Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kristinn Rúnar Kristinsson er með geðhvörf: Er ekki að taka strípalinginn aftur niðri á Austurvelli

Kristinn Rúnar Kristinsson er með geðhvörf: Er ekki að taka strípalinginn aftur niðri á Austurvelli

„Ég var 13 ára þegar ég íhug­aði alvar­lega að fremja sjálfs­víg. Þá var ég í mínu fyrsta þung­lyndi. Ég hélt að mér myndi aldrei líða betur en ég gat ekki gert fjöl­skyld­unni þetta. Ég sá bara svart­nætti,“ segir Kristinn Rúnar Krist­ins­son sem er með geð­hvörf og hefur skrifað bók um reynslu sína því tengdu og heldur auk þess fyr­ir­lestra í skólum og fyr­ir­tækjum til að fræða fólk. Hann opn­aði sig um veik­indi sín árið 2014 og hefur síðan verið ötull bar­áttu­maður um vit­und­ar­vakn­ingu í land­inu um geð­sjúk­dóma.

Fyrstu ein­kenni geð­hvarf­anna fóru að láta á sér bera einmitt þegar Kristinn var 13 ára. „Það er talað um 50% geð­hvarfa teng­ist umhverf­inu og 50% erfðum. Í mínu til­felli eru þetta örugg­lega 90% umhverfi af því að það er eng­inn annar í ætt­inni með geð­hvörf. Ég hef lent í tveimur áföllum sem ég held að hafi „trig­gerað“ þetta. Hið fyrra teng­ist því að atvinnu­manna­draum­arnir í fót­bolta gengu ekki eftir, en ég var í lands­lið­inu á Shell­mót­inu 1999, var marka­kóngur árið áður, og einn sá besti í körf­unni, og svo lést Guðni, bróðir minn, í flug­slysi þegar ég var 18 ára.“

Ég datt svona 20 sinnum í ung­linga­deild­inni í þung­lynd­is­sveiflur eða -lotur sem vörðu í tvær vikur í senn.

Kristinn seg­ist vera öfga­kenndur maður almennt. Ýktur. „Ég þyngd­ist til dæmis hratt en sum­arið 2001 fór ég úr 50 kílóum í 62 kíló; ég náði mér ekk­ert aftur á strik í bolt­anum og þetta var bara gígantískt áfall. Ég og fleiri voru búnir að sjá mig í atvinnu­mennsku í fram­tíð­inni. Þetta er upp­hafið að geð­hvör­f­unum. Ég datt svona 20 sinnum í ung­linga­deild­inni í þung­lynd­is­sveiflur eða -lotur sem vörðu í tvær vikur í senn. Læknar og sál­fræð­ingar höfðu ekki séð svona svart­nætti hjá 13 og 14 ára dreng. Ég missti til dæmis einn þriðja af öllum 10. bekk; ég fór ekki í sam­ræmdu prófin. Ég var bara met­inn í lokin. Ég fór í sál­grein­ingu og var met­inn það sem heitir „óyrtir námsörð­ug­leikar“. Þetta er í raun og veru mis­þroski. Ann­að­hvort var ég mjög öfl­ugur í hlutum svo sem tungu­málum og mál­fari og svo var ég mjög heftur í til dæmis stærð­fræði og nátt­úru­fræði. Greindin mín er á milli 70 og 140; 70 á við mjög greind­ar­skertan mann og 140 á við flug­gáf­aðan mann. Þetta var mikið vanda­mál fyrir mig í skóla.“

Kristinn var í Kópa­vogs­skóla og þrátt fyrir mikla van­líðan oft á ung­lings­ár­unum leið honum stundum svo vel og var svo kátur að hann var val­inn húmoristi skól­ans í 10. bekk. Hann seg­ist hafa skamm­ast sín á þessum tíma fyrir þessar nei­kvæðu til­finn­ingar og vildi að eng­inn sæi sig þegar honum leið sem verst.

Kristinn fór í Mennta­skól­ann í Kópavogi og segir að hann hafi verið erf­iður nem­andi; hann trufl­aði í tímum og var með fífla­læti og hann seg­ist ekki hafa nennt að gera neitt þannig séð nema til dæmis þegar kom að rit­gerð­ar­skrifum.

„Ég kláraði svo MK á átta árum. En ég kláraði alla­vega. Ég er sterkur á vissum sviðum.“

Fuck It Mode

Kristinn fékk fyrstu man­í­una árið 2009 og hefur hann sex sinnum farið í maníu í allt. Hann lýsir fjórum þeirra í bók­inni sinni Man­íuraunum sem er komin út í ensku þýð­ingu, Don’t Stop Me.

Sjálft aksjónið stendur yfir í um fjórar vikur þar sem ég sef þá kannski tvo til þrjá tíma á sól­ar­hring og næ aldrei djúpsvefni.

„Man­í­urnar standa yfir í svona sex til átta vikur. Ég er með geð­hvörf 1 sem eru þessar ýktu man­íur; þeim fylgja ekk­ert endi­lega djúpt þung­lyndi þannig að ég er eig­in­lega mitt á milli grein­inga en geð­hvörf 1 endar yfir­leitt á geð­deyfð eftir man­í­urnar. Sjálft aksjónið stendur yfir í um fjórar vikur þar sem ég sef þá kannski tvo til þrjá tíma á sól­ar­hring og næ aldrei djúpsvefni. Aldrei. Ég fer aldrei að sofa; legg mig bara á dag­inn.“ Þörfin fyrir svefn leggst svo yfir hann þegar man­í­urnar fjara út og hefur hann sofið í 36 tíma sam­fleytt í kjöl­farið. „Þetta er að demp­ast með aldr­inum og ég er ekki að taka strípal­ing­inn aftur niðri á Aust­ur­velli,“ segir Kristinn en í einni man­í­unni á sínum tíma fækkað hann fötum niðri á Aust­ur­velli og birt­ist mynd af honum nöktum í fjöl­miðlum. Í annað skipti vildi hann stjórna umferð­inni við Smára­lind og var líka hand­tek­inn í kjöl­farið. Svo í einni man­í­unni var hann nýkom­inn úr kjálka­að­gerð og gekk þá sam­fleytt um 100 kíló­metra. Hann talar um pen­inga­eyðslu í man­í­unum og stundum eyðir hann um milljón krónum á nokkrum vikum með því að nota ýmsar leiðir til að verða sér út um pen­inga svo sem lán og rað­greiðslur. „Þetta er þá svo mikið „fuck it mode“; seinni tíma vanda­mál.

Það er alvar­legt að vera í þessu ástandi í einn til tvo mán­uði á ári og vera að skandalísera svo­lítið og leggja þetta á skrokk­inn og líka fjöl­skyld­una. Það er raf­magnað and­rúms­loft þegar ég er í maníu; fjöl­skyldan hefur áhyggjur af mér, sér­stak­lega þegar ég var aðeins yngri.“ Kristinn hefur nokkrum sinnum verið lagður inn á geð­deild og þar af verið nauð­ung­ar­vi­staður þrisvar sinnum.

Heldur fyrirlestra

Eins og þegar hefur komið fram hefur Kristinn und­an­farin ár haldið fyr­ir­lestra í skólum og fyr­ir­tækjum og rætt um reynslu sína og geð­sjúk­dóma. Fyr­ir­lest­ur­inn kall­ast Rús­sí­bana­lífið mitt og verk­efnið heitir Vit­und­ar­vakn­ing um geð­sjúk­dóma.

„Ég er búinn að vera með 70 fyr­ir­lestra og meira að segja uppi­stand. Ég held stundum fyr­ir­lestra í skólum eftir að nem­endur eru búnir að lesa Engla alheims­ins eða horfa á mynd­ina.“

Ég klippti efni frá því í fyrra til að sýna hvernig manía er.

Margir hafa að und­an­förnu tekið eftir síðu Kristins á Faceook, https://www.facebook.com/krkbipolar. Kristinn heldur úti þeirri síðu en þar vekur hann athygli á geð­hvörfum og birtir meðal ann­ars mynd­bönd sem hann tók í man­íum. „Þetta eru átta mín­útur,“ segir hann um nýjasta mynd­bandið. „Ég klippti efni frá því í fyrra til að sýna hvernig manía er. Það er rosa­lega sterkt að eiga svona man­íu­mynd­bönd til að sýna fólki hvernig hún er af því að það er erfitt að útskýra maníu.“

Hvað hefur Kristinn lært á þess­ari veg­ferð sinni? „Ég hef lært á sjálfan mig og kynnst mörgu eins og geð­deildum. Ég hef lært hvað við eigum langt í land; hvað fólk veit lítið um geð­sjúk­dóma. Mér er hrósað að vera hug­rakkur og segja sögu mína og koma fram eins og ég er klæddur. Ég held að ég sé vel lið­inn en svo finnst sumum ég kannski vera snar­klikk­aður.“

Það er einmitt ein ástæða þess að þörf er á fræðslu um þessi mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við