Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Upplifun samkynhneigðra karla: „Þú þarft að vera hvítur til að vera gay á Íslandi“

Upplifun samkynhneigðra karla: „Þú þarft að vera hvítur til að vera gay á Íslandi“

„Þú þarft að vera hvítur til að vera gay á Íslandi“. Upplifun sam­kyn­hneigðra karla af asískum upp­runa af stöðu sinni sem hluti af tveimur jað­ar­hópum er heitið á fyr­ir­lestri Hjörvars Gunn­ars­sonar og Jóns Ingva Kjarans í fyr­ir­lestr­ar­röð Hinsegin Ísland í alþjóð­legu sam­hengi sem var haldin í sam­starfi RIKK – Rann­sókna­stofn­unar í jafn­rétt­is­fræðum við Háskóla Íslands og Jafn­rétt­is­skól­ans (GRÓ-GEST) nú á vormiss­eri 2022.

Í kjöl­far umræðu undir merkjum #BlackLivesMatter hefur hör­unds­dökkt hinsegin fólk stigið fram og sagt sögur sínar af ras­isma og for­dómum. Fyr­ir­lest­ur­inn þeirra byggir á við­tals­rann­sókn á reynslu sam­kyn­hneigðra karla af asískum upp­runa. En í rann­sókn þeirra virð­ist ras­ismi og öráreiti vera gegn­um­gang­andi þemu í frá­sögn­unum, þar sem greint er frá jað­ar­setn­ingu og úti­lokun á grund­velli tungu­máls og þess að vera ekki hvítur.

Í erind­inu var áhersla lögð á að draga fram hvers kyns ras­ismi og hvernig hann á sér und­ir­rót í kerf­is­lægum þáttum sem ýta undir for­rétt­inda­stöðu hvítra. Þá gerðu þeir grein fyrri fyrir hug­tökum á borð við hinsegin þjóð­hverfu (e. homonationalism) og (hinsegin) hvít­leika (e. queer whiteness) og þau notuð til að varpa ljósi á og greina gögnin.

Fyrr­nefnda hug­takið lýsir því hvernig ákveðnir hópar innan hinsegin sam­fé­lags­ins – hvítt sam­kyn­hneigt fólk úr milli­stétt – hafa fengið við­ur­kenn­ingu sem hluti af þjóð­inni. Það síð­ar­nefnda dregur svo fram hvernig veru­leiki hinsegin fólks af öðrum upp­runa mót­ast af hvítum við­mið­unum og gildum sem svo ýta undir for­rétt­inda­stöðu þeirra sem telj­ast vera hvítir.

Í fyr­ir­lestr­inum kom fram hvernig tungu­málið virð­ist við­halda til­teknum valda­af­stæðum en við­mæl­endur virt­ust gera sér grein fyrir því að til­vera þeirra mót­ast af tungu­mál­inu, íslensk­unni, bæði á grund­velli kyn­hneigðar og upp­runa. Vegna útlits og erlends upp­runa höfðu við­mæl­endur reynslu af fram­komu sem skýra má sem öró­gild­ingu jafn­framt sem þeir upp­lifðu fór­dóma á grund­velli kyn­þáttar síns. Lýsa þeir því hversu erfitt það getur verið að vera öðru­vísi í hinsegin sam­fé­lag­inu á Íslandi eða eins og tit­ill erind­is­ins bendir til: „Þú þarft að vera hvítur til að vera gay á Íslandi.“

Hjörvar Gunn­ars­son er kenn­ari við Brekku­bæj­ar­skóla og byggir erindið á loka­verk­efni hans til M.Ed.-prófs við mennta­vís­inda­svið Háskóla Íslands undir leið­sögn Jóns Ingvars. Jón Ingvar Kjaran er pró­fessor í hinsegin mennt­un­ar­fræðum og félags­fræði mennt­unar við Mennta­vís­inda­svið Háskóla Íslands. Rann­sóknir hans fjalla um mál­efni hinsegin ung­menna, inn­flytj­endur, ofbeldi í víðum skiln­ingi, krítísk fræði og fjöl­menn­ingu. Um þessar mundir vinnur hann að bók um hinsegin aðgerð­ar­sinna í Indónesíu og Malasíu ásamt dr. Mohammad Naeimi.

Hægt er að hlusta á fyr­ir­lest­ur­inn í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina