Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Tvítugur maður hvarf sporlaust frá skemmtistað í Reykjavík – Sást síðast á Reykjavíkurflugvelli

Tvítugur maður hvarf sporlaust frá skemmtistað í Reykjavík – Sást síðast á Reykjavíkurflugvelli

Þann 21.nóv­em­ber árið 1987 hvarf rúm­lega tví­tugur maður spor­laust frá skemmti­staðnum Hollywood við Ármúla í Reykja­vík.

Guð­mundur Finnur Björns­son var fæddur í Beru­nes­hreppi 19.nóv­em­ber árið 1967, yngstur sjö systk­ina. Guð­mundur var mik­ill áhuga­maður um bíla og önnur far­ar­tæki, hann flutti því til Reykja­víkur og byrj­aði að sækja nám í bif­véla­virkjun. Hann laum­að­ist stundum inn á Reykja­vík­ur­flug­völl til að skoða flug­vél­arnar enda þótti honum gaman að rann­saka ýmis tæki.

Fór að skemmta sér

Guð­mundur bjó hjá systur sinni við Tjarna­götu 10 í Reykja­vík. Þan 21.nóv­em­ber árið 1987, tveimur dögum eftir tví­tugs­af­mælið, fór hann með bróður sínum og vini að skemmta sér á staðnum Hollywood við Ármúla. Félag­arnir fóru saman með leigu­bíl en þegar á leið­ar­enda varð Guð­mundur eftir til að greiða leigu­bíl­stjór­anum farið en hinir tveir fóru í röð­ina fyrir utan skemmti­stað­inn. Þegar Guð­mundur hafði greitt farið, ætl­aði hann sér að skjót­ast inn í röð­ina þar sem bróðir hans og vinur voru en var ein­her ósáttur við að Guð­mundur ætl­aði sér fram fyrir. Hann fór þá aft­ast í röð­ina, enda var Guð­mundur þekktur fyrir að vera rólyndur og ljúfur maður.

Hvarf úr röð­inni

Ekki er vitað hvað Guð­mundur beið lengi í röð­inni en hann fór aldrei inn á skemmti­stað­inn, að óljósum ástæðum yfir­gaf hann röð­ina og gekk í gegnum Hlíð­ar­hverfið og að Reykja­vík­ur­flug­velli. Þar fór hann inn á svæði sem ekki var ætlað almenn­ing og þegar slökkvi­liðs­maður á vakt tók eftir Guðmundi fór hann á eftir honum og vís­aði honum út af svæð­inu. Þetta var um klukkan tvö að nóttu og sagði slökkvi­liðs­mað­ur­inn sam­skipti þeirra hafa verið á góðan máta, Guð­mundur hafi kvatt hann og gengið í átt að Öskju­hlíð.

Sást síð­ast á Flug­vell­inum

Slökkvi­liðs­mað­ur­inn á flug­vell­inum var sá síð­asti til að sjá Guðmund. Umfangs­mikil leit var gerð að honum og var spor­hundur feng­inn til að rekja ferðir hans. Hund­ur­inn rakti lykt Guðmunds frá skemmt­staðnum og að flug­vell­inum en missti þá slóð­ina. Umsjón­ar­manni hunds­ins þótti furðu­legt að slóðin tap­að­ist svo skyndi­lega en hann sagði það þó geta haft aðrar útskýr­ingar en að eitt­hvað sak­næmt hafi átt sér stað.

Telja hann ekki hafa horfið sjálf­vilj­ugur

Aldrei kom í ljós fyrir vissu hvað varð um Guðmund, fjöl­skylda hans telur þó lík­legt að hann hafi orðið fyrir óhappi eða hrein­lega verið myrtur og líki hans komið fyrir ein­hvers­staðar. Fjöl­skyldan segir að mið­ill hafi sagt þeim að Guð­mundur muni finn­ast einn dag­inn en að þau fái aldrei að vita hvað hafi komið fyrir hann.

Þrátt fyrir mikla leit um allt höf­uð­borg­ar­svæðið fannst Guð­mundur ekki, né neitt sem gæti sagt til um ferðir hans. Þeir sem þekktu hann segja úti­lokað að hann hafi horfið sjálf­vilj­ugur eða endað líf sitt en lög­reglan hefur þó aldrei haft ástæðu til að líta á hvarf hans sem saka­mál. Guð­mundur var að lokum úrskurð­aður lát­inn árið 1995.

Guð­mundur var grannur, ljós­hærður og 182 sentí­metrar á hæð, hann not­aði gler­augu.

Heimild: Saknað, Íslensk manns­hvörf eftir Bjarka H. Hall

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina