Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Æskuvinkona Viktoríu hágrét í símtali frá Úkraínu: „Hún sagðist ekki vera tilbúin til að deyja“

Æskuvinkona Viktoríu hágrét í símtali frá Úkraínu: „Hún sagðist ekki vera tilbúin til að deyja“
Viktoría Vasi­lynka Alfreðs­dóttir

„Ég er búin að vera voða­lega dauf ef ég á að vera alveg hrein­skilin. Það er hræði­legt að horfa upp á þetta og vera hér og geta ekk­ert gert. Ég er í til­finn­inga­legum rús­sí­bana; ég finn fyrir mik­illi sorg og ég er búin að gráta mjög mikið. Úkra­ínska hjartað mitt er algjör­lega í molum og ég hélt fyrst þegar stríðið braust út að heima­land­inu mínu yrði útrýmt.“

Þögn.

„Ég var alger­lega mátt­laus og mér fannst vera svo sorg­legt að það væri mögu­leiki á því að ég gæti aldrei sýnt börn­unum mínum í fram­tíð­inni hvaðan ég kem. Að þessi partur af mér myndi deyja út. Það er eig­in­lega ekki hægt að lýsa þessu með orðum. Þetta er algert von­leysi; þetta er pínu eins og það sé verið að eyða parti af per­sónu­leika manns. Það er mót­andi í hvaða landi maður elst upp. Það er virki­lega mót­andi. Hugsaðu þér ef Ísland yrði ekki til á morgun,“ segir Viktoría Vasi­lynka Alfreðs­dóttir sem er frá Úkraínu en hún flutti hingað 11 ára gömul með móður sinni sem gift er íslenskum manni.

Þetta hefur bara áhrif á allt.

„Ég á sem betur fer virki­lega gott fólk að og það eru allir búnir að vera að hringja í mig og ég hef fundið fyrir virki­lega góðum stuðn­ingi sem ég er þakk­lát fyrir. Þetta hefur bara áhrif á allt. Ég get ekki hugsað um neitt annað en þetta; sér­stak­lega fyrst þegar ég hafði svo miklar áhyggjur af æsku­vin­konu minni úti. Ég er fegin að hún er komin úr landi. Ég hef líka áhyggjur af öðrum æsku­vinum mínum og ætt­ingjum svo sem afa mínum. Ég er að reyna að finna ein­hverja leið til þess að koma þeim úr landi ef til þess kæmi en svo aftur á móti er komin smá­von í mig um að hlut­irnir gætu lag­ast.“

Ég var með hana hágrát­andi í sím­anum þegar hún sagð­ist ekki vera til­búin til að deyja.

Viktoría seg­ist vera í dag­legum sam­skiptum við fólkið sitt úti – ætt­ingja og æsku­vini. „Þau eru mjög hrædd. Þau eru í vest­ur­hluta lands­ins sem hefur ekki enn verið ráð­ist á. Ég get ekki einu sinni ímyndað mér hvernig fólki líður sem býr á því svæði sem búið er að ráð­ast á. Þetta er allt súr­r­eal­ískt. Það er súr­r­eal­ískt að sjá þessar myndir og mynd­bönd og heyra í fólk­inu mínu en ég er mest búin að vera í sam­skiptum við æsku­vin­konu mína sem bjó í vest­ur­hlut­anum. Þegar ég var að tala við hana fyrstu dag­ana þá heyrði ég í sírenum í gegnum sím­ann sem gáfu til kynna að von væri á loft­árás og það þurftu allir að fela sig í kjall­ara. Ég var með hana hágrát­andi í sím­anum þegar hún sagð­ist ekki vera til­búin til að deyja. Það var auð­vitað hræði­legt fyrir mig að heyra mína bestu æsku­vin­konu tala um svona hluti og auð­vitað bauðst ég til að aðstoða hana eins og ég gæti til að koma henni úr landi. Það tók hana svo­lít­inn tíma til að kom­ast úr landi en hún á ekki bíl og allar sam­göngur eru í hakki. Henni tókst að fá far með ókunn­ugu fólki og er komin til Rúmeníu þar sem sjálf­boða­liðar tóku á móti henni. Hún sagði mér að hún væri virki­lega þakk­lát fyrir allt það góða fólk í Evrópu sem væri til­búið að taka á móti úkra­ínsku fólki og aðstoða það.“

Viktoría og æsku­vin­kona hennar sem flúði til Rúmeníu.

Mikil samheldni

Viktoría segir að kona á sjö­tugs­aldri, vin­kona ömmu sinnar, sem býr í þriggja her­bergja íbúð í miðbæ Ternopil sé búin að opna heim­ili sitt fyrir fólki frá Kiev og aust­ur­hluta lands­ins en þar gista nú um 20 manns. Dóttir hennar býr í tveggja her­bergja íbúð og þar gista nú um 10 manns. Aðrir fjöl­skyldu­vinir hafa sagt frá því hernig þeir eru að mat­reiða mikið magn af mat til að gefa fólki sem leitar skjóls í vest­ur­hluta lands­ins eða er á leið­inni að landa­mærum Póllands.

„Sam­heldnin er mikil og fólk reynir að gera sitt besta við að aðstoða hvert annað. Sumt eldra fólk vill ekki yfir­gefa heim­ili sín. Afi minn, sem er sjö­tugur, býr úti í sveit þannig að hann er aðeins örugg­ari heldur en ef hann byggi í stór­borg; hann býr þar einn og kann ein­göngu úkra­ínsku og rúss­nesku þannig að það yrði erfitt fyrir mann á hans aldri að flýja til nágranna­ríkja þar sem hann skilur engan og eng­inn skilur hann. En hann er virki­lega hug­rakkur og neitar að yfir­gefa heim­ili sitt eins og svo margir. Þegar ég bið hann um að koma til Íslands þá spyr hann mig af hverju hann ætti að yfir­gefa heim­ili sitt þar sem hann hefur búið alla ævi og sem honum þykir vænt um og þar sem hann á vini í kring. Hann þekkir ekk­ert annað.“

Viktoría segir að fólkið hennar úti sé þrátt fyrir allt von­gott um að Úkraína nái að standa þessi átök af sér og að stríð­inu fari að ljúka.

Það verða allir að standa saman og berj­ast.

„Fólk heldur fast í von­ina um betri tíma um að þetta fari að klár­ast. Það er í raun­inni tvennt í stöð­unni: Að gef­ast ekki upp og vona það besta. Það virð­ist vera mik­ill sam­heldni á meðal þjóð­ar­innar og hver ein­asta mann­eskja sem ég tala við í Úkraínu, og ég sé það líka á sam­skipta­miðlum, er sam­mála um að gef­ast ekki upp. Það er ekki í boði. Það verða allir að standa saman og berj­ast. Yngri konur en ég eru farnar á víg­völl­inn og svo er líka þannig mál með vexti að það er verið að senda alla karl­menn til þess að berj­ast þótt að sumir myndu vilja flýja. Mér er búið að líða eins og ég sé að horfa á ein­hverja bíó­mynd sem ger­ist í heims­styrj­öld­inni síð­ari af því að þetta er nákvæm­lega það sama og við höfum séð í bíó: Það er verið að aðskilja fjöl­skyldur sem hitt­ast kannski aldrei aftur. Konur sjá kannski aldrei aftur eig­in­mann sinn, bróður eða son. Það er ekk­ert djók að taka ákörðun um að yfir­gefa heim­ili sitt og vita ekki hvort við­kom­andi snúi aftur eða sjái fólkið sitt aftur.“

Full þjóðarstolts

Viktoría segir að þegar átökin hafi haf­ist hafi hún ekki búist við að Evr­ópu­búar myndu standa svona þétt við bakið á íbúum Úkraínu. „Ég bjóst heldur ekki við að íbúar Úkraínu myndu standa sig svona vel í þessum átökum. Maður hélt að Pútín væri með betri stra­tegíu og betra plan og myndi vinna þetta til­tölu­lega hratt eins og hann sjálfur bjóst við. Hann bjóst við að sigra Úkraínu á einum til þremur dögum. Það var upp­haf­lega planið hans. En það gerð­ist ekki. Þetta er allt mjög sorg­legt og ég er mjög leið yfir þessu en ég er samt full þjóð­arstolts og vonar og í raun­inni ánægð að sjá sam­heldni íbúa Úkraínu vegna þess að þjóðin hefur verið mjög brotin og sund­ur­leit í mjög langan tíma. Ákveðnir menn í rík­is­stjórn­inni hafa verið algjör­lega undir stjórn Pútíns og landið hefur lengi verið í molum og sú upp­bygg­ing sem hefur átt sér stað tekur nátt­úr­lega sinn tíma. Það tekur gríð­ar­lega langan tíma. Það að sjá alla taka sig saman, standa þétt saman og berj­ast fyrir Úkraínu gefur mér von um að þetta land geti einn dag­inn blómstrað. Úkraína er frá­bært land svo sem til að heim­sækja sem ferða­maður. Nattúran er virki­lega fal­leg, það er margt að sjá þarna og margt að upp­lifa og fólkið er mjög gest­risið. Þannig að ég vona inni­lega að Úkraína vinni þetta stríð á end­anum og að hægt verði að byggja upp landið og efna­hag­inn á ný og að úkra­ínska þjóðin fái að blómstra eins og hún á skilið að blómstra.“

Kjarnorkuver í höndum Rússa

Alþjóða­sam­fé­lagið hefur brugð­ist hart við árás Rússa á Úkraínu.

„Mér finnst vera ótrú­lega sorg­legt að rúss­neska þjóðin þurfi að gjalda fyrir þessa ákvörðun Pútíns. Auðvitað eru ein­hverjir sem halda með honum og auð­vitað eru ein­hverjir sem trúa því að það sem hann er að gera sé rétt. En ég trúi því að meiri­hluti Rússa vilji ekki þetta stríð og vilji ekk­ert með þetta hafa. Mér finnst vera ótrú­lega sorg­legt að þetta sak­lausa fólki þurfi núna að fara í gegnum lík­lega stærstu kreppu sem Rússland hefur nokkurn tím­ann séð og ekki nóg með það heldur munu Rússar finna fyrir aðkasti frá öðrum löndum. Auðvitað vona ég að þetta verði ekki svo slæmt en maður veit aldrei. Ég vor­kenni þessum fjöl­skyldum sem sjá á eftir mönnum sínum til Úkraínu sem láta þar lífið en ég veit að upp­lýs­ingar í Rúss­landi um gang mála í Úkraínu hafa ekki verið 100% réttar. Sumar af þessum fjöl­skyldum vissu ekki einu sinni að þessir strákar væru að fara í stríð. Þannig að í raun­inni vor­kenni ég báðum þjóðum mjög mikið.“

Fólk getur ekk­ert gert en ég sé ekki fram á að Pútín muni gef­ast upp af eigin vilja.

Átökin harðna sífellt og fimmtu­dags­kvöldið 3. mars skutu Rússar á stærsta kjarn­orku­ver Evrópu, Zaporizhzhia-kjarn­orku­verið í Úkraínu, svo kvikn­aði í og hafa þeir náð því á sitt vald. Talað hefur verið um kjarn­orku­vopn und­an­farna daga og mögu­lega beit­ingu á þeim. „Það er mjög mikil hræðsla, ekki bara í Úkraínu heldur einnig hér á landi. Staðan er þannig að Pútín er stillt upp við vegg en hann virð­ist vera maður sem hefur ekki lengur neinu að tapa þannig að hann gæti notað kjarn­orku­vopn. Þegar fólk hefur engu að tapa þá er það til­búið til að gera allt. Ég reyni að fylgj­ast með rúss­neskum fréttum og margir í Rúss­landi eru algjör­lega í molum út af ástand­inu. Efna­hag­ur­inn er lamaður og fram­tíðin er virki­lega óskýr. Fólk getur ekk­ert gert en ég sé ekki fram á að Pútín muni gef­ast upp af eigin vilja. Maður vonar að hann noti ekki kjarn­orku­vopn en fyrsta dag­inn hans í Úkraínu tók her­inn yfir Chernobil-kjarn­orku­verið. Af hverju að taka yfir yfir­gef­inn bæ? Ekki nema að Pútín ætli að nota þetta sem ógn í fram­tíð­inni.  Það væri nóg fyrir hann að senda sprengju yfir Chernobil og þá værum við í vondum málum. Maður vonar auð­vitað að þessi saga muni ekki enda svo hræði­lega. Maður vonar að það góða sigri en ég veit ekki hvernig það muni ger­ast á meðan Pútín er á lífi.“

Selenskíj sjálfstæðari

Viktoría fædd­ist í vest­ur­hluta Úkraínu árið 1994 og bjó í sveit fyrstu 11 ár ævi sinnar áður en hún flutti ásamt móður sinni til Íslands árið 2005. For­eldrar hennar höfðu þá skilið og lést faðir hennar fyrir nokkrum árum. Hún seg­ist ekki hafa farið til Úkraínu í um ára­tug heldur hafi ferð­ast annað og til að mynda búið erlendis og verið þar í námi en hún er við­skipta­fræð­ingur að mennt. Móðir Viktoríu gift­ist íslenskum manni sem átti börn fyrir. „Ég á þess vegna íslenska fjöl­skyldu, íslenskan stjúppabba og æðis­leg stjúp­systk­ini. Mér finnst vera æðis­legt hvað þau öll tóku voða­lega vel á móti mér þegar ég kom.“

Aðeins að sögu Úkraínu: „Úkraína öðl­að­ist sjálf­stæði árið 1991 eftir hrun Sov­ét­ríkj­anna og ein­kennd­ust næstu ár af ákveð­inni upp­bygg­ingu í sam­fé­lag­inu. Það voru auð­vitað ennþá mjög miklar leyfar af spill­ingu frá Sov­ét­ríkj­unum og ástæða þess að mamma ákvað að við flyttum til Íslands var að ástandið í Úkraínu var frekar óspenn­andi hvað varðar til dæmis atvinnu­mögu­leika og fram­tíð­ar­tæki­færi. Ég á frá­bærar minn­ingar frá æsku minni í Úkraínu. Þetta er virki­lega fal­legt land og fjöl­breyti­legt og þar er mikið um að vera og fólkið er með frá­bæran húmor. Úkra­ínskt fólk er svo­lítið líkt Íslend­ingum; það er voða­lega dug­legt og sterkt og er stolt af land­inu sínu. Þrátt fyrir alla spill­ing­una og erf­ið­leik­ana þar þá elskar úkra­ínskt fólk Úkraínu og það elskar að búa þar og er til­búið til að gera allt fyrir landið sitt eins og sést núna í þessu stríði.“

Þrátt fyrir að hafa ekki heim­sótt Úkraínu í um ára­tug fylgist Viktoría vel með fréttum þaðan og er í sam­skiptum við ætt­ingja og æsku­vini þar.

En vegna fyrri reynslu hefur Pútín ekki búist við þess­ari mót­spyrnu sem hann er að sjá í dag.

„Líf fólks í Úkraínu er frekar erfitt ennþá. Þetta er búið að vera langt ferli og þetta hefur ekki verið auð­veld leið. Margar rík­is­stjórnir Úkraínu hafa verið eins og strengja­brúður Pútíns en núver­andi for­seti lands­ins, Volodímír Sel­en­skíj, hefur verið mjög sjálf­stæður frá öllu í Rúss­landi og hefur verið að vinna í því að byggja upp landið en auð­vitað tekur þetta langan tíma. Þetta er svo gríð­ar­lega stórt land og svo hefur vestur- og aust­ur­hlut­inn verið klof­inn og það er kannski ástæðan fyrir því hvers vegna Pútín hélt að það yrði svo auð­velt að ráð­ast inn í Úkraínu. Hann hélt að sagan yrði eins og þegar hann réðst inn í Krím­skag­ann árið 2014, en sá hluti var mun hlynnt­ari Rúss­landi, en vest­ur­hlut­inn sem er mjög úkra­ínskur, þannig að þetta var auð­velt. Sömu­leiðis voru við­brögð Evrópu þá lítil sem engin en þess má geta að Krím­skag­inn hefur til­heyrt bæði Úkraínu og Rúss­landi til skiptis eftir því hvenær við lítum í sögu­bæk­urnar og því er erfitt að deila um það hverjum þetta land­svæði ætti að til­heyra í raun og veru. Fyrst og fremst á fólkið sem býr á Krím­skag­anum að velja hvoru landi það vill til­heyra en ég hef heyrt að ánægjan með stjórn Rúss­lands hefur ekki verið mikil meðal íbúa þar eftir að þeir tóku yfir svæðið. En vegna fyrri reynslu hefur Pútín ekki búist við þess­ari mót­spyrnu sem hann er að sjá í dag. Landið var aðeins byrjað að blómstra þegar þetta nýja stríð hófst. Við erum að fara til baka um mörg ár í þeirri veg­ferð.“

Ekki lengur kúl

Viktoría er spurð hvað hún hafi lært af und­an­förnum dögum. „Ég held að það sem ég hafi lært mest af þessu er hvað það er mikið til af góðu fólki. Það hefur komið mér veru­lega mikið á óvart. Það eru bók­staf­lega allir sem ég þekki, bæði hér­lendis og erlendir vinir úr öllum heims­hornum, búnir að hafa sam­band við mig til að sýna mér stuðn­ing og bjóða hjálp­ar­hönd en sím­inn minn hefur ekki stoppað. Evr­ópu­búar og fleiri hafa tekið á móti úkra­ínsku fólki og gefið því mat og húsa­skjól. Ég bjóst alls ekki við þessu af þessum skala.“

Þögn.

„Já, ég held að það sem ég hafi lært af þessu er hvað það er til mikið af virki­lega góðu fólki og líka hvað nútíma­legt sam­fé­lag er til­búið til að sýna kjark og styðja við sann­leik­ann.“ Viktoría vill bæta við að hún hati ekki Rússland. „Ég hata ekki rúss­neskt fólk. Ég kenni því ekk­ert um þetta. Og mér finnst vera leið­in­legt að sak­laust fólk í Rúss­landi þurfi að gjalda fyrir það sem er að ger­ast. Og ég sem úkra­ínsk kona vona að rúss­neskt fólk hér á Íslandi verði ekki fyrir neinu aðkasti. Það fólk er sak­laust. Það getur engu breytt alveg eins og ég get engu breytt. Ég held að það sem þetta stríð kenni okkur sé að vera góð við náung­ann og bera virð­ingu fyrir hvert öðru. Það er ekki lengur kúl að vera ofbeld­is­fullur og leyfa hatri að stjórna sér. Það er ekki lengur málið. Það geta allir hagn­ast af því að vinna saman og vera góðir við hvern annan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við