Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Gunnar fékk 16 ára fangelsisdóm „Ég hef víst myrt mann í nótt“

Gunnar fékk 16 ára fangelsisdóm „Ég hef víst myrt mann í nótt“

Jóhann Gíslason, flug­rekstr­ar­stjóri Flug­fé­lags Íslands fannst lát­inn á heim­ili sínu þann 9. maí 1968. Jóhann var 43 ára, kvæntur og fjög­urra barna faðir en hann var skot­inn fjórum sinnum. Kona hans og þrjú börn þeirra urðu vitni að árásinni og gátu gefið lög­reglu upp­lýs­ingar um árás­armann­inn, reynd­ist það vera Gunnar Viggó Frederik­sen, fyrrum starfs­maður Jóhanns.

„Málsat­vik eru þau, að klukkan 04:35 í fyrr­inótt var hringt til lög­regl­unnar og sagt, að vopn­aður maður væri að brjótast inn í hús númer 25 við Tómasar­haga. Lög­reglu­menn fóru þegar á stað­inn, en er þeir komu þangað, lá Jóhann Gísla­son í blóði sínu í íbúð sinni á efri hæð hússins. Hafði hann hlotið fjögur skotsár, tvö í and­lit, eitt fram­an­vert á hægri öxl og eitt við vinstra. herða­blað. Var Jóhann með lifs­marki og var hann strax fluttur í Slysa­varð­stof­una, en lézt í sömu svifum og þangað var komið.“ Sagði í Morg­un­blað­inu eftir morðið.

Gunnar braut inn á heim­ili fjöskyld­unnar vopn­aður skamm­byssu en þá brut­ust út mikil átök á milli þeirra Jóhanns. Gunnar skaut þá Jóhann fjórum sinnum, flúði af vett­vangi og kastaði byss­unni frá sér fyrir utan heim­ili fórna­lambs­ins.

Aldrei lék neinn vafi um hver árás­armað­ur­inn var en ásamt vitnum fannst hattur merktur Gunnari á vett­vangi. Leit af honum hafð­ist sam­stundis en stuttu seinna hafði næt­ur­vörður á flug­stöð­inni sam­band við lög­reglu og til­kynnti þeim að Gunnar væri þar og  hafi tjáð verð­inum að hann hafi orðið manni að bana. Þegar lög­regla kom á stað­inn reyndi Gunnar að flýja en þegar honum var ljóst að það tæk­ist ekki þá stakk hann sig í brjóstið með litlum vasa­hníf en hlaut ein­ungis minni­háttar áverka við það.

Gunnar sagði lög­reglu að hann hafi hatað Jóhann vegna þess að hann kom honum úr flug­stjóra­stöðu hjá Flug­fé­lagi Íslands.

„Kvaðst Gunnar hafa setið að drykkju með kunn­ingjum sínum fyrr um nóttina og þeir ekið sér heim. Þar kvaðst hann hafa tekið fram skamm­byss­una og síðan ekið í eigin bíl til heim­ilis Jóhanns, brotið rúðuna í hurð­inni með skamm­byssu­skeft­inu og kom­ist þannig inn í íbúðina. Skamm­byss­una kvaðst Gunnar hafa fengið hjá manni í Reykjavík fyrir réttu ári. Var Gunnar fluttur í Hegn­ing­arhúsið við Skólavörðustíg.“

Jóhann var virtur og vin­sæll í starfi, miss­ir­inn var mik­ill fyrir vini hans, sam­starfs­fé­laga og fjöl­skyldu. Gunnari var sagt upp hjá Flug­fé­lagi Íslands fyrir að mæta drukk­inn í flug og neitað að yfir­gefa vél­ina. Hann fékk 16 ára dóm fyrir morðið á Jóhanni, hann lét lífið árið 2013, þá 91 árs að aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina