Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segir Ísland hvorki varið fyrir innrás né hryðjuverkum – Ekki þörf á her með fasta setu á Íslandi

Segir Ísland hvorki varið fyrir innrás né hryðjuverkum – Ekki þörf á her með fasta setu á Íslandi
Samsett mynd. Jónsson, fyrr­ver­andi sendi­herra og sér­fræð­ingur í varn­ar­málum. – Mynd: Vilhjálmur Þór Guðmundsson / RÚV. Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur. Mynd. VÍSIR

Yfir milljón Úkra­ínu­manna eru nú land­flótta og ótt­ast er að jafn­vel nokkrar millj­ónir í við­bót flýji land á næstu vikum. Stríðið í Úkraínu hefur nú staðið yfir síðan 24. febr­úar. Tólf dagar eru nú liðnir síðan rúss­nesk stjórn­völd sendu her sinn inn í landið.

Skiptar skoð­anir eru um það hvernig smá­ríkið Ísland með land­fræði­lega mik­il­væga stöðu á milli stór­veld­anna Banda­ríkj­anna og Rúss­lands með ein­huga stuðn­ingi við Úkraínu stað­setji sig á alþjóða­vett­vangi í ljósi aðstæðna. Þurfa Íslend­ingar að hafa áhyggjur að því að stríðið ber­ist til Íslands og ef svo eru við und­ir­búin fyrir það eða er þess óþarfi?

Ísland hvorki varið gegn innrás né hryðjuverkjum

Baldur Þór­halls­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði segir að Íslend­ingar verði nú að taka umræð­una um hvort sér­stakar varn­ar­sveitir hafi við­veru á örygg­is­svæð­inu á Kefla­vík­ur­flug­velli, í ljósi stríðs í Evrópu. Ísland sé hvorki varið fyrir alls­herj­ar­inn­rás né sér­tækum hryðju­verka­árásum.

„Ég held að það sé mjög mik­il­vægt núna á þessum tímum að við hugum að því hvernig við styrkjum varnir lands­ins. Mér finnst það hafa gleymst dálítið í umræð­unni almennt í hinum vest­ræna heimi: Mik­il­vægi fæl­ing­ar­innar. Að fæla óvina­sveitir frá því að ráð­ast á ríki,“ sagði Baldur Þór­halls­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, í Reykja­vík síð­degis á Bylgj­unni í gær.

Baldur birti í gær pistil á Facebook sem vakti tals­verða athygli. Þar veltir hann upp spurn­ingum um örygg­is­mál smá­ríkja, sér­stak­lega þeirra sem ekki hafa her eins og Ísland, og varn­ar­samn­inga við banda­lags­ríki. Hann segir fæl­ing­una grund­völl í varn­ar­stefnu og grund­völl að friði: Að tryggja að ekki verði gripið til vopna.

„Að sjálf­sögðu er aðild Íslands að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu sem og varn­ar­samn­ing­ur­inn við Banda­ríkin mik­il­væg­asta tækið til fæl­ingar. En það sem vantar er mik­il­vægi þriðji þátt­ur­inn í þetta að það eru varnar- eða örygg­is­sveitir á örygg­is­svæð­inu í Keflavík sem eru ekki lengur til staðar,“ segir Baldur í Reykja­vík síð­degis.

Albert Jónsson fyrr­ver­andi sendi­herra og sér­fræð­ingur í utan­ríkis- í varn­ar­málum segir í við­tali við Speg­il­inn að hern­að­ar­á­ætlun Rússa virð­ist, litið yfir landið í heild, óbreytt.  Þeir ætli sér að sitja um höf­uð­borg­ina Kænugarð, en hern­að­ur­inn hafi gengið hægar en búist var við.

Ekki þörf á herliði með fasta viðveru hér á landi

„Rússar ætla sér að ná tökum á Úkraínu, hafa þar öll tögl og haldir“ segir Albert í við­tali við Kristján Sig­ur­jóns­son á RÚV.

„Þeir eru búnir að umkringja nokkrar borgir. Þeir ætla að setja Zelenskí og stjórn hans í þá stöðu að annað hvort gef­ist hún upp, eða að það verði barist um höf­uð­borg­ina og hún lögð í rúst. Í grunn­inn hefur rúss­neski her­inn mikla yfir­burði í þessu stríði“ segir Albert.

Albert segir ekki þörf á her­liði með fasta við­veru hér á landi í núver­andi stöðu heims­mála. Ísland sé aðili að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og Íslend­ingar eigi sam­eig­in­lega hags­muni með Banda­ríkj­unum, sem sæju hag í að verja Ísland , ef til þess kæmi að átökin í Úkraínu yrðu kveikjan að heims­styrj­öld.  Albert segir að hún sé ekki á leið­inni.

Eina ógnin og eina hernaðarhlutverkið sem Ísland myndi hafa

„Það er engin hern­að­ar­leg ógn sem steðjar að Íslandi fyrr en til stór­velda­styrj­aldar kæmi, sem þá næði til Norð­ur­hafa því Kefla­vík­ur­flug­völlur myndi hafa stuðn­ings­hlut­verk við sókn­ar­að­gerðir gegn Rúss­landi í Norð­ur­höfum og auð­vitað yrði Kefla­vík­ur­flug­völlur skot­mark í því sam­hengi. En eins og ég segi, þetta er eina ógnin og eina hern­að­ar­hlut­verkið sem Ísland myndi hafa í slíkum átökum“.

Við eigum sameiginlega hagsmuni með Bandaríkjunum

Er þá ekki þörf á her­liði með fasta setu hér?

„Nei greini­lega ekki að áliti Banda­ríkj­anna sjálfra sem fóru fyrir mörgum árum og eru ekki á leið­inni til baka. Menn mega ekki gleyma því að örygg­is­trygg­ing Íslend­inga, ef menn skoða sög­una frá 1941, hún liggur í því að við eigum sam­eig­in­lega hags­muni með Banda­ríkj­unum“.

„Um leið og Banda­ríkin telja að þeim eða vest­ur­hveli sé ógnað á Atl­ants­hafi, annað hvort frá stór­veldi á meg­in­landi Evrópu, eða eftir ein­hverja ára­tugi stór­veldi frá Norð­ur­slóðum, þá koma Banda­ríkin. Það eru þjóðar­ör­ygg­is­hags­munir Banda­ríkj­anna, þeir tengj­ast mjög náið Íslandi, ef það stendur ógn að þeim“ segir Albert Jónsson.

Gæslusveitir NATO-ríkjanna ekki varnarsveitir

Baldur segir hins vegar að und­an­far­inn einn og hálfan ára­tug, frá því að Banda­ríkin hættu hern­að­ar­við­veru sinni hér á landi, hafa banda­lags­ríki NATO auk Svía og Finna skipst á að halda hér úti loft­rým­is­gæslu auk þess sem kaf­báta­leit­ar­sveitir hafa komið hingað í auknum mæli til að fylgj­ast með ferðum rúss­neskra kaf­báta um landið.

„Þessar sveitir eru hér svo oft og eru svo tíðar á örygg­is­svæð­inu að nán­ast er um fasta við­veru að ræða. En það er tví­skinn­ungur í því að geta ekki kallað það fasta við­veru. Það má ekki nefna það í eyrum stjórn­mála­manna af ein­hverjum orsökum. Til við­bótar við það, sem er kannski ennþá mik­il­væg­ara, eru þessar sveitir ekki varn­ar­sveitir,“ segir Baldur.

Mik­il­vægur munur sé þar á.

„Þessar sveitir eru að líta eftir flug­vélum og kaf­bátum ef það kæmi til þess, sem við svo sann­ar­lega vonum að verði ekki, að hér yrði til dæmis lítil hryðju­verka­árás eða lítil árás á landið. Þessar sveitir, sem eru með loft­rým­is­gæslu, eða kaf­báta­sveitir þær koma okkur ekki til bjargar. Til þess þarf sér­staka sveit kvenna og manna til að bregð­ast við svona aðstæðum og það er ekki til staðar,“ segir Baldur.

Utanríkisstefna Sjálfstæðisflokksins ræður för

Hann segir að í gegn um tíð­ina hafi verið litið niður á umræðu um þessi mál. Fólk vilji ekki taka um þetta sam­talið, sem hann segir nauð­syn­legt.

„Ég hef upp­lifað það í gegn um tíð­ina að þegar maður fer að tala um að við þurfum að hugsa að því hvað gerum við ef hér verður hryðju­verka­árás þá byrja eig­in­lega allir að sussa á mann. Við erum við­kvæm almennt fyrir þess­ari umræðu vegna þess að við erum her­laus, við erum ekki vön að ræða þessi mál og lifum til­tölu­lega frið­sam­lega þannig að við erum óvön þess­ari umræðu,“ segir Baldur.

Þessi afstaða ein­skorð­ist þó ekki við almenna umræðu heldur hafi þessi mál verið við­kvæm í íslenskum stjórn­málum.

„Aðildin að NATO, varn­ar­samn­ing­ur­inn við Banda­ríkin og vera hers­ins var helsta deilu­mál hér í ára­tugi. Núna erum við með þessa athygl­is­verðu rík­is­stjórn, sam­starf Sjálf­stæð­is­flokks­ins og VG sem gerir það að verkum fyrir báða flokka að ræða þessi mál og halda fram sínum sjón­ar­miðum. En það er klár­lega utan­rík­is­stefna Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem ræður för  í rík­is­stjórn­inni og samið um það í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum,“ segir Baldur.

Ósammála því að Ísland yrði frekar skotmark ef hér væri herstöð

Hann seg­ist þá ekki sam­mála þeim sem telji að Ísland yrði frekar skot­mark ef hér yrði var­an­leg her­stöð, eins og sumir telji.

„Ég er ekki sam­mála því og í raun­inni segja alþjóða­stjórn­málin, fræðin og stjórn­mála­fræðin það að lítil ríki eins og við, við getum ekki varið okkur. Við getum ekki varist alls­herj­ar­inn­rás og ekki einu sinni tak­mark­aðri hryðju­verka­árás.“ segir Baldur.

„Við þurfum á aðstoð utan­að­kom­andi aðila að halda ef á okkur verður ráð­ist og það er orðið of seint að kalla til aðstoðar og gera svona samn­inga ef við erum lent í átökum. Það verður að gera svona samn­inga á frið­ar­tímum þegar minnst þörf er á því en þá þarf einmitt að stíga niður og gera það.“

Engin bráð hætta sé til staðar á Íslandi 

Hann telur að nú sé rétti tím­inn til að ræða þessi mál og nú verði að gera það mjög opin­skátt og af vilja til að hlusta á allar hliðar.

„Bæði hvort sé þörf er á þessu og það er fleira sem ég myndi vilja ræða. Við þurfum líka að ræða að banda­menn okkar komi til aðstoðar ef það verður netárás á landið, ég vil líka sjá umræðu um hvernig eigi að verja sæstreng­ina sem liggja hér til lands,“ segir Baldur og nefnir að ef óvina­herir myndu vilja ein­angra okkur á Íslandi þyrfi ein­ungis að klippa á sæstreng­ina tvo sem liggi til lands­ins.

„Mér skilst að þá geti heim­il­is­tölv­urnar okkar ekki einu sinni virka, þær verða þá ekki tengdar net­inu. Hvernig ætlum við að verj­ast þessu? Hvernig ætlum við að fá aðstoð ef það er klippt á þessa strengi?“ spyr Baldur.

„Við þurfum líka að ræða hverjir geti komið okkur til aðstoðar með byrgða­flutn­inga og fólks­flutn­inga ef kæmi til átaka.“

Hann seg­ist alls ekki vilja að Ísland drag­ist inn í stríð Úkraínu og Rúss­lands og tekur fram að engin bráð hætta sé til staðar á Íslandi.

„Það er hins vegar alla tíð mik­il­vægt að ræða þessi mál svo það sé hægt að fyr­ir­byggja að eitt­hvað ger­ist og nota fæl­ing­una til að verj­ast frekar en að þufa að grípa sjálf til vopna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við