Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Lækjartorg tekur stakkaskiptum: „Tákn fyrir nýja tíma – almannarýmið eitt mikilvægasta verkefnið“

Lækjartorg tekur stakkaskiptum: „Tákn fyrir nýja tíma – almannarýmið eitt mikilvægasta verkefnið“
Tillaga vinn­ings­hafa. Skjáskot/mynd af vef Reykja­vík­ur­borgar.

„Mér fannst svo snjallt að stilla þessu upp sem púsli en þetta púsl hefur ein­fald­lega vantað. Þarna kemur svo margt saman. Mér finnst þessi magn­aða umbreyt­ing borg­ar­innar vera líka tákn fyrir nýja tíma,“ sagði Dagur B. Egg­erts­son á fundi í Ráðhúsi Reykja­víkur í morgun þegar Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra veitti verð­launa­höfum við­ur­kenn­ingar ásamt Degi, borg­ar­stjóra. Þetta kemur fram á vef Reykja­vík­ur­borgar.

Lækj­ar­torg mun taka stakka­skiptum á næstu miss­erum sam­kvæmt til­lög­unni Borg­ara­lind eftir Sp(r)int Studio og Karrens en Brands, sem bar sigur úr býtum í hönn­un­ar­sam­keppni um Lækj­ar­torg og aðliggj­andi gatna­rými.

Sam­keppn­is­svæðið náði yfir Lækj­ar­torg, Lækj­ar­götu frá Hverf­is­götu að Aust­ur­stræti, Aust­ur­stræti frá Lækj­ar­götu að Ing­ólfs­torgi og Banka­stræti frá Þing­holts­stræti að Aust­ur­stræti.

Reykja­vík­ur­borg og Félag íslenskra lands­lags­arki­tekta (FÍLA) efndu til hönn­un­ar­sam­keppn­innar árið 2021 og var aug­lýst eftir til­lögum sem hefðu rými fyrir fólk að leið­ar­ljósi í hönnun. Sam­keppnin var hönn­un­ar­sam­keppni með for­vali og var í tveimur þrepum. Markmið sam­keppn­innar var að fá fram frjóar og áhuga­verðar hug­myndir um hönnun Lækj­ar­torgs og nær­liggj­andi gatna. Ellefu umsóknir bár­ust í for­vali og voru þrjár til­lögur valdar til þátt­töku á síð­ara þrepi.

Mikilvægt að rækta almannarýmið

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ávarp­aði fund­inn eftir kynn­ing­una og sagði að; „Almanna­rýmið væri eitt mik­il­væg­asta verk­efnið sem við eigum saman. Þar komum við öll saman alveg óháð því hver við erum og hvaðan við erum að koma. Þetta er rými þar sem við mæt­umst og kynn­umst öðru fólki. Almanna­rýmið hefur átt undir högg að sækja í borgum víða um heim. Þess vegna er svo mik­il­vægt að við ræktum almanna­rýmið og tryggjum nánd þess við stofn­anir sam­fé­lags­ins,“ sagði hún.

„Ég stend hér sem nágranni Lækj­ar­torgs,“ sagði hún. „Ég hlakka mjög til að sjá þróun þess­arar hug­myndar þar sem unnið er með að umhverfið sé líf­væn­legt, að það sé mann­legt og þarna geti fólki liðið vel en þarna geti fólk líka komið saman og sagt sína skoðun,“ sagði hún.

Djörf, hlýleg og rómantísk tillaga

Það var ein­róma álit dóm­nefndar að til­lagan „upp­fylli flestar áherslur sam­keppn­is­lýs­ing­ar­innar og gefi torg­inu og aðliggj­andi gatna­rýmum nýja vídd og nýtt og spenn­andi hlut­verk í hjarta borg­ar­innar“.

Tillagan þykir vera allt í senn djörf, hlý­leg og róm­an­tísk. „Hún ber með sér hug­mynda­auðgi, sterka fag­ur­fræði­lega sýn, og næmni fyrir umhverfi og stað­ar­anda og lyftir Lækj­ar­torgi upp á spenn­andi og áhuga­verðan hátt. Tillagan nær að flétta saman nútím­ann og sög­una sam­hliða því að styrkja hlut­verk Lækj­ar­torgs sem vett­vang fjöl­breyttra athafna og mann­lífs. Sveigj­an­leiki, leik­gleði og vel útfærð rými á torg­inu fela í sér ótal mögu­leika og tæki­færi fyrir marg­vís­lega við­burða á á öllum árs­tímum,“ segir í umsögn dóm­nefndar.

Tengir saman Stjórnarráðið, Lækjartorg og Bankastræti

Það var vel við hæfi að úrslitin væru kynnt á sam­gön­gufundi Reykja­vík­ur­borgar með yfir­skrift­inni Léttum á umferð­inni 2022 þar sem Borg­ar­línu­stöð verður á Lækj­ar­torgi og ávarp­aði dóm­nefndin þetta í áliti sínu.

„Heild­ar­yf­ir­bragð til­lög­unnar nær á sann­fær­andi hátt að tengja saman Stjórn­ar­ráðið, Lækj­ar­torg og Banka­stræti sem þjónað er af meg­inæð Borg­ar­línu sem kemur til með að liggja eftir Lækj­ar­götu.“

Þar segir enn fremur að gróðri og dval­ar­svæðum sé fléttað þarna saman á áhuga­verðan hátt. Áhersla var lögð í sam­keppn­inni á góðar teng­ingar og útfærslur sem styrkja sam­spil Lækj­ar­torgs við fyr­ir­hug­aða Borg­ar­línu­stöð og aðstöðu henni tengdri.

Dómnefnd á seinna þrepi skip­uðu:

Björn Axelsson, skipu­lags­full­trúi, for­maður dóm­nefndar.

Hjálmar Sveins­son borg­ar­full­trúi.

Orri Stein­ars­son, arki­tekt og skipu­lags­fræð­ingur.

Hlín Sverr­is­dóttir, lands­lags­arki­tekt, FÍLA og skipu­lags­fræð­ingur SFFÍ.

Heba Hertervig, arki­tekt, AÍ.

Verk­efn­is­stjóri og rit­ari sam­keppn­innar var:

Rebekka Guð­munds­dóttir, borg­ar­hönn­uður.

Trún­að­ar­maður dóm­nefndar var Hermann Georg Gunn­laugs­son, lands­lags­arki­tekt, FÍLA.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina