Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hildur um hömlulausa matarfíkn: „Matarfíkn var að ganga frá mér-ég gat engan veginn stjórnað henni“

Hildur um hömlulausa matarfíkn: „Matarfíkn var að ganga frá mér-ég gat engan veginn stjórnað henni“
Ljós­mynd­ari Ellen Inga

„Þann 2. febr­úar 2021 gekk ég ákveðnum skrefum inn á Klíník­ina og fór í maga­ermis­að­gerð. Með „smá“ kvíða­hnút í mag­anum, ekki vit­andi hvað næstu mán­uðir myndu bera í skauti sér vissi ég samt að þetta væri það rétta fyrir mig“, segir Hildur Hlín Jón­as­dóttir í sam­tali við Mannlíf.

„Það að fara í svona aðgerð er alls ekki auð­velda leiðin út úr ástandi sem var að ganga frá mér bæði and­lega og lík­am­lega. Allt ferlið krefst mik­illar vinnu og und­ir­bún­ings og hefur þetta ferli kostað blóð, svita og tár í bók­staf­legri merk­ingu.“

Hildur Hlín Jóns­dóttir, er 38 ára og býr í Reykja­nesbæ. Hún er gift og á 6 ára gamlan son og var að eign­ast sitt annað barn. Hildur er lærður marg­miðl­un­ar­hönn­uður og hefur unnið mikið við graffík síð­ast­liðin ár. Hún hefur verið að reka lítið hönn­un­ar­fyr­ir­tæki þar sem hún tekur að sér verk­efni tengd graffík. Hildur er eig­andi prjóna­fyr­ir­tæk­is­ins Knit­hilda, en þar selur hún prjóna­upp­skriftir og aðrar prjóna­tengdar vörur, en hún vinnur líka sem launa- og upp­lýs­ing­ar­full­trúi hjá fyr­ir­tæki sem heitir Skóla­matur. „Þannig að það má segja að ég hafi alveg nóg að gera.“

Alltaf verið hrædd við svona aðgerðir

„Ég ákvað í lok októ­ber 2020, þá á algjörri enda­stöð, að heyra í Aðal­steini skurð­lækni á Klíník­inni og fræð­ast aðeins um aðgerð­ina. Ég hafði sjálf verið búin að afla mér ein­hverra upp­lýs­inga og heyrt af nokkrum í kringum mig sem höfðu farið í svona aðgerðir og öðl­ast nýtt líf við það. Ég hafði sjálf alltaf verið mjög hrædd við svona aðgerðir, verið með mikla for­dóma gagn­vart þeim og talið þetta verið auð­veldu leið­ina út, sem það er svo sann­ar­lega ekki.

En þetta sím­tal við lækn­inn breytti öllu og end­aði það sím­tal á að ég var búin að bóka aðgerð. Léttir­inn, maður minn, ég fann það strax þá að ákvörð­unin var rétt og þar hófst í raun minn und­ir­bún­ingur og ég varð bjart­sýn í fyrsta skipti í langan tíma.

Ég fór ekki í aðgerð­ina til þess að verða eitt­hvað ákveðið þung eða ná ákveðnu mark­miði heldur til þessa að auka lífs­gæðin mín og geta gert sjálf­sagða hluti, eins og að leika við barnið mitt og svo mögu­lega eign­ast fleiri börn.“

Hildur var þá búin að prófað nán­ast allt undir sól­inni. „Borða rétt – hreyfa mig, LKL, Ketó, ég tek Met­formin og var á tíma­bili á lyf­inu Saxenda sem er syk­ur­sýkis­lyf sem oft er notað til að hjálpa fólki í ofþyngd. Margt af þessu skil­aði mér árangri í skemmri tíma en ekk­ert sem ég náði að halda eða vinna með.  Það var orðið rosa­lega þreyt­andi og slít­andi að hafa prófað þetta allt til þess að reyna að laga ástand sem ég vildi ekki vera í og var það farið að draga veru­lega úr mér að prófa eitt­hvað nýtt því oft hafði ég náð mjög góðum árangri sem tap­að­ist svo jafn hratt aftur og leiddi oft til mik­illar svart­sýni og van­líðan.

Ég von­aði svo inni­lega að aðgerðin myndi létta mér lífið, gefa mér von að ég gæti loks­ins eitt­hvað sem hefur reynst mér erfitt og nán­ast ómögu­legt, þ.e. að létta mig. Þung­lyndið og svart­sýnin var orðin mikil og ég var hætt að von­ast eftir ein­hverjum árangri og í raun búin að gef­ast algjör­lega upp.“

Þessi mat­ar­fíkn var að ganga frá mér og gat engan veg­inn stjórnað henni og fannst ég vera mjög van­máttug. Nið­ur­rifið var gríð­ar­legt og van­líð­anin rosa­leg

Hömlulaus matarfíkn

Maga­að­gerðir ganga undir nafn­inu efna­skipta­að­gerðir en með svona aðgerð breyt­ast efna­skiptin í lík­am­anum og rétt­ast í flestum til­fellum af. Hildur segir að flestir sjúk­lingar sem fara í svona aðgerðir eiga í vand­ræðum með efna­skipti í lík­am­anum eins og hún. Hún er með pcos sem er að hennar sögn hund­leið­in­legur efna­skipta­sjúk­dómur sem leggst á konur og hefur marga leið­inda fylgi­kvilla. Pcos getur m.a. gert það að verkum að lík­am­inn offram­leiðir insúlín (insúlín við­nám). Frum­urnar vinna heldur ekki rétt úr insúl­ín­inu, taka það ekki rétt upp, sem gerir það að verkum að umfram insúlín fer út í blóðið og breyt­ist í glúkósa og svo fitu. „Þannig að fyrir mig var sjúk­lega erfitt að létt­ast þó svo að ég borð­aði rétt og hreyfði mig mikið. Líkaminn minn sendi allt insúlín beint út í blóðið og garg­aði svo eftir meira þar sem að frum­urnar voru ekki að fá nóg og þar skap­að­ist víta­hringur og upp­hafið af minni hömlu­lausu mat­ar­fíkn. Þessi mat­ar­fíkn var að ganga frá mér og gat engan veg­inn stjórnað henni og fannst ég vera mjög van­máttug. Nið­ur­rifið var gríð­ar­legt og van­líð­anin rosa­leg.“

Pcos er marg­slungin sjúk­dómur og leggst mis­mun­andi á konur, sumar fá væg ein­kenni meðan aðrar fá mikil ein­kenni eða öðru­vísi ein­kenni. Barn­eignir reyn­ast t.d. mörgum pcos konum erf­iðar og var það líka þannig í hennar til­felli og hefur það tekið mikið á hana síð­ast­liðin 15 ár.

„Ég á mjög erfitt með að verða ólétt, fæ t.d. ekki egg­los nema með hjálp lyfja og blæð­ingar geta staðið í 20 daga og tíða­hring­ur­inn verið hátt í 40-60 dagar. Ég hef oft þurft lyf til að starta nýjum hring. Fóst­ur­missar eru einnig algeng­ari hjá pcos konum en við mað­ur­inn minn eigum að baki þrjá mjög erf­iða fóst­ur­missa.

Síðasta ár er því búið að vera mjög við­burða­ríkt og grun­aði mig því ekki að í dag yrði ég á þeim stað sem ég er á nú. Nýbúin að eiga barn og lífs­glað­ari en nokkru sinni áður. Það stendur í bæk­lingnum sem maður fær eftir svona aðgerð að frjó­semin geti auk­ist og man ég eftir því að hafa lesið það og hugsað „piff þetta á ekki við mig“ en viti menn 4 mán­uðum eftir aðgerð verð ég ólétt algjör­lega óvænt án nokk­urra lyfja. Getið rétt ímyndað ykkur ham­ingj­una og hræðsl­una þegar við komumst að þessu, en það er ekki æski­legt að verða ólétt innan árs frá aðgerð. Með­gangan hefur þó gengið mjög vel og það er vel fylgst með mér. Út af aðgerð­inni og hversu stutt síðan það er síðan ég fór að þá er ég flokkuð í áhættu með­göngu. Ég er í enda­lausum skoð­unum sem og blóðprufum og það hefur verið fylgst með okkur litla stubb.“

Er að læra nýja rútínu

Hildur segir aðgerð­ina hafa gengið mjög vel og var hún nokkuð fljót að jafna sig, „þannig séð en þetta var rosa­lega mikil vinna og álag að ná sér eftir aðgerð­ina. Líkaminn var hjá mér í raun fljótur að jafna sig, litlir verkir og ég komin á ról strax dag­inn eftir aðgerð. Hugurinn og and­lega hliðin hefur þurft aðeins lengri tíma til að ná áttum. Ég var frá vinnu í tvær vikur, en það er mik­il­vægt fyrstu vik­urnar að ná að jafna sig vel og læra á nýja rútínu. Eftir aðgerð er full vinna fyrstu vik­urnar að læra að næra sig og drekka.

Fyrir aðgerð var ég á mjög ströngum hita­ein­inga­snauðum mat­ar­kúr í 3 vikur þar sem að ég í raun borð­aði ekk­ert nema hrökk­brauð og prótein­ríkt álegg. Ég þurftir að skera hita­ein­ingar niður þennan tíma og borða í kringum 900 kalor­íur á dag, en þetta er gert til þess að lifrin og önnur líf­færi taki minna pláss og auð­veld­ara sé að gera aðgerð­ina. Eftir aðgerð fer maður svo á fljót­andi fæði í tvær vikur, en þá ein­beitir maður sér að ná inn um 1,5-2 L af vökva á dag, sem er alveg erf­ið­ara en að segja þegar maginn tekur bara í kringum 1-2 des­ilítra.

Eftir tvær vikur af fljót­andi fer maður að kynna inn maukað fæði, en það tíma­bil reynd­ist mér erfitt og átti ég í smá vand­ræðum með að finna út hvað ég gat og mátti borða. Þá byrjar maður einnig að vinna með það að hætta að drekka 30 mín fyrir mat og drekka svo ekki aftur fyrr en 30 mín eftir mat, s.s. aldrei vökvi með mat. Þetta þýðir mikið skipu­lag og ég var með timer stilltan í sím­anum til að minna mig á hvenær ég mætti drekka og hvenær ég þurfti að hætta. Það er samt ótrú­legt hvað maður er fljótur að venj­ast þessu og finnst mér þetta ekk­ert mál í dag, enda með góða rútínu.“

Fannst ég vanmáttug

Andlega hliðin var á hræði­legum stað fyrir aðgerð eftir mörg ár af svart­sýni og nið­ur­rifi

Bata­ferlið gekk mjög vel og segir hún að það hafi komið henni á óvart hvað lík­am­inn hafi verið fljótur að aðlaga sig. Hausinn hafi tekið aðeins lengri tíma, en hún segir að sér hafi fund­ist það hafa tekið meira á að vinna í hausnum og and­legu hlið­inni eftir aðgerð.

„Andlega hliðin var á hræði­legum stað fyrir aðgerð eftir mörg ár af svart­sýni og nið­ur­rifi. Ég var gjör­sam­lega búin að gef­ast upp og hélt að ég ætti enga von með að laga lífstíl­inn minn. Mér fannst ég van­máttug sama hversu mikið ég reyndi og aldrei gekk neitt.

Ég lagði mikið á mig fyrir aðgerð og var vel und­ir­búin, enda­laust margir sál­fræði­tímar að baki sem og annar und­ir­bún­ingur. Ég ákvað strax og ég bók­aði aðgerð­ina að vera vel und­ir­búin and­lega og bók­aði því reglu­lega sál­fræði tíma hjá sál­fræð­ing sem sér­hæfir sig í að hjálpa fólki sem glímir við átrösk­un­ar­sjúk­dóma og er á leið­inni í eða hefur farið í svona aðgerðir. Ég fékk og fæ góða hjálp frá henni og mörg verk­færi sem ég hef nýtt mér í þessu ferli og finn alveg svaka­lega mik­inn mun á and­legu hlið­inni eftir aðgerð. Vinnan er langt frá því að vera búin og þarf ég að vinna í henni dag­lega til að ná árangri.“

Fitufordómar og fordómar fyrir efnaskiptaaðgerðum

Hildur seg­ist finna fyrir for­dómum í sam­fé­lag­inu, bæði fitu­for­dómum sem og for­dómum fyrir efna­skipta­að­gerðum. Hún hefur oft heyrt sagt; „af hverju hættir þú ekki bara að borða og ferð að hreyfa þig. Ef málin væru svona auð­veld að þá væru ekki svona margir í ofþyngd og þ.a.l í vand­ræðum með heils­una. Ég sjálf hef lent í miklum for­dómum vegna þyngdar minnar, bæði frá aðilum sem ég þekki sem og fag­fólki í heil­brigð­is­kerf­inu þar sem að maður varla þorir að fara til læknis því flest vanda­mál eða kvillar eru tengdir við þyngd­ina þó svo að í mörgum þeirra til­fella teng­ist kvill­inn þyngd­inni ekki af neinu leyti. Ég hef líka lent í því að fá ljót og leið­in­leg komment frá aðilum varð­andi þyngd­ina mína sem hafa bæði sært mig veru­lega mikið og sent mann niður í enn meira þung­lyndi.

Mér finnst heilt yfir fólk ekki skilja ástæð­una fyrir ofþyngd, málið er ekki bara að fólk sé latt, nenni ekki neinu og vilji bara borða yfir sig. Ofþyngd er sjúk­dómur þar sem að í mörgum til­fellum vinnur lík­am­inn ekki með fólki, efna­skiptin eru í rugli og mat­ar­fíkn er stað­reynd. Það þurfa að vera til almenni­leg tæki og tól til þess að hjálpa fólki úr svona víta­hring og ég vona svo inni­lega að það farið að breyt­ast og að fólk sem á við ofþyngd að stríða og vill leita sér hjálpar mæti skiln­ingi og fái þá hjálp og stuðn­ing sem það þarf.“

Hildur hefur verið að deila lífi sínu eftir aðgerð, hvernig og hvað hún borðar ásamt því að reyna að upp­ræta for­dóma fyrir svona aðgerðum á instagram síðu sinni @healthyhildur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina