Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Gylfi Þór stóð í ströngu í Covid faraldrinum: „Ég var á vakt allan sólarhringinn þessi tvö ár“

Gylfi Þór stóð í ströngu í Covid faraldrinum: „Ég var á vakt allan sólarhringinn þessi tvö ár“
Gylfi Þór Þor­steins­son

„Það er mjög jákvætt að heil­brigð­is­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra haldi blaða­mann­fund til að segja manni að maður sé rek­inn. Það er mjög jákvætt að þessu sinni,“ segir Gylfi Þór Þor­steins­son og hlær en hann hefur í Covid-far­aldr­inum verið umsjón­ar­maður sótt­varn­ar­húsa í Reykja­vík sem nú á að loka vegna betra ástands í tengslum við heims­far­ald­ur­inn. „Nú fer ég að dusta rykið af fer­il­skránni og sækja um störf. Ég var bara ráð­inn í þetta verk­efni og nú er því lokið og þá snýr maður sér að ein­hverju öðru. Mér líður ósköp vel með þetta. Þetta þýðir nátt­úr­lega að veiran er á þeim stað að hún er hættu­laus að mestu. Það nátt­úr­lega þýðir að við séum að ná árangri – þessi bar­átta sem stjórn­völd hafa verið í. Heil­brigð­is­yf­ir­völd. Maður fagnar alltaf þegar sigur vinnst.“

Hvað stendur upp úr frá þessum tíma í far­sótt­ar­hús­unum? „Það er ótrú­lega margt. Auðvitað var fólk orðið þreytt á þessu undir lokin en ég sá það bara til dæmis alveg fyrsta eina og hálfa árið hvað sam­heldni þjóð­ar­innar var mikil; hvað fólk var til­búið að leggja á sig til þess að reyna að berj­ast við veiruna. Það var líka eft­ir­tekt­ar­vert hvað til dæmis allar stofn­anir og félaga­sam­tök voru til­búin að vinna saman að þessu verk­efni. Og það var aldrei eitt­hvað sem vann gegn manni í þessu. Það voru allir til­búnir til að hjálpa. Við nátt­úr­lega upp­lifðum bæði sorg og gleði í hús­unum. Fólk var mjög veikt og fólk var að missa maka eða ætt­ingja sína úr Covid sem var hjá okkur. Við vorum með mjög marga heim­il­is­lausa ein­stak­linga; ætli það hafi ekki verið hátt í 100 heim­il­is­lausir ein­stak­lingar hjá okkur þegar allt er talið saman. Þannig að það er ýmis­legt sem stendur upp úr. Svo er það kannski ekki síst það að sjá hvað heil­brigð­is­kerfið okkar getur sinnt stórum verk­efnum eins og þessu þrátt fyrir hversu lamað það er.“

Þá vorum það við sem fólk gat talað við en það hafði enga aðra en okkur.

Gylfi Þór segir að erf­ið­ast fyrir sig hafi verið þegar hann hugg­aði fólk og hann þurfti að vera til staðar fyrir fólk sem hafði engan annan þar sem það var í ein­angrun. „Þá vorum það við sem fólk gat talað við en það hafði enga aðra en okkur. Eðlilega reynir slíkt á en sem betur fer er maður þjálf­aður í því en ég var í við­burða­hópi á vegum Rauða kross­ins sem sinnir áfalla­hjálp eða sál­rænum stuðn­ingi þannig að maður hafði fengið þjálfun í slíku sem kom sér mjög vel að þessu sinni.“

Hann svaf oft lítið. „Ég var á vakt allan sól­ar­hring­inn þessi tvö ár. Fyrstu þrjá mán­uð­ina voru þetta kannski tveir til þrír tímar á nóttu sem maður náði að leggja sig. Eftir að við réðum fleiri starfs­menn gat ég nú oft­ast farið heim til mín og sofið heima hjá mér á nótt­unni en þá var það sím­inn sem vakti mig oftar en ekki. Ætli það sé ekki um hálft ár síðan ég byrj­aði að ná fullum næt­ur­svefni. Þá var maður hræddur um að hafa misst af ein­hverju sím­tal­inu en sem betur fer var það nú ekki.“

Þakklætið

Gylfi Þór segir að fyrsti aðil­inn sem gisti í far­sótt­ar­húsi hafi verið hæl­is­leit­andi, Saeyd, frá Afganistan sem þurfti að fara í sótt­kví við kom­una til lands­ins. „Það hafði verið bankað á dyrnar á heim­il­inu í Afganistan og þegar bróðir hans opn­aði dyrnar stóðu Tali­banar fyrir utan og skutu hann. Saeyd flúði út um glugga og hætti ekki hlaupum fyrr en í raun­inni þegar hann kom til Íslands og sótti um hæli en hann fékk hér alþjóð­lega vernd. Hann er nú starfs­maður hjá mér í far­sótt­ar­húsi.

Fyrsti Covid-sjúk­ling­ur­inn var ung, áströlsk kona sem hafði misst eig­in­mann sinn úr Covid en hann var sá fyrsti sem lést af völdum sjúk­dóms­ins hér á landi. Hún var hjá okkur í tvær vikur og við höfum verið í miklu sam­bandi síðan, ég og hún. Hún var eðli­lega í mjög erf­iðum aðstæðum, var í ókunn­ugu landi og átti mjög erfitt eins og eðli­legt er.

Og þetta er satt að segja skemmti­leg­asta starf sem ég hef unnið.

Það er margt annað eft­ir­minni­legt. Í far­sótt­ar­húsum gistu eins og eg hef nefnt heim­il­is­lausir aðilar sem eru í virkri neyslu þannig að við þurftum að vera með neyslu­rými; þetta er ekki með­ferð­ar­stofnun þannig að þeir aðilar þurftu ann­að­hvort að útvega sér efnin og fá þau send í húsin eða að við gátum boðið upp á við­halds­með­ferð með fíknig­eð­deild Land­spít­al­ans sem hjálp­aði okkur gíf­ur­lega mikið. Það hafa allir lagst á eitt. Lækna­vaktin hjálp­aði okkur með allar sýna­tökur í húsi alveg sama hvort það var að degi eða nóttu; það er ekk­ert nema jákvætt sem kemur út úr þessu hvað okkur varðar. Og þetta er satt að segja skemmti­leg­asta starf sem ég hef unnið.“

Gylfi Þór minn­ist fleira fólks sem dvaldi í hús­unum. „Það er eft­ir­minni­legt þegar hringt var í mig á aðfanga­dag 2020 en þá var ég einn á vakt en ég hafði gefið öllum starfs­mönn­unum frí. Rakn­ing­arteymið hringdi og sagði að það væri á leið­inni til mín ung­lings­drengur sem hefði verið að grein­ast með Covid og vildi fjöl­skyldan koma honum út af heim­il­inu svo hann myndi ekki smita aðra. Hann kom til mín um klukkan sex á aðfanga­dags­kvöld og á meðan við vorum á leið­inni upp í her­bergi sem hann átti að dvelja í heyrðum við klukk­urnar í Hall­gríms­kirkju hringja inn jólin. Jólin eru alltaf eft­ir­minni­leg í svona húsi og klæða flestir sig upp sem er mjög skemmti­legt. Maður var hlaup­andi um milli hæða og her­bergja með send­ingar að heiman – pakka og mat sem fólk var að fá sendan.“

Gylfi Þór segir að það eft­ir­minni­leg­asta sé þakk­læti þeirra sem dvöldu í hús­unum. „Fólk var mjög þakk­látt og við höfum verið að fá mikið af bréfa­send­ingum, blóma­send­ingum, konfekti og fleiru þar sem fólk er að þakka fyrir sig. Það fann fyrir öryggi hjá okkur; þrátt fyrir mikil veik­indi var það öruggt. Það vissi að það væri verið að fylgj­ast með því og það hversu vel rekstur þess­ara húsa hefur gengið hjá okkur er eitt­hvað sem maður getur verið stoltur af inn í fram­tíð­ina.“

Ef ég fengi Covid þá bara fengi ég Covid.

Gylfi Þór seg­ist ekki hræð­ast Covid. „Ef ég hefði verið hræddur þá hefði ég örugg­lega aldrei farið í þetta starf vegna þess að þegar ég tók þetta að mér þá var fólk að deyja úti á götu út um allan heim. Ég var aldrei hræddur við að fá Covid. Ég bara leit svo á að þarna gæti ég lagt mitt lóð á vog­ar­skál­arnar til að aðstoða og hjálpa öðrum. Ef ég fengi Covid þá bara fengi ég Covid. Ég hafði gíf­ur­legan metnað fyrir því að eng­inn af starfs­mönnum mínum myndi veikj­ast og það tókst að mestu. Fyrsti starfs­mað­ur­inn í far­sótt­ar­húsi sýkt­ist fyrir um fjórum mán­uðum síðan og miðað við að hafa verið með hátt í 200 starfs­menn þá er það bara mjög gott. Við höfum aldrei lent í mik­illi krísu vegna veik­inda starfs­manna. Og eng­inn af þeim starfs­mönnum sem veikt­ust smit­uð­ust út af störfum sínum í far­sótt­ar­húsum heldur var hægt að finna upp­runa sýk­ing­anna ann­ars staðar.“

Kletturinn

Gylfi Þór hefur ýmis­legt lært á þessum tveimur árum svo sem hvað mann­skepnan er í raun­inni með stórt hjarta þegar öllu er á botn­inn hvolft. „Ég hef lært hvað við erum til­búin til að hjálp­ast að og veita hvert öðru aðstoð. Fyrstu þrjá mán­uð­ina var ég til dæmis með 75 sjálf­boða­liða frá Rauða kross­inum sem komu og hjálp­uðu mér og þeir unnu gríð­ar­lega gott starf. Það var alveg sama hvort mig vant­aði fólk að degi eða nóttu; alltaf var fólk til­búið til að mæta. Við vissum að þetta væri stór­hættu­legur sjúk­dómur en samt mætti fólkið; það var til­búið til að leggja heilsu sína að veði fyrir aðra sem sýnir í raun hversu náin þessi þjóð er. Og ekki bara þessi þjóð því að þarna vorum við líka að hugsa um erlenda ferða­menn og erlenda gesti og allir fengu sömu með­höndlun sama hvort um var að ræða einn af rík­ustu mönnum heims, sem var á meðal þeirra sem voru hjá okkur, eða hvort um var að ræða heim­il­is­lausan Íslend­ing í fíkni­vanda. Það fengu allir sömu með­ferð og það var komið eins fram við alla. Ég held að það hafi verið lyk­ill­inn að vel­gengni þess­ara húsa að það fengu allir það sama.

Það eru um 400 manns heim­il­is­lausir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og það er mik­ill fjöldi.

Ég hef kynnst hæl­is­leit­endum, eins og ég hef minnst á, og sögu þessa fólks sem er að flýja stríð og hörm­ungar í heima­löndum sínum eins og við sjáum vera að ger­ast núna í Úkraínu. Þetta fólk er að leita sér að lífs­björg í raun­inni. Það var líka eft­ir­minni­legt að kynn­ast ver­öld heim­il­is­lausra og þeirra sem eru í virkri neyslu; þetta er fólk sem hefur fengið litla aðstoð í líf­inu. Heim­il­is­lausar konur eiga erf­ið­ara að mörgu leyti heldur en heim­il­is­lausir karlar. Það eru færri úrræði fyrir þær. Þetta opn­aði augu mín. Það eru um 400 manns heim­il­is­lausir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og það er mik­ill fjöldi. Ég komst að því að fólk sem er í neyslu er ekki að því til þess að kom­ast í ein­hverja svaka­lega vímu heldur til þess að ná jafn­vægi. Forðast frá­hvörf. Það er ekki partí­stemmn­ingin sem rekur það áfram heldur að ná jafn­vægi. Það var til dæmis eitt­hvað sem ég vissi ekki. Þekkti ekki. Þannig að það er ýmis­legt sem maður lærði.“

Gylfi Þór segir að starf sitt í far­sótt­ar­hús­unum hafi gefið sér heil­mikið. „Þetta hefur í raun­inni gefið mér það mikið að ég gæti vel hugsað mér að vinna við þetta áfram næstu tvö ár; ég verð örugg­lega fyrstur manna til að bjóða fram aðstoð ef á þarf að halda í fram­tíð­inni.“

Mér er umhugað um mann­eskj­una.

Hvernig lýsir Gylfi Þór sjálfum sér? „Mér er umhugað um mann­eskj­una. Svo er ég að vissu leyti þannig að ég tek hlut­ina ekki inn á mig þannig að ég á auð­velt með að leið­beina fólki og styðja það vegna þess að ég brotna ekki með því heldur get stutt það áfram. Það er til dæmis mik­ill kostur í þessu starfi sem ég hef verið að sinna en þegar öll sund virð­ast vera lokuð hjá fólki þá þarf ein­hver að vera við hlið þess til þess að rétta það við. Og í þessi tvö ár gat ég verið sá klettur í lífi þess sem er bara mjög gott og ég á eftir að hugsa til þessa tíma lengi með hlýju í hjarta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við