Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Mannskæðasta flugslys Íslandssögunnar: „Ríkir nú þungur harmur á fjölmörgum heimilum“

Mannskæðasta flugslys Íslandssögunnar: „Ríkir nú þungur harmur á fjölmörgum heimilum“

Mann­skæð­asta flug­slys Íslands­sög­unnar varð þegar flug­vél Flug­fé­lags Íslands flaug á Hest­fjall innst í Héð­ins­firði þann 29. maí árið 1947. Allir sem voru um borð í vél­inni, 25 mann­eskjur, létu lífið. Far­þeg­arnir voru 21, þar af þrjú börn, og áhöfnin taldi fjóra.

Flug­vélin var á leið til Akur­eyrar þegar slysið varð við slæm skil­yrði. Þoka og dimm­viðri var mikið og vélin fannst ekki fyrr en dag­inn eftir í fjalls­hlíð­unum. Hún var afar illa farin þegar komið var að; öll í tætlum og lík far­þega á víð og dreif.

Hér að neðan fara útdrættir úr dag­blöðum þar sem sagt var frá hörmu­legu slys­inu sem skók sam­fé­lagið.

Strax greint frá nöfnum hinna látnu

Föstu­dag­inn 30. maí árið 1947 er sagt frá því í blað­inu Verka­mað­ur­inn að flak flug­vél­ar­innar hafi fund­ist, en að mjög erfitt hafi verið að kom­ast á slys­stað­inn í bröttum og klett­óttum fjalls­hlíð­unum. Strax er þarna greint frá nöfnum hinna látnu en eins og við þekkjum í dag þykir það ekki til siðs lengur af til­lit­semi við aðstand­endur að nafn­greina látna aðila mjög skömmu eftir slys.

Þau sem lét­ust í flug­slys­inu voru:

Farþegar:

Bryndís Sig­urð­ardóttir, Reykja­hlíð, Mývatns­sveit.

Brynja Hlíðar, lyfja­fræð­ingur, Akureyri.

Garðar Þor­steins­son, alþing­is­maður, Vesturgötu 19, Rvík.

Guðlaug Einarsdóttir, Túngötu 25, Siglu­firði.

Gunnar Hallgrímsson, tann­læknir, Akureyri.

Jens Barsnes, Norð­maður, Húsavík.

Jóhann Guðjónsson, Eyr­ar­bakka.

Júlíana Arnórsdóttir frá Ufsum í Svarf­að­ar­dal. Með henni var sonur hennar, Árni Jónsson, 4 ára.

María Jónsdóttir, Kaldbak við Húsavík.

Rannveig Kristjánsdóttir, Eyrarveg 11, Akureyri.

Saga Geirdal frá Grímsey, Klapp­arstíg 3, Akureyri.

Sigurrós Jónsdóttir, Hörgárbraut 3, Akureyri.

Sigurrós Stefánsdóttir frá Skógum á Þelamörk.

Stefán Sig­urðs­son, deild­ar­stjóri KEA, Hafn­ar­stræti 90.

Tryggvi Jóhanns­son, vélaverk­fræð­ingur hjá Hita­veit­unni, Erna Jóhanns­son, og synir þeirra hjóna, Gunnar, 4 ára, og Tryggvi, eins árs.

Þor­gerður Þor­varð­ardóttir húsmæðra­skólakenn­ari, Túng. 49, Rvík.

Þórður Arn­alds­son, Þrúðvangi, Akureyri.

Áhöfn flug­vél­ar­innar:

Kristján Krist­ins­son, flug­maður.

Georg Thorberg Óskars­son, 2. flug­maður.

Ragnar Guð­munds­son, loft­skeyta­maður.

Sigríður Gunn­laugsdóttir, flug­freyja.

Mikil þoka og dimmviðri

„Flug­vélin lagði af stað frá Reykja­vík kl. 11.25 í gær­dag, en þar sem nokkur þoka var á, flaug hún með ströndum fram, en ekki beint yfir hálendið, eins og venja er, þegar bjart er veður. Kl. 12.80 hafði flugvélin sam­band við tal­stöðina á Akureyri, og sagð­ist þá vera yfir Skaga­firði, og nokkrum mínútum síðar heyrð­ist enn til hennar héðan, en þá gaf hún ekki upp stöðvarákvörðun. Kl. 12.45 sást til hennar frá Siglu­firði og flaug hún þá austur yfir Siglunes og mjög lágt, því að all­dimm þoka var á. Síðan spurð­ist ekk­ert til hennar og hún svar­aði ekki stöðinni hér. Var þá þegar farið að óttast um hana og bátar fengnir frá Ólafs­firði og Dalvík til að leita hennar og flokkar leit­ar­manna hófu einnig leit í landi og flugvél var fengin frá Keflavíkur­flug­vell­inum. En ekk­ert bar árangur.“ (Verka­mað­ur­inn, 30. maí 1947)

Aðstæður afar erfiðar

Sagt er frá því hvernig þrjár flug­vélar frá Flug­fé­lagi Íslands hafi þennan morgun verið sendar af stað til þess að leita að flug­vél­inni. Loks hafi leit­ar­menn einnar vél­ar­innar séð í flakið í kletta­skoru í Hest­fjalli í um 100 metra hæð frá sjó. Strax þótti ljóst að áhöfnin hefði farist, þar sem greini­legt var að kviknað hefði í vél­inni við árekst­ur­inn við fjallið. Klukkan 9 um morg­un­inn komst björg­un­ar­sveit á stað­inn og henni til aðstoðar vél­skipið Atli. Aðstæður voru afar erf­iðar en þennan dag voru líkin smám saman flutt um borð í Atla og þeim siglt til Akur­eyrar.

„Þetta er langstærsta og ægi­leg­asta flug­slys, sem orðið hefur hér á landi og hefur lostið alla þjóðina harmi og skelf­ingu. Harðast hefur Akureyri orðið úti í þessu svip­lega mann­falli, þar sem þriðj­ungur far­þeg­anna var héðan úr bænum og ríkir nú þungur harmur á fjölmörgum heim­ilum og fánar hafa verið dregnir í hálfa stöng um allan bæinn.“ (Verka­mað­ur­inn, 30. maí 1947)

Farþegar veifuðu til fólks rétt fyrir brotlendingu

„Ekki er nokkur vafi tal­inn á því, að þetta hörmu­lega slys hafi borið að allt í einu og að þeir, sem í vjel­inni voru, hafi látist undir eins er flug­vjelin skall á hamra­veggnum. Spreng­ing mun hafa orðið í vjel­inni um leið og hún rakst á fjallið og eldur komið upp í henni. Það styrkir þá trú, að slysið hafi borið bráðan að, að ekk­ert heyrð­ist í loft­skeyta­tækjum vjel­ar­innar, eftir að hún var á Skaga­firði og tal­aði við Akureyri.

Flug­vjelin flaug lágt yfir Siglunes og er hún fór yfir Reyðarárbæ­inn, sem stendur norð­vestan undir nes­inu, veif­uðu far­þegar til fólks­ins, sem stóð úti og horfði á flug­vjel­ina fljúga yfir. Skygni var þá um einn kílómetri, en rjett í því rak yfir þokumökk og syrti í lofti.

Það verður að sjálfsögðu ekk­ert sagt með neinni vissu hvernig þetta svip­lega flug­slys bar að. Ljóst er aðeins að það er dimm­viðri sem er orsök þess. En flug­fróðir menn hall­ast að þeirri skoðun, að er flug­vjelin kom fyrir mynni Hjeð­ins­fjarðar, hafi þokan verið svo svört, að flug­vjelin hafi ekki treyst sjer til að halda inn á Eyjafjörð og því snúið við og þá beygt til hafs til að forð­ast fjöllin. En til þess að geta áttað sig á Siglu­nes­inu, varð hann að kom­ast eins nálægt því og unt var. Við þetta getur flug­vjelin hafa borist fyrir norð­austan vind­inum inn í mynni Hjeð­ins­fjarðar og lent á fjall­inu. Er þetta að sjálfsögðu getgáta, þar sem eng­inn er til frá­sagnar um atburð­inn.

En það styrkir trú manna að þannig hafi þetta verið, að flug­vjelin liggur þannig í kletta­skor­unni, að hún snýr upp á við, sem bendir til þess að flug­menn­irnir hafi orðið varir við fjallið á síðustu stundu, og þá reynt að stefna flug­vjel­inni svo að segja beint upp í loftið til að reyna að forð­ast árekstur, en það hafi þá orðið um seinan.“ (Morg­un­blaðið, 31. maí 1947)

Íslendingar harmi lostnir

Í Þjóð­vilj­anum, tveimur dögum eftir slysið, er því velt upp hve nöt­ur­lega vön við Íslend­ingar vorum sjó­slysum. Hins vegar hafi fólk ekki átt von á að heyra af mann­skæðu flug­slysi.

„Í dag koma blöðin enn einu sinni út í sorg­arbúningi, flytj­andi fregn um hrylli­legt slys. Og allir Íslend­ingar eru harmi lostnir. En það er ekki sjóslys, sem veldur harmi þeirra að þessu sinni, heldur flug­slys. Áður hafa orðið flug­slys hér á landi, en þetta er þeirra lang­mest og hörmu­leg­ast. Það eru jafn­vel líkur til, að miðað við fólks­fjölda hafi hjá engri annarri þjóð orðið slíkt flug­slys sem það, er nú hefur orðið hjá okkur Íslend­ingum.“ (Þjóð­vilj­inn, 31. maí, 1947)

Því er lýst hvernig flug­vélin hafi lagt af stað frá Reykja­vík þennan morgun og allt verið í himna­lagi.

„Eftir rúma klukku­stund er gert ráð fyrir, að hún lendi á Akur­eyr­ar­vell­inum og far­þeg­arnir þá komnir á áfanga­stað heilu og höldnu, – eftir rúma klukku­stund rekst flug­vélin á fjalls­hlíð og allir, sem í henni eru, láta lífið, 25 manns, á einu auga­bragði.

Það hafa oft orðið svip­leg og hörmu­leg sjó­slys við Ísland, en sjaldan jafn svip­leg né hörmu­leg og þetta flug­slys. Flest af því fólki, sem þarna beið bana, var í blóma lífs­ins. Meðal far­þeg­anna voru ung hjón með tvo korn­unga syni sína, og ung móðir með son sinn fjög­urra ára. Dauðinn birt­ist stundum þar sem lífið virð­ist standa föstustum fótum.“ (Þjóð­vilj­inn, 31. maí 1947)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina