Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

SÖFNUN – Fjölskylda frá Úkraínu komin til Íslands: „Samviskubit að vera í örygginu á Íslandi“

SÖFNUN – Fjölskylda frá Úkraínu komin til Íslands: „Samviskubit að vera í örygginu á Íslandi“
Flótta­fólk á Íslandi. Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint.

Mannlífi barst frétt af komu fjöl­skyldu til Íslands frá Úkraínu vegna inn­rásar Rússa á Úkraínu. Olena sem kom til lands­ins árið 2012 frá Úkraínu og hefur komið sér vel fyrir á Íslandi hefur tekið á móti fjöl­skyld­unni. Hún hefur í kjöl­farið sett af stað söfnun, hægt er að sjá styrkt­ar­síðu hér að neðan.

Jón Ein­ars­son skrif­ar­fyrir hönd Olenu og Önnu.

„Ég er að skrifa fyrir hönd lít­illar fjöl­skyldu frá Úkraníu sem flest komu til lands­ins fyrir nokkru síðan. Olena kom til lands­ins 2012 og varð íslenskur rík­is­borg­ari 2012. Dóttir hennar, Anna, kom svo árið 2014 og er núna heima­vinn­andi með eins árs dóttur sína og eig­in­manns hennar Vlayslav. Raisa, móðir Olenu, kom svo til lands­ins síð­asta haust. Svitlana móðir Vla­dyslav náði að flýja stríðið og kom til lands­ins 1. mars síð­ast­lið­inn. Olena og Vla­dyslav starfa hjá Costco.

Það eru ýmsar til­finn­ingar sem bær­ast með þeim sem eru fæddir í Úkraníu og hafa alist þar upp öll eða mest öll sín ár. Sam­visku­bitið sem felst í því að vera hér í örygg­inu á Íslandi og taka ekki þátt í stríð­inu með beinum hætti er svo sann­ar­lega fyrir hendi, þá má finna bit­urð margra sem eru að berj­ast fyrir land­inu gagn­vart þeim sem hafa flúið og ang­ist þeirra sem sem eru að reyna að skapa sér líf í fjar­lægu landi en upp­lifa ástandið með augum ætt­ingja og vina sem enn eru þarna. Frá morgni til kvölds er stöðugt reynt að vera í sam­bandi við ætt­ingja og vini, það er einnig mjög erfitt að fylgj­ast ekki með fréttum í öllum sínum vöku­tíma þess á milli. Sjálfs­á­sökun þeirrar sem náð að flýja er sár og nag­andi, sem bæt­ist ofan á hræðsl­una við að hafa þurft að skilja allt eftir í heima­land­inu og hefja nýtt líf á fram­andi slóðum með til­heyr­andi óvissu.

Saga Rúss­lands og Úkraníu er sam­tvinnuð og það búa margir ein­stak­lingar hvorrar þjóðar hinum megin landamær­anna og eiga þar vini og fjöl­skyldu. Enn­fremur eru rúss­neskir vinir sem hafa fórnað eigum sínum í Rúss­landi við mót­mæli gegn rúss­neskum yfir­völdum. Það eru sögur af sárum vinslitum og einnig fal­legar sögur af rúss­neskum vinum sem hafa lagt mikið í söl­urnar til að aðstoða vini sína frá Úkraníu. Anna og Olena eru reiðu­búnar að deila þess­ari hlið stríðs­ins með ykkur, þeirri hlið sem er ekki í meg­in­straumi frétt­anna.

Olena hefur sett upp facebook síðu, þar sem til­gang­ur­inn er að aðstoða ein­stak­linga með beinum fram­lögum hvað snertir mat, lyf og far­gjald yfir landa­mæri. Það eru engar veru­legar fjár­hæðir lagðar fram til stakra ein­stak­linga eða fjöl­skyldna, heldur er mark­miðið að hjálpa sem flestum. Það er ekki hægt að hjálpa öllum, en það er hægt að hjálpa sumum. Gerð verður grein fyrir öllum milli­færslum á facebook síð­unni og end­ur­skoð­andi mun fara yfir að fjár­fram­lög hafi verið milli­færð á nafn­greinda ein­stak­linga. Olena og Anna vilja gjarnan fá að kynna síð­una sam­hliða við­tali, hafið þið áhuga á slíku. Þegar öllu er á botn­inn hvolft þá er stríð ekk­ert annað en hörm­ungar þeirra sem lifa það og saga þeirra, það er sú saga sem of sjaldan er sögð.

Hér er styrkt­ar­síðan:

https://www.facebook.com/zablocka2772

Hér eru facebook síður Önnu og Olena:

https://www.facebook.com/zablocka27

https://www.facebook.com/annadymaretska

F.h. Olenu og Önnu,

Jón Ein­ars­son

https://www.facebook.com/joneina/“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina