Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Gunnar var skotinn í hnakkann af hermanni: „Nóg komið af óhappaverkum „verndara“ okkar“

Gunnar var skotinn í hnakkann af hermanni: „Nóg komið af óhappaverkum „verndara“ okkar“
Póst­húsið á Camp Háloga­land

Laug­ar­dag­inn 14. mars árið 1942 gerð­ist sá hroða­legi atburður að amer­ískur her­maður skaut Gunnar Ein­ars­son í hnakk­ann í gegnum bíl­rúðu í bif­reið sem Gunnar var far­þegi í. Gunnar lést af sárum sínum.

Dag­blaðið Verka­mað­ur­inn skrif­aði harð­orða frétt, viku seinna, þann 21. mars enda vakti málið óhug og reiði Íslend­inga um allt land.

„Hroða­legur glæpur.

Amer­ískur her­maður myrðir íslenzkan mann.

S.l. laug­ar­dags­kvöld gerð­ist sá atburður í Sogamýri við Reykja­vík, að amer­ískur varð­maður skaut Gunnar Ein­ars­son, starfs­mann hjá Kol & Salt h.f., til bana, þar sem hann var á ferð, í bíl, með kunn­ingja sínum, Magnúsi Ein­ars­syni, fram­kvæmda­stjóra Dósa­verk­smiðj­unnar.
Fara hér á eftir helstu atriðin úr skýrslu, sem Magnús Ein­ars­son hefir gefið saka­dóm­ara um þetta mál.

Gunnar Ein­ars­son var staddur hjá Magnúsi, á laug­ar­dags­kvöldið, en hann býr að Soga­mýr­ar­bletti 54. Kl. 10.15 ætl­aði Magnús að aka Gunnari heim í bif­reið­inni R 1183, en hún er með hægri handar stýri. Ók Magnús bif­reið­inni, en Gunnar sat við hlið hans. Þeir ætl­uðu að koma við í Lauf­skálum á leið­inni, en þeir liggja við Engjaveg, en að honum liggur
tröðn­ingur frá Suð­ur­lands­braut­inni. Liggur troðn­ing­ur­inn rétt vestan við her­búð­irnar „Háloga­land Camp“, en þar dvelja amer­ískir her­menn. Rétt fyrir norðan þann stað, þar
sem beygt er út af Suð­ur­lands­braut­inni voru þeir stöðv­aðir af amer­ískum varð­manni. Kom hann hægra megin að bílnum — þeim megin er Magnús sat — og inti þá eftir hvert för­inni væri heitið. Svöruðu báðir sam­tímis, en Magnús segir, að hann skilji ekki vel ensku og tók hann því ekki vel eftir, hvað þeim Gunnari og varð­mann­inum fór á milli, en því lauk á þann veg, að varð­mað­ur­inn sagði „all right“ og leyfði þeim að halda áfram. En þegar þeir höfðu ekið um fjórar bif­reiða­lengdir stöðv­aði annar varð­maður þá og kom hann vinstra megin að bílnum — Gunnars megin — og tal­aði við hann. Sögðu þeir þrjár til fjórar setn­ingar hvor, og fór varð­mað­ur­inn síðan frá bílnum, svo ekki var hægt að skilja þetta öðru vísi, en að þeir mættu halda leiðar sinnar með sam­þykki hans. Ók Magnús þá af stað, en þegar hann hafði ekið um 3—4 bíla­lengdir kvað við skot. Áleit hann að það væri þeim óvið­kom­andi, en
stöðv­aði þó bif­reið­ina til vonar og vara. Tók hann þá eftir því að fram­rúða bíls­ins var möl­brotin og í sama mund hné höfuð Gunnars á vinstri öxl hans. Leit hann þá framan í Gunnar og sá, að blóð streymdi úr vitum hans, og þegar hann þreif­aði á höfði hans fann
hann skotsár á hnakk­anum. Fór Magnús strax úr bílnum, en í því bili kom hópur Banda­ríkja­her­manna þarna að og tóku þeir Gunnar út úr bílnum. Virtist Magnúsi hann þá lát­inn, en hann mun ekki hafa and­ast fyr en um klukkan 3 um nótt­ina.

Þessi atburður hefir vakið hryll­ing og við­bjóð um allt land. Ameríski her­inn hefir áður framið hér óhæfu­verk, en nú er gengið feti framar og virt­ist mönnum þó áður nóg komið af óhappa­verkum „vernd­ara“ okkar. Enginn íslend­ingur fær skilið, að amer­íska hernum sé nauð­syn­legt að myrða íslenska menn til þess að vernda öryggi amer­íska hers­ins. Vér fáum ekki séð, að öryggi amer­íska hers­ins sé stefnt í hættu, þó látið sé vera að beita skot­vopnum gegn vopn­lausum Islend­ingum. Reynsla bretska setu­liðs­ins hér á landi bendir ekki til þess að nauð­syn­legt sé að beita glæpa­manna­að­ferðum í umgengni við þá menn, sem eru undir „vernd“ ensku og amer­ísku setu­lið­anna. Það væri betur, að amer­íski her­inn sýndi meiri dugnað, í bar­átt­unni gegn Japönum, en að skjóta vopn­lausa íslend­inga aftan
frá. Slíkur atburður, sem þessi má ekki end­ur­taka sig. íslenska þjóðin krefst þess, að gerðar verði taf­ar­laust ráð­staf­anir til að tryggja að slíkt end­ur­taki sig ekki. Rík­is­stjórnin verður að halda fast og sköru­lega á rétti íslend­inga í þessu máli, og ekki láta þann mál­flutn­ing niður falla fyr en trygt er að amer­ísku her­menn­irnir komi fram í við­skiftum sínum við íslend­inga,
sem full­trúar sið­menn­ing­ar­þjóðar en ekki sem fyr­ir­lit­legir glæpa­menn. Á þann eina hátt verður best borgið öryggi íslend­inga og öryggi og sæmd amer­íska hers­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina