Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Upp úr sauð á fundi Vöndu hjá knattspyrnudeild Þórs: Móðir Arons Einars fékk engin svör

Upp úr sauð á fundi Vöndu hjá knattspyrnudeild Þórs: Móðir Arons Einars fékk engin svör
Vanda Sig­ur­geirs­dóttir er for­maður KSÍ

Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands, heim­sótti á dög­unum súpufund íþrótta­fé­lags­ins Þórs á Akureyri og var til­efnið fram­boð hennar til stjórnar KSÍ sem fram fer í lok mán­að­ar­ins. Fjöl­mennt var á fund­inum en á meðal þeirra sem mættu var móðir Arons Einars Gunn­ars­sonar sem, líkt og fjöl­miðlar hafa fjallað um, var tek­inn út úr lands­liði Íslands í kjöl­far ásak­ana um kyn­ferð­is­brot. Móðir Arons, Jóna Emilía Arn­órs­dóttir, var ein þeirra sem stóð upp og hafði spurn­ingar fyrir for­mann KSÍ, sem sæk­ist eftir end­ur­kjöri, og snéru þær að syni hennar og hvernig tekið var á hans málum innan stjórn­ar­innar.

„Þetta var hálf­kjána­legt hjá henni Vöndu“

Samkvæmt heim­ild­ar­manni Mannlífs, sem var á meðal gesta, segir móður Arons Einars hafa spurt ein­faldra spurn­inga en Vanda hafi ekki viljað svara þeim: „Þetta var hálf kjána­legt hjá henni Vöndu því það eina sem Jóna Emilía vildi fá á hreint var hvort Vanda hafi á sínum tíma hringt í Aron Einar. Vanda vildi ekki svara þess­ari spurn­ingu. Þeirri næstu var líka ekki svarað en þá spurði móðir Arons Einars hvort hann fengi ekki inn í lands­liðið aftur þegar málið gegn syni hennar yrði fellt niður,“ segir heim­ild­ar­mað­ur­inn. Það ber að taka fram að móðir Arons Einars sagði „þegar það yrði fellt niður“ en eins og gefur að skilja er ekki vitað hvort það ger­ist eður ei.

Þegar Vanda vildi ekki svara spurn­ingum Jónu Emilíu þá stóð sú síð­ar­nefnda aftur upp, tók yfir­höfn sína og gekk út af fund­inum. Samkvæmt heim­ild­ar­manni Mannlífs var það mál manna sem fund­inn sóttu að Vanda hafi ekki tekið vel á þessum málum, hvorki máli Arons Einars eða spurn­ingum móður hans. Mót­fram­boð Vöndu er að norðan en það er Sævar Pét­urs­son, for­maður knatt­spyrnu­deildar KA, og má segja að ein­hver hiti sé nú að fær­ast í for­manns­slag­inn.

Aron Einar er sak­aður um að hafa nauðgað konu í útlöndum árið 2010 ásamt Eggerti Gunnþóri Jónssyni. Rannsókn lög­reglu á hinu meinta kyn­ferð­is­broti hófst aftur í októ­ber á síð­asta ári og þótt langt sé um liðið, eða tæp tólf ár, þá er fyrn­ing­ar­tími kyn­ferð­is­brota fimmtán ár og því brotið vel innan þess ramma.  Hinn meinti þol­andi í mál­inu tjáði sig á Instagram í maí á síð­asta ári og hefur færsla hennar farið víða og birst í fjöl­miðlum.

Færslan var svohljóð­andi:

„Ég má segja frá, ég má bara ekki nafn­greina. Mig langar ekki að burð­ast með þetta ein í hjart­anu, mig langar ekki að hugsa í hvert skipti sem ég fer á meðal fólks: „Ætli þau viti þetta, ætli þau trúi mér“, því það er ógeðs­lega íþyngj­andi og heft­andi félags­lega.

Ég er alltaf á varð­bergi.

Þennan dag var eitt­hvað tekið frá mér sem ég mun aldrei fá aftur en ég ætla að halda áfram að vinna í mér og skila skömminni, loks­ins! FOKKIÐ YKKUR!!“

Eins og áður segir er málið í rann­sókn lög­reglu sem ekk­ert vildi gefa út á fram­gang rann­sókn­ar­innar þegar Mannlíf hafði sam­band.

Uppfært: For­svars­menn fund­ar­ins segja að hann hafi ekki verið bein­línis á vegna Þórs. Þarna hafi verið um að ræða súpufund að frum­kvæði nokk­urra ein­stak­linga. Fund­ur­inn var í aug­lýs­ingu kynntur sem Súpufundur Íþrótta­fé­lags­ins Þórs og veit­inga­húss­ins Greifans

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina