt­ist ég á Einkamál og þar er stór­kost­lega áhuga­verður hópur af fólki. Ég hef alltaf haft gaman af kyn­legum kvistum og oft á tíðum eytt miklum tíma í að ræða við fólk um hin ýmsu blæti bara til að geta betur glöggvað mig á því hversu fjöl­breytt súpa mann­fé­lagið er.

Lík­leg­ast er ég of mik­ill grúsk­ari til að nenna að mæta á fundi og hitt­inga hjá félagi, mér finnst miklu áhuga­verð­ara að kynn­ast fólki „one on one“. Það að kynn­ast fólki gegnum tölvu­skjá gefur líka merki­lega sýn á innri mann þess, þú lætur ýmis­legt flakka gegnum skjá sem þú ert feim­inn við að gera augliti til auglitis. Maður sem ég er nýlega búin að kynn­ast orð­aði þetta svo frá­bær­lega um dag­inn þegar hann sagði að maður kynn­ist fólki miklu fyrr gegnum skjá­inn þar sem fólk er afslapp­aðra og innri mað­ur­inn á þannig auð­veld­ara með að koma í ljós, þar sem ekki þarf að fela sig bak við töffara­stæla og inn­sognar bumbur.

Fólk í BDSM sen­unni kenndi mér lík­ams­virð­ingu löngu áður en það orð komst í tísku.

Stærð, lögun og hár­litur skiptir oft­ast ekki öllu máli, heldur miklu frekar and­lega teng­ingin, blætin og lang­an­irnar. Verandi stór stelpa þá voru þetta dásam­legar fréttir, þar sem oft­ast voru helstu kröf­urnar þær að maður væri snyrti­legur og reyk­laus. Það er þessi and­lega teng­ing sem hefur alltaf heillað mig við BDSM, það að geta rætt lang­anir sínar og fengið þeim full­nægt með annarri mann­eskju sem fær alveg jafn mikið út úr því að þjóna, stjórna eða pína þig eins og þú færð út úr því að stjórna, þjóna eða láta pína þig.“

Nýtur þess bæði að stjórna og láta að stjórn

Hjálmdís seg­ist vera svo­kallað switch í BDSM; það er að hún finnur sig hvort sem er í því að stjórna og láta að stjórn.

„Það fer alger­lega eftir mann­eskj­unni sem ég er að tala við hvorum megin mér finnst ég eiga betur heima. Með einum langar mig bara til að stjórna öllu og láta hann þjóna mér, nudda mig og dekra mig. Svo tala ég við annan, þar sem mig langar mest til að hann þrýsti mér ofan í dýn­una, bindi mig og geri „allt það sem hugur hans girn­ist“ – auð­vitað innan þess ramma sem ákveð­inn hefur verið.

Í grunn­inn sé ég drottnun, sem er reyndar orð sem ég þoli ekki, sem vernd­un­ar­hlut­verk; sá sem drottnar ber ábyrgð á því sem fram fer og ber ábyrgð á því að fara ekki yfir mörk þess sem stjórnað er. Þess vegna þarf góð og upp­byggi­leg umræða að hafa farið fram áður, en það sem mörgum yfir­sést er það að drottn­ar­inn þarf líka að hafa sín mörk á hreinu og passa að láta ekki undan þeim þrýst­ingi að gera hluti sem hann er ósáttur við. Sá und­ir­gefni ber líka mikla ábyrgð þar sem hann þarf að vera viss um hverju hann er til­bú­inn til að taka þátt í.

Einn skær­asti rauð­fán­inn sem hægt er að rekast á er und­ir­gef­inn ein­stak­lingur sem seg­ist til í „allt“, vill gera hvað sem er og seg­ist ekki hafa nein mörk. Það er mann­eskja sem er ekki til­búin til að stunda BDSM, þar sem skýr mörk eru bráð­nauð­syn­leg.

Ég er líka bæði sad­isti og masókisti, hef álíka gaman af því að láta pína mig eins og ég hef af því að pína og valda öðrum sárs­auka. Sársauki er nefni­lega svo merki­legt fyr­ir­bæri; svo fram­ar­lega sem þú hefur stjórn á því hvar og hvernig hann fer fram þá getur hann verið vald­efl­andi fyrir þann sem er pynt­aður. Ég veit um marga sem hafa gengið í gegnum ofbeld­is­sam­bönd, bæði róm­an­tísk og svo heim­il­is­of­beldi sem börn, sem nýta sér BDSM til vald­efl­ingar þar sem þú getur þar haft stjórn á öllu því sem fram fer.“

Þegar foreldrarnir fundu klámið

Hjálmdís rifjar upp mik­il­vægt augna­blik frá ung­lings­árum sínum, sem hafði mikið að gera með sam­skipti og við­brögð hinna full­orðnu.

„Ég hafði orðið mér úti um tals­vert safn af klám­efni vissrar teg­undar, sem telst ekki alveg beint venju­legt áhuga­efni hjá ung­lings­stelpu. Þegar safnið fannst við vortil­tekt á heim­il­inu var tekið merki­lega vel á mál­inu og þetta bara rætt á þann hátt að vissar kenndir væru eðli­legar og að ef ég hefði ein­hverjar spurn­ingar þá væri minnsta málið að ræða þær í ró og næði. Þarna hefði verið svo auð­velt að hleypa út skömminni og sann­færa mig um að það væri eitt­hvað mikið að því að hafa áhuga á svona kinki.

En sem betur fer, með aðstoð opin­skárra for­eldra og seinna ból­fé­lag­ans góða, þá tókst mér að búa til ansi sterka kyn­ferð­is­lega sjálfs­mynd þar sem ég skamm­ast mín ekk­ert fyrir mínar kenndir.

Ég hefði gefið svo mikið fyrir að vita strax við kyn­þroska að það væru fleiri þarna úti með sömu kenndir og að geta leitað mér upp­lýs­inga hjá þeim í stað þess að leita þeirra á net­inu. Krakkar finna sér alltaf leið til upp­lýs­inga­öfl­unar. Það er for­eldr­anna og fyr­ir­les­ara að passa að þeir fái upp­lýs­ingar á öruggum stöðum.“

„Fariði var­lega þarna úti krakkar, kyn­líf getur verið dásam­legt en til að svo sé þá þurfa sam­skipti, traust og heið­ar­leiki að vera til staðar,“ segir Hjálmdís að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina