Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

SÖFNUN – Pétur fékk tvö alvarleg heilablóðföll: „Þessi harmleikur var mikið reiðarslag“

SÖFNUN – Pétur fékk tvö alvarleg heilablóðföll: „Þessi harmleikur var mikið reiðarslag“
Pétur vill ná sér að fullu Mynd: Facebook – skjáskot

Fjöl­skylda Péturs safnar nú fyrir krafta­verka­sprautu í Banda­ríkj­unum eftir að Pétur fékk tvö alvar­leg heila­blóð­föll. Missti hann for­ræðið yfir börnum sínum tveimur vegna veik­ind­anna en stefnir á að ná sér að fullu aftur, svo hann geti verið til staðar fyrir börnin.

Pétur Dan­í­els­son hefur ekki átt auð­velda ævi. Hann fædd­ist með mjög alvar­legan hjarta­galla fyrir 27 árum og neydd­ist hann til að fara í sinn fyrsta upp­skurð aðeins 12 klukku­stundum eftir að hann kom í heim­inn. Nýlega fékk Pétur tvö alvar­leg heila­blóð­föll og var hætt kom­inn á tíma­bili. Lamaðist hann á hægri síðu og var í hjóla­stól fyrstu vik­urnar og átti mjög erfitt með að tala og tjá sig. Þurfti hann að læra allt uppá nýtt.

Litla systir Péturs, Lena Dav­íðs­dóttir skrif­aði á dög­unum færslu á Facebook þar sem hún segir frá raunum bróður síns og biður fólk um að styrkja hann. Lena gaf Mannlífi góð­fús­legt leyfi til að birta færsl­una í heild sinni.

„Kæru vinir, vanda­menn, fjöl­skylda og allir sem þetta kunna að lesa:

Okkur langar að biðja ykkur um hjálp fyrir hann elsku Pétur okkar. Frá unga aldri hefur lífs­leið Péturs ávallt verið þakin þyrnum, en hann fædd­ist með mjög alvar­legan hjarta­galla og aðeins tólf tímum eftir að hann kom í heim­inn þurfti hann að leggj­ast undir skurð­hníf­inn og fara í sína fyrstu aðgerð; þá næstu þegar hann var aðeins tveggja daga gam­all. Þrátt fyrir allan þennan við­búnað þá dugðu úrræðin ekki til og þegar Pétur var eins árs gam­all þá fluttum við fjöl­skyldum til Lund í Svíþjóð þar sem hann fór í þrjár stórar hjarta-aðgerðir sem þýddi það að sín fyrstu ár þá bjó Pétur meira og minna upp á spít­ala og var það með öllu óvíst hvort hann myndi hrein­lega lifa þessi ósköp af.Vegna veik­inda sinna upp­lifði Pétur ekki sömu æsku og flest börn á hans aldri. Hann hefur þurft að taka lífs­nauð­syn­leg lyf dag­lega, alla ævi og hafa veik­indin einnig haft áhrif á náms­getu og skóla­göngu hans. Ásamt því er Pétur með stór ör eftir aðgerð­irnar sínar, bæði frá bringu niður á nafla og annað sem nær yfir á mitt bakið.Í sept­em­ber árið 2020 lenti Pétur í enn annarri martröð­inni og þurfti að berj­ast fyrir líf­inu sínu aftur. Aðeins 27 ára gam­all fékk hann mjög alvar­legt heila­blóð­fall og fannst hann á gólf­inu heima í stofu eftir að hafa fengið blóð­tapppa í höf­uðið. Pétur var lagður inn á gjör­gæslu­deild þar sem hann fær hjálp en mán­uði síðar fær hann annað mjög stórt heila­blóð­fall meðan hann liggur enn á spít­ala.Hann er strax lagður inná gjör­gæslu aftur og við fjöl­skyldan erum log­andi hrædd um að hann sé að fara frá okkur en þökk risa krafta­verki þá lifði hann sem betur fer af.Pétur lam­að­ist á hægri síðu og var í hjóla­stól fyrstu vik­urnar og átti mjög erfitt með að tala og tjá sig. Þarna þurfti hann að læra allt uppá nýtt. Eitt hænu­skref í einu. Þessi harm­leikur var mikið reið­ar­slag fyrir bæði Pétur og okkur öll, og er hann nú búinn að vera í langri end­ur­hæf­ingu sem hefur sem betur fer gengið ágæt­lega en hann var mjög lengi að ná að getað gengið aftur og hann haltrar enn og er með haml­aða hreyfi­getu.Pétur er tveggja barna faðir og í kjöl­far þess­ara hremm­inga þá missti hann for­ræði sitt yfir þeim sem er alveg ömur­legt fyrir hann og börnin hans. Hann Pétur okkar er hörku­tól og hann þráir ekk­ert heitar en að getað lifað eins eðli­legu lífi og hægt er og koma sér aftur í gang og fyrra horf og vera til staðar fyrir börnin sín og sjálfan sig.Þegar við heyrðum af því að það væri til sprauta, sem hægt er að fá í Banda­ríkj­unum, sem væri að gera krafta­verk fyrir fólk sem hefur lent í því að fá alvar­leg heila­blóð­föll og hjálpa þeim að ná góðum bata, að þá langar okkur að gera allt sem við getum til að gefa Pétri tæki­færi á að kom­ast út og fá þessa sprautu til að hann geti kom­ist í fyrra horf.Ef ykkur langar til að rétta fram hönd til hjálpar Pétri þá er það hægt að gera með styrk í gegnum eft­ir­far­andi reikn­ing:

Kt: 150694-3029

Reikn­ings­númer: 0537-14-400623

Margt smátt gerir eitt stórt og viljum við þakka öllum kær­lega fyrir sem bæði tóku sér tíma til að lesa þennan pistil og jafn­framt þeim sem leggja hönd á plóg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina