Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Afdrifaríkt Lekamál: Lögreglustjóri hrakinn úr starfi og Gísli Freyr dæmdur fyrir trúnaðarbrot

Afdrifaríkt Lekamál: Lögreglustjóri hrakinn úr starfi og Gísli Freyr dæmdur fyrir trúnaðarbrot

Leka­málið vakti mikla athygli á árunum 2013 og 2014. Minn­is­blað sem inni­hélt bæði trún­að­ar­upp­lýs­ingar og ósannar sögu­sagnir um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos var lekið af Gísla Frey Val­dórs­syni, aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra.

Þann 20. nóv­em­ber árið 2013 birti Frétta­blaðið trún­að­ar­upp­lýs­ingar um Tony Omos sem sneru að tengslum hans við þrjár konur, fað­erni hans að ófæddu barni og aðild hans að man­sali, allt var þetta byggt á upp­lýs­ingum sem Frétta­blaðið höfðu fengið úr óform­legu minn­is­blaði úr ráðu­neyt­inu.

Tony kom til Íslands frá Sviss árið 2011 sem flótta­maður og óskaði eftir hæli. Útlend­inga­stofnun synj­aði beiðni hans og stóð til að senda hann aftur til Sviss, mán­uði eftir komu hans til lands­ins. Tals­maður hans kærði ákvörðun útlend­inga­stofn­unnar en í októ­ber 2013 stað­festi inn­an­rík­is­ráðu­neytið að Tony fengi ekki hæli hér á landi. Þess vbar kraf­ist að mál­inu yrði áfrýjað til dóm­stóla en Tony var sagður eiga von á barni með unn­ustu sinni sem einnig var flótta­maður. Ráðu­neytið hafn­aði þeirri kröfu og átti Tony að verða sendur úr landi þann 19. nóv­em­ber 2013. Íkjölfar þeirra ákvörð­unnar fór hann í felur. Samtökin No Borders boð­uðu til mót­mæla fyrir utan inn­an­rík­is­ráðu­neytið þar sem mót­mælt var sundrun fjöl­skyld­unnar frá Nígeríu.

Minn­is­blað um Tony Omos, sem tekið var saman af skrif­stofu­stjóra í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, var vistað á opnu drifi ráðu­neyt­is­ins og sent á Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, inn­an­rík­is­ráð­herra og aðstoð­ar­menn hennar ásamt ráðu­neyt­is­stjóra. Morg­un­inn eftir birti Frétta­blaðið inni­hald minn­is­blaðs­ins. Annar aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu þvertók fyrir það að minn­is­blaðið kæmi úr ráðu­neyt­inu. Í minn­is­blað­inu voru, ásamt hæl­is­beiðni Tony, full­yrð­ingar um að meint barns­móðir hans hafi verið mannsals­fórna­lamb og að Tony hefði neytt hana til þess að segja hann vera föður ófædds barns síns til að tryggja honum hæli. Barns­móð­irin sagði síðar í við­tölum að Tony hefði aldrei beitt hana neinum þrýst­ingi.

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið sendi frá sér yfir­lýs­ingu þar sem greint var frá því að „ekk­ert bendi til þess að slík gögn hafi verið afhent frá emb­ætt­is­mönnum inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og að upp­lýs­ing­arnar gætu hafa borist fjöl­miðlum frá mörgum stofn­unum, emb­ættum og ein­stak­lingum.

Gísli Freyr Val­dórs­son, aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu, sagði í við­tali við fjöl­miðla að mögu­leiki væri á því að óbreyttur starfs­maður ráðnu­neyt­is­ins hafi lekið upp­lýs­ing­unum en að skjalið sjálft væri ekki til í ráðu­neyt­inu. Gísli var seinna ákærður fyrir brot á þagna­skyldu og sendi Hanna Birna þá frá sér yfir­lýs­ingu:

„Rétt í þessu til­kynnti annar aðstoð­ar­maður minn, Gísli Freyr Val­dórs­son, mér að lög­maður hans hefði nú síð­degis fengið upp­lýs­ingar um að rík­is­sak­sókn­ari hyggð­ist birta honum ákæru vegna kæru vegna með­ferðar per­sónu­upp­lýs­inga um hæl­is­eit­enda.  

Þrátt fyrir að Gísli Freyr hafi ávallt haldið því fram gagn­vart mér að hann sé með öllu sak­laus af mál­inu og geri það enn, hef ég tekið þá ákvörðun að leysa hann nú þegar frá störfum á meðan málið er til með­ferðar fyrir dóms­stólum.    

Ég hef að auki óskað eftir því við for­sæt­is­ráð­herra að þau mál­efni sem undir mig heyra og hafa með dóms­stóla og ákæru­vald að gera fær­ist til ann­ars ráð­herra í rík­is­stjórn á meðan dóms­mál á hendur Gísla Frey stendur yfir, enda tel ég mik­il­vægt að friður skap­ist um fjöl­mörg mik­il­væg verk­efni inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.“

Gísli Freyr ját­aði að lokum að hafa lekið trún­að­ar­upp­lýs­ingum eftir að rann­sókn sýndi að hann hafi átt við skjalið sem inni­héldu upp­lýs­ing­arnar og var dæmdur til að greiða bæði Tony Omos og barns­móður hans, Evelyn Glory Joseph, skaða­bætur en að beiðni þeirra var fjár­hæð bót­anna haldið leyndri.

Forsíða DV

Önnur hlið þessa mál var að Hanna Birna kall­aði Stefán Eirík­is­son lög­reglu­stjóra á sinn fund vegna rann­sóknar leka­máls­ins. Stefán sagði af sér sem lög­reglu­stjóri en ráð­herr­ann hlaut for­dæm­ingu margra vegna afskipt­anna. Hanna Birna sagði loks­ins af sér eftir mikla gagn­rýni almenn­ings en neit­aði fyrir að það tengd­ist leka­mál­inu. Hún hvarf úr stjórn­málum í fram­hald­inu og gegnir nú störfum á alþjóða­vett­vangi. Gísli Freyr starfaðik við almanna­tengsl um ára­bil en var í dag ráð­inn frétta­stjóri Morg­un­blaðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina